Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 3
LAUGARDAGL'R 9. SEPTEMBER 1989.
9
„Hálfmillinn“ Dagbjört Gunnarsdótt-
ir, fjórtán ára Dalvíkurstúika, er búin
að leggja aurana í banka.
DV-mynd Geir
14 ára á Dalvík:
Fékk hálfa
milljón á
happaþrennu
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvík;
Þriðjudaginn 5. sept. keypti 14 ára
Ðalvíkingur, Dagbjört Gunnarsdótt-
ir, tvær happaþrennur í Verslunar-
miðstöðinni Sogni og vann á aðra
þeirra 50 krónur. Því ákvað stúlkan
að nota vinninginn til að kaupa
þriðju happaþrennuna: allt er þá
þrennt er - og viti menn, hálfrar
milljónar króna vinningur var orð-
inn hennar eign.
Dagbjört segist hafa keypt eina og
eina happaþrennu í gegnum tiðina
og mest unnið 500 krónur þar til nú
að stóri vinningurinn kom.
Vinkonur Dagbjartar vildu í fyrstu
ekki trúa því hversu heppin hún
hafði verið og báðu hana því í hálf-
kæringi að lána sér hundrað þúsund
krónur. Hálfu milljónina er hún hins
vegar búin að leggja inn í sparisjóð-
inn þar sem peningarnir ávaxtast því
hún sagði engar áætlanir uppi um
ráðstöfun þeirra.
Bæjarstjóm Njarðvíkur:
Vill breikkun
Reykjanes-
brautarinnar
Bæjarstjórn Njarðvíkur skorar á
ríkisstjórn að láta nú þegar heijast
handa viö gerð áætlana um breikkun
brautarinnar eða aðrar þær úrbætur
sem auka megi öryggi vegfarenda og
fækka slysum á henni.
Bæjarstjórnin telur að ástand
brautarinnar sé þannig að ástæða sé
til að hafa verulegar áhyggjur af
málinu.
„í votviðri er brautin beinlínis
hættuleg ytirferðar vegna hins mikla
shts sem orðið er á henni og algengt
að bifreiðar fljóti upp. Þar sem ein-
ungis er ein akrein í hvora átt er
framúrakstur mjög algengur og við
slíkar aðstæður er hann stórhættu-
legur,“ segir meðal annars í sam-
þykkt bæjarstjórnar Njarðvikur.
„Það kæmi mér ekki á óvart þó
tugir manna létu hfið á Reykjanes-
brautinni í vetur. Það eru komnir í
hana slæmir skorningar eftir síðustu
endurbætur. í hálku og bleytu er hún
ekkert annað en dauðagildra," sagði
Stefán Thordersen, aðstoðarvarð-
stjóri hjá Keflavíkurlögreglunni, um
ástand brautarinnar í DV á mánu-
daginn var.
„Veturinn leggst iha í mig eins og
ástandið á brautinni er. Ég spái því
að hún eigi eftir að verða mikið í
fréttum í vetur.“
Þessi ummæh Stefáns hafa orðið
tilefni mikiha umræðna um ástand
Reykjanesbrautar. -gse
Fréttir
Æ hagstæðara
að selja erlendis
Þorskverð innlands og erlendis
kr. pr. klló
120
100
80
60
40
20
0.....................
septokt nóv des jan feb marsaprilmaí júní júlíágúst
A undanfómum mánuðum hefur
munur á fiskverði hér innanlands
og erlendis farið vaxandi. Ástæðan
er ekki verðhækkun erlendis heldur
fyrst og fremst lækkandi gengi ís-
lensku krónunnar. Eftir stendur að
hagur útgerðarmanna við að selja
erlendis fer vaxandi.
í línuriti hér th hhðar er borið sam-
an verð á þorski; annars vegar á
mörkuðum í Hull og Grimsby og hins
vegar verð sem verðlagsráð gefur út.
Eins og sjá má hefur bihð farið vax-
andi á síöustu mánuðum.
Mismunurinn er minni á mhh
verðs í Bretlandi og verðs á fisk-
mörkuðum hér innanlands. Hins
vegar er innan við 10 prósent af
þorskafla, sem seldur er hérlendis,
seldur á fiskmörkuðum. Að lang-
stærstum hluta fá útgerðarmenn
greitt samkvæmt verlagsráösverði.
Um næstu mánaðamót mun verð-
lagsráðsverðið hækka um 3,8 pró-
sent. Það verð mun ghda allt fram
að byrjun febrúar á næsta ári.
Óvist er um verðbreytingar erlend-
is en fiestir spá þó verðhækkunum
þar. Ástæðan er sú að flestöh Evr-
ópulönd eru nú að klára kvóta sína
og með minnkandi framboði mun
verðið hækka. '
Það má því búast við að æ hagstæð-
ara verði fyrir íslenska útgerðar-
menn að selja afla sinn erlendis.
-gse
Meðferðarhelmlli:
Fitjar og
Móar
helst í
sigtinu
„Það er ljóst aö við horfúm hvað
mest th tveggja húsa núna -ann-
ars vegar Fifja og hins vegar Móa
á Kjalamesi,“ sagði Erlendur
Krisfjánsson, dehdarstjóri í
raenntamálaráðuneytinu og for-
raaður samstarfsnefiidar sex
ráðuneyta i baráttu við ávana- og
fíkniefnaneytendur, en ráöuneyt-
iö leitar nú að heppilegu husnæöi
undir heimih fynr unga fíkni-
efnaneytendur.
Er lendur sagði að nú væri beðið
eftir áhti nefndar sem væri að
taka út húsin tvö en hún fer yfir
ástand eignanna um leið og hún
raetur verðmæti þeirra, Söluverð
á Fhjura hefúr verið nefnt upp á
55 mihjónir króna en Móar munu
vera talsvert ódýrari. Að sögn
Erlends er einnig möguleiki á því
að leigja Fitjar og er eitt af hlut-
verkum matsnefndar að skoða
þann möguleika. Er þess vænst
að nefndin skhi niðurstöðu á
mánudaginn. -SMJ
Munum selja á næstu dögum
NISSAN SUNNY COUPÉ 1989
auk annarra Nissan bíla af 1989
árgerð með afslætti.
- Lítið inn og leyfið okkur aö koma ykkur á óvart!
Við bjóðum m.a. 25% út og eftirstöðvar á allt að
þremur árum meö venjulegum lánakjörum banka.
Ingvar
Nelgason ht
Sævarhöfða 2
- sími 67-4000
Munið bílasýninguna laugardag
og sunnudag kl. 14.00-17.00.
- réttur bíll á réttum stað
WR' í l 1
\ : - [E 2 K J
fWSLsái