Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÍjST 1989. 27 Afmæli Pétur Guðfinnsson Pétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarpsins, Þinghólsbraut 5, Kópavogi, varð sextugur í gær. Pétur er fæddur á Eskifirði og tók próf í frönsku og menningarsögu við Sorbonneháskóla í París 1950. Hann tók dipl. d’études pohtiques próf (stjórnmálafræði) í háskólanum í Grenoble í Frakklandi 1952 og stundaði nám í hagfræöi og sögu við Kaupmannahafnarháskóla 1953- 1954. Pétur var starfsmaður Evróp- urpðs 1955-1964, fyrst sem fufitrúi í rekstrardeild þess og síðar í efna- hags-og félagsmáladeild. Pétur hef- ur verið framk væmdastj óri Sjón- varpsins frá upphafi, 1964, og hefur á vegum menntamálaráðuneytisins tekið þátt í starfi norrænna og evr- ópskra nefnda á sviði sjónvarps og fjölmiðlunar. Hann kenndi frönsku í MR1968-1970 og var um árabil prófdómari í frönsku á stúdents- prófum þar og í MH. Pétur var kos- inn formaður framkvæmdastjómar Nordvision, samtaka norrænna sjónvarpsstöðva vorið 1988. Pétur kvæntist 1. september 1953, Stellu Sigurleifsdóttur, f. 12. janúar 1928, fulltrúa á skrifstofu Kópavogs- bæjar. Foreldrar Stellu vom Sigur- leifur Vagnsson, verslunarmaður á Bíldudal, síðar starfsmaður at- vinnudeildar Háskólans og kona hans Viktoría Kristjánsdóttir. Böm Péturs og Stellu em Ólöf, f. 28. des- ember 1954, íslenskunemi og þýð- andi, gift Jóhannesi Karlssyni Hraunfiörð, tölvufræðinema í HÍ og starfsmanni Strætisvagna Kópa- vogs, Áslaug Helga, f. 3. desember 1957, gift Lúis Pena Moreno, tónlist- armanni í Barcelona, Pétur Leifur, f. 20. nóvember 1961, blaðamaður, kvæntur Concha Pinós López, og Ehn Marta, f. 14. desember 1963, nemi í Danmörku, gift Ágústi Páls- syni, skipasmið. Systkini Péturs em Vigdís, f. 8. október 1927, gift Lofti J. Guðbjartssyni, fyrrv. útibússtjóra Útvegsbankans í Kópavogi, og Þor- bjöm, f. 1. apríl 1945, rennismiður í Rvík. Foreldrar Péturs em Guðfinnur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri í Rvík, er lést 1981, og kona hans, Marta Pétursdóttir. Föðursystir Péturs er Bergþóra, móðir Þor- bjarnar Karlssonar, prófessors í verkfræði í HÍ. Föðursystir Péturs var einnig Jóna, móðir Páls Jóns- sonar, forstjóra Meitilsins í Þorláks- höfn. Guðfinnur var sonur Þor- bjarnar, b. í Ártúni í Mosfehssveit, bróður Lárusar, afa Erlendar Lár- ussonar, forstöðumanns Trygginga- eftirhts ríkisins. Þorbjöm var sonur Finns, b. í Álftagróf í Mýrdal, bróður Þorsteins, langafa Einars, fóður Er- lendar, fv. forstjóra SÍS. Finnur var sonur Þorsteins, b. á Vatnsskarðs- hólum í Mýrdal, Eyjólfssonar. Móð- ir Þorbjamar var Guðrún Sig- mundsdóttir, snikkara í Rvík, Jóns- sonar, og konu hans, Birgittu HaU- dórsdóttur, langömmu Indriða Ind- riðasonar, miðhs. Móðir Guðfinns var Jónía Jónsdóttir, b. í EUiðakoti í Mosfehssveit, HaUdórssonar. Móð- ir Jóníu var Solveig Brandsdóttir, b. á Bakka á Álftanesi, Jakobssonar, og konu hans, Karítasar, systur Páls, prófasts í Hörgsdal, langafa Guðrúnar, móður