Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Frjálst.óháö dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (1 >27022 - FAX: (1 >27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð i lausasölu virka daga 95 kr. — Helgarblað 115 kr.
Breytt hlutföll
Geysilegar breytingar hafa orðið á fylgi flokkanna frá
síðustu þingkosningum miðað við skoðanakannanir DV,
einkum hina síðustu. Augljóst er, að nýtt þing yrði með
allt öðrum hætti en núverandi þing, yrði kosið fljótlega.
Núverandi ríkisstjórn yrði auðvitað kolfallin. Athyglis-
vert er að líta nánar á þetta.
Samkvæmt síðustu skoðanakönnun DV fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 50,5 prósent atkvæða, eða hreinan
meirihluta. Sjálfstæðisflokkurinn fengi samkvæmt
þessu mjög traustan meirihluta á þingi. Talan 50,5 er
hin langhæsta, sem flokkurinn hefur fengið í skoðana-
könnunum DV á þessu kjörtímabili. Hann hefur stöðugt
verið að auka fylgi sitt að undanförnu. Samkvæmt skoð-
anakönnun DV í júní hafði flokkurinn 47,7 prósent. Það
er athyglisvert, að Sjálfstæðisflokkurinn hafði mest um
33 prósent fylgis í skoðanakönnunum DV allt fram að
janúar síðasthðnum. Flokkurinn fékk aðeins 27,2 pró-
sent í síðustu kosningum. En sjálfstæðismenn verða að
hugsa til þess, að þeir fá oftast minna fylgi eftir kosning-
abaráttu en þeir hafa haft, áður en kosningabarátta
hefst. Því er of snemmt fyrir sjálfstæðismenn að telja
sig hafa tryggan þingmeirihluta, eftir að kosið verður
næst.
Framsóknarflokkurinn fékk í könnuninni nú aðeins
13,4 prósent. Þetta er hið langminnsta, sem flokkurinn
hefur fengið í skoðanakönnunum DV á kjörtímabilinu.
Fram að þessu hafði flokkurinn nokkurn veginn haldið
kosningafylgi sínu samkvæmt skoðanakönnununum og
jafnvel farið yfir það. Nú dynur tapið yfir. Við getum
ekki sagt um, hvort þetta tap Framsóknar endist, en
flokkurinn er í hættu. Einhverju tapar Framsókn nú til
Alþýðubandalagsins og einhverju til Sjálfstæðisflokks-
ins. Alhr þekkja, að mikil óánægja er með ríkisstjórn-
ina. Nú fyrst geldur Framsóknarflokkurinn þess að ráði.
Einnig er athyghsvert, hversu htið Kvennahstinn
fær. Hann er nú með 11,9 prósent, sem er sáralitlu
meira en Kvennahstinn fékk í síðustu þingkosningum.
Kvennahstinn hefur orðið fyrir miklu fylgistapi að und-
anfórnu. Þetta er flokkur, eða samtök, sem um tíma
hafði nær 30 prósent fylgis samkvæmt skoðanakönnun-
um. Kvennahstakonur verða alvarlega að hugsa sinn
gang.
Alþýðubandalagið fékk í könnuninni nú 13,1 prósent.
Þetta er mesta fylgi, sem flokkurinn hefur fengið í skoð-
anakönnunum DV á kjörtímabihnu og næstum jafn-
mikið og fylgi flokksins í síðustu kosningum. Enginn
veit, hvað þetta endist. En miklu um fylgið mun skipta
sú athygli, sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur vakið
að undanförnu. Hann hefur í margra augum stohð sen-
unni.
Alþýðuflokkurinn fær nú 8,8 prósent, sem er svipað
fylgi og að undanfomu. Það breytir því ekki, að fylgi
flokksins hefur farið þverrandi. Flokkurinn fékk 15,2
prósent í síðustu kosningum. Mikið þyrfti að gerast, til
þess að flokkurinn næði sér á strik. Hann ber að miklu
flokka helzt óvinsældir ríkisstjórnarinnar.
Borgaraflokkurinn virðist nánast úr sögunni, þegar
hugsað er til kosninga, nema kraftaverk gerist. Aðrir
flokkar eru nánast ekki í myndinni.
Vissulega verður að hugsa til skekkna, sem fylgja
öhum skoðanakönnunum. En það, sem hér var rakið,
er nokkuð ljóst.
Haukur Helgason.
Viö sjáum þess mörg dæmi úr
hérlendum málum hve rannsókn-
arvaldið er viökvæmt í litlu þjóð-
félagi fyrir áhrifum fjölmiöla og
svonefndra rannsóknarblaða-
mennsku.
