Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Page 15
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. 15 Með ráðherrann í maganum Allt frá því aö Borgaraflokkurinn fór aö gæla við þá hugsun aö ganga til stjómarsamstarfs var ég í hópi þeirra sem fullyrtu aö sá yrði end- irinn. Enda held ég aö það hafi í rauninni aldrei staðið á Borgara- flokknum að gariga tii liðs við ríkis- stjómina heldur hafi tregða stjórn- arflokkanna sjálfra tafið fyrir því faðmlagi. Menn geta velt fyrir sér málefnalegum ágreiningi, mála- myndaskilyrðum og pólitísku mati á því hvort það verði þjóðinni til góðs að Borgaraflokkurinn taki boðinu um stjómarþátttöku. En allt þetta er reykur, fyrirsláttur til að sýnast fyrir kjósendum. Ástæð- an fyrir stjórnarsamstarfl Borgara- flokksins er ein og ósköp einfóld: Þeir gengu með ráðherrann í mag- anum. Sú freisting að komast í ráðherra- stól var of stór og of seiðandi til að metnaðarfullir þingmenn á vegum Borgaraflokksins gætu staðist hana. Ég þekki þessa tilfinningu sjálfur. Ailir sem leggja stund á stjórnmál ganga með þetta steinbarn í mag- anum. Misjafnlega mikið að vísu enda eru ekki allir þannig í sveit settir í sínum flokkum að þeir geti leyft sér að tala upphátt um dag- drauma sína. En innst inni leynist hún, vonin um að komast til valda, komast í ráðherrastól, verða stór í pólitíkinni. Bör Börsson stóð fyrir utan dyrn- ar á kontórnum sínum, leit með velþóknun á nafnspjaldið á hurð- inni og hneigði sig fyrir sínum eig- in virðuleik. Svo æfði hann sig í að ávarpa sjálfan sig, skoðaði sig í speglinum og sá að þarna var kom- inn mikils háttar maður. Við hittum Bör Börsson víða í þjóðfélaginu. Hvarvetna skýtur hann upp kollinum, uppskafning- urinn og stórbokkinn, sjálfumglaði framapotarinn, sem lítur löngun- araugum til metorðanna og linnir ekki látum fyrr en hann hefur feng- ið sína vegtyllu og uppreisn. Hversu lítill sem félagsskapurinn er, hversu ómerkilegt sem málefnið er, aUs staðar fmnast hégómlegir frambjóðendur til formennsku og forystu. í kvenfélaginu, í sóknar- nefndinni, í hreppsfélaginu, svo ekki sé taiaö um pólitísk áhugafé- lög þar sem vægi manna ræðst af vegtyllum. AUs staðar skal vera til fólk sem lítur á það sem sjálfsagðan hlut að það sé betur fallið tU frama en hinir félagsmennirnir. Nú er þetta stundum guðsþakk- arvert því það eru ekki allir sem nenna að taka að sér ábyrgðar- störfm. En það er á hinn bóginn verra þegar nýi formaðurinn hefur ekkert til brunns að bera nema þá sína eigin hégómagirnd. Stökkbretti í framapoti Hver þekkir ekki manninn sem stendur upp á hverjum fundi og segir öðrum hvaö sé rétt og hvað sé rangt? Hver þekkir ekki loddar- ana og lýðskrumarana sem troða öðrum um tær og hafa mesta ánægjuna af þvi að hlusta á sjálfa sig? Hver þekkir ekki manninn sem veit allt best, manninn sem stækk- ar í munninum í öfugu hlutfalh við hugsunina? í póhtík eru menn verri hvað þetta snertir en almennt gengur og gerist. Draumurinn um hinar póli- tísku vegtyUur hefur löngum verið lífseigur og það var oft unun að því í gamla daga að sjá þá spranga upp í pontuna, nýgræðingana á þing- inu, og baða sig í sviðsljósinu. Þeir voru hinir útvöldu leiðtogar þjóð- arinnar sem mættir voru í biðstofu valdsins og gátu eiginlega aUs ekki leynt því. Uppskrúfaður stíUinn, hátíðlegur rómurinn, strokinn og pússaður eins og foringja