Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Fréttir
MR fær meira húsnæði:
Ríkið kaupir KFUM-
húsið við Amtmannsstíg
Samningar um kaup ríkisins á
KFUM-húsinu aö Amtmannsstig 4c
verða undirritaöir í dag eða á morg-
un. Húsiö er keypt fyrir Menntaskól-
ann í Reykjavík sem átt hefur í mikl-
um húsnæðisvandræðum undanfar-
in ár.
Þórhallur Arason, skrifstofustjóri
í Qármálaráðuneytinu, vildi ekki
segja hvert kaupverð hússins verður
en taldi það sanngjarnt. Einhverjar
breytingar verður að gera á húsinu
sem er tvískipt, timburhús og stein-
hús. Breytingarnar verða ekki veru-
legar þar sem margir salir eru í hús-
inu, en það var byggt fyrir starfsemi
kristilegra félaga ungra manna og
kvenna. Tekið er mið af kostnaði viö
breytingarnar í kaupsamningnum.
Menntaskólinn fær húsið afhent í
vor en hefur eina til tvær stofur á
leigu í vetur.
Að sögn Guðna Guðmundssonar
rektors bjarga þessar leigðu stofur
skólanum fyrir horn í húsnæðis-
vandræðunum í vetur. Sagði hann
MR-inga vera orðna býsna lang-
þreytta á þessu húsnæðisharki en
starfsemi skólans mun nú fara fram
í átta húsum þegar leikfimi og bóka-
safn er meðtalið. Húsið að Amt-
mannsstíg 4c er nánast á lóð MR en
einn steinveggur skilur á milli aðal-
byggingarinnar og KFUM-hússins.
-hlh
Nýjung í orlofsmálum:
Orlofsbréf til af-
nota og endursölu
íslendingar geta nú keypt sér or-
. lofsbréf og afnotarétt á mörgum stöð-
um í heiminum. Hér á landi eru nú
staddir tveir af forráðamönnum fyr-
irtækisins Isle of Man Assurance
Ltd., Robert Bigland og Nigel Wood,
en fyrirtækið gefur orlofsbréfin út.
Með þeim í fór er Magnús Magnús-
son, fjölmiðlamaður í Skotlandi, en
hann og Bigland eru góðir kunningj-
ar.
Sólarsetur hf., sem er hlutafélag
áhugmanna um eignaraðild íslend-
inga að fasteignum erlendis, fékk
umboðsleyfi orlofssjóðs Holiday Pro-
perty Bond til sölu á samnefndum
orlofsbréfum í maí. Að sögn Sigríðar
Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra
Sólarseturs, er eðli orlofsbréfanna
tviskipt. Annars vegar er orlofsþátt-
urinn eða afnotaréttur af fasteignum
orlofssjóðsins. Hins vegar er verð-
bréfaþátturinn sem tekur mið af
verðbréfamarkaði á hverjum tíma.
Hver eining kostar eitt pund og er
lágmarksfjárfesting eitt þúsund ein-
ingar. Eftir það má kaupa eins marg-
ar einingar og hver vill. Einingar
gefa ákveðinn punktaíjölda sem síð-
an gengur upp sem greiðsla fyrir af-
notin. Safna má einingum milli ára
og leysa má bréfin til sín hvenær sem
er. Eigandi bréfanna getur fylgst með
verðgildi þeirra í Finencial Times og
að sögn Sigríðar hefur verðgildið far-
ið hækkandi. Fasteignir orlofssjóðs-
ins eru nú í tíu löndum og er sífellt
verið að færa út kvíamar. Eigandi
bréfanna hefur frjálst val um orlofs-
stað og getur breytt frá ári til árs.
Tveir íslenskir aðilar fjárfestu í
sjóðnum fyrir nokkrum ámm. Hjón-
in Linda Metúsalemsdóttir og Sig-
urður Örn Sigurðsson keyptu sín
bréf fyrir fjórum árum. Linda sagði
í samtali við DV að óhætt væri að
mæla með þessu.
„Ég var mjög rög við þetta fyrst enda
í öðm að snúast fyrir ungt fólk. Sig-
urður hafði lesið um þetta í bresku
golfblaði og vildi endilega prófa. Eftir
að hafa aflað upplýsinga slógum við
til. Við fómm til Algarve fyrir tveim-
ur árum og allt var eins og best varð
á kosið. Maður greiðir sitt flugfar
sjálfur og lítils háttar þjónustugjald.
Tekið var til á hverjum degi og allt
umhverfið mjög til fyrirmyndar.
Eign okkar hefur tvöfaldast að verð-
gildi á þessum tíma miðað við ís-
lenskar krónur. Nú eigum við rúm-
lega átján hundmð punkta sem dugir
fyrir góðu fríi.“
-JJ
f
Tólf tonn af eiturefninu PCB voru flutt til Reykjavikur frá Sigöldu á laugardag
í lögreglufylgd. DV-mynd Hanna
PCB-eitrið í
lögreglufylgd
Lögreglan fylgdi dráttarbíl, sem
flutti 12 tonn af eiturefninu PCB og
spennum sem höfðu innihaldið það,
frá Sigöldu til Reykjavíkur á laugar-
dag. Hér er um að ræða hluta af
stærri sendingu, alls 32 tonnum, sem
fara með skipi til Bretlands um miðja
viku til eyðingar í Wales. Mestur
hluti sendingarinnar kemur frá
Kröfluvirkjun og verður það flutt
með skipi til Reykjavíkur.
Eitrið var geymt í bækistöðvum
Landsvirkjunar á Ártúnshöfða þar
til í morgun að það var flutt í vörslu
Eimskips í Sundahöfn.
