Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Blaðsíða 30
.eæi TSÚOÁ .8S fiUDAGUMÁM
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Susan
Ruttan
er sjónvarpsáhorfendum að góðu
kunn fyrir hlutverk sitt í þáttun-
um Lagakrókum. Nýlega setti
leikkonan hnefann í borðið og
heimtaði á fundi með framleið-
endum þáttanna að hlutverk
hennar yrði-gert meira kynferöis-
lega eggjandi. Framleiðendurnir
fóru hins vegar að hlæja og sögðu
að hún væri alls ekki „sexí týpa“
hún væri allt of feit. Þá lofaði
Susan að tálga af sér fjölda kílóa
en allt kom fyrir ekki. Svarið,
sem hún fékk, var að hún gæti
bara hætt ef hún væri ekki á-
nægð.
Anita
Hegerland
er enn á ný ófrísk eftir eiginmann
sinn, Mike Oldfield. Þau hjóneiga
saman 14 mánaöa dóttur en nú
hefur heimsbyggðin fregnað að
annað bam sé á leiðinni. Mike
mun víst vera mikið í mun að
eignast strák en Anitu er víst al-
veg sama hvort barnið veröur
piltur eða stúlka. Ólyginn mun
að sjálfsögðu halda áfram að
flytja fregnir af óléttu Anitu.
Phil
Collins
er þekktur séntilmaður. Nýlega
heimsótti rokkstjaman bama-
skóla í heimalandi sínu, Eng-
landi, þar sem hann reytti í bók-
staflegri merkingu af sér eigin-
handaráritanir. Alls gaf hann
1500 slíkar. Ég vildi ekki hætta
fyrr en ég væri búinn að gefa öll-
um eiginhandaráritun mína sem
á annað borð langaöi til að fá
hana. En ætli aumingja stjaman
hafi ekki verið orðinn þreytt þeg-
ar hún var búinn að rita sitt eðla
nafn 1500 sinnum.
McCartney sagðist mundu á hljóm-
leikaferðalagi sínu flytja lög frá
Bítlatímabilinu sem hann hefði aldr-
ei áður flutt. Taldi hann upp lög af
St. Pepper plötunni og Hey Jude.
„Þessi lög eru eins og ný fyrir mér
sem flytjanda því ég hef aldrei áður
flutt þau opinberlega.“
McCartney hefur, ólíkt öðrum
poppstjömum sem fara í stórferða-
lög, engan bakhjarl að ferðinni. Þeg-
ar hann var spurður hvers vegna það
væri svaraði hann að hamí mundi
Paul McCartney hyggst fara í mikið hijómleikaferðalag i vetur.
leyfa samtökunum Vini jarðarinnar skap sinn á tónleikunum. „Ég hef máh sem við jarðarbúar eigum við
(Friend of the Earth) að flytja boð- meiri áhuga á því mengunarvanda- að stríða en að auglýsa gosdrykki."
Fergie brosir ekki sinu blíðasta ó myndinni.
Þaö hafa víst oft sést fegurri
myndir af hertogaynjunni af York.
Yfirleitt er kóngafólkið brosandi
út að eyrum þegar ljósmyndarar
em í nánd. Þessi óvirðulega mynd
af Fergie birtist opinberlega ekki
alls fynr löngu og vakti litla hrifn-
ingu hjá bresku konungsfjölskyld-
unni.
Elisabet, tengdmóðir Fergie og
drottning Bretaveldis, fékk vist
nánast áfall þegar hún sá myndina.
Hún varð svo reið að hún var jafn-
vel aö hugsa um að kæra mynd-
birtinguna.
Hins vegar fylgdi það ekki sög-
unni af hverju Fergie er svona
skringileg á svipinn. Kannski sá
hún bara pöddu eða flugu sem
henni var í nöp viö.
Hinn hræði-
legi Tyson
Um þessar mundir er að koma út
í Bandaríkjunum bók um samband
hnefaleikakappans Mikes Tyson og
fyrrum eiginkonu hans, Robin Gi-
vens. Bókin verður víst ansi krass-
andi þvi þar verður eytt mörgum
blaðsíðum í að fjalla um ofbeldis-
hneigð kappans innan sem utan
hnefaleikahringsins, svo og um af-
brigðilegar kynferðislegar hvatir
hans.
Meðal annars er haft eftir Tyson í
bókinni að hann njóti þess að beita
konur ofbeldi. „Ég elska að meiða
konur þegar ég nýt ásta með þeim.
Ég nýt þess að heyra þær öskra af
sársauka, að sjá þeim blæða,“ segir
hann.
Ekki beint fallegt afspumar ef satt
er.
Bráðlega kemur út í Bandaríkjunum bók er fjallar um samband Mikes Ty-
son og Robin Givens.
McCartney í hljómleikaferð
Paul McCartney hefur ekki haldið
marga blaðamannafundi um ævina.
Hann hélt þó einn slíkan í síðustu
viku vegna hljómleikaferðar sem
hann er að fara í. Þetta verður í
fyrsta skiptið síðan 1976 sem hann
fer í slíka ferð. Eins og blaðamanna
var von og vísa voru þeir aðgangs-
harðir við hann og sérstaklega lang-
aði þá að vita hvað liði málaferlum
meðlima The Beatles. Paul sagði að
nú væri loks farið að hilla undir í
lausn sem allir sættu sig við en neit-
aði að skýra það nánar.