Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989. 17 narinn Helgi Bjarnason sækir að honum. á toppnum. DV-mynd GS ^augardalnum í gær FH er á réttum stað ídeildinni FH-ingar sýndu það og sönnuðu að þeir eiga heima við topp 1. deildarinnar og hafa burði til að fara alla leið ef þeir trúa á sjálfa sig. Það virtust þeir gera í gærkvöldi, þeir gáfu Frömurum engan frið á miðjunni og réðu henni á löngum köflum. Þeir náðu einnig upp hröðu og markvissu spih, oftar en ekki með Kristján Gíslason í lykilhlutverki, og sóknarmennirnir, Hörður Magnússon og Pálmi Jónsson, voru óhemju virkir og áræðnir. Framarar óheppnir á lokakaflanum Þótt Framarar hafi átt undir högg að sækja á köflum léku þeir alls ekki illa. Þeir náðu nokkrum hröðum sóknum en tókst þó aldrei almennilega að sprengja vörn FH-inga. Á lokakaflanum léku þeir af miklum krafti og voru þá sannast sagna óheppnir að knýja ekki fram sig- urinn. Kristján Jónsson lék mjög vel á vinstri vængnum, skilaði þar bæði varn- ar- og sóknarhlutverki með prýði. Þor- steinn Þorsteinsson var traustur í vöm- inni og Pétur Ormslev náöi sér á strik þegar leið á leikinn og átti margar góðar sendingar. Dómari: Gísh Guðmundsson..•• Maður leiksins: Kristján Jónsson, Fram. -VS Iþróttir Næst munum við Birgir Mikaeisson hef- ur ákveðið að leika áfram með KR-ingum í úrvalsdetlinni í körfu- Imattleik. Birgir var áður búinn að tilkynna að hann ætlaði aö skipta yfir í Þór og leika með Akureyrarliðinu á komandi keppnistímabih en nú er ljóst að af því verður ekki. Orðiðvirkilega þreytandi „Þetta er vægast sagt furðuleg framkoma hjá Birgi og þetta er reyndar fjórða árið í röð sem Birg- ir hættir viö á síðustu stundu og þetta er orðið virkilega þreytandi. Hann er hreinlega búinn að draga okkur á asnaeyrunum í alltsumar. Hann var búinn að gefa út yfirlýs- ingar um aö hann kæmi og fyrir þremur vikum vora félagaskiptin einungis formsatriði að hans sögn. í gærkvöldi tilkynnti hann okkur hins vegar að hann væri búinn að ákveða að vera áfram í KR,“ sagði Binar Viðarsson, stjómarmaður hjá körfuknattleiksdeild Þórs, í samtah við DV í gærkvöldi. „Birgir talaði við okkur að fyrra bragði í vetur og sagöist viidu koma norðm-. Hann sagðist vera óánægð- ur með þjálfarann hjá KR og vildi breyta til. Við tókum hann auðvit- að alvarlega en það voru greinilega mikil mistök. í gærkvöldi gaf Birg- ir þá afsökun að það væri of mikill söknuður að yfirgefa KR og aht í þeim dúr. Það er aha vega öraggt að næst þegar hann hringir mun- um við hlæja að honuni,“ sagði Einar ennfremur.. Hagwood á leiðinni Þórsarar eru búnir að missa af Birgi Mikaelssyni en þeir fá þó hðs- styrk á fimmtudag. Þá kemur bandariski leikmaðurinn Brent Hagwood til Akureyrar og mun hann áreiðanlega styrkja Þórsara i úrvalsdeildinni í vetur. -RR • Birgir Míkaelsson er hættur við að leika með Þór í vetur og klæö- ist KR-búningnum áfram. t l.deild W stadan jW FH..............13 6 5 2 17-11 23 Fram............13 7 2 4 17-11 23 KA............13 -5 6 2 18-12 21 FH...........13 6 5 2 17-11 23 Fram.........13 7 2 4 17-11 23 KA...........13 -5 6 2 18-12 21 Valur........13 6 3 4 15-9 21 KR...........13 5 5 3 19-16 20 Akranes......13 6 2 5 14-15 20 Víkingur.....13 3 5 5 19-18 14 Þór..........13 2 6 5 14-20 12 Keflavík.....13 2 5 6 14-21 11 Fylkir.......13 3 1 9 11-25 10 Markahæstir: Kjartan Einarsson, ÍBK.........8 Guðmundur Steinsson, Fram......7 Hörður Magnússon, FH...........7 Pétur Pétursson, KR............6 Björn Rafnsson, KR.............5 Antony Karl Gregory, KA........5 Andri