Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Side 6
6
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989.
Útlönd
Tugir
fórust
er norsk
flugvél
hrapaði
Norsk flugvél með yfir fimmtíu
farþega og flmm áhafnarmeðlimi
um borð hrapaði í hafið skammt
norður af Jótlandi í Danmörku
síðdegis í gær. í gærkvöldi höfðu
yfir þrjátíu lík veriö dregin upp
úr sjónum. Var talið víst að aflir
sem um borð voru hefðu farist.
Brak flugvélarinnar, sem var af
gerðinni Convair Metropolitan og
smíðuð í Bandarikjunum, var
dreift um stórt svæöi.
Sjö danskir bátar og tvær þyrl-
ur leituöu á slysstaö og afþökk-
uðu Danir hjálp frá Norðmönn-
um við leitina.
Smíöi véla af þessari gerð var
hætt á sjöunda áratugnum og
norska sjónvarpið greindi frá því
í gær að SAS-flugfélagið hefði
hætt að nota slíkar vélar fyrir
tuttugu og fimm árum þar sem
þær þóttu ekki nógu góðar.
Haft er eftir starfsmanni á Kas-
trupflugvelli við Kaupmanna-
höfh að norska vélin, sem var á
leið frá Osló til Hamborgar, hefði
ekki gefið nein merki fi:á sér áður
en hún hrapaði.
Talsmaður flugfélagsins
Partnair í Osló, sem leigði út flug-
vélina, sagði að margir farþeg-
anna hefðu verið Norðmenn.
Hann viidi ekki greina frá af
hvaöa þjóöerai aörir farþegar
hefðu verið en sagði aö norska
skipafélagiö Wilhelm Wilhelm-
sen hefði tekiö vélina á leigu.
Reuter, Ritzau, NTB
Aoun bidlar
til Ameríku
Michel Aoun, herforingi krist-
inna í Líbanon, hvatti bandarísk
yfirvöld í gær til að senda dipló-
mata sfna aftur til Beirút. Kvað
hann brottfór þeirra hafa veriö
ónauðsynlega og stafa af röngum
upplýsingum.
Brottför bandarísku sendiráðs-
starfsmannanna hefur einangrað
Aoun f baráttunni gegn Sýrlend-
ingum en hún hefur staðið í fimm
mánuöi.
Nokkrir hinna nýju ráðherra pólsku stjórnarinnar. Efst til vinstri er Mazowiecki forsætisráðherra, þá Balcerowicz
fjármálaráðherra og Kiszczak innanríkisráðherra. í neðri röð frá vinstri eru Siwicki varnarmálaráðherra, Bentkow-
ski dómsmálaráðherra og Skubiszewski utanrikisráðherra. Símamynd Reuter
Stjórnin lofar rót-
tækum breytingum
Raðherrar hinnar nýju ríkisstjom-
ar Póllands hétu því í gær að hverfa
fljótt frá efnahagsstefnu kommún-
ista og tryggja á ný sjálfstæði lands-
ins eftir áratuga eftirlit frá Moskvu.
Það var aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir útnefninguna sem ráð-
herramir sögðu að sögulegra breyt-
inga væri að vænta. Þeir hygðust
taka upp markaðshagkerfi að vest-
rænum hætti, hvað sem það kostaði.
Það þótti jaðra við sjálfstæðisyfir-
lýsingu þegar hinn nýi utanríkisráð-
herra Póllands, Krzysztof Skubis-
zewski, sagði, um leið og hann kom
fyrst opinberlega fram i nýja emb-
ættinu, að samskiptin við Sovétríkin
ættu að byggjast á jafnræði, sjálf-
stæði og virðingu fyrir þeirri reglu
að skipta sér ekki af málefnum hins
aðilans.
Utanríkisráðherrann kvaðst
myndu krefjast þess að hundruð þús-
undum Pólverja, sem Stalin flutti
nauðuga á brott, yrði leyft að snúa
heim aftur.
Samstaða fær sex ráðuneyti og
fjögur önnur embætti í nýju stjórn-
inni, kommúnistar og Sameinaði
bændaflokkurinn fjögur ráðuneyti
hvor og Lýðveldisflokkurinn þrjú.
Stjómin í Póllandi er sú fyrsta í Aust-
ur-Evrópu sem kommúnistar era
ekki í forsvari fyrir en ráðherrar
kommúnista virðast reiðubúnir að
taka þátt í breytingunum.
Vamarmálaráðherrann, Florian
Siwicki, sagði í gær aö herskylda
yrði minnkuð úr tveimur áram í átj-
án mánuði árið 1991 og innanríkis-
ráðherrann, Czeslaw Kiszczak, lofaði
að vinna að því að minnka umsvif
lögreglunnar og tryggja aö þingiö
gæti fylgst með staifsemi leyniþjón-
ustunnar.
