Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Side 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989.
Trúnaðarbrestur meðal templara á Akureyri:
Ýmislegt gefið í skyn í
löngu og áleitnu bréfi
- raknar kjaftasögur segir Ingimar Eydal
Félagar í stúkunum ísafold og
Brynju á Akureyri hafa tekið saman
langan lista þar sem óskaö er svara
viö 24 spurningum. Spurningarnar
beinast allar aö rekstri fyrirtækja
IOGT á Akureyri. Stúkumar tvær
hafa átt tvö áberandi fyrirtæki á
Akureyri. IOGT átti Hótel Varðborg
þar til hótelið var selt fyrir ekki
löngu síöan. Stúkurnar eiga og reka
Borgarbíó sem er eina kvikmynda-
húsið á Akureyri.
í bréfi reglubræðranna er látið að
ýmsu liggja. Þar er meöal annars
spurt um rekstur sælgætissölunnar
og einnig hvað haíi veriö gert við
þann aðgangseyri sem greiddur hef-
ur vérið í sælgætissölunni. Þá er sagt
aö starfsfólk sé óánægt með kjör sín
Gler-
ísetningu
að verða
lokið
Nú er unnið af fullum krafti við aö
glerja hús Hitaveitu Reykjavíkur í
Óskjuhlíöinni. Að sögn Gunnars
Kristinssonar hitaveitustjóra er gert
ráð fyrir að glerjun veröi lokið 20.
september.
Gunnar sagði að allar framkvæmd-
ir hefðu gengið vel og samkvæmt
áætlun. Gert er ráð fyrir að húsið
verði tekiö í notkun um áramótin
1990-’91. Að sögn Gunnars hefur ekki
verið rætt við neina aöila ennþá um
rekstur veitingastaðarins en gert er
ráð fyrir að bjóða hann út.
-SMJ
Hofsós:
Fáninn
saumaður
áfram
Þórhaflur Ásirumdsson, DV, Sauöárkróki;
„Þaö er reiknað með aö hér verði
haldið áfram að sauma og alveg
ákveðið að íslenski fáninn verði
saumaður áfram á Hofsósi," sagði
Svanhildur Guðjónsdóttir í sauma-
stofu KS á Hofsósi. Hún er eini starfs-
maðurinn á saumastofunni sem
stendur en íjórum konum, sem þar
unnu, var sagt upp í vor.
Svanhildur sagðist búast við að
áður en langt um liði yrði farið að
huga að áframhaldandi rekstri
saumastofunnar, hvort sem kaup-
félagiö héldi honum áfram eða ein-
hver annar. Mikill lager hefur safn-
ast upp og vinnur Svanhildur nú við
þaö að afgreiða pantanir og reynir'
síðan að bæta inn í ef eitthvað vantar.
„Lagerinn hefur veriö að safnast
upp á nokkuð löngtnn tíma. Það hefði
náttúrlega verið réttara að draga úr
starfseminni fyrr. Einnig hefði kom-
iö sér betur fyrir konumar að draga
úr vinnunni tíma og tíma heldur en
aö missa hana alveg,“ sagði Svan-
hildur.
og aö ekki hafi verið greitt í lífeyris-
sjóð og órlof eins og ber að gera. Þá
er látið að því liggja að skemmdir,
sem hafa orðið á tækjum kvik-
myndahússins, hafi orðiö vegna van-
kunnáttu. Félagarnir vilja einnig fá
svör við því hver sjái um úthlutun
frímiöa á sýningar.
Þeir sem tóku saman spurningarn-
ar segja að ákveðið hafi verið að bíó-
stjórinn léti af störfum. Þeir spyrja
hvers vegna hann sé enn við störf.
Auk þess sem hér hefur verið nefnt
er fjöldi annarra spuminga í saman-
tektinni.
Auglýst eftir höfundunum
„Eg auglýsi hér með eftir þeim
mönnum sem skrifuðu þetta bréf. Ég
vil fá að ræða þessi mál við þá á rétt-
um vettvangi," sagði Ingimar Eydal
en hann er varaformaður stjórnar
fyrirtækja IOGT.
Ingimar sagöi að afriti af bréfmu
hefði verið stungið inn um bréfalúg-
una á sínu heimili. Hann sagði að
bréfið hefði verið óundirritað og að
hann vissi ekki fyrir víst hver skrif-
aði það. Ingimar sagðist þó gruna að
það væra félagar í templarareglunni
á Akureyri.
