Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1989, Page 8
8
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1989.
Viðskipti
DV
Jens Ólafsson, eigandi Grundarkjara-verslananna:
Dundar sér við að rífa
upp gamlar KRON-verslanir
Þegar Jens Ólafsson verslunar-
maður haíði veriö verslunar- og
kaupfélagsstjóri hjá samvinnuhreyf-
ingunni í 30 ár flutti hann í Kópavog
snemma árs í fyrra og tók verslun
KRON við Furugrund í Kópavogi á
leigu. Hann breytti nafninu í Grund-
arkjör. Hann hefur rifið verslunina
upp, sexfaldaö veltuna á rúmu ári
og komið vel út úr verðkönnunum.
Nú er hann kominn með þrjár versl-
anir undir heitinu Grundarkjör.
Hann hefur bætt gömlu KRON-versl-
uninni í Stakkahlíð og Kostakaupum
í Hafnarfirði við í safnið. Kostakaup
keypti hann í lok ágúst. Jens er 53
ára. Honum fannst hann vera kom-
inn á þann aldur að hann ætti að
hægja á í vinnunni og gerði tvær til-
raunir til að fá sér rólegt starf innan
samvinnuhreyfingarinnar en þær
tilraunir hans mistókust, að hans
eigin sögn. Því skeliti hann sér sjáif-
ur út í eigin rekstur í fyrra og ævin-
týrið byijaði. Átta manns í vinnu hjá
honum í fyrra en fimmtíu núna.
Bara spurning um að þora
„Þetta er bara spurning um að
þora. Menn eru aldrei of gamlir til
að fara út sjálfstæðan rekstur," segir
Jens við DV.
En hver er galdurinn við að rífa
upp tvær gamlar, litlar KRON-
hverfaverslanir og stórauka veltu
þeirra og bæta síðan Kostakaupum
við en margir hafa reynt að byggja
upp þá verslun á síðasta ári frá því
hún varð gjaldþrota?
„Það er nú enginn stórigaldur á
bak við velgengni Grundarkjara í
- kominn með þrjár verslanir á rúmu ári
Fyrst var það Furugrundin,
Kópavogi. Ég hef litla yfirbyggingu
og held íjármagnskostnaðinum eins
mikiö niðri og hægt er. Þetta gefur
aftur möguleika á minni álagningu
og þar með lægra vöruverði,“ segir
Jens.
Með lifandi verslun
er engu að kvíða
Hann bætir við: „Ef maður er með
lifandi verslun þá þarf engu að kviða.
Finni fólk að það er eitthvert lífs-
mark með verslunnini kemur það
aftur.“
Grundarkjör kom á óvart í síðustu
viku þegar verslunin bauð 5 prósent
staðgreiðsluafslátt af öllum vörum.
„Það er svo mikið keypt með kortum
í matvöruverslunum í dag að það er
nánast engin hemja. Mér finnst auk
þess að þeir sem staðgreiða vöru eigi
rétt á afslætti. Þess vegna býð ég
þessi kjör. Þau lækka að vísu álagn-
ingu mína en þau lækka líka matar-
kostnað íjölskyldna í kreppunni. Ég
trúi að þetta eigi eftir að skila sér í
fleiri viðskiptavimun til mín.“
Hann lærði trikkin
hjá kaupfélögunum
Jens er Eyfirðingur, fæddur á Ár-
skógsströnd. Hann á langan feril að
baki sem verslunarmaður. Hann
lærði trikkin hjá samvinnuhreyfmg-
unni á 30 ára ferli sínum þar. „Eg
byijaði 18 ára að vinna í versluninni
Nýju kjötbúöinni á Akureyri en þá
verslun átti Jón Þorvaldsson. Hann
var orðinn nokkuð gamall þegar ég
byrjaði hjá honum og því fékk ég að
reyna allt sem viðkemur matvöru-
Jens Olafsson, eigandi Grundarkjaraverslananna. Eftir 30 ár hjá samvinnu-
hreyfingunni og tilraunir til að fá sér rólegt starf fór hann 52 ára út i sjálf-
stæðan atvinnurekstur. Hann byrjaði á lítilii hverfaverslun sem KRON átti
við Furugrundina í Kópavoginum. Og ævintýrið byrjaði.
táíHRA FYRrn
Mwm vm?
síðan Stakkahlíðin
Fjölskyldan snögg að
taka upp úr ferðatöskum
Jens hefur unnið fyrir samvinnu-
hreyfinguna víða um land. Hann
hefur unnið á Akureyri, Eskifirði,
Homafirði, Selfossi og ísafirði. „Það
vill til að íjölskyldan er snögg að
pakka niöur og taka upp úr ferða-
töskurn."
Hann hefur lengst af veriö verslun-
arstjóri en á árunum 1985 og 1986 var
hann kaupfélagsstjóri á ísafirði. Það-
an hélt hann til Selfoss og varð versl-
unarstjóri hjá Kaupfélagi Ámesinga.
En 1 fyrra pakkaði hann enn á ný
saman, ók yfir Ölfusárbrúna og sett-
ist aö í bænum.
Fjölskylda Jens er á kafi með hon-
um í rekstrinum. Eiginkona hans
heitir Helga Ólafsdóttir. Þau eiga
fjögur böm og eru tvö þeirra í vinnu
hjá honum. „Það er nú ekki Jens
Ólafs sem rífur þetta einn upp heldur
samhent fjölskylda og gott starfs-
fólk.“
verslun. Þaö var góður skóli. Besti
skólinn var samt árin á Eskifirði
þegar ég var verslunarstjóri hjá
Pöntunarfélagi Eskfirðinga. Amþór
Jensen, faðir Vals Amþórssonar, var
kaupfélagsstjóri. Arin með honum á
Eskifirði vom eins og nokkurra ára
nám í háskóla."
og loks Kostakaup í Hafnarfirði.
