Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. Kvikmyndir Mest á óvart kom mikil aðsókn að fjölskyldumyndinni Honey, I Shrunk the Kids sem fjallar um nokkur börn sem minnka niður i þumalstærð. Batman hefur á aðeins þremur mánuðum halað inn 238 milljónir doll- ara sem er ótrúleg peningaupphæð. Bandaríkin: Aldrei meiri aðsókn í kvikmpdahúsm Metaðsókn hefur verið í kvik- myndahúsin í Bandaríkjunum í sumar. Myndir sem búist var við að gerðu þaö gott gerðu enn betur en búist var við og nokkrar myndir komu verulega á óvart hvað að- sókn snertir. Á mánudaginn var lauk alman- akssumrinu í Bandaríkjunum og þá er kvikmyndamarkaðurinn gerður upp eftir sumarið og niður- staðan kom flestum á óvart. Talið er að á sumrinu hafi komið í kass- ann hjá kvikmyndaiðnaðinum tvær billjónir dollara sem er met og langtum meira en spáð hafði verið og voru þó spámar í hærri kantinum. Og þaö sem meira er, fimm kvikmyndir komust upp fyrir 100 milljón dollara múrinn í sum- ar. Það hefur aldrei skeð áður. Yfir- leitt hafa það aðeins verið ein eða tvær myndir sem hafa náö á einu sumri að fara yfir 100 milljón doU- ara múrinn. Ein kvikmynd sló öUum öðrum við. Það er Batman. Hún náði inn á þremur mánuðum 238 mflljónum doUara og hafa ekki fengist jafn- mikhr peningar inn á jafnskömm- um tíma á neina kvikmynd og ef heldur fram sem horfir mun hún taka metið af E.T. sem „mest sótta“ kvikmynd aUra tima. Það verður þá aö hafa í huga að Bandaríkjamenn mæla aUt í doU- urum og það er vitað að aldrei verö- ur áhorfendafjöldametið slegið en það met er síðan 1939 þegar Gone With the Wind var sýnd við ótrú- lega aösókn um gjörvöU Bandarík- in. Mun ódýrara var í kvikmynda- hús þá og doUarinn í aUt öðrum verðflokki þá en nú. Hvað sem því Mður hefur Batman slegið öUum öðrum kvikmyndum við þetta sumarið og velta menn fyrir sér af hveiju. VUja margir kenna um snjallri auglýsingaher- ferð fyrirfram þar sem mikfl áhersla var lögð á að Jack Nic- holson léki þrjótinn í myndinni. Þá voru aðstandendur myndarinnar snjaUir í að búa tíl fyrirfram mynd- aðan spenning í kringum myndina sem svo sannarlega hefur skUað sér. Þær kvikmyndir, sem komu næstar Batman, voru Indiana Jon- es and the Last Crusade og Lethal Weapon II. Má geta þess aö gróöinn af Lethal Weapon II er orðinn tvö- falt meiri heldur en gróðinn af fyrri myndinni. Ghostbuster II náði einnig að fara yfir 100 milljón doll- ara markið. Enn eitt árið virðast Wamer bræður ætla að vera það kvik- myndafyrirtæki sem græðir mest, en á þeirra vegum eru bæði Bat- man og Lethal Weapon 2. Aðrar framhaldsmyndir gerðu það ekki eins gott, en þó tókst Star Trek V, The Final Frontier að kom- ast upp fyir 50 miUjón doliara í sumar sem þykir mjög gott. Licen- ce To KUl olli framleiðendum í Bandaríkjunum nokkmm von- brigðum, en viðtökurnar utan Bandaríkjanna hafa verið geysi- góðar og er hún nú komin yfir 100 mUljón dollara markið ef miðað er við allan heiminn. Þær myndir sem mest hafa komið á óvart hvað aðsókn snertir koma báðar frá Disney-fyrirtækinu. Önn- ur þeirra