Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Page 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
Spumingin
Er næg löggæsla
í höfuðborginni?
Ágúst Fylkisson: Nei, hún er ekki
nógu mikil. Lögreglan er alltof lítið
á ferðinni.
Sigurður Jóhannsson: Þaö eru alla-
vega engin morð.
Sigrún Björnsdóttir: Yfirstjórnun
lögreglunnar skiptir máli. Þegar hún
getur ekki staðið undir ábyrgð hlýtur
eitthvað að vera að.
Elínbjörg Ingólfsdóttir: Nei, manni
finnst alltaf mikið vera aö gerast þar
sem lögreglan ætti að vera til staðar.
Sigurveig Sigurðardóttir: Ég veit það
ekki.
Sveinn Gunnarsson: Ég er nú að-
komumaður en ég held að það sé næg
löggæsla í Reykjavík.
Lesendur
Til bjargar landsbyggðinni:
Veðurfar 09 al-
þjóðaflugvöllur
Frá Kirkjubæjarklaustri. - Ekki nema um 270 km þangað og enn styttra til Víkur eðá 192 km.
Gunnar Þórðarson skrifar:
Það hefur mikiö verið rætt og ritað
um hinn svokaliaða landsbyggöar-
vanda og oftast er þá m.a. minnst á
að flestir vilji búa á höfuðborgar-
svæðinu. Þar sé allt að hafa sem ekki
finnst í hinum dreifðu byggðum
landsins, flestar opinberar stofnanir,
aðstaða til skemmtunar meiri, og
loks að þar sé sambandiö við um-
heiminn. Menn komist t.d. ekki til
útlanda nema fara til Keflavíkur og
þá fyrst um Reykjavík.
Ég held að tvennt sé það sem geti
komið landsbyggðinni til bjargar í
því efni að fólk hætti að flytja suður
í svo ríkum mæh sem hingað til hef-
ur veriö. Annars vegar veðurfarið
og hins vegar alþjóðaflugvöllur sem
reistur yrði á Norður- eða Norðaust-
urlandi. Margir kunningjar mínir,
sem búsettir eru syðra, segjast vera
í þann veginn að gefast upp á því
veðurfari sem nú sé orðið viðloðandi
á Suöurlandi og þó einkum á suð-
vesturhorni landsins, í kringum
Reykjavík.
Þessir kunningjar mínir, sem
stundum koma nú hingað norður,
segja að t.d. í sumar hafi raunar ahs
staðar annars staðar á landinu verið
mjög þolanlegt sumar, og jafnvel
sunnanlands, nema í Reykjavík.
E.kki hafi þurft nema að fara lítið
eitt í austurátt, t.d. að Kirkjubæjar-
klaustri eða til Víkur, sem er enn
styttra, og þá hafi verið þar sumar-
blíða. Einnig ekki nema stutt í vestur
eða norður og þar hafi verið sama
sagan. - Reykjavík og næsta ná-
grenni hafi verið eitt veðravíti allt
sumarið. Fólk sé orðið þreytt á þessu.
Ég veit um marga sem eru einmitt
að hugsa um að flytja búferlum frá
höfuðborgarsvæðinu til annarra
staða á landinu, einkum á Norður-
og Austurlandssvæðið, til þess eins
að geta búið við aðra veðráttu en nú
virðist vera landlæg þama á suðvest-
urhominu. - Þetta getur haft mikil
og góö áhrif ef tilhneigingin verður
þessi í framtíðinni.
Þetta er þó ekki nægilegt aðdráttar-
afl að mínu mati. Margir setja það
fyrir sig að ekki skuh vera hægt að
komast til útlanda annars staðar frá
landinu en Keflavík (Reykjavík). Ég
er viss um og fullyröi reyndar að
væri sú aðstaða á Norðurlandi eða
Norðausturlandi sem fylgir stórum
flugvelh, sem nota má th farþega-
flugs til og frá landinu, myndi það
breyta viðhorfum margra til búsetu
annars staðar en á höfuðborgar-
svæðinu. Og beindi þá um leið ferða-
mannastraumi frá útlöndum th
þessa svæðis einnig. - Þetta tvennt
sem ég nefni hér hygg ég að geti
hreinlega komið í veg fyrir frekari
flótta frá landsbyggðinni en orðinn
er.
Endurvinnslan og innleggsriótur:
Dregið úr áhrifum
Aðalsteinn hringdi:
Það vantaði ekki flennistórar aug-
lýsingar í blöðum nýlega frá verslun-
um sem tækju á móti einnota umbúð-
um til endurvinnslíi. - Vel að merkja,
dósum eingöngu. Mikil áhersla var
lögð á að nú væru komnar vélar sem
stinga mætti dósunum inn í og þá
fengju menn inneignarmiða gegn
skhum dósanna. - En vel að merkja
aftur; þeim inneignarmiða á svo að
framvísa í verslununum, því hann
ghdir aðeins þar. Menn fá enga pen-
inga gegn skhunum.
