Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Nýjar plötur x>v
E1 Puerco - Ennisrakaðir skötuselir
Ekki algalin
Bítlunum dugði hálfur sólarhring-
ur til að hljóðrita fyrstu stóru plöt-
una sína, meistaraverk sem olli
straumhvörfum í sögu dægurtónhst-
ar. Það eru því ekki alltaf plöturnar
sem mestum tímanum er eytt í sem
skipta mestu máli. Ekki veit ég hvort
E1 Puerco Elías Bjarnhéðinsson hafði
þessi sannindi í huga er hann réðst
í gerð plötunnar Ennisrakaöir skötu-
sehr. Eitt er víst að Elías og hjálpar-
kokkar hans voru ekkert að hangsa
við gerð plötunnar. Snöruðu henni
af á rétt tæpum fimmtíu klukku-
stundum.
En Dan Quayle er víst ekki Jack
Kennedy þótt hann feginn vildi og
E1 Puerco er ekki Bítlarnir. Og
smeykur er ég um að Ennisrakaðir
skötuselir eigi ekki eftir að valda
sömu straumhvörfum í íslenskri
dægurtónhst og Please Please Me
plata Bítlanna.
Þar með skal látið lokið eða hér-
umbh lokið þessari ósanngjörnu
samjöfnun. Bítlarnir höfðu spilað
' saman um árabh er þeir réðust í gerð
sinnar fyrstu plötu. Elías Bjarnhéð-
insson hafði einungis spilaö hand-
bolta þar th hann afréð aö koma tón-
hstinni sinni á plast. Því bjóst maður
svo sem ekki við miklu er platan kom
út. Og kannski vegna þess að maður
hafði engar væntingar má hafa
lúmskt gaman af Ennisrökuðum
skötuselum.
Platan er hrá og óhefluð. Og hráast-
ur af öllum er E1 Puerco sjálfur.
Söngsthl hans minnir helst á það sem
hvað hæst var skrifað á pönkárun-
um, til dæmis hjá Wreckless Eric og
Jilted John, svo aðeins tvær gamlar
kempur séu nefndar.
Lögin á Ennisrökuðum skötuselum
eru misjöfn að gæðum. Skást þykir
mér Metoröastiginn. Gæöi textanna
sveiflast jafnvel enn frekar. Stundum
ber rímið höfundinn ofurliöi og úr
verður hnoð. Jafnvel óskhjanlegt
hnoð samanber:
Nú er gleði, tímans tönn,
brosið sanna getur laðað.
Dipló getur munað spönn.
Einn í búri, hehann baðað.
Höfuðprýði Ennisrakaðra skötu-
sela eru kvenraddirnar. Þær eru
mjög smekklega notaðar í allnokkr-
um lögum plötunnar. Og þar hefur
E1 Puerco alltént eitt fram yfir frum-
burðBítlanna. ÁT
Joe Cocker - One Night of Sin
Okkar
maður
Þeir eru eflaust margir sem ávallt
muffU setja nafniö Joe Cocker í sam-
band við Woodstock hátíðina sem nú
á stórafmæli. Og sjálfsagt þekkja
margir kappann einungis fyrir að
hafa sungið With s Little Help from
My Friends þarna á hátíðinni.
Joe Cocker hefur þó stöðugt verið
að síðan þá. Ferhhnn hefur reyndar
gengið dálítið upp og niður svona
rétt eins og lífið sjálft. Karhnn á við
áfengisvandamál að stríða og virðist
stundum eiga ansi bágt. Samkvæmt
plötunni One Night of Sin virðist
hins vegar allt vera í stakasta lagi
um þessar mundir.
Toppurinn á þessari nýjustu plötu
Cockers er tvímælalaust lagiö I’m
Your Man eftir Leonard Cohen. Perl-
an sem er titihag nýjustu plötu
Kanadamannsins dimmraddaða.
Cocker reynir sem betur fer ekki að
líkja eftir útgáfu Cohens og útkoman
er prýðileg. Þá er titillag skífunnar,
One Night of Sin, einnig áheyrhegt.
Það er sömuleiðis gamalkunnugt:
Presleylagið One Night. Textanum
við það hefur verið breytt htihega.
Fleira á nýjustu plötu Joes Cocker
lætur vel í eyrum. Sá gamh er reynd-
ar ekki að eltast við neina tísku.