í Hafskipsmáh hafði óhemju dýr
rannsókn staðið yfir í fleiri mánuði
þegar yfirmanni rannsóknarlög-
reglu þótti ástæða til að handtaka
alla forystusveit Hafskips kl. 5 að
morgni og setja í svartholið og ein-
angrun, ef til vill til að undirstrika
alvarleika málsins en flestum er
það ráðgáta hverjum tilgangi í
rannsókn þessi handtaka þjónaði.
Áhrif blaða og fjölmiðla eru þó í
flestum tilfellum góð til upplýsinga
um málsatvik. T.d. hefur einn af
forystumönnum Hafskips, Ragnar
Kjartansson, komið skoðunum sín-
um á framfæri við fjölmiðla og er
það vel að þögnin ein tah ekki sínu
máh. Fjölmiðlaumfjöllun er sum-
um mönnum jafnvel nauðsyn og
Sýslumaður í Húnaþingi neitaði að taka áfengi af hópsálum á fjöldasam-
komu. - Frá útigleðinni í Húnveri fyrr í mánuðinum.
Dómarar og guð-
dómlegar verur
hefur Ólafur Laufdal nýiega árétt-
að í viötali hversu auðvelt það er
að verða skotspónn slúðursagna í
miskunnarlausu smáborgarakerfi
þar sem andleg vanhöa flytur fjöll
í sagnalíki.
íkveikjumál
og dulmálslyklar
Einkum er þetta yfirþyrmandi á
minni stöðum úti á landi þar sem
tortryggnin verður sterkari í ná-
býli kunnugleikans. Nýlegt dæmi
frá ísafirði í íkveikjumálum segir
okkur hvemig rannsóknarvald
getur tekið til óþyrmilegra aðgerða
finnist sökudólgur ekki vikum og
mánuðum saman. Hæpnum að-
gerðum, einangrun og grófum yfir-
heyrslum, er beitt til að „hremma
og hræða fómarlambið".
Á sama tíma les maður í blaði að
njósnari úti í hinum enskumæl-
andi heimi hafi verið staðinn að
verki eftir áralanga eftirgrennslan.
Ætla mætti að íslenskar lögreglu-
aðgerðir af þessu tagi væru ein-
stakar og í ætt við yfirheyrslur í
einræðis- og stríðshrjáðum ríkjum.
Dæmi em um að menn hafi þurft
hjá Rannsóknarlögreglu í Kópa-
vogi á árum fyrr að sitja í ströngum
yflrheyrslum yfir blaösíöuopnu úr
skáldverki Laxness og útskýra ein-
hverja dulmálslykla að kröfu rann-
sóknarlögreglustjóra til að varpa
ljósi á afbrotamáll sem átt hafa sér
stað úti á landi. Dæmin em mörg
og sum hver ekki í nokkm sam-
bandi við raunveruleikann.
„Hrói höttur“
Póhtíkin er oft miskunnarlaus
fugl og margar staðhæfingar í
stjómmálum rangar en aðrar frjó-
samur grundvöhur gagnlegra um-
ræðna. Áhrifamikhr stjómmála-
menn ýta þó einstaka máh til dóm-
stóla. Samanber mál Ávöxtunar
sf., Hagvirkismáhð og áfengis-
kaupamáhð. Líklega fremur til að
storka ófullkomnu kerfi og seina-
gangi mála en aö gera sig að dóm-
ara og forsjármanni almennings.
Hið gráa gaman fer þó heldur
betur að káma þegar mannorð, af-
koma og eigur manna em komnar
í spihð eða fangelsanir framundan.
Þó óskar einhver sér að atburða-
rásin hefði verið hægari og að
„Hrói höttur“ væri aðeins th í æv-
intýrinu eins og honum ber. í lýð-
ræðisríki er það lágmarkskrafa að
kosnir valdsmenn eða sýslumenn
fari ekki offari í embættisverkum,
síst þegar eitthvaö er óljóst í lag-
anna nafni.
Sýslumaður Rangæinga fór sér
hægt í Hagvirkismáh. Starfsbróöir
hans í Húnaþingi neitaði að taka
áfengi af hópsálum á fjöldasam-
komu. Áfengi sem nýbúið var að
selja? Eiturefni eða skotvopn em
yfirleitt ekki tekin af mönnum fyrr
KjaUaiinn
Sigurður Antonsson
framkvæmdastjóri
en misnotkun hefur átt sér stað.
Sú ábyrgð að selja og kaupa áfengi
eðá skotvopn hlýtur að kaUa á
þroskaða einstakíinga sem kunna
að fara með viðkomandi.
