Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1989, Blaðsíða 44
FR ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsíngar - Askrift - Dreifing: Sinmi 27022 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1989. Alfreð Þorsteinsson: böggunarstöð í Gufunesi „Fólk, sem fengið hefur úthlutað lóðum í Hamrahverfi, sótti á sínum tíma um á þeim forsendum að öll starfsemi viðkomandi sorpi myndi leggjast niöur. Nú virðast þeir hins vegar vera að fá sorpböggunarstöð í næsta nágrenni," sagði Alfreð Þor- steinsson, fulltrúi Framsóknar í borgarráði, en hann lét bóka sérstök mótmæli við fyrirhugaðri sorpbögg- unarstöð í Gufunesi. Á borgarráðsfundi voru samning- ur borgarstjóra við hreppsnefnd Kjalarnesshrepps um urðun sorps og kaupsamningur á Álfsnesi sam- þykktir með öllum greiddum at- kvæðum. Alfreð hefur ekki atkvæð- isrétt en lét bóka mótmæli. Þar for- dæmir hann vinnubrögð borgar- stjóra sem hafði hvorki samráð við minnihlutann né sína eigin flokks- bræður áður en samningurinn var gerður. Aifreð sagði í samtali viö DV að á fundinum hefði komið fram að Hita- veita Reykjavíkur mundi ekki yfir- taka 70 milljónir af Hitaveitu Kjalar- ness heldur væri upphæðin um 92 milljónir. -gse Hundur fyrir bíl: Beit sjúkraliðana Hundur af poodle-tegund varð fyrir bíl á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Hundurinn slapp óbrotinn en meidd- ist eitthvað. Hvutti var að sjálfsögðu reiður yfir meðferðinni og þegar tveir vegfar- endur ætluðu að hlúa að honum gerði hann sér lítið fyrir og beit þá. Þurftu þeir að fara á slysavarðstof- una þar sem þeir voru sprautaðir við stífkrampa. Hundurinn fór hins veg- arádýraspítalann. -SMJ ÞRDSTUR 68-50-60 VANIR MENN Eppo fékk flugleyfið - flýgur til Grænlands á næstu dögum Eppo með skeytíð góða, sem hann fékk sent frá dönskum flugmálayfir- völdum i gær, í munninum. Hann segist vera búinn að þyngjast um 5 kíió eftir að hann kom til Reykjavikur. DV-mynd Hanna Svifdrekakappanum Eppo Nu- man barst loksins í gær jákvætt svar frá dönskum flugyfirvöldum um að hann megi fljúga yfir danskt flugumferðarsvæði við Grænland áleiðis til New York. Eppo segist þurfa aö fá hagstætt flugveður fyr- ir 18. september því nú liður að vetri og fariö er að kólna í veðri. „Ég veit ekki alveg hvenær ég get fariö af stað en ég er alveg i skýjun- um yfir þessu. Biöin var orðinmjög löng og það er búið að taka mjög á að sitja við símann og telefaxtækið allan daginn til þess að þrýsta á þetta langsótta leyfi - ég er meira að segja búinn að þyngjast um 5 kflfó,“ sagði Eppo viðDV oghló við. „Mínir möguleikar rýrðust mjög þegar Lafitte þurfti að nauðlenda í síðasta mánuði í Grænlandi - ég hefði getað verið kominn af stað fyrir iöngu. Þáð er langt siðan ég útvégaði öll tæki, sem Danir krefj- ast til flugsins, og nú er mér ekkert að vanbúnaði - nema hvað ég bíð eftir fylgdarflugmanninum mínum og ég reikna með að það verði Domiervél sem mun fylgja mér. í fyrradag fór ég í könnunarflug með Helga Jónssyni tii Kulusuk í mjög góðu veðri og skoðaði aðstæö- ur. Dagurinn í fyrradag hefði hent- að mér mjög vel. Ég hef heyrt aö Grænlendingar séu heldur óhressir með að ég fijúgi beint frá Kulusuk og yfir