Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Blaðsíða 32
m
Andlát
Svava Þórarinsdóttir Schiöth, Póst-
hússtræti 13, andaðist 24. ágúst.
Jarðarfarir
Útfór Guðrúnar Jóhannsdóttur
kennara, Hamrahlíð 7, sem lést 21.
ágúst sl., verður gerð frá Áskirkju
miðvikudaginn 30. ágúst kl. 13.30.
Hördur Tulinius, Eikarlundi 10, Ak-
ureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri mánudaginn 21. ágúst.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
í dag, mánudaginn 28. ágúst, kl. 13.30.
Magnús Jochumsson rennismiöur,
Klettahlíð 12, Hveragerði, andaðist
að heimili sínu mánudaginn 21. ágúst
sl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 1. september kl.
13.30.
Oddný Ingvarsdóctir frá Laugardals-
hólum, Laugavegi 98, Reykjavík. lést
fimmtudaginn 17. ágúst í Landspítal-
anum. Útförin verður frá Dómkirkj-
unni þriðjudaginn 29. ágúst kl. 10.30.
Ingimar Worm Kristjánsson frá Mið-
sitju, Kleppsvegi 58, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
29. ágúst kl. 15.
Elísabet Sveinsdóttír, Goðatúni 30.
Garöabæ, verður jarðsungin frá
Garöakirkju miðvikudaginn 30.
ágúst kl. 13.30.
’Páll Snæfeld lést 19. ágúst. Hann
fæddist á Sævarenda í Loðmundar-
firði 12. janúar 1893. Foreldrar hans
voru Jóhann Benónýsson og Jó-
hanna Pálsdóttir. Jóhann stundaði
sjómennsku í 27 ár eöa til ársins 1935
er hann hóf störf hjá Sambandinu
og starfaöi hann þar fram á áttræðis-
aldur. Páll var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Elísabet Thorarenss-
en en hún lést langt um aldur fram.
Þau eignuðust saman þrjú börn. Eft-
irlifandi eiginkona Páls er Guðlaug
Bjarnadóttir. Þau eignuðust flögur
börn. Útfór Páls verður gerö frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RKI heldur námskeiö í
skyndihjálp. Þaö hefst þriöjudaginn 29.
ágúst kl. 20 og stendur í 5 kvöld. Nám-
skeiöiö verður haldiö aö Ármúla 34
(Múlabæ). Öllum 15 ára og eldri er heim-
il þátttaka. Þeir sem hafa áhuga á aö
komast á námskeiöið geta haft samband
við skrifstofu deildarinnar. Fjöldi þátt-
takenda er takmarkaöur. Leiðbeinandi
veröur Guðlaugur Leósson. Meðal þess
sem kennt verður er endurlífgun og
margt fleira sem getur skipt máli er slys
ber að höndum. Það hefur oft sannast aö
sú hjálp sem nærstaddir veita getur haft
afgerandi áhrif þegar mikiö liggur viö.
Tilkyimingar
Leiðsöguskólinn tekur
til starfa
Leiösöguskóli Feröamálaráös tekur til
starfa 25. september nk. Kennsla fer fram
á mánudags- og miövikudagskvöldum í
vetur og stendur fram til vors (maí). Þeir
sem standast öll próf skólans fá löggild-
ingu Feröamálaráös sem leiðsögumenn
feröafólks. Leitaö er eftir fólki sem hefur
reynslu af ferðalögum hér innanlands,
þekkir ísland og íslenskt þjóðfélag, hefur
góöa kunnáttu í erlendum tungumálum
(sérstaklega þýsku eða frönsku auk
ensku) og hefur áhuga á leiösögustarfi.
Umsóknareyöublöð og allar upplýsingar
fást á skrifstofu Feröamálaráös Islands,
Laugavegi 3, Reykjavík. Innritun lýkur
29. ágúst nk.
Bílanaustsrall
Dagana 1.-3. september veröur haldið
Bílanaust-rally 1989. Keppnin hefst viö
Bílanaust. Borgartúni 26. Reykjavík,
fóstudaginn 1. september kl. 11.30 og lýk-
ur á sama staö kl. 13 þann 3. sept. og þar
verða einnig næturstopp bæði kvöldin.
Keppnin er alþjóöleg og er 1.275 km á
lengd og þar af 465 km á sérleiðum. Fjór-
ar erlendar og nokkrar innlendar áhafnir
hafa þegar skráð sig til keppni og er búist
við mikilli baráttu um öll sætin í keppn-
inni því hún gefur stig til íslandsmeist-
aratitils öku- og aöstoðarmanna og einnig
til bikarmeistarakeppni Bílgreinasam-
bandsins. Allar nánari upplýsingar eru
veittar í síma 73234 á kvöldin.