Péturs Sigur- geirssonar, biskups. PáU í Hörgsdal var einnig langafi MatthUdar, ömmu Ólafs ísleifssonar, hagfræð- ings hjá Seðlabanka íslands. Karítas var dóttir Páls, klausturhaldara á Elhðavatni, Jónssonar. Móðir Ka- rítasar var Ragnheiðar Guðmunds- dóttir, Utara í Leirvogstungu, Sæ- mundsssonar, foður Ólafs, langafa Elínar, ömmu Ragnars Arnalds. Marta var systir Erlendar Ólafs, forstjóra og formanns KR. Marta var dóttir Péturs, skipstjóra í Rvik, bróður Jóns, langafa Lám Ragnars- dóttur, þróunarráðgjafa hjá Rík- isspítulunum. Jón var einnig faðir skipsfióranna Jóns Otta og Guð- mundar á Skahagrími, föður Jóns á Reykjum í MosfeUssveit. Dóttir Jóns var Ásta, amma Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur. Önnur dóttir Jóns var Guðrún, móðir Jóns Guð- mundssonar menntaskólakennara. Systir Péturs var Guðrún, lang- amma Arnar Erhngssonar, skip- sfióra í Keflavík. Pétur var sonur Þórðar, b. og skipasmiðs í Gróttu, bróður Ingibjargar, langömmu Pét- urs Sigurðssonar, formanns bank- aráðs Landsbankans. Þórður var sonur Jóns skipasmiðs í Engey Pét- urssonar, b. í Engey, fóður Guðrún- ar,' langömmu Bjarna Benedikts- sonar, forsætisráðherra. Pétur var einnig faðir Guðfinnu, ömmu Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Pétur var sonur Guðmundar, lög- réttumanns í Skildinganesi, Jóns- sonar, sem var einn þeirra sem mældi út lóð Reykjavíkur eftir að hún var gerð að sérstökum kaup- stað 1786. Móðir Þórðar í Gróttu var Guðrún Þórðardóttir, dbrm í Skild- inganesi, Jónssonar, og konu hans, Pétur Guðfinnsson. Margrétar Guðmundsóttur, systur PétursíEngey. Móðir Mörtu var Vigdís, systir Marteins skipstjóra foður Guð- ' mundar verkfræðings, sem lengi var formaður Skógræktarfélags Rvíkur, föður Guðrúnar, hjúkrun- arforstjóra Landakotsspítalans. Vigdís var dóttir Teits, sjómanns í Rvík, Teitssonar, bróður Jóns, afa Benjamíns Eiríkssonar banka- stjóra. Móðir Vigdísar var Guðrún Þorláksdóttir, hafnsögumanns i Rvík, Þorgeirssonar, bróður Herdís- ar, ömmu Margrétar, ömmu Ellerts B. Schram ogGríms Valdimarsson- ar, formanns Ármanns. Gunnar Gíslason Gunnar Gíslason bókari, Grundar- gerði 12 í Reykjavík, er sjötugur í dag. Gunnar er fæddur í Noregi en flutti ungur með foreldrum sínum til Reykjavíkur og ólst þar upp. Hann varð stúdent frá Menntaskól- anun í Reykjavík árið 1940. Þá um sumarið réðst hann til Reykjavíkur- hafnar og vann þar lengi sem gjald- keri. Fyrir þremur árum réðst hann sem bókari að fyrirtækinu Fagtúni hf. sem tengdasonur hans rekur. Gunnar er sonur Gísla Péturs Jó- hannssonar og Fríðu Tómasdóttur. Gísli var ættaður frá Ólafsfirði, bjó um skeið í Noregi, en var lengst af sjómaður í Reykjavík. Fríða var döttir Tómasar Tómassonar, bónda í Brattholti í Biskupstungum. Hann var þekktur fyrir baráttu sína gegn virkjun Gullfoss sem er í landi Brattholts. Eiginkona Gunnars er Þóra Sveinsdótir húsmóðir, fædd 25. júh árið 1925. Hún er dóttir Sveins Guð- mundssonar, rafvirkja í Reykjavík, og Láru Lilju Jónsdóttur, konu