Hann er bara sami gamli Joe Cocker-
inn og jafnan dáhtið frískari samt en
oft áöur. Sjálfsagt þykir yngra fólki
ekkert sérstaklega mikið th hans og
viskíraddarinnar koma en þeir sem
hrifust af honum á Woodstock ættu
að hafa gaman af og jafnvel ennþá
fleiri.
ÁT
Jackson Browne - World in Motion
Búinn að finna formið aftur
Þegar bandaríska sveitarokkiö var
upp á sitt besta um miðjan áttunda
áratuginn var Jackson Browne einn
helsti áhrifavaldur þeirrar stefnu.
Hann náði þó ekki viðlíka frægð
sjálfur og margir þeir tónhstarmenn
sem hann átti samstarf við og hafði
áhrif á, en meðal þeirra voru hðs-
menn hljómsveitarinnar Eagles.
Browne naut þó mikhlar virðingar
bæði sem lagasmiður en kannski
sérstaklega sem textahöfundur en
hann er að mínu mati með allra
fremstu textasmiðum poppsögunnar.
Á síðari árum hefur heldur hallað
undan fæti hjá Browne, tónlist hans
ekki verið eins aðgengheg og hún var
og hann einhvern veginn ekki fundiö
sig.
En á þessari nýju plötu sinni fer
ekki mhli mála aö gamh góði Jack-
son Browne hefur náð áttum á ný
og þaö er vægt tekið th oröa að hér
fari hann á kostum bæði í lögum og
texta.
Innihald textanna snýst að miklu
leyti í kringum friðarboöskap og
frelsi fyrir kúgaða svo sem Nelson
Mandela. Tónhstin er að vissu leyti
afturhvarf til fyrri ára, ljúf og trega-
blandin en fyrst og fremst einstak-
lega falleg og melódísk. Lög eins og
How Long og Lights and Virtues eru
með þeim bestu sem heyrst hafa á
árinu.
Ég býð Jackson Browne velkominn
aftur.
-SþS-
Góðir hálsar!...
Nýjar plötur eru að hellast
út þessa dagana og meðal
þeirra sem hæst ber er ný
plata frá Roliing Stones,
Tears For Fears, Janet Jack-
son, Mötley Crue og Biliy
Joel svo einhverjar séu nefnd-
ar. Nýja platanfrá Billy Joel
ber nafnir Storm Front og við
upptökur hennar naut hann
aðstoðar Mick nokkurs Jo-
hjálparhönd og þykirvarla
tiðindum sæta. Paul McCart-
ney er að leggja upp i tón-
leikaferð tif ágóða fyrir um-
hverfisvemdarsamtökin Vinir
jarðarinnar (Friends of the
Earth). McCartney
var spurður að því á blaða-
mannafundi hvort hann værí
ekki hræddur um að áheyr-
endur væru orðnir leiðir á
öllum þessum góðgerðartón-
leikum. McCartney svaraði
um hæl: „ef við verðum ekki
leiðinleg deyjum viðöll"...
í sumar hafa verið haldnir
fjölmargir rokktónleikar i
Sovétríkjunúm þarlendum
ungmennum til óblandinnar
ánægju.
Ein af þeim hljómsveitum
sem heillað hafa Sovétmenn
sérstaklega er skoska sveít-
in Highlander og hefur henni
nú verið boðið i sérstaka
tónleikaferð austur fyrir
tjald... Og áfram með so-
vésku tónleikafréttirnar.
Fyrir nokkru voru á ferð í
Moskvu Edgar Winter, Leon
Russell og LaToya Jackson.
Var þeim feikna vel tekið en
Winter stal þó senunni með
því að syngja nýtt smáskifu-
lag sitt, Cry Out á rúss-
nesku!... Julian Lennon
hefur verið á tónieikaferð um
Bandaríkin að undanförnu
og tróð meðal annars upp i
l\lew York. Voru undirtektir
áheyrenda góðar en aldreí
betri en þegar litii bróðir
hans, Sean Lennon, steig á
sviðið og söng með Julian i
laginu Stand By Me í þeirri
útgáfu sem faðir þeirra gaf
útásínumtíma...
Tom Petty sem þessa dag-
ana gerir það gott með sóló-
plötu sina, Full Moon, hefur
hóað i gömlu félagana sina
í The Heartbreakers og sam-
an fara þeir nú í tónleikaferð
um Bandarikin að kynna
plötu Pettys... Góðar
stundir...
-SþS-