Fjármálaráðherrann og varafor-
sætisráðherrann, Leszek Balc-
erowicz, er Samstöðumaður eins og
allir aðrir er fara með efnahagsstjóm
Póllands. Hann sagði aö til þess að
geta tekið upp fijálst markaðshag-
kerfi þyrftu Pólverjar að herða sult-
arólina. Verðbólgan í Póllandi er
núna nær 200 prósent.
Iðnaðarráðherrann, Tadeusz Sy-
ryjczyk, varaði við lokun verksmiðja
á meðan á breytingunum stæði en
atvinnumálaráðherrann, Jacek Kur-
on, sagöi að ekki væri hætta á að
fjöldi manns yrði atvinnulaus. Hins
vegar þyrftu einkaaðilar að gefa fá-
tækum mat í komandi harðindum.
Atvinnumálaráðherrann stakk
einnig upp á atvinnuleysisbótum
handa verkamöunum sem misstu
vinnunaviðbreytingamar. Reuter
KR-völlur í dag
KR - Þór
í íslaxidsxYiótixtii - Hörpiadeild
tlTSÝN
Tölvupappír
FORMPRENT
Hvorfisqotu /8 simar 259b0 28566
bjartsýni
Hans Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, kvaðst í gær búast við aö
þúsundir austur-þýskra flótta-
manna gætu haldið frá Ungveija-
landi til vesturs á allra næstu
dögum.
Rúmlega hundrað flóttamenn,
sem dvalið hafa í v-þýska sendi-
ráðinu i Austur-Berlín, fóra þaö-
an af frjálsum vilja í gær eftir að
hafa fengið loforð um lagalega
aðstoð við að flytja úr landi. Yfir-
völd lofuðu að ákæra ekki flótta-
mennina en þeim var ekki lofað
vegabréfsáritunum.
Starfsmenn Rauöa krossins í
Austurriki sögðu í gær að yfir
hundrað austur-þýskir flótta-
meim, sem þreyttir voru orðnir á
að bíða eftir skipulagöri brottför
til vesturs, heföu farið ólöglega
frá Ungverjalandi aðfaranótt
fóstudagsins. Nóttina áður laum-
uðust fimmtíu á brott.
Genscher kvaðst vongóður
vegna ummæla talsmanns ung-
versku stjórnarinnar sem sagði
aö búast mætti við mannúölegum
aögeröum innan nokkurra daga.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 6-10 lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 6,5-11 Ub
6mán.uppsögn 9-12 Vb
12 mán. uppsögn 7-11 Ob
18mán. uppsögn 23 Ib
Tékkareikningar.alm. 1-3 Sb
Sértékkareikningar 3-11 Ib
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb
6mán.uppsögn Innláh með sérkjörum 2,25-3,5 Ib
13-16 Bb
Innlán genglstryggð
Bandaríkjadalir 7,5-8 Ab.Sb
Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab
Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb.Ab
Danskar krónur 8-8,5 Vb.Sb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Ab lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 24-26 Úb.Ab
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 27,75-31 Vb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 28-32 Lb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7-8,25 Lb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 25-30 Ob
SDR 9,75-10,25 Lb
Bandaríkjadalir 10,5-11 Allir
Sterlingspund 15,5-15,75 nema Ob Allir
Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 nema Ob Ob
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,8
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. sept 89 30.9
Verðtr. sept. 89 7,4
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala sept. 2584 stig
Byggingavisitala sept. 471 stig
Byggingavísitala sept. 147,3stig
Húsaleiguvisitala 5%hækkaði 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,158
Einingabréf 2 2,296
Einingabréf 3 2.725
Skammtímabréf 1,426
Lífeyrisbréf 2.091
Gengisbréf 1,849
Kjarabréf 4.132
Markbréf 2,193
Tekjubréf 1,786
Skyndibréf 1,248
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,991
Sjóðsbréf 2 1,558
Sjóðsbréf 3 1,403
Sjóðsbréf 4 1,174
Vaxtasjóðsbréf 1,4070
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 302 kr.
Eimskip 377 kr.
Flugleiðir 172 kr.
Hampiðjan 167 kr.
Hlutabréfasjóður 131 kr.
Iðnaðarbankinn 165 kr.
Skagstrendingur hf. 212 Kr.
Otvegsbankinn hf. 138 kr.
Verslunarbankinn 146 kr.
Tollvörugeymslan hf. 109 kr.
T
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Ob = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nðnari upplýsingar um peningamarkað-
inn blrtast f DV á fimmtudögum.