Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1989, Síða 21
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989.
21
Hinhliðin
Hallbjörn Jóhann Hjartarson segir enga konu (egurri en eigin konu.
Langar að hitta
Dolly Parton
- segir kántrísöngvarinn Halibjöm Jóhann Hjartarson
Hallbjöm Hjartarson, söngvar-
inn góðkunni á Skagaströnd, hefur
sent frá sér finuntu kántríplötuna,
aödáendum sínum til óblandinnar
ánægju. HaUbjöm baföi ákveðið aö
leggja tónlistina á hilluna en skipti
um skoöun nú til bjálpar barna-
bami sínu og nafha sem missti
heyrn aðeins tveggja ára gamall.
Litli drengurinn á von á bata kom-
ist hann undir læknishendur er-
lendis. Hailbjöra ætlar að látaþann
draum rætast með plötu sinni. Það
er kántrísöngvarinn sem sýnir
hina hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Hallbjöm Jóhann Hjart-
arson.
Fæðingardagur og ár: 5.júni 1935.
Maki: Amy Eymundsdóttir frá
Færeyjum.
Börn: Grétar Smári, Kenny Aðal-
heiður og Svenný Helena.
Bifreið: Engin eins og er en ég átti
mjög góðan bíl, Toyota Carina árg.
’74. Þaö er besti bíll sem ég hef átt.
Starf: Afgreiöslumaður í verslun
nú og alltaf - og tónlistarmaður.
Laun: Ég er með 43 þúsund á mán-
uöi í föst laun.
Áhugaxnál: Tónlist og ferðamanna-
þjónusta.
Hvað hefur þú fengið margar töhir
réttar í lottóinu? Eg spila aldrei í
lottói. Ég prófaöi það tvisvar og
fékk tvær tölur að mig minnir.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Margt er skemmtilegt, t.d. að
semja lög og elda góðan mat. Mér
flnnst llka skemmtilegt aö keyra
fallegan bíl.
Hvað fínnst þér leiðinlegast að
gera? Moka skít.
Uppáhaldsmatur: Svínakjöt er
mjög ijúffengt, einnig steiktur fisk-
ur með lauk og kartöflum. Annars
fékk ég frábæran mat í Færeyjum
í sumar, steiktan makríl sem
smakkaðist eins og hreinasta sæl-
gæti.
Uppóhaldsdrykkur: Coca Cola.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Ég get ekki svarað
þeirri spumingu því ég hef eigin-
lega ekkert fylgst með íþróttum
lengi.
Uppáhaldstimarit: Ekkert sérstakt.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
fyrir utan eiginkonuna? Þar fór í
verra. Það er engin kona fegri en
eiginkona mín.
Hlynntur eða andvígur rikisstjórn-
inni? Hvoragt.
Hvaða persónu iangar þig mest að
hitta? DoUy Parton.
Uppáhaldsleikari: Enginn sérstak-
ur þó ég hafi sýnt bíó hér á Skaga-
strönd í 25 ár.
Uppáhaldsleikkona: Saga Jónsdótt-
ir.
Uppáhaldssöngvari: Þeir era marg-
ir, svo sem Pálmi Gunnarsson,
Björgvin HaUdórsson og Bubbi
Morthens svo einhverjir séu nefiid-
ir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: ÆtU
það sé ekki vinsælasti stjómmála-
maðurinn, Steingrimur Her-
mannsson, aö minnsta kosti syng
ég um hann á nýju plötunnL
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Ég
er eins og börnin því mér finnast
þeir Tommi og Jenni skenuritUeg-
astir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Það er
þáttaröð sem er nýlokið og hét
Ambáttin.
Hlynntur eða andvígur veru varn-
ariiðsins hér á landi? Hvoragt, mér
er alveg sama.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2. Við höfum ekki um
annað að velja en rikisreknu stöðv-
arnar.
Uppáhaidsútvarpsmaður: Jón Ár-
sæU Þórðarson.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Eg hef ekki tækifæri
tÚ að horia á annað en Sjónvarpið
og læt það duga. Stöð 2 er búin að
þykjast vera á leiðinni hingað ansi
lengi og ekkert höfum viö séð af
henni enn.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Hemmi Gunn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn.
Ég fer aldrei á skemmtistaði.
Uppáhaldsféiag i íþróttum: Ekkert
sérstakt.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtiðinni? Aö reynast börnum
mínum góður faöir og eiginkon-
unni góður eiginmaöur.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór til Færeyja í fyrsta skipti á
ævinni þrátt fyrir að ég hafi verið
kvæntur færeyskri konu yfir þrjá-
tíu ár. Þetta var ákaflega skemmti-
leg ferö og við dvöldum í þijár vik-
ur.