Breytinga þörf án byltingar
Alvarlegt er hins vegar hversu
dómskerfið fær lélega einkunn í
skoðanakönnunum. Astæða hlýtur
að vera tíl þess að gera uppskurð
á kerfinu. Þótt gömlum vinnu-
brögðum verði ekki kastað fyrir
róða má mörgu breyta. Hægfara
breytingar em bestar en stöðnun
eða gjörbylting yfir í eitthvað nýtt,
sem ekki er vitað hvemig reynist,
er fokastanlegt.
Of fáir löglærðir hafa orðið th að
gagnrýna núverandi störf, skipan
dómsmála og dómara. En athyghs-
vert er þegar menn sjá störf sín úr
nýjum hæðum. TUtölulega lítið
heyrist frá Háskólanum, nema ef
vera skyldi frá prófessor og fyrr-
verandi hæstaréttarritara sem
ávaUt hefur veriö ötuU við að út-
skýra mál og lög.
Jafnvel leikþættir í sjónvarpi frá
nemendum em aflagðir. Rithöf-
undar em aðeins með sakamál for-
tíðar og sjónvarpið heldur tilþrifa-
htið um lög, rétt og lögfræði. Upp-
lýsingaskrif era nú vikulega um
lögfræði í stærsta dagblaðinu en
annars fátt bitastætt um lagatúlk-
anir og mál fyrir dómstólum. Þátt-
taka almennings í dómarastörfum
og aukin fræðsla um lög og rétt
verður eflaust til aö lyfta upp rétt-
arkerfinu.
Hlutlaus gagnasöfnun
Athyghsvert er að lesa um hvem-
ig dómarar taka á nýlegu áfengis-
kaupamáh hæstaréttardómara.
Telja þeir að siðferðisvitund al-
mennings hafi verið misboðið með
magnkaupum sem fari langt fram
úr góðu hófi. Ekki að leggja skuh
forréttindi valdsmanna niður eins
og stjórnarskráin leggur áherslu
á. Nei, með öðmm orðum, drykk-
fehdur dómari er síst tíl þess fallinn
að auka orðstír dómstóla, frekar
en drukknir guðsorðaprestar fyrr-
um. Þótt ekki sé neytt í vinnutíma
breytir óhófleg notkun vímuefna á
borð við áfengi fljótt skynjun,
sjálfstrausti, sjálfsímynd og dóm-
greind.
Fyrir dómara er slæmt ástand
eða eftirköst af uotkun áfengis
neikvætt. Auk þess þurfa dómarar
starfsins vegna aö dæma í málum
tengdum drykkju og ofnotkun
áfengis. Þvi skyldu ekki dómarar í
dómum sínum vitna í stjómar-
skrána og mannréttindayfirlýsing-
ar sem við höfum skrifað undir?
Em ekki mannréttindi að fá að
versla í frítíma? Safna hlutum og
geyma ef mönnum sýnist svo ef
ekki gUda aðrar reglur um forrétt-
indi? Eiga ekki hæstaréttardómar-
ar rétt á sömu hlutlausri gagna-
söfnun og aðrir áður en mál þeirra
em lögð fyrir dómstóla?
Veikleiki réttarkerflsins birtist
frekar í rannsóknar- og gagnasöfn-
un. TU skamms tíma var rannsókn
sakamála hér á landi undir sama
hatti og þess er dæma átti. Ekki er
nokkur vafi á að dómstólar hða
fyrir þetta bágboma kerfi sem hér
hefur verið. Söfnun gagna og fram-
setning fyrir dómstóla er vafalaust
eitt ábyrgðarmesta starf í lýðræðis-
ríki. Óvönduð vinnubrögð við
gagnasöfnun, fhpp með orðrómi
eða óljósar skoðanir óábyrgs al-
mannaróms, samúö með fórnar-
lambi eða þjáningarbróður má
aldrei verða tíl þess að spjótin ber-
ist að saklausum eða þeim sem
minna mega sín. Þeim sem em í
tímabundnum erfiðleikum vegna
misnotkunar efna eða sakir fötlun-
ar.
Einangraðir dómarar eða rann-
sóknarmenn em síst tU þess fallnir
að styrkja kerflð eða fá traust al-
mennings. Einungis með upplýs-
ingum, menntun og eflingu réttar-
vitundar styrkjast leikreglur lýð-
ræðisins. Og eins og páfl oröaði
það: Maðurinn er af Guöi gerður
og því á einstakhngurinn rétt á að
vera meöhöndlaður sem guödóm-
lega vera.
Sigurður Antonsson
„Alvarlegt er hins vegar hversu dóms-
kerfið færlélúga einkunn í skoðana-
könnunum. Astæða hlýtur að vera til
þess að gera uppskurð á kerfinu.“