Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989. 9 Utlönd F.W. de Klerk var svarinn inn í embætti forseta Suöur-Afríku í morgun. Símamynd Reuter De Klerk sakaður um „hallarbyltingu“ F.W. de Klerk, formaður Þjóðar- flokksins í Suður-Afríku, sór emb- ættiseið sem nýr forseti landsins í morgun. Hann tekur við af P.W. Bot- ha sem sagði af sér forsetaembættinu í fússi í gær þegar hann varð að lúta í lægra haldi í baráttu sinni við de Klerk innan stjórnarflokksins. Botha sagði í sjónvarpsávarpi til þjóðarinn- ar í gær að ráðherrar hefðu lagt að honum að bera við heilsuleysi viö afsögnina en hann neitaði að nota lygi sem yfirvarp. Búist er við að de Klerk-verði staðfestur í embætti að afloknum kosningum í landinu 6. september næstkomandi þar sem blökkumenn fá ekki að láta skoðun sína í Ijós. Stjómarandstöðuflokkar sögðu að valdabaráttan milh Botha og de Klerk vissi ekki á gott fyrir Suður- Afríku undir stjóm nýja forsetans. Lýðræðisflokkurinn, sem er andvíg- ur kynþáttaaðskilnaðarstefnu stjómvalda, sagði að það væri sorg- legt að valdabarátta sem einkum væri af persónulegum toga skyldi verða til þess að forsetinn segði af sér eins og hann gerði, einmitt á þeim tíma þegar landið þarfnaðist ákveð- innar og hugmyndaríkrar fomstu. íhaldsflokkurinn, sem er lengst til hægri, sakaði de Klerk um að hafa bolað Botha frá í hallarbyltingu sem spillti fyrir ímynd Suður-Afríku sem „trausts lýðræðisríkis". Flokkurinn benti á að deilan milli de Klerks og Botha ætti rætur sínar að rekja til andstöðu Botha við fyrirhugaða ferð de Klerks til Zambíu þar sem hið útlæga Afríska þjóðarráð (ANC) væri með höfuðstöðvar sínar. Með heimsókn sinni síðar í þessum mán- uði og viðræðum við Kaunda, forseta Zambíu, væri de Klerk óbeint að ræða við Afríska þjóðarráðið, helstu samtökin sem beijast gegn minni- hlutastjóm hvítra manna í Suður- Afríku. Þjóðarflokkurinn er andvígur við- ræðum við Afríska þjóðarráðið á meðan það neitar að að snúa baki viö vopnaðri baráttu gegn stjórn- völdum. íhaldsflokkurinn vill aftur á móti koma á algjörum aðskilnaði kynþáttanna og hafnar öllum við- ræðum við ANC. Dagblöð landsins, bæði þau sem fylgja stjórninni og eru henni andvíg, fógnuðu brottfór Botha. Blökku- mannablaðið Sowetan sagði að Botha hefði sloppið vel eftir allar þjáning- arnar sem blökkumenn hefðu orðið að líða undir stjóm Þjóðarflokksins. Dagblaðið Beeld, sem fylgir stjórn- inni að málum, sagði að afsagnar- ræða Botha þar sem hann lýsti deil- um sínum við de Klerk væri biturleg- ur pólitískur vitnisburður. Blaðið Business Day sagði að það sem hefði orðið Botha að falli hefðu verið hin víðtæku völd sem hann tók sér þegar hann varð forseti eftir stjórnarskrár- breytingu 1983. F.W. de Klerk er 53 ára gamall fyrr- um lögfræðingur. Hann tók við for- ustu Þjóðarflokksins í febrúar þegar Botha fékk heilablóðfall. Nýi forset- inn er ættaður frá Transvaal héraði sem er hjarta póhtískra valda, auðs og áhrifa í Suður-Afríku. De Klerk er ákafur fylgismaður varfærinnar' umbótastefnu Botha í aðskilnaðar- málum en hann er engu að síður tal- inn forustumaður íhaldsarms stjórn- arflokksins. í október síðasthðnum styrkti hann enn frekar íhaldsímynd sína þegar hann snupraði embætt- ismenn rugbysambands landsins fyrir að ræða við blökkumannaleið- toga um hvemig binda bæri enda á einangrun landsins á íþróttasviðinu. Reuter P.W. Botha sagði af sér forsetaembætti Suður-Afríku í fússi i gær eftir harða