Gunnar Gislason. hans. Gunnar og Þóra eiga tvö börn. Þau eru: GísliPétur, bifvélavirkií Reykjavík, ógiftur, og Lára Lilja, húsmóðir í Reykjavík. Maður henn- ar er Bjarni Axelsson, tæknifræð- ingur og framkvæmdastjóri Fagt- úns hf. íReykjavík. Þeirra börn eru Gunnar, Sveinn, Kristín og Pétur. --------------- Þorgerður Karlsdóttir, Steinum 6, Djúpavogi. Anita Elise K. Villadsen, Þangbakka 10, Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir, Laufskógura 9, Hverageröi. Sigríður Jóhannsdóttir, Höfðatúni 9, Reykjavík. Magdalena Margrét Oddsdóttir, Blöndubakka 3, Reykjavík. Guðmunda Guðjónsdóttir, Hjálmholti, Hraungerðishreppi. Jón Jónsson, Noröurgötu 41A, Akureyri. Elínborg Gísladóttir, Álftamýri 56, Reykjavík. Svava Þórhahdóttir, Hálshreppi, Suður-Þingeyjarsýslu. Laufey Sigríður Karlsdóttir, Holtagerði 42, Kópavogi. Benedikt Bjðrnsson, Gnoðarvogi 72, Reykjavík. 60 ára Haraldur S. Gíslason, Fögrukinn 23, Hafnarfirði. Ágústa Magnúsdóttir, Tangagötu 4, ísafirði. Soffia H. Jónsdóttir, Skipholti 45, Reykjavík. Sigríður Jóhannsdóttir, Fagrahvammi 12, Hafnarfirði. Guðmundur Gunnlaugsson, Göngustöðum, Svarfaöardals- hreppi. Bjöm Erik Westergren, Melabraut 53, Selfiarnamesi. Gunnar Bjarnason, Öldugötu 25, Reykjavík. ólafur Magnússon, Þingaseh 7, Reykjavik. Rúnar Þór Egilsson, Auðkúlu, Laugarvatnshreppi. Jón Ásmundsson, Furulundi 2G, Akureyri. Rafn Ambjörnsson, Öldugötu 3, Dalvík. Anna Steha Marinósdóttir, Öldugötu 8, Daivík. Jón Norðfiörð Gíslason, Mýrdal I, Kolbehrsstaðahreppi. Helgi Kristmundur Ormsson Helgi Kristmundur Ormsson, Raf- stöð 2, Suðurlandsbraut, Reykjavík, er sextugur í dag. Helgi Kristmund- ur fæddist í Reykjavík. Hann lauk námi í rafvirkjun í Iðnskóla Borgar- ness 1954. Hann vann við rafvirkjun og var rafverktaki í Borgarnesi 1954-1972 og var umsjónarmaður við lóranstöðina á Gufuskálum 1972-1977. Helgi hefur verið fuhtrúi hjá heimtaugaafgreiðslu Rafmagns- veitu Reykjavíkur frá 1977. Hann var í stjóm Verkalýðsfélags Borgar- ness 1948-1953 og formaður félags ungra sjálfstæðismanna í Mýra- sýslu 1961-1963. Helgi var í fulltrú- aráði Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar 1980-1984, fulltrúi starfs- manna RR í stjórn Veitustofnana í tvö ár og formaður Félags starfs- manna Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1985-1986. Hann hefur verið rótarý- félagi frá 1964. Hann var forseti Rót- arýklúbbs Ólafsvíkur 1976-1977 og er nú félagi í Rótarýklúbbi Seltjarn- amess. Kona Helga er Þuríöur Hulda Sveinsdóttir, f. 25. ágúst 1930. Foreldrar hennar vom, Sveinn Skarphéðinsson, d. 1955, b. á Hvíts- stöðum, seinna verkamaður í Borg- arnesi, og kona hans, Sigríður Kristjánsdóttir saumakona. Börn Helga og Huldu eru: Hilmar, f. 1951, stýrimaður, deildarstjóri hjá Sjó- mælingum íslands, Kristján, f. 1952, rafmagnstæknifræðingur, vinnur hjá Hugbúnaði hf. í Kópavogi, Sig- ríður Sveina, f. 1955, nemur ferða- þjónustu í Menntaskólanum í Kópa- vogi, Helgi Öm, f. 1960, myndhstar- maður í Svíþjóð, og