Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1989. 3 Fréttir Vinnuveitendur krefjast fundar með forsætisráðherra: Ríkisstjórnin hefur ekki efnt loforðin - krafist efnda áður en næstu kjarasamningaviðræður hefjast Unnið að undirbúningi ævintýrisins og árangurinn er greinilegur. DV-mynd Garðar Akranes: Ævintýri undirbúið Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: Vinnuveitendasambandið, Félag iðnrekenda og Samtök fiskvinnslu- stöðva hafa sent Steingrími Her- mannssyni bréf þar sem þessi sam- tök átelja harðlega að ríkisstjómin skuli ekki tryggja viðunandi sam- kepnnisstöðu útflutningsgreinanna eins og ráðherrar hétu í tengslum við kjarasamninga. í bréfinu segir að nauðsynlegt sé að staðið verði við efndir frá samningunum frá í vor áður en hægt sé að ganga til nýrra samninga. Forystumenn vinnuveitenda segja að þrátt fyrir að þrír mánuðir séu liðnir af átta mánaða samningstíma séu atvinnuvegirnir enn reknir með tapi. Þó mat Þjóðhagsstofnunar á taprekstri fiskvinnslunnar sé lægra en mat Samtaka fiskvinnslunnar sé ekki um það deilt að þessi grein sé rekin með tapi. í tengslum við kjara- samninga í vor hafi það komið skýrt fram í viðtölum fulltrúa vinnuveit- enda við ráðherra ríkisstjórnarinnar að „viðunandi" samkeppnisstaða væri taplaus rekstur. Fulltrúar vinnuveitenda skora því á Steingrím Hermannsson og ríkisstjórn hans að efna ioforð sín. I bréfi vinnuveitenda kemur fram að þeir hafi reynt að fá upplýsingar um stefnu stjórnvalda hjá sjávarút- vegsráðherra en þar hafi verið fátt um skýr svör. Vinnuveitendur óska eftir fundi með Steingrími þar sem hann skýri fyrir þeim með hvaða hætti ríkisstjórnin muni standa við loforð sín þá fimm mánuði sem eftir eru af samningstímanum. -gse Brekkuhæjarskóli á Akranesi hef- ur iðað af lífi undanfarna daga þótt nemendur skólans séu í sumarfríi. Ævintýrið á götunni, norrænt námskeið um götuleikhús, hefur þar aðsetur sitt og er unnið frá morgni tif kvölds við undirbúning leiksýn- ingar sem sett verður upp á Akra- torgi á laugardaginn kl. 14. Þegar fréttamaður DV heimsótti þennan norræna hóp var unnið af miklu fjöri við að búa tii hatta af öll- um stærðum og gerðum og ekki síst í öllum regnbogans litum. Akranes: Draga úr ólyktinni Garðar Guðjónsson, DV, Akxanesi: íbúar Neðri-Skagans á Akranesi hafa minni ástæðu en oft áður að kvíða komandi loðnuvertíð því þegar vertíð hefst að nýju í haust verður kominn upp búnaður sem á að draga mjög úr bræðslufnyk frá Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness. „Það getur komið lykt þegar við vinnum lélegt hráefni en þegar unnið er nýtt hráefni á hún nánast að hverfa," sagði Björn Jónsson, verk- stjóri hjá SFA, í samtali við DV. Hann kvað búnaðinn, sem nú er verið að setja upp, kosta um 17 milljónir króna. Þegar brætt er í verksmiðjunni koma fituagnir með gufunni upp um skorsteinmn og leggur þá mikla ólykt yfir neðri hluta bæjarins. Fnykurinn er svo megn að varla er hægt að hengja út þvott og betra er að hafa glugga lokaða. Nýi búnaður- inn á að kæla gufuna frá bræðslunni þannig að fituagnirnar verða eftir og á þá ólyktin að minnka verulega eöa hverfa alveg. Vegna ólyktarinnar hafði verk- smiðjan aðeins starfsleyfi til 1. jan- úar í ár en leyfið var framlengt þar sem undirbúningur að endurbótum var hafinn. Ámeshreppur: Mikill / gestagangur Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Mikið hefur verið um gesti í Ámes- hreppi í sumar, einkum þó núna í júlímánuði. Alhr bústaðir yfirfulUr en margir burtfluttir Ámeshrepps- búar hafa byggt sér sumarbústaði hér í hreppnum. Kunna að meta góða og hreina loftið á Ströndum því hér þekkist ekki mengun. I -I : ’’ ■■■'' :...‘iv-i'-:';i: ú-x.:, i ■ '"-.'S M :: j| ' í|:Iilli|l|||i|lll' llllllllllllllllillll wmmmmmmmmrnmmmm ,. jjgiÍPllSÍp;' ííííAWÍíííAíííííSSÍÍíSií::'' I i^|!|||| ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍp:;::::;; : : .....II ; evkiavtk . Bílverk Víkurbraut 4 Höfn, Hornafirði .vSSiSiSiSj B.G. bftasala Grófinni 8, Keflavík -'wm llíiiÍiÍiÍiÍ: : i$i:i*i$i:i:!ÍS!:i: lllll Bifreiöaverkst, STÓRBÍLASÝNINGAR Muggs, Hólagötu 33, Vestmannaeyjum SUBARU Stórbílasýningar laugardag og sunnudag kl. 14.00-17.00 á ofangreindum stöðum. Lánskjör allt að 3Vi ári. 3ja ára ábyrgð. - Réttur bfll á réttum stað Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 sími 91-674000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.