valdabaráttu innan stjórnarflokksins. Frakkar leita friðar í Líbanon Ungur drengur stendur ráðþrota fyrir framan rústir heimilis síns i vestur- hluta Beirútborgar. Simamynd Reuter Frakkar hafa nú hert herferðina til að koma á friði í Líbanon. Sendi- maöur Frakka, Jacques Andreani, mun í dag leita eftir viðræðum við fulltrúa Moskvu til að reyna að fá Sovétríkin til að beita Sýrland þrýst- ingi til að leggja niður vopn. Frakkar telja að Sovétmenn, stuðningsmenn Sýrlendinga, geti haft mikil áhrif til að binda enda á fjórtán ára borgar- styrjöld í landinu. Rúmlega sex hundmð, þar af flestir óbreyttir borgarar, hafa látist í styxj- öldinni í Líbanon síðan bardagar hófust á nýjan leik um miðjan mars- mánuð síðasthðinn. Gorbatsjov Sovétforseti hefur gefið í skyn að hann sé reiðubúinn th aö taka að sér hlutverk málamiðlunar í dehu múhameðstrúarmanna og kristinna. En Sovétstjómin hefur einnig sagt að áhrif þeirra yfir' Sýr- landsstjóm séu takmörkuö. Frakkar hafa einnig sent fuhtrúa th Túnis th að ræöa við Chedli Khbi, framkvæmdastjóra Arababanda- lagsins en fuhtrúar þess hafa reynt að koma á friði. En fyrir þremur vik- um lýstu fulltrúamir því yfir að þeim hefði ekki tekist ætiunarverk sitt. í gærmorgun nutu Beirútbúar skammvinns hlés á bardögum. En í gærdag byijaði sprengjuregnið á nýj- an leik og þeir fáu íbúar borgarinnar sem eftir eru urðu að leita skjóls í neðanj arðarbyrgj um. Leiðtogi kristinna, Aoun hershöfð- ingi, hét því í gær að hætta ekki bar- dögum fyrr en allir hermenn Sýr- lands hefðu yfirgefið landið. „Það verður ekki vopnahlé í Líbanon nema það sé tengt brottflutningi sýr- lenskra hermanna," sagði hann í við- tah við Reuter-fréttastofuna. Hann kvaöst reiðubúinn th langrar baráttu en taldi þó að þess væri líklega ekki þörf þar sem brátt yrðu allir sýr- lenskir hermenn á brott úr landinu. Hann útskýrði þessi ummæh sín ekki nánar. Reuter Hermenn á Fhippseyjum sögöu að ástralskur trúboði, sem íangar í herfangelsi á Fhippseyjum tóku gíslingu á sunnudag, hefði verið myrtur í morgun. Segja þeir að Jacquehne Hamhl hafi verið skotin og skorin á háls. Að sögn her- manna biöu þrír aðrir bana, þar á meðal níu ára drengur. Morðin áttu sér stað þegar kom th skotbardaga mihi fanganna og öryggisvarða í fangelsinu í suðurhluta Fihppseyja í morgun. Fangamir reyndu að skjóta sér leið ut úr fangelsinu og notuðu gíslana sem skjöld. Yfirvöld segja að fjórir gislanna li í filippseysku fangelsi hafi sloppiö á meðan á skotbardag- Fangamir freistuöu þess að anum í fangelsinu, sem er um eitt skjóta sér leið út úr fangelsinu þeg- þúsund kflómetra suðaustur af ar samningaviðræöur við yfirvöld Manha, stóð. Trúboðinn var eini ehduðu í sjálfheldu. Samninga- gíslinn af vestrænu bergi brotinn. nefnd yfirvalda, reynir nú að koma Tahö er að nokkrir gíslanna séu viðræðunum á réttan kjöl á ný. særðir en fréttir eru óljósar. Fangarnir fara fram á bifreiö til að Ijósmyndari Reuter, sem var á sleppa úr prísundinni en tahð er staönum, kvaðst hafa séð eina aö þeir hyggist fara th afskekktrar konu og tvo karlmenn hggja fyrir eyjar. utan fangelsið þegar skotbardagan- Fangamir tóku um fjórtán um lauk. Fangamir sneru afto' inn raanns f gíshngu á sunnudag. Þeir í fangelsið eftir bardagann Her- hótuðu að myrða Hamhl i gær yfirvöld telja að leiðtogi fanganna, nema gengið yrði að kröfum þeirra. Mohammad Samparani, hafi látið Reuter hfið. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.