Þetta var nú um auglýsingu versl-
ananna. Það hlaut að hggja eitthvað
að baki slíkra flenniauglýsinga. Það
sem lá að baki var að draga til sín
viðskiptavini með dósavéhnni góðu.
Verslanir taka sem sé ekki á móti
einnota plastflöskum eða einnota
gleijum. Það er ekki frítt við aö maö-
ur fari að efast um annars ágætt
framtak um endurvinnslu einnota
umbúða, þegar manni er gert allt sem
erfiðast við að skha þessum umbúð-
um. - Þetta ætti iðnaðarráöuneytið
aö taka th endurskoðunar.
Ég hefi reyndar tekið eftir því aö
reynt er að draga sem mest úr fólki
að skha þessum einnota umbúðum á
„rétta staði“ og á ég þá við staði þar
sem fólk fær greitt fyrir innskihn.
Farið er að úthluta skátum eða ein-
hverjum öðrum félagasamtökum
réttindum til aö fá skerf af kökunni,
og þá er ekki að sökum að spyija.
En fáir kasta umbúðum í þessi rauðu
og forljótu ferhki skátanna. Fólk
ætlaði að vera nýtið og skila sjálft
umbúðunum gegn peningum. - En
þaö virðist eiga að gera allt til þess
að hindra þetta átak fólksins.
.YCfTAKA
íHsmmsm
N'YTT ÚK UOIUO'J
Verið er að gera fólki erfitt fyrir með því að ekki er hægt aö skila inn ölium
einnota umbúðum á sama stað?
Vandið valið
á skjáinn
Margrét Jónsdóttir skrifar: sjónvarpinu og eins hjá Stöð 2. Það
Ég var að lesa um fjölmiöla, er vandi að velja góða sjónvarps-
stutta klausu sem Hannes Hólm- menn, og sennhega sést ekki
steinn skrifar í DV í dag, 14. sept. hvernig þeir reynast fyrr en að
Þar kemur hann inn á hæfíleika nokkrum tíma hðnum, kannski
manna sem hann segir að nýtist einum mánuði eöa tveimur. - En
misvel á ólíkum sviöum og tekur að þeim tíma loknum er lika alveg
dæmi úr ýmsum áttum, þ.á m. sjón- séö hveijir það eru sem passa á
varpinu. skerminn, ef hægt er aö taka svo
Hann bendir þar á ýmsa vel og til oröa.
miður hæfa sjónvarpsmenn. - Ég Það er því áríöandi að þá sé gerð
vh lýsa samstöðu minni með áliti uppstokkun og skipt um þá sem
Hannesar i þessu efni, og einmitt ekki falla inn í myndina. Það er
dæmunum sera hann tekur í skrif- miög áríðandi að valið sé vel á skjá-
um sínura um sjónvarpið. - Þar eru inn, ekki bara fyrir áhorfenduma,
ekki alhr jafnhæfir. heldur ekki siður fyrir viökomandi
Þetta eiga náttúrlega yfirmenn sjónvarpsstöð, sera getur misst eða
sjónvarps að sjá, bæði hjá Rikis- tapaö fylgi samkvæmt því.
Bflarnir of stórir
fyrir stæðin
Helgi hríngdi:
Borgaryfirvöld þurfa nauðsynlega
að gera átak í því að fjarlægja stórar
bifreiðar sem lagt er í stæði fyrir
utan venjuleg íbúðarhús að nætur-
lagi. Fyrir utan fjölbýhshús þar sem
ég bý, við Bólstaðarhlíð, er t.d. rútu-
bíl lagt í stæði sem engan veginn
passar þessum stóra dreka. Af þessu
stáfar einnig slysahætta og er mildi
að ekki skuh hafa hent óhapp vegna
þessa.
Víða um borgina er stórum bílum,
bæði vörubílum og rútum, lagt við
gangstéttir og fyrir utan hvað þetta
er osmekklegt að hafa þessa bíla við
húsin byrgir þaö útsýni og er stór-
hættulegt. - Þessir bílar veröa aö fá
afdrep annars staöar en við íbúðar-
hús. Ollum rútubílum hlýtur að vera
hægt að leggja við Umferðarmiðstöð-
ina, þar sem flestir eru líka geymdir.
Einnig á að finna sérstakt stæði fyrir
aðra stóra bíla.
Þetta þarf að taka til meðferðar hjá
borgaryfirvöldum fyrr en seinna og
sérstaklega nú þegar vetur fer í hönd
og búast má við snjókomu og eríiðri
færð eins og var t.d. sl. vetur.