Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1989, Page 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989.
Lesendur
Tætingslegt við
Tjarnarbakka
Reykvíkingur skrifar:
Ég átti leið eftir Tjamargötunni
nýlega. Ég hefl ekki gengið þama
síðan snemma í vor og þá var gróður
ekki kominn það mikið til að neitt
væri eftirtektarvert. Núna, á miðju
sumri, er þarna þannig umhorfs, er
maður gengur eftir gangstéttinni
Tjamafmegin, að ekki verður hjá því
komist að ill umhirða stingi í augu.
Þama er jú gróður meðfram bakk-
anum, en hann er ekki fagur ásýnd-
ar. Þama má sjá tijáhríslur af mis-
munandi tegundum, ásamt njóla og
flflum, jafnvel sinu, og allt er þetta í
hinni mestu órækt og umhirðulaust
að því er virðist.
Nú er Tjarnargatan með elstu og
fegurstu götum borgarinnar. Þama
stendur t.d. Ráðherrabústaðurinn
svokallaði og þama er nú einu sinni
einn Tjamarbakkanna og þar er
margt um vegafarendur sem enn
vflja nota tvo jafnfljóta til að komast
leiðar sinnar á góðviðriskvöldum. -
Erlenda ferðamenn má einnig sjá
þama og alla aðra sem vilja njóta
gönguferða um þennan hluta borgar-
innar.
Nú myndi einhver segja sem svo
að þama væru nú byggingarfram-
kvæmdir í grenndinni og því þyrfú
ekki að undra þótt svona væri um-
horfs. En þetta umhirðuleysi við
Tjamarbakkann á ekkert skylt við
byggingarframkvæmdir. - Þetta er
að mínu mati einfaldlega dæmigerð
íslensk óhirða sem verður að lagfæra
hið bráðasta. Það gengur ekki að fjöl-
farin svæði í kringum Tjamarbakk-
ann séu vanhirt.
Já, þarna er óhirða, ekki skrökvar myndavélin.
„Dúx“ í þjónustu
Stefanía hringdi:
Ég keypti rúm í versluninni Dux í
Aðalstræti fyrir svo sem tveimur
árum. Nú kom fram galh í dýnunni.
Ég hringdi í eiganda verslunarinnar
og bar upp vandkvæði mín. Hann
hafði engin orð um það frekar en
sendi mér strax nýja dýnu.
Þetta tel ég vera hámark öndvegis-
þjónustu. Því vildi ég láta þetta koma
fram að oftar en ekki er verið að
kvarta undan slælegri þjónustu og
ef til vill með réttu. Reynsla mín af
viðskiptunum við áðurnefnda versl-
un segir mér þó að ekki em alls stað-
ar sömu viðhorfin til viðskiptavina.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður
við framhaldsskóla.
Við MENNTASKÓLANN VIÐ HAMRAHLÍÐ vantar stundakennara
til að kenna norsku og sænsku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
rektor skólans fyrir 21. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið
Byggðastofnun
Fasteign til sölu í Vík
Byggðastofnun auglýsir til sölu fasteignina Sunnubraut 21 í Vík
í Mýrdal (áður eign Nýlands hf.). Húsið er á tveimur hæðum (2.
hæð inndregin) með steyptum grunni að grunnfleti 256,8m2.
Burðarbitar hússins eru úr límtré og með klæðningu frá Berki
hf., Hafnarfirði. Hugsanlega er hægt aðflytja húsið úrstað. Tilboð-
um skal skilað á skrifstofu Byggðastofnunar, Rauðarárstíg 25,105
Reykjavík, fyrir 5. september nk.
HVERVANN?
Vinningsröðin 12. ágúst:
2X2-111-2X1-1X2
Heildarvinningsupphæð: 1.763.334 kr.
12 réttir = 1.311.148 kr.
Einn var með 12 rétta - og fær kr. 1.311.148 í sinn hlut.
11 réttir = 452.199 kr.
14 voru með 11 rétta - og fær hver 32.299 kr. í sinn hlut.
Klippingin
kostar sitt
- á íslandi
Ferðalangur hringdi:
Ég er nýkominn heim frá útlönd-
um, nánar tiltekið frá Danmörku.
Þar þurfti ég á ýmiss konar þjónustu
að halda, m.a. að fara til rakara til
klippingar. Þar komst ég að því að
það er allt að því fimm sinnum ódýr-
ara en á íslandi að láta khppa sig.
í Danmörku greiddi ég rakaranum
55 krónur danskar. Hér greiði ég lið-
lega 900 krónur! - Kaup dansks
verkamanns er 70 kr. d. á klukku-
stund sem er nálægt 560 krónum ísl.
íslenskur verkamaður hefur um 230
krónur á klukkustund. Hinn íslenski
verkamaður er því 240 mínútur að
vinna fyrir eínni khppingu. Hinn
danski starfsbróðir hans þarf hins
vegar ekki að vinna nema 47 mínútur
fyrir klippingu sinni.
í hverju skyldi þessi gífurlegi
verðmismunur felast? - Nú væri
ahra best að einhver úr stétt rakara
(eða meistarafélag þeirra) svaraði
með greinargóðum skýringum.
Ökumenn
þroytastíyrr
notiþeirléleg
sóigleraugu.
Vöndum
val
Urval
'nmarit fyrir alla
Qerðu gott frí enn betra
taktu Urval með 1 ferðina
Þorpið sem stökk inn í nútímann
- Þrælar á flótta frá Bahia fundu stað sem var umlukinn hæðum. Þetta
var hinn besti felustaður og þeir bjuggu þar einir og afskiptir í 165 ár.
Upphaf flórtyóladrifsins
Fjórhjóladrifið er ekki nýtt - eins og kemur fram í þessari grein.
Þjófaklettar í Frakkagili
- Hér segir frá hroðalegum atburði sem gerst mun hafa á 17. öld austur
í Þistilfirði er franskir lögðust í sauðaþjófhað þar um slóðir en innfæddir
komust að þvi og hefndu grimmilega.
Þetta er aðeins sýnishom af því sem er að lesa í Úrvali núna. Áskriftarsíminn er
Náðu þér í hefd strax á næsta blaðsölustað.
27022
Grikkland: griðland alþjóðlegra hryðjuverkamanna
- Hvemig stendur á þvi að einn samstarfsaðili okkar í Atlantshafsbanda-
laginu veitir nokkrum voðalegustu hryðjuverkamönnum heimsins stuðn-
ing og griðastað?