Eyðum 6 milljörðum
á ári í happdrætti
Landinn eyðir 6 milljörðum í happ-
drætti á ári. Happdrætti Háskólans
er stærsta happdrættið með veltu
upp á 1,8 milljarða. Lottóið er í fjóröa
sæti með veltu upp á um 940 milljón-
ir.
íslendingar munu eyða um 6,2
milljörðum á þessu ári í að spila í
happdrætti. Þetta er samkvæmt út-
reikningum tímaritsins Frjálsrar
verslunar og kemur fram í nýjasta
heíti blaðsins. Happdrætti Háskólans
er með yfirburði. Velta þess er um
1,8 milljarðar króna. Happaþrenna
Happdrættis Háskólans er sá skaf-
miði sem best hefur selst frá upphafi.
Það eru spilakassar Rauða krossins
sem eru í öðru sæti. Þeir velta um
1,2 milljörðum. Síðan er röðin þessi:
Skyndihappdrætti um 1,2 milljarðar,
Lottó um 940 milljónir, Lukku-tríó
um 250 milljónir, Happdrætti SÍBS
um 218 milljónir, Getraunir um 200
milljónir, Happdrætti DAS um 175
milljónir, Mark og mát 75 milljónir
króna, Bingó og fleira um 75 milljón-
ir.
Hvammstangi:
Hræringar
í stjórnunar
■ ■ ■ Mt
stoðum
ÞórhaBur Aamandœon, DV, Sauðárioólci:
Miklar hrærmgar hafa orðið í
helstu stjómunarstöðum fyrir-
tækja á Hvammstanga í sumar. Um
siöustu mánaðamót tóku t.d. nýir
sljómendur viö í tveim fyrirtækj-
um á staðnum.
Þaö var í saumastofunni Drífu
sem Þorsteinn Guðjónsson tók viö
stjóminni en hann er nýkominnfrá
Óöinsvéum i Danmörku þar sem
hann lauk námi í rekstrartækni-
fræði.
í Vömhúsi Hvammstanga tók við
nýr verslunarstjóri, Guðný Sigurð-
ardóttir, stúdent frá Samvinnu-
skólanum á Bifröst.
Þá tók Bjarki Tryggvason í sumar
við starfl framkvæmda- og útgerð-
arstjóra í rækjuvinnslunni Me-
leyri. Bjarki, sem um árabil var
framkvæmdastjóri ÚS, kom að
vestan en feðgar úr Hnífsdal eiga
einmitt meirihlutann í Meleyri.
Þetta er nóg í bili
Hann keypti Kostakaup í Hafnar-
firði 24. ágúst. Sjálfur gerir Jens ráð
fyrir að sú verslun verði flaggskip
Grundarkjara-verslananna í fram-
tíðinni. „Stærðin er mjög hentug fyr-
ir verslunarrekstur að minu mati.
Það verður samt ekkert gefið eftir í
Kópavoginum og Stakkahlíðinni."
En eru fleiri litlar matvömverslan-
ir í sigtinu hjá Jens Ólafssyni? „Eig-
um við ekki að segja að þetta sé gott
í bili.“
-JGH
Peningamarkaöur
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækurób. Sparireikningar 6-9 Úb.Sp Úb
3jamán. uppsögn 6,5-11
6mán. uppsögn 9-12 Vb
12mán.uppsögn 7-11 Úb
18mán.uppsögn 23 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-3 Sb
Sértékkareikningar Innlán verðtryggð 3-9 Úb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,25-3,5 13-16 Ib Bb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7,5-8 Ab,Sb
Sterlingspund 12,5-13 Sb,Ab
Vestur-þýskmörk 5,25-6 Sb.Ab
Danskar krónur 8-8,5 Vb.Sb,- Ab
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennirvíxlar(forv.) 24-26 Úb.Ab
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 27-29 Sb.Lb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
, Hlaupareikningar(yfirdr-) 28-32 Lb
Utlán verðtryggð , Skuldabréf Útlán til framleiðslu 7-8,25 Lb
Isl.krónur 25-30 Úb
SDR 9,75-10,25 Lb
Bandaríkjadalir 10,5-11 Allir
nema
Úb
Sterlingspund 15,5-15,75 Allir
nema Úb
Vestur-þýskmörk 8,25-8,5 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,8
MEÐALVEXTIR
óverðtr. sept 89 30.9
Verðtr. sept. 89 ViSITÖLUR 7,4
Lánskjaravísitala sept. 2584 stig
Byggingavísitalasept. 471 stig
Byggingavisitala sept. 147,3stig
Húsaleiguvísitala 5%hækkaöi 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,181
Einingabréf 2 2,307
Einingabréf 3 2,742
Skammtímabréf 1,435
Llfeyrisbréf 2,102
Gengisbréf 1,857
Kjarabréf 4,154
Markbréf 2,204
Tekjubréf 1,796
Skyndibréf 1,254
Fjölþjóöabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,999
Sjóðsbréf 2 1,565
Sjóðsbréf 3 1,409
Sjóðsbréf 4 1,182
Vaxtasjóösbréf HLUTABRÉF 1,4140
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 302 kr.
Eimskip 388 kr.
Flugleiðir 172 kr.
Hampiðjan 167 kr.
Hlutabréfasjóður 132 kr.
lönaöarbankinn 166 kr.
Skagstrendingur hf. 212 kr.
Útvegsbankinn hf. 142 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aöila, er miðaö viö sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaöarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
-JGH
Nánarl upplýslngar um penlngamarkað-
Inn blrtaat I DV á flmmtudögum.