Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 16. .SBPTEMBER 1989. Kvikmyndir „Glasnost" í kvikmyndagerd - nokkur orð um kvikmyndagerð í Austur-Evrópu í tilefni komandi kvikmyndahátíðar Nú fer aö líða aö næstu kvik- myndahátíð listahátíöar en hún verður haldin 7. til 17. október næstkomandi. Að venju verður boðið upp á flölbreytt úrval kvik- mynda auk þess aö ýmsum góðum gestum verður boðið til hátíðarinn- ar. Meðal þeirra sem hafa fengið slíkt boð og þegið eru tveir austan- tjaldsleikstjórar, þeir Istvan Szabo frá Ungverjalandi og Sergei Paradj- anov frá Sovétríkjunum. Sá síðar- nefndi er einn af umdeildari leik- stjórum Sovétmanna í dag og hefur oft átt erfitt uppdráttar í heima- landi sínu. Hins vegar hafa hinir fersku vindar stefnu Gorbatsjovs einnig leikið um kvikmyndagerð- armenn og valdið því að margir leiksflórar, sem voru á bannlista, geta nú hafið vinnu á ný og ekki nóg með það heldur einnig sýnt mörg bannverka sinna sovéskum almenningi. Heimsókn Paradjanov til íslands undirstrikar hina miklu stefnubreytingu Gorbatsjovs og hið aukna frjálsræði sem nú virðist ríkja á kvikmyndagerðarsvdðinu í Sovétríkjunum. Því er því ekki úr vegi að lita aðeins nánar á hvaö er að gerast þama fyrir austan. Vera litla Ein fyrstu merkin vestanhafs mn þessa menningarþíöu á sviði kvik- myndagerðar var sýning myndar- innar Little Vera. Hún flallar um líf ungrar stúlku sem reynir að flýja húsnæðisskortinn, áfengis- vandamálið, oíbeldið og hótanirn- ar, sem að henni beinast, til að geta lifað sínu eigin lífi. Ekki gerir það málið auðveldara að Vera er ólétt. Moskvubúar tóku myndinni opn- um örmum enda kannast þeir vel við húsnæðisskortinn þar sem al- gengt er að flórir flölskyldumeð- hmir verða að búa í tveggja her- bergja íbúð, svo ekki séu rædd nán- ar önnur vandamál sem hijá íbúa Moskvu. Myndin var raunsæ og dró upp ófagra mynd af lífi hins almenna borgara. Ekki spillti held- ur fyrir að leiksflórinn hafði kom- ist upp með að skella inn nokkrum djörfum ástaratriöum (á sovéskan hátt) inn í myndina. Myndin varð því vinsælasta myndin í Sovétríkj- unum 1988. Innsýn Það sem kom reglulega á óvart var hve myndinni var vel tekið á Vesturlöndum þar sem hún hefur verið sýnd víða í kvikmyndahús- um. Meira segja kom hún hingaö til íslands en var því miður ein- göngu sýnd í sjónvarpinu og hlaut þar ekki nægjanlega kynningu til að fólk gæti áttað sig á hve söguleg þessi mynd er. Bandaríkjamenn tóku myndinni einnig opnum örm- um. Það sem heillaði þá var hinn mannlegi þáttur myndarinnar og trú og viljastyrkur Veru til að ráöa sínu eigin lífi. En því miður eru aö minnsta kosti 10 myndir á móti hverri Little Vera-mynd sem ætti erindi til Vesturlanda. Það er líka spuming hvort áhugi verði í fram- tíðinni á sovéskri kvikmyndagerð meðal almennings á Vesturlöndum þegar framboðið eykst og góðar myndir þaðan hætta að vera for- boðnir ávextir. Sovéski leikstjórinn Sawa Koulish. Kvikmyndir Baldur Hjaltason 10 vinsælustu erlendu myndirnar i Sovétríkjunum 1988 1. King Kong Bandaríkín 2. Short Círcut........................................Bandaríkin 3. Bedroom Window......................................Bandaríkin 4. One Flew over Cuckoos Nest..........................Bandaríkin 5. Allo Tax«....................................... Júgoslavia 6. Les Fugitifs •«••*••••»**•««*•••••»**«»***««••*••««**«•«**»•««•**•» Frakkland 7. Rlve Droite, Rlve Gauche.............................Frakkland 8. Tuttl Dentro ■ ■»• «••»*•«•• •» *«••»*•«••»•••• ••••••>*<<.>>*>«..k*«...ii....»?ltdlÍð 9. Parama *.•»**««•»»•«•.•»■*«•:•»■«••»*■««:«»**«• •»■««• •»»««•»»•«« •>»■«••»■*«• Indland 10. Paris, Texas.........................Vestur-Þýskaland/Frakkland Atriði úr myndinni „Fuglaskoðarinn" eftir Arvo Iho. Kvikmyndaþjóó Það má með sanni segja að Sovét- menn séu mikil kvikmyndaþjóð. í fyrra voru seldir um 3,7 milljarðar aðgöngumiða. í landinu eru um 39 kvikmyndaver ásamt 5.000 kvik- myndahúsum og svo 150.000 far- andkvikmyndahúsum. Það sem hefur hins vegar háð flölbreytni kvikmynda er að dreifingin hefur verið einokuð af ríkinu. Nú hefur hins vegar verið dregið úr miðstýr- ingu og t.d. samyrkjubúum leyft að koma sér upp sínu eigin dreif- ingar- og pöntunarkerfi. Þó eru stóru kvikmyndaverin enn treg að selja beint til þessara aðila og vilja heldur skipta við sína 167 fóstu dreifingaraðila. Þegar litið er yfir