-ELA
Svæðisstjórn málefna
fatlaðra á Vesturlandi
Grundarfjörður
Stuðningsfjölskylda óskast
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vesturlandi óskar
eftir fjölskyldu til að sjá um fatlað barn 5 sólarhringa
í mánuði. Stuðningsfjölskylda erfjölskylda sem tekur
að sér fatlað barn í ákveðinn tíma, t.d. nokkra mán-
uði, og hefur það í umsjá sinni frá 1 og upp í 5 sólar-
hringa í mánuði með ákveðnu millibili. Fjölskyldan
þarf ekki að þjálfa barnið, aðeins að gæta þess. Fyrir-
komulagið er hugsað til að létta undir með foreldrum
fatlaðra barna. Þetta starf gefur fjölskyldunni tæki-
færi til að víkka sjóndeildarhringinn og vinna við
allt annað en hún er vön. Þeir sem hafa áhuga á
starfinu geta fengið frekari upplýsingar á skrifstofu
svæðisstjórnar í Borgarnesi í síma 71780 og talað
við Laufeyju eða Eyjólf.,
er margra böl!
UllMFERÐAR
RÁÐ
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, skiptaréttar Reykjavíkur, Gjaldheimtunnar
í Reykjavík, Eimskipafélags Islands hf„ ýmissa lögmanna, banka og stofn-
ana fer fram opinbert uppboð í uppboðssal tollstjóra í Tollhúsinu við
Tryggvagötu (hafnarmegin) laugardaginn 23. september 1989 og hefst
það kl. 13.30.
Seldar verða ýmsar ótollaðar og upptækar vörur og bifreiðar, fjárnumdir
og lögteknir munir, ýmsir munir úr dánar- og þrotabúum.
Eftir kröfu tollstjóra: Peugeot árg. '84, Audi árg. '83, Volvo árg. '67, VW
Combi, 9 sæta, árg. '82, Ford Sierra árg. '83, Mercedes Benz árg. '79,
Saab árg. '72, Nissan árg. '81, bifhjól árg. '89, Fiat árg. '81, Mazda árg.
'80, Ford Fiesta árg. '78, Man árg. '71, með saltúðunartækjum. Alls konar
bifreiðavarahlutir og varahlutir í skip og flugvélar, alls konar fatnaður á
dömur, herra og börn, veiðarfæri, búsáhöld, matvara, járn og stál, leikföng,
skófatnaður, dyr og karmar, straujárn, alls konar húsgögn, plötuspilarar,
myndbönd, spólur og hljómtæki, gúmmíbobbingar, glervara, pappir, Shrin-
cover, ca 1000 kg, fægiefni, fóður, brauðraspur, áklæði, snyrtivara, leik-
tæki, borðskraut, bithamar, WC pappír, krossviður, vefnaðarvara, köku-
skraut, skósmíðaverkfæri, grenitré, fiskdæla, speglar, dýptarmælir, Ijós-
myndavörur, skrúfur, dísur, þéttingar, gínur, strokkar í eldsneytisdælur, upp-
tækar vörur og margt fleira.
Eftir kröfu skiptaréttar, svo sem skrifstofubúnaður og alls konar munir úr
dánar- og þrotabúum.
Eftir kröfu Eimskipafélag íslands hf.: skófatnaður, fittings, alls konar varahlut-
ir, bækur, keramik, tvinni, fatnaður, húsgögn, fóður, leikföng og margt fleira.
Lögteknir og fjárnumdir munir, áhöld og bifreið: Austin Medro árg. '88,
sjónvarpstæki, myndbönd, hljómflutningstæki, ísskápar, frystikistur, sauma-
vélar, fatnaður, þvottavélar, tölvuprentari, Ijósritunarvél, frímerki, ný og not-
uð húsgögn, hornhillur, stólar, borð, veggspeglar, glysvarningur, símar, ritvél-
ar og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðs-
haldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
RSK
Staðgreiðsla skatta
Staðgreiðsludeild ríkisskattstjóra vill ráða sem fyrst
starfsfólk í eftirtalin störf:
Starf á tölvusviði
Starfssvið: Aöstoð við umsjón tölvukerfis RSK, skil-
greiningar á nýjum verkþáttum, upplýsingar og ráð-
gjöf til notenda tölvukerfisins o.fl. Leitað er að talna-
glöggum aðila með staðgóða þekkingu á tölvu-
vinnslu.
Störf á rekstrar- og þjónustusviði
Starfssvið: Umsjón með vélrænum skilum launa-
greiðenda, samskipti við SKÝRR, tölvuinnsláttur,
upplýsingagjöf o.fl. Leitað er aö talnaglöggum aðil-
um með einhverja tölvuþekkingu. Umsóknir sendist
staðgreiösludeild RSK fyrir 21. september nk. Öllum
umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Gunnarsson, rekstrarstjóri RSK, í síma 91-
623300.
RSK
STAÐGREIÐSLUDEILD