Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháÖ dagblað
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Lögreglan í Reykjavík:
Þrekuðum
sundmanni
bjargað
úr sjónum
Lögreglan bjargaði manni sem
hafði lagst til sunds frá Ánanaustum
á laugardagskvöld. Hringt var til lög-
reglu á áttunda tímanum. Fjórir lög-
reglumenn fóru á eftir manninum á
gúmmíbáti. Þegar komið var að hon-
um urðu tveir lögreglumenn að
stinga sér til sunds og hjálpa mann-
inum þar sem mjög var dregið af
honum.
Þegar komið var með hann til lands
var hann fluttur á Landspítalann þar
sem hann var orðinn talsvert kaldur
og þrekaður.
Ekki er vitað hvað maðurinn ætl-
aðist fyrir þegar hann stakk sér til
sunds. Grunur er um að hann hafi
verið ölvaður.
-sme
Tveir teknir
. í Óshlíðinni
Lögreglan á ísafirði tók tvo öku-
menn fyrir of hraðan akstur í Óshlíð
á fóstudagskvöld. Annar mældist á
138 kílómetra hraða og hinn á 114.
Ökumennirnir voru báðir sviptir
ökuleyfi.
Þá tók lögreglan tvo ökumenn
grunaða um ölvun við akstur. Annar
var tekinn á Flateyri og hinn á
ísafirði.
Helgin var frekar róleg hjá lögregl-
unni á ísafirði.
-sme
Ölvaður öku-
7 maður lenti
í bílveltu
Aðfaranótt sunnudagsins vildi það
óhapp til í Hrunamannahreppi að
ökumaður missti stjóm á bíl sínum
og velti honum. Hann var einn í bíln-
um og slapp ómeiddur en hann var
að sögn lögreglu á Selfossi mjög ölv-
aður.
Ökumaður var á leið frá Flúðum
og var lögreglubíll nálægt er óhappið
varð. Bílhnn er töluvert skemmdur.
Um helgina var töluverður erill hjá
lögreglunni á Selfossi og voru þrír
aðrirteknirölvaðirviðaksturífyrri-
nótt. Engin slys urðu þó á fólki.
-ÓTT
Ríkisstjómin gerir borgurum tilboð:
Dóms- 09 um-
hverfismála-
- samstarfsráðherra Norðurlanda fylgir með í kaupunum
Rikisstjómin gekk frá tilboði ekki tjá sig um tilboð ríkisstjómar- töluna. í tilboði ríkisstjómarinnar
sínu til Borgaraflokksins í gær. innar. Þeir sögðu málefnin skipta er ekki tekið af skarið með það.
Samkvæmt heimildum DV em meira máli en embættin. Hins vegar er sagt að stefnt skuli
borgurum þar boðin tvö ráðherra- Samkvæmt heimildum DV er fátt að því.
embætti. afgerandi í tilboði rikisstjómarinn-
Framsóknarmenn munu láta ar. Borgaraflokkurinn hefur lagt Fátt eitt er eftir af upphaflegum
dóms- og kirkjumálaráðuneytið, mikla áherslu á afnám matar- kröfum borgara í tilboði ríkis-
borgurum er boðiö umhverfis- skattsins. Ríkisstjómin hefur hins stjórnarinnar. Reiknimeistarar
málaráðuneytið og kratar munu vegar þegar náð samkomulagi um stjórnarinnarfunduútaðefgengið
láta af hendi samstarfsráðherra hvernig staðið skuli að upptöku yrði að þeim öllum myndi það
Noðurlanda og forseta neðri deild- virðisaukaskattsins. Einungis kosta ríkissjóö um 10 milljarða.
ar. kindakjöt, nýmjólk og fiskur verð- Þeim var því flestum hafiiað. .
Þeir þingmenn Borgaraflokksins ur niðurgreitt. Borgarar hafa einn- -gse
sem DV ræddi við í morgun vildu ig vifjaö aíhema lánskjaravísi-
Mikil veðurblíða hefur leikið við landsmenn undanfarna daga og ungir sem gamlir leikið við hvern sinn fingur.
