Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
17
ison, lækka talsvert meöalaldurinn í landsliðshópnum í knattspyrnu.
DV-mynd S
ð á lands-
um í gær
í landsliðshópnum í fyrsta skipti
undir neinni pressu núna og stefnan
er aö hafa gaman af þessu og gera sitt
besta. Við gerum okkur grein fyrir aö
Tyrkir eru með gott lið en við ætlum
að gera allt sem í okkar valdi stendur
til að stoppa þá.“
Tek við þegar Bjarni
fer að gefa eftir
Ólafur Gottskálksson, markvörður
Akumesinga, er í A-landsliöshópnum í
knattspymu í fyrsta skipti. Hann er 21
árs gamall og hefur átt marga frábæra
leiki í sumar, bæði með ÍA og 21-árs
landshöinu, og verðskuldar landsliðs-
sætið fyllilega.
„Það er rosalega gaman að koma í
þennan hóp, sem er bæði skemmtilegur
og samstilltur, og það kom mér þægi-
lega á óvart að vera valinn. Ég vonaðist
auðvitað eftir því að þetta myndi gerast
en vissi að ég átti í samkeppni við fleiri
markverði," sagöi Ólafur í samtali við
DV í gær.
„Ég hef sett stefnuna á að tryggja mér
fast landsliðssæti á næstu tveimur
ámm. í dag er Bjarni Sigurðsson besti
markvörður íslands en um leið og hann
fer að gefa eftir ætla ég að vera tilbúinn
að taka við af honum,“ sagði Ólafur.
Ólafur er fjölhæfur íþróttamaður því
að hann er snjall í körfubolta og hefur
leikið þar með Keflvíkingum í úrvals-
deildinni. Hann tók sér frí á síöasta
vetri en ætlar að taka upp þráðinn með
ÍBK í vetur. „Ég ætlaði reyndar að byrja
að æfa með liðinu í dag en verð að fresta
því um sinn fyrst ég var valinn í lands-
liðshópinn. Það fer ágætlega saman að
vera bæði í knattspyrnu og körfubolta
og ég hef áhuga á að leggja líka stund
á badminton í vetur," sagði Ólafur.
-JÖG/VS
Fimmtíu tyrkneskir
fréttamenn mæta
Áhugi tyrkneskra fjölmiðla á aldrei jafiimargir erlendir frétta-
landsleik íslendinga og Tyrkja, sem menn tilkynnt komu sína á fþrótta-
fi*am fer á Laugardalsvellinum á viðburð á vellinum. Flestir hafa þeir
morgun, er gífurlegur. 50 tyrkneskir veriö á vellinum þegar Fram Iék gegn
fjölmiðlamenn hafa tilkynnt komu spænska félaginu Barcelona í Evr-
sína til landsins og óskað eftir að- ópukeppni meistaraliöa í fyrra. Þá
stöðu á vellinum. komu um 30 fréttamenn frá ýmsum
Leikur þjóðanna er liður í for- fjölmiölum á Spáni.
keppni heimsmeistararaótsins og er Mikil eftirvænting rikir fyrir leikn-
áhugi Tyrkjanna til kominn vegna ura í Tyrklandi og munu hörðustu
möguleika þeirra á að tryggja sér stuðningmenn liösins, sem skipta
annað sæti í rlölinum. Þaö sæti gefur tugum, fylgja liöinu hingaö til lands
aögöngumiða í úrslifakeppninni á en jafnframt verður leiknum sjón-
Italiu næsta sumar. varpaö beint til Tyrklands.
Aö sögn Jóns Magnússonar, verk- -JKS
stjóra á Laugardalsvellinum, hafa
Iþróttir
verður í flórar vikur hjá félaginu
Baldur Bjamason, knattspyrnu-
maðurinn efiúiegi úr Fylki, fer á
raorgun til Belgiu þar sem hann
raun æfa meö 1. deildar iiöi Loker-
en í fjórar vikur og lengur ef vel
gengur.
Baldur ieikur væntanlega með
varaliöi félagsins á laugardaginn
kemur en mun æfa með Lokeren
fram yör Evrópuleiki 21-árs lands-
liðsins í Hollandi og Vestur-Þýska-
landi í næsta mánuði.
Aðaliiö Lokeren er i Kuwait við
æfingar og keppni i þessari vfku
en gangi allt að óskum fer Baldur
að æfa með þvi í næstu viku. Vara-
lið félagsins er mjög sterkt um
þessar raundir og er i þriðja sæti í
deildakeppni varaliða í Belgíu.
-VS
( Baldur Bjamason fer til Lo-
keren ð morgun.
Gunnar í vörninni
gegn Tyrkjunum?
- Gunnar Oddsson leikur væntanlega sinn fyrsta landsleik
Miklar líkur eru á því að Gunnar
Oddsson, Keflvíkingurinn úr KR,
leiki sinn fyrsta A-landsleik þegar ís-
land mætir Tyrkjum á Laugardal-
sveUinum annað kvöld. Gunnar leik-
ur væntanlega í vöm íslenska hðsins
en hann hefur verið í landshöshópn-
um í tveimur síðustu HM-leikjum ís-
lands, án þess aö koma inn á.
Sex breytingar
Sex leikmenn sem hófu leikinn
gegn Austur-Þýskalandi á dögunum
eru ekki í hópnum að þessu sinni.
