Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
Frjálst.óháö dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Sínum gjöfum líkastur
Erró er kominn heim eftir rúmlega þriggja áratuga
útlegð. Hann hefur treyst Reykjavíkurborg umfram
aðra til að varðveita listasögu sína. Hann hefur gefið
henni um 2000 listaverk eftir sjálfan sig, og borgin ætlar
að koma þeim veglega fyrir í safni á Korpúlfsstöðum.
Erró er dæmi um, að menn geta verið spámenn í sínu
fóðurlandi. Fyrir rúmlega þremur áratugum seldi hann
grimmt á sýningu í Listamannaskálanum, áður en hann
hélt út í hinn stóra heim til varanlegrar útivistar. Þá
þegar hafði þjóðin viðurkennt hann sem listamann.
Hann hefur haft mikið að gera þessa þrjá áratugi.
Hann er hamhleypa til verka og vinnur frá morgni til
kvölds, dag eftir dag, viku eftir viku. Auk þess hefur
hann ferðast um heiminn til að safna í hugmynda-
bankann. Hann hefur raunar tæpast litið upp í 30 ár.
Þess vegna hefur hann haft lítinn tíma til að halda
tengslum við fóðurlandið. Nokkrum sinnum hefur hann
þó komið heim, en mest í mýflugumynd. Núna loks má
segja, að hann sé varanlega kominn heim. En þeim mun
glæsilegri er bragurinn á heimkomu listamannsins.
Erró hefur með sér um 2000 listaverk, sem spanna
allan listferil hans, frá því að hann var tíu ára gamall
til allra síðustu ára. Meðal annars eru nokkur sýnis-
horn úr öllum 42 myndflokkum hans, sem frægir hafa
orðið. Þessi gjöf er raunar sjálfsævisaga hans.
Erró er þekktur að gjafmildi. Hann hefur frá barn-
æsku alltaf verið að gefa af sjálfum sér. En þessi gjöf
er miklum mun stórfenglegri en nokkurn gat órað fyr-
ir. Hún gerir Reykjavík skyndilega að menningarsögu-
legum punkti á korti alþjóðlegrar listasögu.
Hann fylgir í kjölfar Bertels Thorvaldsen, sem er hinn
íslendingurinn, er hefur öðlazt veigamikinn sess í hsta-
sögunni. Og það er til marks um, að þjóðin hefur geng-
ið götuna fram eftir vegi, að nú þarf ekki að velja Kaup-
mannahöfn sem öruggan samastað hstaverkanna.
Hann er einn af fremstu málurum popptímans í mál-
aralist. Þetta tímabh poppsins spannar yfir sömu þijá-
tíu árin og eru starfsvettvangur Errós. Hann er að því
leyti þátttakandi í forustusveit alþjóðlegra málara, um-
setinn af listaverkasöfnum og listaverkasöfnurum.
Um leið hefur Erró ætíð haft sinn persónulega stíl,
sem er hvarvetna auðþekkjanlegur, óhkur stíl annarra
þekktra málara þessara þriggja áratuga. Þennan stíl
hefur hann mótað og þróað á sjálfstæðan hátt við góðar
undirtektir alþjóðlegra listunnenda samtímans.
íslendingar hafa áður þegið stórar gjafir hstamanna,
Einars Jónssonar, Ásgríms Jónssonar, Ásmundar
Sveinssonar og Jóhannesar Kjarval. En gjöf Errós er.
sérstök, ekki vegna verðmætisins, sem nemur hundruð-
um mihjóna, heldur vegna stöðu hennar í hstasögunni.
Ætlunin er að gera Korpúlfsstaði upp og koma þar
fyrir hinni miklu hstasögu, sem felst í höfðinglegri gjöf-
inni. Það verður mikið og dýrt fyrirtæki, því að raka-
stig og lofthiti verða að vera í fullkomnu jafnvægi og
öryggisbúnaður svo fullkominn, sem hæfir verkunum.