Þótt örlað hafi á næturfrosti á stöku stað hefur fólk brugðið sér í tjaldferð í sumarlok. Heiðrikja og sólskin var
þegar þessum tjöldum var slegið upp í helgarbyrjun en þegar vinurinn á myndinni leit út í morgun var heldur
aumlegt um að litast, látlaus beljandi. Þeim sem sáu mánaðarveðurspána, sem DV birti í síðustu viku, ætti ekki
að vera brugðið eða þeim er heyrðu og sáu spána á skjánum i gærkvöld - þær eiga samleið. DV-mynd KAE
íkveikja í
Skagafirði
Talið er víst að eldurinn, sem
braust út á bænum Hróarsdal í
Skagafirði í gær, hafi kviknað af
mannavöldum. Búið er að útiloka að
eldurinn hafi kviknað í heyi og eins
er útilokað að hann hafi kviknað út
frá rafmagni.
Reyk sást leggja frá reykhúsi, sem
er undir fjárhúsi, frá klukkan átta
um morguninn. Um klukkan tvö
gaus upp mikill eldur og urðu fjárhús
og hlaða alelda á skömmum tíma.
Slökkvistarf tók um fjórar klukku-
stundir. Fjárhúsið og hlaðan eru
gjörónýt eftir eldinn. Rösklega 800
baggar af heyi voru í hlöðunni. Þeir
eru ónýtir.
Enginn býr í Hróarsdal en jörðin
er nýtt. Þrátt fyrir að reyk legði frá
bænum grunaði engan hvað var í
vændum. Talið var að reykinn legði
frá reykhúsinu. Ekkert bendir til
þess að svo hafi verið. Lögreglan á
Sauðárkróki vinnur að rannsókn á
brunanum. Eins og fyrr sagði leikur
grunur á að eldurinn hafi kviknað
af mannavöldum. -sme
Hestamaður
fyrir bfl
Hestamaður varð fyrir bíl á Sauð-
árkróksbraut seint í gærkvöld. Öku-
maður bíls, sem var ekið norður
brautina, sá ekki hestamennina, sem
voru tveir, fyrr en of seint. Bíllinn
skall aftan á öðru hrossinu. Knapinn
kastaðist af baki. Hann slasaðist tals-
vert en er ekki í lífshættu. Aflífa
varð hrossið.
Myrkur var þegar slysið varð. Lög-
reglan á Sauðárkróki vill taka fram
hversu nauðsynlegt er fyrir hesta-
menn að vera með endurskinsmerki
þegarriðiðerímyrkri. -sme
Nýlegur bíll
hafnaði úti
í skurði
Um kvöldmatarleytið á laugardag
vildi það óhapp til á Hagabraut í
Holtum að nýlegur japanskur bíll ók
út af veginum og hafnaði síðan á hjól-
unum úti í skurði.
Að sögn lögreglu á Hvolsvelli mun
ökumaður hafa misst stjórn á bílnum
í lausamöl og var hann, ásamt far-
þega sem sat í aftursæti, fluttur á
slysadeild Borgarspítalans. Ekki
mun vera um alvarleg meiðsl að
ræða og mun það vera bílbeltum að
þakka að ekki fór verr. Bíllinn er
mikið skemmdur eftir óhappið.
-ÓTT
LOKI
Þetta er að verða eins og
arabískur prúttmarkaður
í pólitíkinni
Veðrið á morgun:
Rigning
eða súld
Á morgun er gert ráð fyrir
sunnan- og suðaustanátt um
mestallt land. Um sunnan- og
vestanvert landið verður rigning
eða súld þegar líður á daginn.
Þurrt verður að mestu á Norður-
og Austurlandi. Hiti verður á bil-
inu 7-12 stig.
Kentucky
Fried
Chicken
Hjallahrauni ij, Haftiarfirði
Kjúklingarsem bragð erað.
Opið alla daga frá 11—22.
UmAmsterdam
tíl allra átta
ARNARFLUG
•JÉSf
KLM
Lágmúla 7, Austurstræti 22
<g 84477 & 623060