Það em Friðrik Friöriksson, Sævar
Jónsson, Ágúst Már Jónsson, Ómar
Torfason, Guðmundur Torfason og
Viðar Þorkelsson.
Guðni Kjartansson þarf því að gera
miklar breytingar á hðinu og miöað
við síðdegisæfmguna í gær hefja
þessir leikmenn leikinn gegn Tyrkj-
um:
Bjarni Sigurðsson í markinu,
• Gunnar Oddsson verður líklega í
stöðu miðvarðar gegn Tyrkjum.
Guðni Bergsson aftasti maður í vöm,
Gunnar Gíslason og Gunnar Odds-
son miðveröir, Ólafur Þórðarson og
Þorvaldur Örlygsson kanttengiiiðir,
Rúnar Kristinsson varnartengiliður,
Arnór Guðjohnsen og Ásgeir Sigur-
vinsson miðjutengihðir og Sigurður
Grétarsson og Pétur Pétursson fram-
heijar.
Kristinn fyrirSigurð
Þá verða varamenn þeir Ólafur
Gottskálksson, Haraldur Ingólfsson,
Ragnar Margeirsson, Einar PáU
Tómasson og Kristinn R. Jónsson.
Kristinn var í gær valinn í hópinn í
stað Sigurðar Jónssonar eftir að ljóst
varð að Sigurður kæmi ekki frá Eng-
landi. Hann á tvo landsleiki að baki,
lék með gegn Færeyingum á síðasta
ári og ennfremur ólympíuliðinu gegn
ítölum.
-VS
Fá 173 þúsund
fyrir útisigur
- nýr samningur landsliösmanna Belga
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Leikmenn belgiska landshðsins í
knattspymu hafa gert samning við
þarlenda knattspymuforystu um
greiðslur fyrir leiki í forkeppni og
lokakeppni heimsmeistaramótsins.
Þriggja manna nefnd, skipuð þeim
Jan Ceulemans, Georges Grún og
Leo Clijsters, sá um samningagerð-
ina fyrir hönd landsliðsmannanna.
Samningurinn var opinberaður fyrir
almenningi í gær.
Fyrir hvem sigur á útivelii í for-
keppninni fá þeir sem skipa 16
manna hópinn í það skiptið greiddar
173 þúsund krónur hver. Fyrir
heimasigur fá þeir 150 þúsund, fyrir
jafntefli á útivelli 90 þúsund, jafntefli
á heimavelli 75 þúsund, en fyrir tap,
hvort sem er á heima- eða útivelh,
fá þeir aðeins 15 þúsund.
Leikirnir gegn Luxemburg
aðeins á hálfvirði
Belgar hafa unnið fjóra leiki og
gert tvö jafntefli, en eiga eftir að'
mæta Svisslendingum á útivelli og
Luxemburgurum heima. Leikmenn-
irnir hafa því þegar fengið drjúgan
skilding, en þess ber þó að geta að
fyrir leikina gegn Luxemburg eru
aliar greiðslur lækkaðar um helm-
ing!
Komist belgiska landsliðið í úr-
slitakeppnina á ítaliu, sem heita má
öruggt, fá leikmennirnir síðan góðar
aukagreiðslur eða 60 þúsund hver
fyrir leikina í riðlakeppninni. Sá sem
hefur verið með í öllum átta leikjun-
um á því von á 480 þúsundum auka-
lega.
Fyrir þátttöku í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar á Ítalíu fær hver
leikmaður 1,1 milljón króna. Komist
belgíska liðið lengra verður sest að
samningaborði á nýjan leik og gert
út um málin á staðnum.
Hefur fengið 2,5 milljónir
án þess að leika
Varamarkvörður belgíska lands-
liðsins, Gilbert Bodart, hefur grætt
verulega á því síðustu árin að horfa
á félaga sína leika. Hann hefur nú
þegið 2,5 milljónir króna í laun frá
knattspymusambandinu, án þess að
koma inn á völhnn! Væntanlega
verður sá sjóður hans enn digurri
að forkeppninni lokinni, hvað þá ef
hann fer líka til Ítalíu og horfir á
leikina þar!
Heimsmet í snörun
Sovétmaðurinn Isra-
il Militosian setti í
gær heimsmet í snör-
un í 67,5 kg Qokki á
heimsmeistaramótinu í lyfting-
um sem stendur yfir í Aþenu.
Hann lyfti 160 kílóum og bætti
eigið met um hálft annað kíló.
Góður sígur Kana
B'andaríkjamenn
eiga góða möguleika
á að leika í úrslitum
HM í knattspyrnu á
næsta ári eftir 0-1 útisigur á
E1 Salvador á sunnudag. Þeir
berjast nú við Costa Rica og
Trinidad/Töbago um þau tvö
sæti sem Mið- og Norður-
Ameríka fá í lokakeppninnL
Wimbledon vann
Wimbledon sigraði
Port Vale, 1-2, á úti-
velli í enska deilda-
bikarnum i gær-
kvöldi Þetta var fyrri leikur
liðanna í 2. umferð keppninnar.
Forsala á fuiiu
Forsala fyrir lands-
leik íslands og Tyrk-
lands annað kvöld
stendur nú yfir. í dag
eru raiðar seldir í Austurstræti
og á Laugardatsvelli frá kl. 12
til 18 og á morgun hefst miða-
salan kl. 10 á Laugardalsvelli
og stendrn* ósbtiö fram að leik.