er Dead Poet Society sem er dramatísk kvikmynd með Robin WiUiams í aöalhlutverki. Leikstjóri er Peter Weir. Dead Poet Society er fremst þeirra mynda sem gerðar em fyrir „fuUorðna" og hafa gengið framar vonum. Hin Disney-myndin sem sló Kvikmyndir Hilmar Karlsson óvænt í gegn er Honey, I Shrunk the Kids, fjölskyldumynd í léttari kantinum sem íjallar um krakka sem óvænt eru minnkaöir í þumal- fmgurstærð. Sú kvikmynd náði inn á einni helgi þrefalt meira en að- standendur myndarinnar höfðu vonast eftir. Aðrar „fullorðinskvikmyndir“, er nutu vinsælda í sumar og komu þægUega á óvart, eru nýjasta kvik- mynd Rob Reiner, When Harry Met SaUy, sem er gamansöm raunsæis- mynd með BUly Crystal og Meg Ryan í aðalhlutverkum, og Parent- hood, þar sem Steve Martin sýnir nýja hUð á sér sem leikari. Leik- stjóri þeirrar myndar er Ron How- ard. Það er nokkuð gaman að velta fyrir sér fortíð þessara tveggja leik- sfjóra, Rob Reiner og Ron Howard. Báðir voru þeir geysivinsæUr ieik- arar í sjónvarpsþáttum í Banda- ríkjunum áður en þeir hófu að leik- stýra myndum og Howard var meira að segja bamastjama hjá Disney og lék í mörgum kvikmynd- um fyrir Disney-fyrirtækiö. Þeim hefur nær undantekningarlaust gengið mjög vel íleikstjórastarfinu og þykja með betri yngri leikstjór- um vestanhcifs. Dýrasta kvikmyndin, sem sett var á markaðinn í sumar, var The Abyss sem fmmsýnd var fyrir mánuði. Hún hefur á fjórum vikum tekið inn 40 miUjónir doUarar en það nær ekki einu sinni kostnaöin- um sem tahnn er um 60 miUjónir doUara. Framleiöendur myndar- innar em þó ekkert hræddir um að peningarnir komi ekki þvi flest- ir em gapandi yfir því tækniævin- týri sem boðið er upp á í þessari neðansj ávarmynd. Aldrei hafa jafnfáar kvikmyndir valdið vonbrigðum og í sumar. Það er helst að þeir sem gerðu kvik- myndina Great Balls Of Fire séu í sárum, því miklu var búist við af þessari mynd sem segir frá kafla í ævi rokksöngvarans Jerry Lee Lewis. Eftir ágæta byijunarhelgi steindó aðsóknin að henni. Og það sannaðist enn einu sinni aö Syl- vester StaUone er aðeins vinsæU sem Rocky eða Rambo, því nýjasta kvikmynd hans Lock Up kolféU. Karate Kid III er einnig kvikmynd sem engum líkaði og þótt mikið hafi verið reynt að auglýsa hana upp verður þetta sjálfsagt síðasta kvikmyndin í þessum mynda- flokki. Sú mikla aösókn í kvikmyndahús sem hefur verið í sumar í Banda- ríkjunum verður sjálfsagt ekki tíl þess aö þeir í Hollywood fari að gera betri myndir. Dýrum kvik- myndum mun fjölga og uppsveifla verður þar tU nokkrar myndir kol- faUa sem skeður einhvem tíma. Má minna á „stórmyndirnar" sem fylgdu í kjöU'arið á Ben Hur eða náttúruhamfaramyndir sem næst- um því fóru með öll risafyrirtækin á hausinn á sínum tíma. í raun er engin ein skýring af hverju allur þessi fjöldi fór í kvik- myndahús í sumar. Kannski er hluta sannleikans að finna í oröum eins forstjóra dreifmgarfyrirtækis sem sagði: „Fólk fór í kvikmynda- hús í sumar af því alUr voru að tala um kvikmyndir." -HK Eln af „fullorðinsmyndunum" sem sló í gegn er When Harry