Enginn aðih á íslandi er líklegri til að gera þetta með
sóma en einmitt Reykjavíkurborg, sem nýlega endur-
reisti Viðeyjarstofu með glæsibrag og er nú að ljúka við
nýtt og stórfenglegt Borgarleikhús. Um leið varðveitir
borgin Korpúlfsstaði, minnisvarða íslenzks framtaks.
Þannig verður gjöfin bezt þegin og bezt svarað hinu
mikla örlæti Errós, sem borgarstjóri lýsti á laugardag-
inn rétthega svo: „Hver er sínum gjöfum líkastur“.
Jónas Kristjánsson
..einnig búið að greiða tolla, söluskatt o.s.frv. af byggingarefni o.fl.“, segir m.a. í greininni.
Eignarskattar
Núna í september boðaði Húseig-
endafélagið til fundar um hækkun
eignarskatta. Á fundinn var boðið
þingmönnum Reykvíkinga og
Reyknesinga. Á fundinum gerðu
margir, aðallega ekkjur og ein-
hleypar konur, grein fyrir eignar-
skatti sínum og breytingum milli
áranna 1988 og 1989.
Auk hækkunar eignarskatta var
til umræðu mismunun í skatt-
heimtu á einhleypa og gift fólk. Ein
frúin orðaði það svo að ef hún gerð-
ist svc léttúðug að fá sér mann yrði
hann að vera eignalaus, ella yröu
eignarskattar of þungbærir.
Fundurinn var í raun gagnlegur
umræðuvettvangur.
Skattbreytingar
Svo oft er nú búið að rekja breyt-
ingamar sem urðu á eignarskatti
að líklega er verið að bera í bakka-
fullan lækinn að gera það einu
sinni enn.
Á Alþingi 22. desember 1988 var
eignarskattsprósenta hækkuð úr
0,95% í 1,2%. Af fyrstu 2.500.000 kr.
af eignarskattsstofni greiðist eng-
inn skattur. Af eignarskattsstofni
yfir 2.500.000 kr. greiðast 1,2%. Af
eignarskattsstofni yfir 7.000.000 kr.
greiðast að auki 1,5%. Síðara þrep-
ið er nýtt.
í frumvarpinu, sem lá fyrir Al-
þingi um breytingu á lögum nr.
75/1989 um tekjuskatt og eignar-
skatt, með síðari breytingum, var
gert ráð fyrir að viðbótarþrepið
1,5% tæki viö þegar 6.000.000 kr.
skuldlausri eign væri náö. í með-
ferö fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri deildar var markið hækkað í
7.000.000 kr.
Síöar, eða í maí 1989, var enn á
ný gerð breyting á þessum lögum.
Með lögum um ráðstafanir vegna
kjarasamninga komu í maí svo-
hljóðandi breytingar við 81. gr. lag-
anna:
„Á sama hátt skal viö álagningu
eignarskatts skipta eignarskatts-
stofni eftirlifandi maka sem situr í
óskiptu búi og reikna eignarskatt
hans eins og hjá hjónum væri
næstu fimm ár eftir lát maka.“
Þessi grein gildir því aftur til 1984
en var svo seint samþykkt aö hún
komst ekki inn á skattseðla við
álagninguna núna en leiðréttingar
verða sendar.
Fjármálaráðuneytið segir í grein-
argerð: „að eignarskattar einstakl-
inga sem misstu maka sína á árun-
um 1984-87 verða jafnvel lægri á
árinu 1989 en þeir hefðu oröið mið-
að við þau lög sem hér hafa gilt á
undanfómum árum.“
Álagning skatta
Ríkisvaldiö þarf á hverjum tíma
Kjállarinn
Guðmundur G.
Þórarinsson
alþingismaður
arbókhlöðu og endurbætur menn-
ingarbygginga. Þá er hvorki talinn
með skattur á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði ef um shkt er að
ræða né fasteignagjöld.