Tónleikar
Styrktartónleikar í
íslensku óperunni
Fimmtudaginn 31. ágúst heldur Edda
Erlendsdóttir styrktartónleika í íslensku
óperunni kl. 20.30. Edda er íslendingum
að góöu kunn, hún hefur haldiö hér fiölda
tónleika en auk þess hefur hún haldiö
tónleika í Skandinavíu, Belgíu, Spáni,
Þýskalandi, Rússlandi, Bandaríkjunum
og Frakklandi. Þá hefur hún víða leikið
í útvarpi og komið fram í sjónvarpi. Hún
hefur einnig leikið meö Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Tónleikamir á fimmtudag
eru til styrktar kaupum á flygli í félags-
heimiliö Kirkjuhvol á Kirkjubæjar-
klaustri en Edda á ættir sínar að rekja
þangaö austur. Á tónleikunum verða
verk eftir: C. Ph. E. Bach, Schubert,
Chopin, Grieg og Schumann.
MÁKllbÁGÚR '281 ÁGÚST
DV
Menning
Ósjálfráðar
íslandsmyndir
- um sýningu Michaels Kunert í FÍM-sal
íslandsvinurinn austur-þýski Mic-
hael Kunert sýnir um þessar
mundir verk sín í FÍM-sal viö
Garðastræti, akrýlmálverk og graf-
ík. Kunert nam list viö Listaháskól-
ann í Leipzig, mestmegnis undir
handleiöslu Hartwigs Ebersbach,
en kennsla hans mun hafa verið
mjög óhefðbundin og beinst aö því
að innleiða ný viðhorf til náms.
M.a. mun þar hafa verið lögð
áhersla á tengsl ólíkra listgreina,
gjörninga og nýexpressjónisma í
málverki.
Flæði
Kunert kveðst hafa hrifist svo af
íslenskri náttúru þegar hann kom
hér fyrir tveimur árum að hann
hefur tileinkað íslandi mörg verka
sinna síðan þá. Þessa sér stað á
sýningunni í FÍM-sal, í verkum á
borð við „Mein Herz kotzt uber
Achterdeck", sem þýða mætti:
„Hjarta mitt ælir yfir áttundu
brú“. Svo upplifun Kunerts á ís-
landi er í það minnsta ekki rós-
rauð. Sýning hans er býsna litrík,
stundum um of. Flæðistíll teikning-
anna flæðir á stundum yfir bakka
sína. En stundum ekki, og þá er
oftast nær um gullkorn að ræða.
Ósjálfrátt
Akrýlmyndin „Die Flut“ („Flóð-
ið“) er kraftmikil og einföld aö upp-
byggingu en býr yfir leyndardóms-
fullum smáatriðum eins og Kunert
virðist í lófa lagið að töfra fram
„ósjálfrátt". Þessi ósjálfráði blær
teikninganna virðist oft á tíðum
eins og bein tilvísun í liststefnu
Frakklands Jean Dubuífet sem
hann kallaði „L’art brut“. Dubuffet
var skólaður í myndlistarakademí-
um en gerðist fráhverfur öllum
listaelítum og datt í hug að listar-
innar væri fremur að leita hjá
börnum og geðsjúkum. Hann lagði
ofuráherslu á automatisma eða
ósjálfráða teikningu sem dadaistar
og súrrealistar höfðu gert tilraunir
með tveimur til þremur áratugum
áður. Þar áöur höfðu hinir ýmsu
dulspekiáhugamenn iðkað ósjálf-
ráða teikningu því þannig töldu
þeir sig geta komist í tæri viö anda-
heiminn. Michael Kunert ákallar
hina ýmsu vætti í verkum sínum
en þó virðist hann fyrst og fremst
„Rödd borgarinnar" eftir Michael Kunert.
Myndlist
Ólafur Engilberts
í könnun síns innra lands. Vítis-
myndin „Hölle" er til vitnis um það
og sömuleiðis „Verwandlung".
Myndirnar „Schwimmer auf
Lawagrund" og „Befragung des
Gletscher" eru í opnari stíl og
greinilega íslenskættaðar.
Ofhlaöið
Grafíkin í neðri sal ásamt bók-
verkunum er sér kafli á sýningu
Kunerts. Hvorugur kaflinn þykir
mér hinum yfirsterkari eða betri.
Kunert hættir líka til að ofhlaða
grafíkverkin, samanber „Licht" og
„Einfach uber wasser gehen“.
Silkiþrykk er greinilega ekki held-
ur sterkasta hlið Kunerts. Best
þykir mér parið undir nýja tungl-
inu og hausamyndirnar og „Rödd
borgarinnar".
Meðal annarra orða: FÍM hefði
gjarna mátt þýða heiti verkanna
mörlöndum til hagræðingar. Eiga
„íslandsmyndir" ekki heimtingu á
slíkri viðleitni? Lýsingu hefði einn-
ig að ósekju mátt vanda betur. Sýn-
ing Michael Kunert stendur til
þriðjudagsins 5. september.