Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989. e»v Útlönd Forsetakosnlngar í Chile: Baráttan hafin fyrir alvöru Patricio Aylwin, fyrrum formaður kristilegra demókrata, er frambjóðandi stjórnarandstæðinga í forsetakosningunum í Chile. Kosningarnar eiga að fara fram í desember. Símamynd Reuter Hægrimenn á Chile hafa komiö sér saman um að styðja fyrrum fjár- málaráðherra landsins, hinn fertuga hagfræðing, Heman Buchi, í forseta- kosningunum í desember en þá verð- ur kosið um arftaka Augusto Pinoc- het, forsetaherstjórnarinnar. Stjóm- arandstæðingar styðja Patricio Ayl- win. Ljóst er nú að baráttan stendur miili Buchi og hins sjötuga Aylwin og búast má við hörðum bardaga. Ákvörðun stærsta íhaldsflokks landsins, Þjóðlega endurreisnar- flokksins, um að styðja Buchi bindur enda á þá pólitísku óvissu sem ríkt hefur í Chile. Tahð var að flokkurinn myndi styðja við bakið á formanni flokksins, Sergio Onofre Jarpa. Skoöanakannanir sýna að Aylwin nýtur meiri stuðnings kjósenda í þessari baráttu um hver verður fyrsti borgaralegi forsetinn í Chile síðan Salvador Allende var við stjóm. Niðm-stöður nýlegrar skoð- anakönnunar á vegum stjórnarand- stæðinga sýna að hann hlyti 54 pró- sent atkvæða ef gengið yrði til kosn- inga nú en Buchi 28 prósent. Pinochet hefur fariö fram á afsögn ráðherra sinna til að fá inn nýja menn fyrir þá sem hyggjast bjóða sig fram í kosningunum. Heimildar- menn segja að atvmnumálaráðher- rann, Guillermo Arthur, og ráðherra opinberra framkvæmda, Bruno Sie- bert, hafi staðfest að þeir muni bjóða sig fram. Líklegt er tahð að Pablo Baraona efnahagsráðherra bjóði sig einnig fram. Ný stjórn tekur eið á morgun, miðvikudag. Aylwin og Buchi Aylwin, sem sex sinnum hefur ver- ið kjörinn formaður kristhegra íbúar Chile ganga til kosninga um nýjan forseta í desember. Búast má við að kosningabaráttan verði hörð. demókrata, stærsta stjórnmála- flokks Chhe, nýtur stuðnings sautj- án-flokka bandalags stjórnarand- stæðniga. Meðai þeirra eru komm- únistar og óánægðir, fyrrum stuðn- ingsmenn herstjórnarinnar. Aldrei' vár nokkur vafi á að Aylwin, sem talinn er snjaU samningamaður, yrði í framboði fyrir stjórnarandstæð- inga, sérstaklega ekki eftir að hann leiddi stjórnarandstöðuna í þjóðarat- kvæðagreiðslunni í október síðast- hðnum. í kjölfar ósigurs í henni neyddist Pinochet tU að boða tU kosn- inga í desember en stjórnarskipti fara ekki fram fyrr en í mars. Sam- kvæmt stjórnarskránni í Chile má Pinochet ekki bjóða sig fram. Buchi, sem hefur htla reynslu af stjómmálum í Chile, sagði af sér embætti fyrir fjórum mánuðum tíl að einbeita sér að kosningabarátt- unni. Hann nýtur stuðnings hægri- sinna sem og stórfyrirtækja á við- skiptasviðinu en vonast til að fá stuðning ungu kynslóðarinnar. Aðrir frambjóðendur hafa ekki stuðning stærri stjómmálaflokka í ChUe. Reuter Robert Pelletreau er samningamað- ur Bandaríkjastjórnar við PLO, Frelsissamtök Palestínu. Simamynd Reuter Viðræður PLO og Bandaríkjanna halda áfram Viðræður miUi fuUtrúa Banda- ríkjastjórnar og PLO, Frelsissam- taka Palestínu, munu halda áfram þrátt fyrir bakslagið í Túnis í gær, mánudag, aö sögn talsmanns banda- ríska utanríkisráðuneytisins. Viðræðurnar í Túnis í gær, þar sem samningamaður Bandaríkjanna, Ro- bert Pehetreau, ræddi við fulltrúa PLO, enduðu í sjálfheldu. Heimildar- menn segja að framtíð herteknu svæðanna sé Þrándur í götu við- ræðnanna. Aðilar ræða um kosning- aáform Shamirs, forsætisráðherra ísraels, en hann vUl að Palestínu- menn á herteknu svæðunum kjósi fuhtrúa tU viðræðna við ísraels- menn. Bandaríkjamenn hta á kosning- amar sem góða leið til að koma á beinum samningaviðræðum milh ísraelsmanna og Palestínumanna. Margir leiðtoga Palestínumanna hafa hins vegar hafnað áætlunum Shamirs í því formi sem þær eru í nú. Bandaríkjastjórn fór fram á við- ræðurnar í Túnis í gær í kjölfar þings Fatah, stærsta hóps innan PLO, ný- lega‘ Reuter 8 i AUKABLAÐ UM TÓMSTUMDIR OG ÚTIVIST 12 síðna aukablað um tómstundir og útivist fylgir DV á morgun. Meðal efnis: UmQöllun um hestamennsku og umönnun gæludýra, golf og veiði, bæði skotveiði, stangveiði og fluguhnýtingar. Einnig verður Qallað um hjólreiðar, báta o.fl. o.fl. Tómstundir og útivist á morgun. n Varmi RÉTTINGAR OG SPRAUTUhl AUÐBREKKU 14, KÓPAV., SIMI 44250 Heildarupphæð vinninga 12.8. var 7.750.559. 5 höfðu 5 rétta og fær hver kr. 904.991. Bónusvinninginn fengu 8 og fær hver kr. 59.813. Fyrir 4 tölur réttar fær hver kr.5.002 og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig kr. 326. Sölustöðum er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt í Sjónvarpinu. Sími 6851 11. Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulína 99 1002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.