Marteinsson, Vík.........5 Goran Micic, Víkingi...........5 t 2.deild W stadan 'jW Víðir.......13 9 2 2 19-11 29 Stjaman....12 9 1 2 28-12 28 Vænleg staða hjá stúlkunum úr Val - nær öruggar með titilinn eftir jafntefli á Akranesi Valsstúlkumar nánast tryggðu sér íslands- meistaratitilinn í 1. deild kvenna í gærkvöldi þeg- ar þær gerðu markalaust jafntefh við ÍA á Akranesi. Þær þurfa að- eins eitt stig enn til að guhtryggja sig og eiga eftir að leika við tvö neðstu liðanna, Þór og KA. Valur var sterkari ahan tímann í gærkvöldi en náði ekki að skora þrátt fyrir að eiga bæði skot í slá og stöng. Skagastúlkur vörðust vel og Steindóra Steinsdóttir stóð sig með prýði í markinu. Þær fengu eitt dauðafæri um miðjan síðari hálfleik, Júlía Sigursteinsdóttir komst þá ein innfyrir vörn Vals en skaut yfir markið. Bjikastúlkur unnu í Garöabæ léku Stjaman og Breiða- blik og þar hafði Kópavogshðið bet- ur, 0-1, í daufum leik. Sigurmarkið skoraði Ásta María Reynisdóttir úr vítaspymu eftir 20 mínútna leik en hún var dæmd á Stjömustúlku fyrir að handleika boltann á markhnunni. Staðan í deildinni er þannig: Valur.........10 8 2 0 32-4 26 KR.............11 7 2 2 28-8 23 ÍA............. 9 5 2 2 17-7 17 UBK............ 9 5 0 4 14-14 15 KA.............10 1 3 6 10-26 6 Stjaman........11 1 2 8 10-33 5 Þór............ 8 1 1 6 9-28 4 Markahæstar: Helena Ólafsdóttir, KR............9 Guðrún Sæmundsdóttir, Val.........8 G. Jóna Kristjánsdóttir, KR.......7 Ásta Benediktsdóttir, ÍA..........6 Kristrún Daðadóttir, UBK..........6 -MHM/IH/VS Pétur ekki í úrslitaleiknum - leik Þórs og Fram frestað til 30. ágúst IBV..........11 8 0 3 28-16 24 UBK..........13 5 4 4 28-22 19 Selfoss......12 6 0 6 14-21 18 Leiftur......12 3 4 5 10-13 13 ÍR...........12 3 3 6 14-18 12 Völsungur....l3 3 2 8 18-30 11 Einherji.....11 3 2 6 17-29 11 Tindastóll...13 2 2 9 19-23 8 Markahæstir: Tómas I. Tómasson, ÍBV........8 Jón Þórir Jónsson, UBK........8 Árni Sveinsson, Stjörn........7 Hörður Benónýsson, Völs.......7 Tveimurfrestað Tveimur leikjum í 2. deild var frestað í gærkvöldi. Selfyssingar komust ekki til Ólafsfjarðar þar sem þeir áttu að mæta Leiftri, og Stjaman komst ekki til leiks gegn Einherja á Vopnafirði. Báðir leik- irnir hafa veriö settir á kl. 19 í kvöld og kl. 20 leika ÍBV og ÍR í Vestmannaeyjum. Stjórn KSÍ ákvað á fundi í gær að leikir Þórs gegn Fram, og KR gegn FH í 1. deildinni í knattspyrnu verði háðir miövikudaginn 30. ágúst. Báð- um þarf að fresta vegna bikarúrshta- leiks KR og Fram, sunnudaginn 27. ágúst. Þór og Fram höfðu komist að sam- komulagi um að leika sunnudaginn 20. ágúst, en stjórn KSÍ lagðist gegn því á þeim forsendum að þá væru aðeins þrír dagar í landsleik íslands og Austurríkis í Salzburg og Framar- arnir í landsliðinu yrðu ekki komnir til Austurrikis fyrr en á mánudags- kvöld. Með þessu er endanlega ljóst að Pétur Ormslev leikur ekki með Fram í bikarúrslitaleiknum. Hann á yfir höfði sér leikbann vegna fjögurra gulra spjalda og sá úrskurður.verður væntanlega kveðinn upp á fundi aga- nefndar í dag. Pétur getur leikið með Fram gegn Val í 1. deildinni á fimmtudagskvöldið þar sem bannið tekur gildi á hádegi á föstudaginn. Næsti leikur eftir það er síðan bikar- úrshtaleikurinn. Þessi ákvörðun hefur það ennfrem- ur í för með sér að verði jafntefli í bikarúrshtaleiknum verður tæplega hægt að setja á annan úrshtaleik fyrr en þann 23. september. -VS ÍSLANDSMÓTIÐ 4. DEILD ÆGIR - STOKKSEYRI í kvöld kl. 20 á Þorlákshafnarvelli Mætum öll!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.