kvikmyndaaug- lýsingar í Sovétríkjunum sést að framboð af kvikmyndum frá Vest- urlöndum hefur aukist til muna. Áriö 1986 voru aöeins 15 myndir þaðan teknar til sýningar en í ár er búist við að talan fari yfir 40 myndir. Eins og oftast áður eru það Bandaríkin sem eiga flestar mynd- irnar eins og tafla 1 sýnir. Má þar sjá myndir á borð við King Kong og One Flew over Cuckoos Nest sem voru sýndar fyrir mörgum árum' hér á landi. Voru sumar þessar myndir sýnd- ar í allt að því 11 mánuöi eins og til dæmis myndir númer 4 og 10. Aukinviðskipti Nýlega var haldin kvikmyndahá- tíð Moskvuborgar. Að þessu sinni flölmenntu útlendingar á hátíðina sem einnig var sölusýning. Þar kom fram mikill áhugi hjá Sovét- mönnum á að kaupa myndir frá öðrum löndum auk þess að ganga til samstarfs við erlenda aðila um kvikmyndagerð. Hins vegar virðist kerfið enn vera seinvirkt og einnig virðist lítið vera um aðra gjald- miðla en rúbluna sem Vestur- landabúar treysta ekki of vel. Þegar eru þó nokkrir aðilar í Evrópu byrjaðir að senfla um sam- vinnu við gerð kvikmynda í Sovét- ríkjunum. ítölsku framleiöendum- ir Rispoli og Colombo eru með þijú stórverkefni í undirbúningi. Þar er fyrst að nefna stórmyndina Geng- hiz Kahn sem hinn þekkti kvik- myndagerðarmaður Sovétmanna Tolmush Okeyev á að sflóma. Okeyev hlaut á sínum tíma silfur- bjöminn á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir myndina Descendant of the Snowleopard. Hinar mynd- imar eru And Quiet Flows the Don eftir bók Sholokovs og er leikstýrt' af Sergei Bondarchuk sem fékk óskar árið 1968 fyrir mynd sína War and Peace. Síöasta myndin er Tamerlane sem flallar um keisara nokkum í Asíu sem var uppi á 14. öld. Vandamál En þetta frelsi hefur líka sínar neikvæðu hliðar. Samtök kvik- myndagerðarmanna í Sovétríkjun- um hafa kvartað undan því að eiga erfitt með að Qármagna fram- leiðslu mynda sumra félagsmanna sinna. Ástæðan er sú að þegar rík- ið minnkaði afskipti sín af kvik- myndagerðarmönnum datt upp fyrir hin sjálfvirka afgreiðsla á Qármögnun kvikmynda, a.m.k. þeirra sem vom hliðhollir stjórn- inni. Nú verða kvikmyndagerðar- menn og stjómendur að sjá til þess að einhverjar líkur séu á því að myndin faíli almenningi í geð og einhverjir peningar komi í kassann til baka. Það er því þegar ljóst að áhrifa markaðs og eftirspurnar er farið að gæta. En þaö em önnur lönd sem hafa einnig notið þíðunnar frá Sovét- ríkjunum. Þar má nefna Pólland og Ungveijaland. Þegar herlög voru sett á í Póllandi 1981 var það mikið áfall fyrir kvikmyndagerðar- menn sem aðra Pólverja. Hins veg- ar hefur mikið þokast í rétta átt og án efa mun Samstaða sjá til þess að flest boð og bönn verði afnumin. Einn þeirra sem oft hefur barist við Pólsk yfirvöld er leikstjórinn Krzysztof Zanussi en margar mynda hans hafa veriö sýndar hér- lendis. í viötali við Variety í júlí sl. hafði hann þetta um málið að segja: „Við höfum orðið aö vinna lengi undir ritskoöun en nú er loksins veriö aö slaka á klónni þótt hún sé enn til staðar. Síðasta myndin, sem hefur rykfallið í geymslu vegna rit- skoðunar (sem er The Interrogati- on eftir Ryszard Bugajski), verður fljótlega send til dreifingar." Þaö hefur verið mikið rætt um þessa mynd sem flallar um fangelsun og misþyrmingu á konu nokkurri á Stalíns-tímabilinu. Kvikmyndahá- tíðin í Moskvu falaðist sérstaklega eftir þessari mynd en fékk neitun frá pólskum yfirvöldum. í það sinni voru það þó ekki stjórnvöld heldur pólski herinn sem vildi ekki leyfa sýningu hennar þar sem hann taldi ekki rétta 'mynd dregna upp af hemum á þeim tíma. Zanussi var einnig með mynd á kvikmyndahátíðinni í Moskvu sem bar heitið Inventory og er ólíklegt að hún hefði fengist sýnd ef ekki væru komin fram þessi nýju við- horf. Myndin flallar um ritskoðara sem verður að yfirgefa vinnu sína til að halda geðheilsunni. Á yfir- borðinu gerir Zanussi góðlátlegt grín að stjóminni en undir niðri er sterkari boðskapur þar sem dregin er fram sú gjá sem er á milli marxista sem stjóma Póllandi og svo kaþólsku kirkjunnar. En engar athugasemdir voru gerðar þótt Zanussi hefði verið við öllu búinn. Þetta undirstrikar aftur að ef allt fer vel geta Vesturlandabúar átt von á að sjá margar bitstæðar myndir frá Austantjaldslöndunum eins og vondandi kemur í ljós á næstu kvikmyndahátið listahátíð- ar. Baldur Hjaltason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.