Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. 9 IþróttapistiU íslenska knattspymuíandsliðið er á tímaxnótum. Eftir ósigurinn gegn Austur-Þýskalandi á miö- vikudaginn er draumurinn um annað sætið og Ítalíuför kirfilega úr sögunni. Þegar Tyrkir mæta hingað til lands þann 20. september hefur íslenska landsliðið aö litlu að keppal nema helst því að reyna að komast úr botnsæti 3. riðils og enda keppnina með sex stig. Nú er tækifæri til breytinga, og í þetta skiptið mega þær vera róttækar. Tími Sigfrieds Held er liðinn og það er óhætt að láta þá íhaldssemi sem einkenndi starf hans lönd og leið! Tillaga að landsliði Það er freistandi að setja sig í spor Guðna Kjartanssonar og velja landsliðið fyrir leikinn við Tyrki. Hér er min tillaga: Markvörður - Bjami Sigurösson, Val. Bjami er okkar besti mark- vörður og ætti aö vera þaö næstu misserin, og Friörik Friðriksson, B 1909, er honum næstur. Varnarmenn - Guðni Bergsson, Tottenham, Einar Páll Tómasson, Val, og Alexander Högnason, Akra- nesL Guöni er ómissandi en nú er rétt að skipta inn á ungum mönn- um í hinar tvær stöðumar og þeir Einar Páll og Alexander eru þar fremstir í flokki í dag, báðir aðeins 21 árs gamiir. Kanttengjliðir - Ólafúr Þórðar- son, Brann, og Þorvaldur Örlygs- son, KA. Ólafs var sárt saknaö á miðvikudaginn, og Þorvaldur hef- ur reynslu af því að leika vinstra megin, er reyndar geysilega fjöl- hæfúr. Miðjutengiliðir - Sigurður Jóns- son, Arsenal, Amór Guðjohnsen, Anderlecht, og Rúnar Kristinsson, KR. Um Sigurð og Amór þarf vart að fiölyrða, og þaö er ekki seinna vænna að Rúnar fái alvöru tæki- færi. Framheijar - Sigurður Grétars- son, Luzem, og Eyjólfúr Sverris- son, Tindastóh. Sigurður er okkar besti sóknarmaður í dag, og sá sem skorar 4 mörk í 21 árs landsleik hlýtur að banka hressilega á dym- ar. Eyjólfur ætti að fá að spreyta sig gegn Tyrkjum. Harald inn efAmór kemurekJki Svo kann að fara að Araór fáist ekki laus í leikinn og þá myndi ég veija Harald Ingóifsson frá Akra- nesi í hans stað. Haraldur hefur leikið mjög vel meö 21 árs liðinu og er einn af landsiiðsmönnum framtíðarinnar. Komi Friðrik ekki í leikinn ætti varamarkvörður Bjarna að vera Birkir Kiistinsson úr Fram, eða þá Ólafur Gottskálksson, Akranesi, sem margir teija framtíðarmark- vörö landsliðsins. Á varamanna- bekkinn koma aörir helst til greina þeir Pétur Amþórsson, og Þor- steinn Þorsteinsson úr Fram, Halldór Áskelsson úr Val, Antony Karl Gregory úr KA og Gunnar Oddsson úr KR. Ungtliðen samtmeðreynslu Hér væri teflt fram ungu liöi, sem samt byggi yfir talsverðri reynslu. Bjami, Amór og Sigurður Grétars- son væm „gömlu mennimir“ en þeir GuðnL Ólafúr og Sigurður Jónsson era allir vel sjóaðir þrátt fýrir lágan aldur. Kjaminn úr liö- inu væri 20-24 ára, og þar raeð væri þama á ferðinni hópur sera Fjarvera Olafs Þórðarsonar var vel merkjanleg á islenska lands- iiðinu á miövikudaginn. gæti haldiö saman án of mikiila breytinga næstu 4-6 árin. Þetta yrði vissulega mikil bylting á liðinu en hér er ekki verið að gera lítið úr þeim sem hafa haldið merki íslands á lofti síðustu árin og oftast staðiö sig með miklum sóma Þeir hafa skilað drjúgu dags- verki og geta dregið sig í hlé, kinn- roðalaust. Sú kynslóð íslenskra landsliðsmanna sera nú er í kring- um þrítugsaldurinn hefur komið íslandi á Evrópukort knattspym- unnar með mörgum frábæram úr- slitum Á þessum forsendum nefni ég ekki