Það voru sérfræðingar frá breska
fyrirtækinu Rechem sem önnuðust
losun og frágang eitursins og á PCB
nú hvergi að finnast í spennum
Landsvirkjunar. -Pá
Alviöræðurnar:
Miðar vel áfram
„Viðræðunum miðar vel áfram
en ftmdurinn í Svíþjóð var fyrst og
frémst vinnufundur. Þess vegna
voru engar ákvarðanir teknar,“
segir Garðar Ingvarsson, ritari ráð-
gjafarnefndar um áliðju, um fund
nefndarinnar í Svíþjóð og Atlanta-
hópsins fyrir helgi.
Sænska verkfræði- og verktaka-
fyrirtækið SIAB lýkur við gerö
hagkvæmniathugunar í lok sept-
ember og segir Garðar að engar
ákvarðanir verði teknar í viðræð-
um íslendinga og Atlanta-hópsins
fyrr en niðurstöður hagkvæmni-
athugunarinnar liggja fyrir.
-JGH
Eskifiöröur:
Brunatjónið allt
að 100 milljónir
Barist við eldinn á föstudagskvöldið.
Emil Thorarensen, DV, Eskifiröl:
Tugmilljóna tjón, jafnvel hátt í 100
milljónir, varð á Eskifirði, þegar
stórbruni varð í fiskverkunarhús-
næði Útgerðarfélagsins Þórs á fóstu-
dagskvöld. Menn frá rannsóknarlög-
reglu ríkisins og rafmagnseftirlitinu
luku rannsókn á laugardag og leiddi
hún í ljós að kviknað hefði í út frá
rafmagnsofni í forstofu sem notaður
var til að þurrka vettlinga.
Geysimikill eldur var og gekk erf-
iðlega að ráða niðurlögum eldsins.
Leitað var aðstoðar slökkviliðsins á
Reyðarfirði. Að sögn Magnúsar
Guðnasonar, verkstjóra hjá Þór, er
nánast allt ónýtt sem inni var og
skemmurnar sjálfar að verulegu
leyti.
Magnús sagði að 10-12 manns
hefðu að undanfórnu unnið hjá fyrir-
tækinu og hófu þeir endurreisnar-
starf strax í morgun. Reynt verður
að koma fyrirtækinu í gagnið í haust
en þess má geta að hjá Þór hafa ver-
ið saltaöar þetta 3-7 þúsund tunnur
af síld undanfarin ár.
Um helgina réöust úrslit á ís-
landsmóti i siglingum á kjölbát-
um. Áhöfnin á Skýjaborg sigraði
- og er þetta í annað sinn í röð
sem áhöfnin hampar bikarnum.
Á myndinni er áhöfnin að lokinni
keppni. I fremri röð eru þeir
ísleifur Friðriksson og Óttar
Hrafnkelsson og í aftari röð eru
Bjarki Amorsson, Baldvin Björg-
vinsson og Hinrik Laxdal.
DV-mynd S
Einar Jónsson:
Lísl vel á Kari
Gústaf sem
veiðimann
„Veiðiferðin gekk mjög vel og
allt var eins og best varð á kosið.
Veðrið var mjög hagstætt og við
þurftum ekki aö leita mjog lengi
að dýrum. Karl Gústaf felldi sjálf-
ur tvö dýr og mér líst bara vel á
hann sem veiðimann. Svíarnir
náðu alls sex dýrum af þeim níu
sem voru felld,“ sagði Einar Jóns-
son á Brú í samtali við DV.
Þeir Einar og Skarphéðinn Þór-
isson voru í fór með Svíakonungi
og fylgdarmönnum hans á hrein-
dýraveiðum við Snæfell á Vest-
ur-öræfum um helgina. Á föstu-
daginn komu Karl Gústaf og
fylgdarmenn hans til Egilsstaða
og var þá haldið beint til ijalla.
•Gist var í Snæfeilsskála Feröafé-
lags Fijótsdalshéraðs, norðan
Vatnajökuls.
Hákon Aðalsteinsson, sem
keyrði hópinn á traustum Weap-
on jeppa, sagði að menn heföu
haldið vel út hvíldir á veíðar á
laugardagsmorgun.
„Þetta voru átján menn með
skyttum og var hópnum skipt
niður. Síðan var haldið tfl Skriðu-
klausturs um kvöldiö. Þeir voru
aliir mjög ánægðir með útkom-
una enda gekk ferðin vonum
framar,“ sagði Hákon.
-ÓTT
Innbrot í
Kringlunni
Brotist var inn í verslun í
Kringlunni 4 um helgina. Þaðan
var stolið fatnaði, peningum og
greiðslukortanótum. Talið er að
verömæti þess sem stolið var sé
á bilinu 60 tfl 100 þúsund krónur.
Rannsóknarlögreglan fer með
rannsókn innbrotsins. -sme
Júllabúð var
opin allan
sunnudaginn
„Það var fín sala hjá mér í gær
og ég er staðráöinn í að halda
þessu áfrarn," sagði Júlíus Júl-
íusson, kaupmaður í Júllabúð í
Áliheimum, í samtali við DV. í
búöinni var boðið upp á gosdrykk
og tertu sem viðskiptavinir
kunnu vel að meta. Júlíus hefur
lýst yfir andstöðu sinni gegn regl-
um um afgreiðslutíma sölubúða
í Reykjavík og hafði opiö í gær,
sunnudag, í trássi við gildandi
reglur. Lögreglan haíöi auga með
versluninni en hafðist ekki að.
-PÁ