sæmir. Maður var svona Uka og lét heim- inn falla að fótum sér og beið þess í ofvæni að verða kallaður til nýrra trúnaðarstarfa. Svo þegar þessum merka áfanga er náð í pólitíkinni, að setjast á þing og vera málsmetandi stjórnmála- maður og drekka kaífi með þjóð- frægum alþingismönnum, er lagt á ráðin um næstu skref. Ekki kannski upphátt því að enginn get- ur viðurkennt það opinberlega að pólitíkin sé stökkbretti í framapoti. Alhr segjast þeir hafa hugsjónir og baráttumál og endasendast á milU kjósendafunda tU að telja fólkinu trú um að veriö sé að vinna fyrir það. Sumir eru jafnvel svo bíræfnir að halda því fram að það sé í þágu kjósenda þeirra sem þeir þurfi að komast í valdastólana. Kjósendur mínir krefjast þess, segja þeir, eða vinir mínir hafa lagt að mér, bæta þeir við og láta svo tilleiðast vegna fjölda áskorana. Aldrei eru það þeir sjálfir sem vfija nokkurn skapaðan hlut. Þeir eru lítíllætið uppmálaö og hógværðin eftir því. En undir niðri er það hinn eini og sanni Bör Börs- son sem stendur fyrir framan speg- Uinn og mátar á sig ráðherrafotin. Eyðimerkurganga Ég held ég hafi fimm sinnum set- ið á Alþingi þegar nýjar ríkisstjórn- ar voru myndaðar. Alltaf var það segin saga að ráðherraveikin breiddist út. Þegar dró að stjórnar- myndun stigu menn þyngra til jarðar, gerðust ábúöarmiklir í framan og heilsuðu til hægri og vinstri. Ég tala nú ekki um þegar ráðherradómurinn var í höfn. Þá var eins og blessuð skepnan skUdi og úfiitið tók stökkbreytingu, hinn hversdagslegi þingmaður varð allt í einu að virðulegum þjóðhöfðingja í hverju spori og hverju orði, önn- um kafinn í útliti og framgöngu. Hinir sem urðu útundan voru hins vegar hljóðir og hógværir menn, rétt eins og þeir hefðu misst ná- kominn ættingja, og tU voru þeir sem fóru í fýlu sem stóð yfir í mörg ár. Verst fara þeir þó út úr þessari ráðherraveiki ráðherrarnir sem eru orðnir óbreyttir á nýjan leik. Þeir eru eins og fiskar á þurru landi, vita ekki sitt ijúkandi ráð og leggjast oftast í þunglyndi sem bráir ekki af þeim fyrr en þeir eru orðnir ráðherrar aftur. Það er eig- inlega engin lækning við ráðherra- veikinni nema að gera menn að ráðherrum upp á nýtt. Þið hefðuð átt að sjá hvUík eyði- merkurganga það varð fyrir ráð- herra Alþýðubandalagsins þegar þeir duttu út úr stjóminni hið fyrra skiptið. Þeir urðu eins og aftur- göngur, blessaðir mennirnir, og fengu sjálfsagt fráhvarfseinkenni. Sumir þeirra eru ekki búnir að ná sér ennþá, að minnsta kosti ekki þeir sem urðu útundan þegar Al- þýðubandalagið hrökk inn í stjóm- ina í fyrra. Borgaraflokkurinn er hvorki betri né verri en aðrir flokkar að þessu leyti. Nú veit maður að vísu ekki hversu margir þeir eru, flokksmennirnir, eftir að þeir Al- bertsfeðgar sögðu skilið við þetta afkvæmi sitt. Flökkufylgið, sem þeir fengu í kosningunum, skilar sér lítið í skoöanakönnunum og kannski samaristendur Borgara- flokkurinn af þessum fáu hræðum sem nú hafa tekið ákvörðun um að stjórna landinu. Það er ekki á hverjum degi sem útvíkkaður spilaklúbbur fær slík völd. En auð- vitað eru þessir menn ekkert frá- brugðnir öllum hinum sem vasast í pólitík og velja völdin fram yfir verkin. Þeir ganga með ráðherrann í maganum eins og aðrir. Bör Börs- son er líka í Borgaraflokknum. System i galskabet Stjórnarandstæðingar eru að gera lítið úr hðsaukningu Borgar- anna. Segja að lítið fari fyrir