Met Sally. Aðalhlutverkin leika Meg Ryan og Billy Crystal. MICKEY ROURKE hefur af einhveijum ástæðum lagt það í vana sinn aö leika náunga sem síður en svo eru geðslegir á hvíta tjaldinu. Nú hefur dæmið snúist við. i nýjustu kvikmynd sinni, Johnny Handsome, sem leikstýrt er af Walter Hill, leik- ur hann tanga einn sem losnar úr fangelsi og fær sér nýtt nafn, nýja vinnu og nýtt andUt sem er mun myndarlegra en hann áður hafði. Þetta andUt fær hann með aðstoð lýtalæknis. Ekki byrjar hann þó nýtt Uf því hann er ákveðinn að hafa upp á stúlku einni sem kom honum í fangelsi. Aörir leikarar í Johnny Handsome eru Forest Whitaker, sem leikur lýtalækn- inn, og Ellen Barkin er leikur stúlkuna sem Johnny Hand- someleitarað. <r ★ ★ KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Fen- eyjum hófstá mánudaginn. Þá var frumsýnd nýjasta kvik- mynd Lánu WertmuUers, On a MoonUt Night. WertmuUer seg- ir að myndin sé ástarsaga á tim- um eyðni. Helstu ieikarar í myndinni eru Nastassia Kinski, Faye Dunaway, Peter O’Toole og Rutger Hauer. Auk evr- ópskra mynda veröa á hátíöinni myndir frá Bandaríkjunum, Japan, íran, Kína og Indlandi. Tveir látnir snilUngar kvik- myndasögunnar, Jean Cocteau og CharUe Chaplin, veröa heiðraðir meö sýningum á myndum eftir þá. Formaður dómnefndar aö þessu sinni er sovéski leikstjórinn Andrei Smimov. ★ ★ * AL PACINO er ekki afkasta- mikiU leikari. Og þegar hann leikur í kvikmyndum yfirgefúr hann varla New York og leikur nánast eingöngu í myndum er gerast þar. Hann bregður ekki út af vananum í nýjustu kvik- mynd sinni, Sea of Love. Enn einu sinni leikur hann New York-löggu. Að þessu sinni Frank KeUer sem Ufir flóknu lífi. Ekki einfaldar það hlutina aö hann uppgötvar að eigin- kona hans gæti verið moröing- inn í morömáU sem hann vinn- ur að. Morðmál þetta er yfir- gripsmikiö og er moröinginn kvenmaður sem nær sér í karl- kyns fórnarlömb meö því að svara auglýsingum í einka- máladáUd í dagblaði. Eiginkon- una leikur EUen Barkin. Leik- stjóri er Harold Becker. * ★ ★ KRIS KRISTOFERSON leikur aðalhlutverkið í nýjustu „Víet- nam-myndinni“, Welcome Home, sem leikstýrt er af Franklin J. Schaffner. Þar leik- ur hann fyrrverandi hermann sem hefúr veriö í felum í Kambódíu í sauljánár. Hann er að sjálfsögðu talinn löngu dauður af vinum og ættingjum. Það skapast því vandræða- ástand í smábænum sem hann bjó í þegar hann birtist aUt í einu. Eiginkonan hefur gifst aftur og í raun er hann óvel- kominn þótt allir fagni honum á yfirboröinu. Jobeth WiUiam leikur eiginkonuna og Sam Water9ton sernni eiginmann hennar. ★ ★ ★ DAVED CRONENBERG, sá þekkti hryllingsleikstjóri, hefur skipt um hlutverk, aö minnsta kosti í smátíma. Hann leikur nefnilega aðalhlutverkið í hryllingsmyndihni The Night- breed sem leikstýrt er af hroll- vekjurithöfundinum Clive Barker er leikstýrði HeUraiser fyrir tveimur árum. Cronen- berg leikur sálfræðing einn sem er á kafi í aUs konar ógeði. Aör- ir leikarar eru Craig Sheffer og Charles Haid.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.