Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Blaðsíða 16
16 íþróttir „Ekki lengur smeykir við stóru liðin“ - sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, eflir leikinn við Fram „Viö komum til að vinna en gerum okkur ánægða með jafntefli. Við höfum fengið aukið sjálfstraust og erum ekki lengur smeykir við „stóru liðin“. Liðsheildin hjá okk- ur er orðinn þrælsterk og hópur- inn er virkilega samstilltur og góð- ur. Við ætlum að halda okkar striki á toppnum og munum ekki gefa toppsætið eftir. Ég vpna að Hafnfirðingar fjölmenni á heima- leik okkar gegn Þór á fimmtudag og styðji okkur eins og í kvöld,“ sagði Ólafur Jóhannesson, annar þjálfara FH-inga, eftir jafntefli topphðanna á Laugardalsvelli í gærkvöldi. „Skemmtilegur leikur“ „Þetta var skemmtilegur leikur og opinn á báða bóga. Það var auðvitað svekkjandi að ná ekki að sigra en eins og leikurinn þróaðist þá held ég að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit. Ég er ekki alveg nógu ánægður með einstök atriði í leik minna manna en það má laga allt fyrir næsta leik. Við stefnum að sjálfsögðu á sigur gegn Val á fimmtudagskvöldið,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, eftir leik- inn í gærkvöldi. Sex spor í höfuð Péturs Pétur Ormslev meiddist illa í síðari hálfleiknum eftir að Rafa skallað saman við Birgi Skúla- son. Pétur var færður út að hlið- arlínunni óg lá þar í nokkrar mín- útur. Hann fékk skurð á höfuðið og var færður upp á slysavarðstofu eftir leikinn og þar voru saumuð sex spor í höfuð hans. Margir áhorfendur héldu að verið væri að sauma Pétur úti við hliðarlínuna þar sem hann lá svo lengi. Pétur lét skurðinn ekkert á sig fá heldur kom aftur inn á og lék leikinn til enda. Prúðmannlegur leikur Leikur Fram og FH verður að teljast mjög prúðmannlegur af beggja hálfu. Gísli Guð- mundsson þurfti aðeins að gefa eitt gult spjald og er það kannski ekki mikið ef haft er í huga að þarna var mikið í húfi og hart bar- ist. Þá má einnig minnast á skemmtilegt atvik þegar Pétur Ormslev lá slasaður á vellinum og FH-ingurinn Guðmundur Valur Sigurðsson sparkaði boltanum rakleitt út af svo huga mætti að meiðslum Péturs. Framarar þökk- uðu drengilega fyrir sig þegar Þor- steinn Þorsteinsson tók innkastið og kastaði boltanum beint til FH- inga. Sannarlega drengilega gert í svo þýðingarmiklum leik. Liðin í gærkvöldi Toppliðin tvö voru þannig skipuð í þessum þýðingarmikla leik í gær- kvöldi: Fram: Birkir Kristinsson, Jón Sveinsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Viðar Þorkelsson, Kristján Jónsson, Kristinn R. Jónsson (Helgi Bjarnason 85. mín.), Pétur Amþórsson, Pétur Ormslev, Ómar Torfason, Ragnar Margeirsson (Ríkharður Daðason 71. mín.), Guðmundur Steinsson. FH: Halldór Halldórsson, Ólafur Jóhannesson, Birgir Skúlason, Bjöm Jónsson, Þórhallur Víkingsson, Olaf- ur Kristjánsson, Magnús Pálsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Kristján Gíslason, Pálmi Jónsson, Hörður Magnússon. -RR/VS Svlþjóö: Gunnar skoraði Gœmar Guxmarason, DV. Svíþjóð: Gunnar Gíslason skoraði mark fyrir Hacken annan leikinn i röð er liðið sigraði Kalmar FF, lið Hafþórs Sveinjónssonar, 1-2, á útivelli í sænsku 1. deildinni í knattspymu á sunnudaginn. Mark Gunnars kom á 18. mín- útu en Kalmar jafnaöi fyrir hlé og sótti síöan stíft í síðari hálf- leik. Hacken stal hins vegar sigr- inum með því að skora sigur- mark þremur mlnútum fyrir leikslok. Öster er langefst og stefnir beint í úrvalsdeildina, er með 26 sög. Mjállby hefur 18 stíg en Hác- ken, Elfsborg og Trelleborg 17 stig hvert. Kalmar FF er um miðja deiid með 14 stig en Falken- berg, lið Eggerts Guðmundsson- ar, sem gerði 2-2 jafhtefli við Trelleborg, er í 4. neðsta sætinu með 12 stig. 6 manns létu lífið í Nígeríu Sex manns létu lífiö á landsleik Nígeríú og Angóla í undankeppni HM í síðustu viku. 90 þúsund manns vom á pakkfullum áhorf- endastæðunum þegar leikurinn fór fram en völlurinn tekur að- eins 70 þúsund áhorfendur. Rannsókn hefur leítt íljós aö fólk- iö tróðst undir þegar áhorfendur fógnuð gríðarlega 1-0 sigri Níger- íu og algert öngþveiti myndaðist á áhorfendapöllunum. Of mörg- um áhorfendum var hleypt inn um hlið á norðurhluta vallarins. AUir þeir sem létust voru Níger- íubúar. -RR Víðir á toppinn en tveir í bann - Víðir sigraði Tindastól, 1-0, í Garðinmn Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Víðismenn unnu dýr- mætan sigur í toppbar- áttunni er þeir lögðu Tindastól frá Sauðár- króki, 1-0, í Garðinum í gær- kvöldi. Víðismenn eru þar með komnir á toppinn í 2. deild en