mál- efnum og flokkurinn hafi verið keyptur á útsölumarkaði. Þetta segja þeir sem hafa sjálfir samið sig inn í ríkisstjórnir án mikilla málefna og hangiö í ráðherrastól- unum eða utan í þeim löngu eftir að stefna og störf eru komin á skjön við allar hugsjónir eða skynsemi. Borgaraflokkurinn hefur gert það sem alhr aðrir eru sífellt að gera í pólitíkinni: að selja sig fyrir ráð- herradóm. Flestir viðurkenna að ríkisstjóm- in sé ekki líkleg til mikilla afreka. Ekki var hún það fyrir og ekki verður hún það eftir tilkomu Borg- araflokksins. En hún verður held- ur ekkert verri. Borgaraflokkurinh drepur engan; nema þá að hann hefði drepið sjálfan sig, flýtt fyrir andláti sínu, ef þingmennirnir hefðu setið utan stjórnar og stuðlað að kosningum fyrr en ella. Stjórnin hefur þó ahténd meirihluta á þingi og það verður system i galskabet í stað þeirrar óvissu um vitleysuna meðan mál réðust af duttlungum eða tilviljunum. Ráðherramir geta aö minnsta kosti ekki skellt skuld- inni á ábyrgðarlaust þing. Meðan íslendingar sitja uppi með það böl að hafa ríkisstjórn sem stjórnar með handafh er þó skömminni skárra að hún hafi meirihluta Al- þingis á bak við sig. Ég minnist hins vegar ekki á meirihluta þjóð- arinnar enda hefur stjórnmála- mönnum ekki verið tamt að hafa áhyggjur af þjóðarmeirihluta. Mikils háttar maður Nei, hér ræður enginn þjóðar- vilji, hér er ekki spurt um málefni eða nýjan stjórnarsáttmála. Hér er um það að ræða að Albertslausir þingmenn Borgaraflokksins eru staddir á eyðiskeri í póhtíkinni og þiggja far með þeim sem býður upp á björgun. Þeir ganga með ráð- herrann í maganum eins og allir hinir þingmennimir og dagdraum- arnir eru skyndilega að rætast. Bör Börsson tekur sæti í ríkisstjóm. Hann maldar eitthvað í móinn og talar eins og véfrétt fyrir framan sjónvarpsvélamar og þykist verða að fá meira fyrir sinn snúð. En allt frá því að ríkisstjómin bauð Bör til sætis var deginum ljósara að freistingin var honum ofviða. Það var ekki hægt annað en faha fyrir henni. Skítt veri með málefnin og matarskattana og htla manninn sem einu sinni fyrir löngu var beð- inn um að kjósa Borgaraflokkinn til að stokka upp í stjórnmálunum. Það getur vel verið að einhverj- um þyki þetta fyndið. Sumir hafa meira að segja ekki húmor fyrir þessari uppákomu og eru að hneykslast yfir ástandinu. En svona er nú póhtíkin þegar allt kemur til ahs, skrum og hégómi og eltingaleikur við völd og veg- semd. Völdin eru fólgin í því að misnota þau og vegsemdin er fólgin í því að láta dagdraumana rætast. Enginn getur heldur neitað því að það er ekki á hvers manns færi að láta dagdrauma sína rætast með jafnævintýralegum hætti. Fyrst kom Albert og stofnaði flokk fyrir thviljun. Svo smalaði hann saman frambjóðendum fyrir thvhjun. Síð- ast hrekkur flokkurinn inn í stjórn fyrir tilviljun. Og nú höfum við stjórn sem enginn vih hafa, fyrir thstuðlan flokks sem enginn vhl kjósa, handa ráðherrum sem ekk- ert ráðuneyti er th fyrir! Þaö þarf bæði heihadísir og örlaganornir til að spinna upp þessa atburðarás og halda verndarhendi sinni yfir henni. Bör Börsson strýkur niður eftir vestinu, dustar flösuna úr kragan- um og hneigir sig. Hann lítur í speghinn og er ánægður með dags- verkið. Hann hefur velþóknun á sjálfum sér. Hann er orðinn ráð- herra og mikhs háttar maður. Ehert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.