jökuiinn tii Syðri-Straumíjarðar. Hins vegar er óvist hvaöa leið ég fer og flýg örugglega ekki yfir jökulinn nema aöstæður séu heppilegar fyrir mig. Ég beiö eftir hagstæðu flugveðri frá Skotlandi til Færeyja í fjórar vikur og sneri tvisvar sinnum við þannig að þeir þurfa ekkert að vera hrædd- ir um að ég passi mig ekki. Ef ég kemst alla leið til New York fyrir veturinn má ég teJjast mjög heppinn. En þá næ ég því lang- þráða takmarki að afhenda Sam- einuðu þjóöunum tillöguna að 31. grein mannréttindasáttmálans um umhverfismál sem er megintil- gangur þessarar ferðar sem hefur staðið yfir í allt sumar. Ferðin hefur kostaö mig ofijár - hótelkostnaö, símreikninga, fylgd- arflugvél, flugmenn, tryggingar og fleira. Ég verð að viðurkenna að ég er dálítiö geggjaður en það er þó án þess að flana að neinu. Von- andi verða einhverjir sem vilja styrkja mig á leiöinni. Flugleiðir hafa gefið mér góðan afslátt og svo fékk ég góöa upphæð frá manni sem vildi styrkja málefnið í Stomoway á Skotlandi. Þeir pen- ingar eru reyndar búnir núna en þaö kemur dagur eftir þennan dag,“ sagði hamingjusami flug- maöurinn og æringinn Eppo Nu- man. -ÓTT Fyrirskipa handtöku móðurinnar Handtökuheimild hefur nú verið gefin út á Hildi Ólafsdóttur, móður- ina sem haft hefur átta ára gamla dóttur sína í felum eins og DV hefur greint frá. Að sögn Hildar mun fyrrverandi eiginmaður hennar hafa kært hana og elstu dóttur þeirra til Rannsókn- arlögreglunnar fyrir barnsrán. Þær mæðgur segjast vera að bjarga barninu frá slæmum aðbúnaði og eina ráðið til þess sé að hafa telpuna í felum á meðan verið sé að safna gögnum gegn foðurnum. Hildur reynir nú allar leiðir til að fá úr- skurði dómsmálaráðuneytisins hnekkt en hann var gegn óskum Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Hildur hefur að undanförnu verið á flækingi með barniö þar eð hennar er leitað. Hún þverneitar að gefa sig eða láta barnið af hendi þar sem það sé ósk telpunnar litlu aö fá að dvelja hér á landi hjá móður sinni og systk- inum. -GHK Seyðisfjöröur: Fiskveiðasjóður og Byggðasjóður samþykkja leigu Fiskveiðasjóður og Byggðasjóður hafa samþykkt tilboð Gullbergs hf. um að fyrirtækið leigi eignir þrota- bús Fiskvinnslunnar Norðursíldar hf. Það veltur því á Landsbankanum hvort leigan veröur samþykkt end- anlega en bankinn er stærsti kröfu- hafinn. Mun ákvörðun bankans liggja fyrir á mánudag. Fiskveiða- sjóður á kröfur upp á 33 milljónir króna en Byggðasjóður upp á rúm- lega 20 milljónir. Heildarskuldir fyr- irtækisins, miðað við sjö mánaða uppgjör, eru 310 milljónir. Leigutilboð Gullbergs hf. hljóðaði upp á 3% af greiðsluverði afurða sem unnar verða fram að áramótum en þá rennur leigutilboðið út. Þar með gætu leigutakar nýtt fyrirtækið fyrir komandi síldarvertíð, auk þess sem önnur fiskvinnsla yrði í gangi áfram. -SMJ LOKI Það sannast á Eppo að þrautseigjan vinnur jafnvel á Dönum! Stefnir í rigningu Á morgun verður milt veður. Á Suöur- og V esturlandi gengur á með skúrum en á Norðaustur- og Austurlandi verður léttskýjað. Á mánudag verður sunnanátt og rigning víða um land en síst á Norðausturlandi. Hitinn verður 8 til 12 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.