Þrátt fyrir að Ingimar hafi ekki
viljað fara nákvæmlega í þær spum-
ingar, sem settar eru fram í bréfmu,
sagði hann að mörgum þeirra væri
auðsvarað.
„Eftir að við tókum upp tvo sýning-
arsali hefur miðasölustúlka selt alla
aðgöngumiða. Áður kom það fyrir
aö dyraverðir eða aðrir starfsmenn
seldu aðgang í sælgætissölunni. Það
fyrirkomulag tíðkast ekki lengur,“
sagði Ingimar.
DV ræddi við nokkra templara á
Akureyri. Nokkrir þeirra voru mjög
ósáttir við hvernig staðið væri að
rekstri fyrirtækjanna. Það kom með-
al annars fram að á síðasta ári hefði
nýtingin á hótelinu aðeins verið um
15 prósent.
„Það er rétt að nýtingin á hótelinu
var ekki góð. Það sem látið er aö
liggja í þessu bréfl era raknar kjafta-
sögur. Ef þær ásakanir, sem settar
eru fram á framkvæmdastjórann,
eru réttar mun ég ekki trúa neinum
manni hér eftir. Það vel treysti ég
þessum manni. Ég harma að þessir
menn hafi snúið sér til fjölmiðla frek-
ar en að ræða þessi mál opinskátt á
stúkufundum. Við erum fáir virkir
félagar hér og það þarf að ríkja frið-
semd á meðal okkar,“ sagði Ingimar
Eydal.
Hefur ekki verið rekinn
Ingimar sagði það ekki rétt að
framkvæmdastjóranum hefði verið
sagt upp störfum. Ingimar sagði að
þegar hótelið hefði verið selt hefði
framkvæmdastjóranum eðhlega ver-
ið sagt upp sem hótelstjóra en hann
væri enn framkvæmdastjóri Borgar-
bíós.
-sme
39 nauðungar-
uppDoo aug-
lýst á
þessa vikuna
Hrina nauðungaruppboða er kú
á Patreksflrði. Þessa vikuna vora
39 nauðungaruppboð auglýst á
Patreksflrði. Að sögn Stefáns
Skarphéðinsson, sýslumamis á
Patreksfiröi, era þaö fyrst og
fremst fasteignir einstaklinga og
fýrirtækja sem verið er að bjóða
upp.
Stefán segir ennfremur aö 39
nauðungarappboð sömu vikuna
séu auðvitaö mikiö á stað eins og
Patreksflröi. „En því miður er
annar eins fjöldi að fara í Lög-
birtingablaöið til auglýsingar.“
-JGH
Tjónskýrslur:
Lögreglan
kentur sé
þess óskað
Lögreglan í Reykjavík ætlar að
dreifa fjóntilkynningum og leið-
beiningarbæklingi um notkun
þeirra til þeirra ökumanna sem
ekki era með tjónskýrslur í bílum
sínum. Dreifingin verður 12. sept-
ember. Lögreglan ætlar að vekja
athygli ökumanna á því hvemig
á aö fylla út skýrslurnar og hvetja
ökumenn til aö vera með þær í
bílum sínum.
Lögreglan kemur á vettvang í
þeim tilfellum þar sem hennar er
þörf. Eins mun lögreglan kom á
slysstað en einnig í öðrum tilfell-
um og aöstoöa við útfyllingu tjón-
skýrslnaséþessóskaö. -sme
Leiðrétting
Sú villa var í frétt DV í gær af
málefnum Birtingar að Ámi Páll
Ámason var titlaður formaður
félagsins. Það er rangt. HiÖ rétta
er að Kjartan Valgarðsson heild-
sali er formaður félagsins en Árni
Páll hins vegar stjómarmaður í
félaginu. Þetta var misskilningur
blaðamanns og eru viðkomandi
beðnirvelvirðingar. -SMJ
.......
-f-m'
Nú er glerkúpulinn að verða kominn upp á Öskjuhlíöarhúsinu en rúmlega ár er þangað til húsið fer að snúast
með gesti. Veitingastaðurinn verður á efri hæðinni en eldhús á neðri hæð. Efst verður síöan loftræsting og bruna-
varnaútbúnaöur. DV-mynd GVA
Leiðrétting
Sú villa var í frétt DV í gær af
málefnum Birtingar að Ámi Páll
Ámason var titlaður formaður
félagsins. Það er rangt. Hið rétta
er að Kjartan Valgarðsson heild-
sali er formaður félagsins en Árni
Páll hins vegar stjómarmaður í
félaginu. Þetta var misskilningur
blaðamanns og eru viðkomandi
beðnirvelvirðingar. -SMJ