Sjálfstæðismenn greina rétt frá
því að þeir börðust hart í stjórnar-
andstöðu gegn hækkun eignar-
skatta. En þó ljóst væri að þessi
hækkun næði fram á þinginu lögðu
þeir fram frumvarp um framleng-
ingu eignarskattsaukans vegna
þjóðarbókhlööu og annarra menn-
ingarbygginga.
Málefnið var að sjálfsögðu þarft
bg ég studdi það. En það er yfir-
drepsskapur að berjast gegn hækk-
un ákveðinna prósenta í eignar-
skatti og koma síöan er hækkun
hefur orðið og berjast fyrir fram-
lengingu eignarskattsaukans, sem
áður var tímabundinn og var senn
Það er verulegt umhugsunarefni hve
eignarskattar koma þungt niður í
Reykjavík vegna þess hversu mat á
fasteignum þar er hátt.
að ákveða hvernig það innheimtir
það fé, er verja skai til opinberra,
sameiginlegra þarfa. Þessar þarfir
hafa verið að vaxa í velferðarríkinu
og er nú komið svo að skera verður
ríkiskerflð upp, spara og stöðva
skattahækkanir.
Ríkisvaldið velur milli ýmissa
skattforma, svo sem neysluskatta,
tekjuskatta, eignarskatta o.s.frv.
Ekkert skattform hefur fundist
sem er fyhilega réttlátt. Tekju-
skattar eru óréttlátir vegna þess
að þeir leggjast þyngst á þá sem
réttast gefa upp til skatts og eru
stundum kallaðir launamanna-
skattar. Neysluskattar innheimtast
einnig misvel og efst í huga er
umræðan um innheimtu sölu-
skatts.
Eignarskattar hafa að ýmsu leyti
sérstöðu. Margir telja þá óréttláta
vegna þess að skattlögö er eign en<
þegar hafa veriö greiddir tekju-
skattar af fé sem fór til öflunar
hennar. Ef um fasteign er að ræða
er einnig búið að greiða toUa, sölu-
skatt o.s.frv. af byggingarefni o.fl.
Þar að auki eru sumar eignir þess
eðlis að þær færa eiganda sínum
engar tekjur og hann verður aö
selja þær ef á þær er lagöur hár
eignarskattur.
Eignarskattur nemur í hæsta
þrepi 2,95% nú af eignarskatts-
stofni ef með er taUnn skattur
0,25% samkvæmt lögum um þjóð-
að renna út. Þetta ættu sjálfstæðis-
menn að hafa í huga er þeir ræða
eignarskattinn. Skrifaö stendur:
„Sá yðar sem syndlaus er kasti
fyrsta steininum."
Eins og fram kom á fundinum er
það verulegt umhugsunarefni hve
eignarskattar koma þungt niður í
Reykjavík vegna þess hversu mat
á fasteignir þar er hátt.
Breytingar enn
í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis-
stjórnar er ákveðið að lækka eign-
arskatta. Við samþykkt frum-
varpsins á Alþingi lögðu starfs-
menn fjármálaráðuneytis fram
ýmsar talnarunur um hversu
álagning eignarskattsins mundi
koma út. Flestir þingmenn munu
sammála um að niðurstaðan varð
önnur en þeir væntu. Því hefur rík-
isstjórnin í nýjum málefnasamn-
ingi ákveðið að lækka eignarskatt-
ana.
í þingflokki framsóknarmanna
hefur talsvert verið íjallað um
þessa álagningu eftir að álagning-
arseðlar komu fram. Nefnd þing-
manna undir forystu Stefáns Guð-
mundssonar þingmanns vann að
ýmsum tillögum í efnahags- og at-
vinnumálum. Meðal tillagna
nefndarinnar eru verulegar breyt-
ingar á álagningu eignarskatts.
Guðmundur G. Þórarinsson