Pétur Pétursson og Pétur Ormslev, tvo af bestu leikmönnum 1. deildarinnar í dag. Þeir era ekki leikmenn framtíðarinnar, en hins vegar hefði ég ekkert á móti þvi að sjá þá klæðast landsliðspeysunum þann 20. september. Held breytti leik- stílnum til hins betra Þó Sigfried Held hafi verið um- deildur, liðsval hans oft vafasamt og tengsl hans við íslenska knatt- spyrnu skammarlega lítil, gerði hann ákveönar grundvallarbreyt- ingar. Leikstíll landsiiðsins breytt- ist til hins betra undir hans stjóm, kýlingar á enska vísu vora að mestu lagðar niður og leikurinn byggður upp á spili út frá vöm. Láðinu gekk misvel að útfæra þetta, datt stöku sinnum niöur á gamla planið eins og á miövikudaginn var, en í heildina séð tókst þetta vel. Nýr þjálfari þarf aö halda áfram á sömu braut, en ákveðnar skipu- lagsbreytingar þurfa aö eiga sér stað. Arftaki Helds verður að vera landsliðsþjálfari, ekki maður með búsetu erlendis sem ekkert sér til þeirra leikmanna sem hann hefúr úr að velja, og veit ekki einu sinni hverjir gefa kost á sér í landsliöiö og hveijir ekki! Hvað umÁsgeir? Margir erlendir þjálfarar líta stöðu landsliðsþjálfara á íslandi hýru auga. Kanna þarf hvort feitir bitar séu í þeim potti. En það getur ekki veriö skilyrði að þjálfarixui kunni ekki íslensku, eða hvað? Hér heima eru til menn sem myndu valda þessu verkefni - og skal þó aöeins eitt nafii nefnt hén Ásgeir Elíasson. Hann hefúr raótað leikstíl Fram síðustu fimm árin á áþekkan hátt og þróunin hefur veriö hjá landsliöinu. Ásgeir er sá íslenski þjálfari sem náð hefur bestum ár- angri undanfarin ár. Hveraig væri aö byxja á að leita til hans? Viðir Sigurðsson BIBBA og HALLDÓR í íslensku óperunni GAMLA BÍÓ s®-— - __4ww Frábaer atþreV,n9 itvo -íéHSjSDAGUfi S. JÚXl 198 J MORCUNBLADIÐ SUNNX'DACfR X. MAl 1»W f Bibba ogHalli eruorovn ftúni# sýning - Upp Laugard. 6/5. aýn. - Uppaelt Sunnud. 7/5. sýn. - Uppselt Mánud. 8/5. rtursýn. - Uppselt | Föstud. 12/5. kL15.00.-Öfásætilií n. kl 2030. - Uppselt ' 'ugard. 13. mai. ,n. — Örfá sæti laginn 16/5 kl. 20.. ,'tursýn. - Uppseltr ud. 19/5 kl. 23.30. Örfá sacti lá ikud. 24/5 kl. 20.30. rsýn. — Örfá saeti laua ud. 26/5 kl. 23.30. FlNT FQ1 — og þau eru hamit^ ~ ibb. rr búm knfii ! HJÓNIN. ■ ■ að bk'a rfnr þrssu húsi - B - Ks&ælfH ■ ■búmsölendatsllskpis ■ f ■ lUum H H-An,v.mul a'bvl.™.- ■ % >f HD Wgl komiö upp 1 Kn þau ■ U| 1 BRÁVAIXAGÖTUHJÓNIN. ; Hlbba og llalldór, eru flut' | — á Amamesið. Moldrik frsrnka Bibbu dó og arfleiddi Bibbu að öllum eigum sinum; fullt af ; miUjónum. »uk hluUbríL- [>au hjónin keyptu sér >>>v- ——- - draumahús á sjávarióð á .Drfda Amamesinu, meó úLýni til Be*»astada - og au<V»- Idsýn. — Uppselt. ard. 27/5 kl. 20.30. st __ e- ^ Gríniðjan: SSsörC Svninear í iiiní á o.im- / II M, I - ^ ‘jflið • \JP1 j. mai. ■cVda SúhrfS eS-er ® sem ■ unum að undljL°jú hjónin.Núpegar Byl0- boðsgestauppiþaubioni ^ { ., hefUr Jl Má^meM annarra nefna n bú- | gott boð. Má m ..ðmund J. Guð- anna. Þomtein pdls“u^, odósson. Einnig ]egar , numlisson Ok - Sýningar Föstud. 15. sept. kl. 20.30. Föstud. 22. sept. kl. 20.30. Laugard. 16. sept. kl. 20.30. Laugard. 23. sept. kl. 20.30. Sunnud. 24. sept. kl. 20.30. MISSIÐ EKKIAF ÞEIM Miðasala hefst í Gamla bíói mánud. 11. sept. Miðapantanir alla daga í síma 1-14-75 og allan sólarhringinn í síma 11-123 Munid símaafgreiðslu Euro og Visa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.