Stjömumenn eiga þó leik til góða því leik þeirra var frestað í gær- kvöldi. Sigurmarkið kom strax á 6. mín- útu þegar Bjöm Ingimarsson gaf fyrir mark Stólanna og Grétar Ein- arsson skoraði auðveldlega af stuttu færi. Strax á næstu mínútu björguðu Víðismenn á eigin marklínu eftir þunga sókn Sauð- krækinga. Á 32. mínútu komst Vilberg Þorvaldsson einn í gegn- um vöm gestanna en Gísli Sig- urðsson bjargaði vel. Tindastólar sóttu meira og lögðu mikið í sókn- ina en allt kom fyrir ekki. Eyjólfur Sverrisson fékk tvívegis góð mark- tækifæri en Garðsmenn náðu að bjarga naumlega í bæði sltíptin. Víðismenn áttu ágætar sóknir inni á milli en mörkin urðu ekki fleiri. Tindastólsmenn hafa verið mjög óheppnir í leikjum sínum í sumar og svo var einnig í gærkvöldi. Þeir virðast hafa alla burði til að vinna leiki en vantar alltaf herslumun- inn. Víðismenn em sterkir um þessar mundir og verða í toppslagnum um sæti í 1. deild. Leikurinn í gærkvöldi kann þó að reynast dýr- keyptur því tveir leikmenn Uðsins fara í leikbann í næsta leik. Guðjón Guðmundsson, fyrirhði Víðis, fékk rautt spjald í gærkvöldi og Grétar Einarsson fékk sitt fjórða gula spjald í sumar. Þeir tveir, ásamt Oskari Ingimundarsyni, verða því fjarri góðu gamni á næstunni en Oskar sleit liðbönd í síðasta leik og verður ekki meira með í sumar. Maður leiksins: Sævar Leifsson, Víði. Eiríkur hélt Völs- ungum í skefjum og Blikar sigruöu, 1-0, í Kópavogi Breiðablik slapp vel með 1-0 sigur á Völsungum í 2. deildinni á Kópavogs- velhnum í gærkvöldi. Sókn Húsvíkinga var þung mestan hluta leiksins en bar ekki árangur, mest fyrir atbeina Eiríks Þorvarö- arsonar sem varði mark Kópa- vogsbúa af snilld. Haraldur Haraldsson stóð einnig fyrir sínu í marki Völsungs og varði snemma í leiknum' góðan skalla frá Grétari Steindórssyni. Sigurmarkið kom á 35. mínútu og var vel að því staðið. Grétar sendi fyrir frá hægri og Jón Þórir Jóns- son skoraði með hörkuskalla. Eiríkur bjargaði tvisvar glæsi- lega í fyrri hálfleiknum, frá Jónasi Hallgrímssyni og Kristjáni 01- geirssyni, sem báðir komust einir gegn honum. Hann og Blikavömin stóðust áhlaup Völsungs í síðari hálíleik og á síðustu mínútu mun- aði engu að Blikar skomðu sitt annað mark. Amar Grétarsson komst þá í dauðafæri en Haraldur hirti boltann af tám hans. Völs- ungar em því áfram í erfiðri stöðu við botn deildarinnar en Blikar sigla lygnan sjó um miðbikið. Maður leiksins: Eiríkur Þorvarð- arson, UBK. -VS ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989. • Ólafur Kristjánsson, FH-ingur, með knöttinn i leik FH og Fram í gærkvöldi. Frai Leik toppliðanna í 1. deild lauk með markalausu jafntefli og liðin eru enn jöfn að stigum Sex liö s um trtil - eftir markalaust jafntefll Fram og FH í I Draumur Uðanna í þriðja til sjötta sæti 1. deildarinnar rættist í gær- kvöldi þegar tvö þau efstu mættust á Laugardalsvellinum. Fram og FH tókst ekki að skora mark í annars líflegri viðureign sín á milli og þar með helst sama spennan í deildinni. Liðin tvö deila áfram efsta sætinu en nú munar aðeins þremur stigum á þeim og Skagamönnum, sem eru í sjötta sæti, og því virðist framundan einhver mest spennandi bar- átta um íslandsmeistaratitilinn sem um getur á seinni árum. Sanngjörn úrslit Úrslitin á Laugardalsvellinum voru sanngjörn þegar á heildina var htið. FH-ingar komu Frömurum í opna skjöldu með baráttu og krafti og höfðu undirtökin lengi vel. Framarar áttu aft- ur á móti hættuiega kafla og á síðustu fimmtán mínútunum, þegar þrek Hafn- firðinganna var farið að þverra, sóttu þeir grimmt. Á lokamínútunum var stig- inn darraðardans í víta- og markteig FH-inga sem tókst þó að halda sínum hlut þar til flautað var af. Nokkur ágæt marktækifæri litu dags- ins ljós. Hörkuskot sleiktu stangir beggja liða á fyrstu tveimur mínútunum en tvö bestu færin féllu í hlut FH-inga. Það fyrra á 38. mínútu þegar Hörður Magn- ússon slapp einn inn að marki Framara en Birkir Kristinsson markvöröur bjarg- aði glæsilega í horn. Á 53. mínútu óð Kristján Gíslason upp völhnn og inn í vítateig Fram en í stað þess að skjóta sendi hann boltann fyrir markið og sókninni lauk með skoti Guðmundar Vals Sigurðssonar rétt yfir þverslána. Aðsóki Aðsóknarmet var slegið í gær- narmet Mesti áhorfendaíjöldinn fyrir gær- kvöldi á leik Fram og FH á Laugar- daginn haföi verið á deildarleik KR dalsvelli. 2250 áhorfendur komu til og Vals en þá komu rúmlega 1500 manns áKR-völlinn viö Frostaskjól. aö sjá leik toppliðanna og er það mesta aðsókn á leik í sumar. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.