Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Qupperneq 7
LAUGARDAGÚR 9. SEPTEMBER 1989. Allir þurfa að nota ENDURSKINSMERKI! Höfum ódýru bílana fyrir skólafólkið og líka þá dýru. Fréttir Loðnumjöl sem gæludýrafóður Regina Thorarensen, DV, Eskifiröi Útgeröarfyrirtækiö Eskfirðingur hf. var stofnað áriö 1985 og gerði þaö út bát sem sökk viö loðnuveiðar í fyrra. Aöalsteinn Valdimarsson eig- andi dó ekki ráðalaus og fyrir ári setti Eskfirðingur upp tæki til fisk- þurrkunar. Byrjað var að þurrka loðnu til útflutnings, aöallega gælu- dýrafóður sem selt er til Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Mánaðarlega flytur fyrirtækið út 5,5 tonn af þurrkaðri loönu í 500 gramma pokum. Líkar hún vel ytra. Einnig er verkaður harðfiskur, aðal- lega flök, sem þykja mjög góð. Þar vinna fimm manns: Kristján Bjarna- son, Atli Aðalsteinsson, sonur fram- kvæmdastjórans, og þrjár konur. Húsið er um 400 fermetrar að stærð. Þar er gott loft og þrifalegt, létt yfir mannskapnum og vinnur fólk af ánægju. Stjóm verkamannabústaöa á Akranesi: Kaupir sex notaðar íbúðir mannaíbúðir þannig að þörfin virðist mikil. Á þessu ári hefur stjórn verka- mannabústaða fengið heimild til kaupa á sex íbúðum en að auki eru níu félagslegar íbúðir í byggingu á Akranesi, fimm verkamannaíbúðir og flórar kaupleiguíbúðir. íbúðirnar, sem keyptar verða, eiga að vera tveggja og fjögurra herbergja og sagðist Jón Pálmi búast við að hægt yrði að afhenda þær að fjórum til fimm mánuðum liðnum. Garðar Guöjónsson, DV, Akranesi: „Þaö var ákveðið að kaupa notaðar íbúðir fyrst og fremst vegna þess að þær eru ódýrari og komast fyrr í notkun," sagði Jón Pálmi Pálsson bæjarritari í samtali við DV en ákveöið hefur verið aö kaupa sex verkamannaíbúðir á frjálsum mark- aði í stað þess að byggja eins og yfir- leitt hefur verið gert áður. Aö sögn Jóns Pálma hafa að jafnaði legið fyrir 30-40 umsóknir um verka- Laxveiði í Húnavatnssýslum: Helmingi minni en í fyrra 75% af veiöi síðasta sumars. Miðfjaröará kemur skást út af stærri ánum: 52% af veiðinni í fyrra. Þá kemur Vatnsdalsá með 43%, Laxá á Ásum með 42%, Víðidalsá 40% og Hrútafjarðará með 39% en veiði þar stendur til 20. september. Lökust var veiðin í Blöndu, 30%, og Svartá, 29%. Mönnum gengur erfiðlega að koma auga á ástæður fyrir þessari dræmu laxveiði. Haft hefur verið á orði að miklar seiðasleppingar í ámar hafi orðið til þess að rjúfa náttúrlegt jafn- vægi í lífríki þeirra. Silungsveiðin í sumar hefur hins vegar ekki valdið vonbrigðum. Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Laxveiði í ám í Húnvatnssýslum hefur verið með eindæmum dræm í sumar. í ágústlok höfðu einungis veiðst 43% af veiði síðasta sumars. Litlar líkur eru taldar á að á þeim tíma, sem eftir er, veiðist þeir 700 lax- ar sem mundu jafngilda helmingi veiðinnar síöasta sumar en þá veidd- ust 9500 laxar í húnvetnskum ám. Litlu árnar virðast koma mun bet- ur út en þær stóru. Tjarnará á Vatns- nesi kemur þar langbest út og þar hefur veiðst um 25% meira en í fyrra. Næstbesta smááin kemur út með Smíðaði eigin heypökkunarvél: Kostar innan við 10% af verði innfluttrar V/MIKLATORG Sími 621055 Bráðum opnast brúin og þá kætist frúin IUMFERÐAR RÁÐ „Það kostaði ekki mikið að smíða þessa vél - ættí það hafi ekki verið um tuttugu og fimm til þrjátíu þús- und krónur. Ég átti mest af þessu efni héma á ruslahaugnum hjá mér og fór út í þetta til að spara mér nokkrar krónur,“ sagði Stefán Halldórsson, bóndi á Brú á Jökuld- al. Stefán brá á það ráð að smíða eigin heypökkunarvél þegar hon- um hraus hugur við verði inn- fluttra véla. Lætur nærri að verðið á þeim sé á milli fjögur og fimm hundruð þúsund krónur. Stefán sagði aö þetta væri í sjálfu sér einfóld vél og hann hefði aðeins þurft að panta nokkur hjól og keðj- ur til að geta lokiö smíðinni en hann smíðaði vélina fyrr í sumar og tók það þrjár vikur. Stefán hefur hins vegar keypt böggunarvélina sjálfa enda sagði hann að hún væri flóknari og hann hefði þurft að kaupa meira efni í hana. - En hafa nágrannarnir leitað eftir því að þú smíðaðir slíka vél fyrir þá? „Það er nú ekki mikið um það en þó var einn sem vildi fá slíkan grip en ég veit nú ekki hvort ég hef tíma í það,“ sagði Stefán. -SMJ Atvinnu- og orkumál á Austurlandi Hun kostaði innan við 10% af verði innfiuttrar vélar, þessi heimasmiðaða heypökkunarvél en það er Stefán bóndi á Brú sem stendur við gripinn. DV-mynd LE Almennur fundur þriðjudaginn, 12. september 1989, kl. 20.30, í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra, fjallar um horfur í sjávarútvegi og atvinnumálum. Jón Sigurðsson, við- skipta- og iðnaðarráðherra, fjallar um virkjanaáform og iðnaðaruppbyggingu, sérstaklega Fljótsdalsvirkjun og iðnaðaráform tengd henni. Að fram- söguerindum loknum verða al- mennar umræður. Með ráðherr- unum verða sérfræðingar frá sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyti og stofnunum sem undir þau heyra. í tengslum við fundinn verður haldin sýning í Hótel Valaskjálf á teikn- ingum sem lýsa hugmyndum um virkjun Jökulsár í Fljótsdal og virkjun Fjarðar- ár. Sýningin verður opin frá kl. 17.00. Sérfræðingar frá Landsvirkjun og Raf- magnsveitum ríkis- ins verða á sýning- unni til að útskýra það sem fyrir augu ber. SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ IÐNAÐARRÁÐ UNEYTIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.