Þuríður, f. 1961, húsmóðir í Kópavogi. Systkini Helga eru Hrefna, f. 30. mars 1919, saumakona í Rvík, gift Þórði Guð- jónssyni húsasmið, Ormur Guðjón, f. 3. ágúst 1920, rafvirki í Innri- Njarðvík, kvæntur Sveinbjörgu Jónsdóttur, Ingvar Georg, f. 11. ágúst 1922, vélvirki í Keflavík, kvæntur Agústu Randrup, umboðs- manni DV í Keflavík, Vilborg, f. 14. febrúar 1924, starfar hjá Pósti og síma í Borgarnesi, gift Guðmundi Sveinssyni vörubílsfióra, sem er lát- inn, Sverrir, f. 23. október 1925, raf- virki á Landakptsspítala, kvæntur Döddu Sigríði Árnadóttur, Þórir Valdimar, f. 28. desember 1927, húsasmiður í Borgarnesi, kvæntur Júhönu Hálfdánardóttur, Karl Jó- hann, f. 15. maí 1931, tækjavörður á Borgarspítalanum, kvæntur Ástu BjörguOlafsdótturfóstm, Sveinn Ólafsson, f. 23. júni 1933, húsasmið- ur í Keflavík, kvæntur Önnu Pálu Sigurðardóttur, starfsmanni Pósts og síma, Gróa, f. 13. mars 1936, pró- farkalesari hjá DV, gift Páh Steinari Bjarnasyni húsasmið, Guðrún, f. 23. ágúst 1938, kennari á Hvolsvehi, gift Gísla Kristjánssyni skólasfióra og Ámi Einar, f. 27. mai 1940, húsa- smiður í Borgarnesi, kvæntur HalldóruMarinósdóttur. • Foreldrar Helga voru Ormur Ormsson rafvirkjameistari, raf- veitustjóri í Borgarnesi, og kona hans, Helga Kristmundardóttir. Meðal fóðurbræðra Helga voru Jón og Eiríkur, stofnendur fyrirtækisins Bræðumir Omsson, og Ólafur, faðir Orms, formanns Kvæðamannafé- iagsins Iðunnar, föður Ólafs, rithöf- undar í Rvík, Ormur var sonur Orms, b. á Kaldrananesi í Mýrdal, Sverrissonar, b. á Grímsstöðum, Bjarnasonar. Móðir Sverris var Vil- borg Sverrisdóttir, systir Þorsteins, afa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Orms Sverrissonar var Vilborg Stígsdóttir, b. í Langholti, Jónsson- ar, bróður Jóns, prests í Miðmörk. Móðir Orms Ormssonar var Guðrún Ólafsdóttir, systir Sveins, fóðqr Ein- ars Ólafs prófessors, fóður Sveins, dagskrársstjóra hjá Sjónvarpinu. Guðrún var dóttir Ólafs, b. á Eystri Lyngum, Sveinssonar, Ingimundar- sonar. Helga var dóttir Kristmundar, sjó- manns í Vestmannaeyjum, Árna- sonar í Berjanesi undir Eyjafjöllum, Einarssonar. Móðir Helgu var Þóra Einarsdóttir, b. í Ormskoti undir Eyjafiöllum, Höskuldssonar, og konu hans, Gyðríðar Jónsdóttur, prests í Miðmörk undir Eyjafiöllum, Jónssonar. Móðir Gyðríðar var Þóra Gísladóttir, b. á Lambafelh undir Eyjafiöhum, Eiríkssonar, ogkonu hans, Györíðar Jónsdóttur, b. í Vest- mannaeyjum, Nathanaelssonar, skólasfióra á Vilborgarstöðum í V estmannaeyjum 1760-1761 og ef til vih lengur, meðan hann starfaði, Gissurarsonar, prests á Ofanleiti í Helgi Kristmundur Ormsson. Vestmannaeyjum, Péturssonar. Móðir Nathanaels var Helga Þórð- ardóttir, prests á Þingvöllum, Þor- leifssonar, b. í Hjarðardal, Sveins- sonar, bróður Brynjólfs biskups. Móðir Gyðríðar Jónsdóttur var Ragnhhdur Jónsdóttir, lögréttu- manns í Selkoti undir EyjafiöUum, ísleifssonar, ættfóður Selkotsættar- innar.Helgiverðurerlendisáaf- . mæhsdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.