Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1989. 11 HraSakstur~ * er orsök margra slysa. Miðum hraða alltaf við aðstæður, m.a. við ástand vega, færð og veður. Tökum aldrei áhœttu! ||ujgeo*B Stélið á suður-kóresku farþegaflugvélinni sem fórst í Líbýu í gærmorgun. Ekki er enn vitað hvað olli slysinu. Simamynd Reuter Tvær DC-10 vélar hafa farist í þessum mánuði Flugslysið sem átti sér stað í Trí- pólí í Líbýu í gær er annað flugslysið á níu dögum þar sem DC-10 flugvél kemur við sögu. Alþjóðasamband flugfarþega hefur hvatt Bandaríkin til að leiðrétta „innbyggða hönnun- argalla" í vélunum og, ef þörf kref- ur, kyrrsetja allar bandarísku DC-10 vélamar. Talsmaður MeÐonald verksmiðj- anna, sem framleiða vélamar, sögðu í gær aö ekkert benti til þess að þær væra orðnar of gamlar til að vera í notkun. „DC-10 vélamar era tiltölu- lega nýjar og munu verða í notkun í langan tíma enn,“ sagði Geoffrey Norris, talsmaður McDonald í Evr- ópu. Norris sagði að ekkert benti til að aldur hefði komið við sögu slyssins í Sioux-borg í Bandarikjunum þann 19. þessa mánaðar þegar 110 létust. Slysið varð eftir sprengingu í stél- hreyfli vélarinnar sem olli bilun í vökvakerfl. Flugmaðurinn reyndi nauölendingu en þá snerti annar vængur vélarinnar jörðina með fyrr- greindum afleiðingum. Norris kvað það einnig ólíklegt að aldur hefði átt þátt í brotlendingu DC-10 vélar kóreska flugfélagsins KAL í Líbýu í gærmorgun en þá er talið að allt að sjötíu og átta hafi lát- ist. Mikil þoka var á flugvellinum í Trípólí og var flugmanniniun ráðlagt að reyna ekki lendingu heldur fljúga til Möltu. Þrátt fyrir það reyndi hann að lenda vélinni. Björgunarmenn bera á brott fórnarlömb flugslyssins í T rípólí í gærmorgun. Simamynd Reuter Samkvæmt fréttum var skyggni í Trípóli mjög slæmt, eða um 240 metr- ar. Talsaipbandslaust varð við vélina um fimmtán mínútum áður en flug- maðurinn reyndi lendingu. Ekki er enn ljóst hvað olli slysinu. Að sögn Norris era rúmlega 420 DC-10 vélar í notkun víðsvegar um heiminn. Allar, fyrir utan 59 sem bandaríski flugherinn notar, era í notkun'í farþegaflugi. DC-10 vélar hafa lent í nokkrum slæmum óhöppum. í marsmánuði árið 1974 létust 346 í versta flugslysi sem DC-10 vél hefur lent í. Iila fest hurð að farangursgeymslu vélar frá tyrknesku flugfélagi losnaði við flug- tak og vegna breytinga á þrýstingi gaf gólf vélarinnar sig. í kjölfarið brotnuðu vökvaleiðslur undir því. Árið 1979 var slæmt ár í sögu DC- vélanna. í maí fórst DC-10 vél Amer- ican flugfélagsins eftir flugtak í Chigaco. Vél á öðram væng vélarinn- ar tættist af með þeim afleiðingum að flugmaðurinn missti stjóm á vél- inni. Tvö hundrað sjötíu og einn lést. í október sama ár brotlenti DC-10 vél Westem flugfélagsins á rangri flug- braut vallarins í Mexíkó borg. Þá lét- ust 75. Og í nóvember árið 1979 lenti flugvél nýsjálenska flugfélagsins í flugslysi á Erebus flalh og fórast all- irumborð,afls257manns. Reuter Deiluaðilar í Kambódíu setja á friðarráðstefnu Bandaríkin, Sovétríkin og Kína ætla rnn helgina að reyna allt hvað þau geta tfl að koma á friði í Kambód- íu á sama tíma og bilið hefur aldrei verið breiðara mifli hinna flögurra stríðandi fylkinga. Utanríkisráð- herrar ríkjanna þriggja verða ásamt fufltrúum deUuaðUa á 20 þjóða ráð- stefnu um frið í Kambódíu sem hefst í París um helgina. Ráðstefnan kem- ur í kjölfar funda defluaðUanna þar sem ekkert samkomulag náðist. DeUuaðUamir rifust um það fram á fimmtudag hveijir ættu að sifla ráð- stefnuna. Eduard Sévardnadse, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, var bjart- sýnn við brottför sína tU Parísar í gær og sagði að alþjóðleg samvinna ætti að geta leyst deUuna. Nærvera Sévardnadses, James Bakers, utan- rfldsráðherra Bandaríkjanna, og Qian Qichen, utanríkisráðherra Kína, er tafln vega þungt á ráðstefn- unni þar sem ríkin þrjú standa að baki deUuaðUum í Kambódíu. Viðræður hinna stríðandi fylkinga í París fyrr í þessíiri viku lofa ekki góðu um að friður komist á í landinu. Eftir að viðræðumar fóra út um þúfur deUdu aðUar um hveijir ættu að vera fuUtrúar Kambódíu á ráð- stefnunni sem haldin verður á sama stað og Bandaríkjamenn og Víetnam- ar bundu enda á Víetnamstríðið á 8. áratugnum. DeUuaðUar samþykktu þó að lokum að að sifla allir sem fuU- trúar Kambódíu á ráðstefnunni. Frakkar og Bretar taka einnig þátt í friðarráðstefnunni og verður þetta fyrsta utanför Johns Major, nýs ut- anríkisráðherra Breta. Þá sifla ráð- stefnuna fuUtrúar Japans og sex ríkja Suðaustur-Asíubandalagsins. Reuter á laugardag handa þér, ef þú hittír á réttu tölumar. Láttu þínar tölur ekki vanta í þetta sinn! iníKSII iThi„ I' 1 ' l ii ' 1 ’ 1 u_________■* f tl,rl i Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.