Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1989, Side 32
FR ÉTT A S KOTIÐ 1
wmm «■» 1 § j|
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað
•
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1989.
Ljós og belti á ísafirði:
Átján verið
sektaðir
Lögreglan á ísafirði hefur síðustu
tvo daga sektað 12 manns, bæði öku-
menn og farþega, fyrir að hafa ekki
notað bílbelti. Þá hafa 6 ökumenn
verið sektaðir fyrir að aka ljóslausir.
Sex ökumenn hafa verið sektaðir fyr-
ir að hafa ekki ökuskírteini með-
ferðis.
Lögreglan hefur stöðvað um 40 bOa
í þessu eftirliti með belta- og ljósa-
notkun.
Einn ökumaður var sviptur öku-
leyfí í gær eftir að hann hafði ekið á
77 kílómetra hraða á götu þar sem
einungis má aka á 35 kílómetra
hraöa.
Um síðustu helgi voru tveir öku-
menn á ísafirði teknir, grunaðir um
ölvunviðakstur. -sme
Kindakjöt:
Hækkar um
6,2 prósent
Verð á kindakjöti af nýslátruðu
hækkar um 6,2% samkvæmt niður-
stöðum Verðlagsráðs. Verð á slátri
og innmat var ekki ákveðið því að
ákveðið var að gefa álagningu á því
frjálsa. Verð á eldra kjöti verður
óbreytt en nú munu vera til um 2.200|
tonn af því í landinu. Verð á 2. flokki
af kjöti í heilum skrokkum hækkar
þvi úr 409,30 í 434,60, svo að dæmi
sé tekið.
Verðlagsráð fundar í dag um fyrir-
hugaða lækkun á mjólk og mjólkur-
vörum. Lítrinn af mjólk hækkaði í
70,20 krónur um síðustu mánaðamót.
Hækkun til bænda verður frestað og
hækkun á álagningu kaupmanna
dregin til baka. Því er búist við um
3% lækkun og ætti því mjólkurlítr-
innaðfaraí68krónur. -Pá
Skákþlng íslands:
Karl enn á
sigurbraut
Karl Þorsteins heldur enn áfram
sigurgöngu sinni á Skákþinginu eni
gær vann hann Ágúst Karlsson og
er með vinningsforskot. Karl er með
5,5 vinninga en Þröstur Þórhallsson
er með 4,5 vinninga. í gærkvöldi
vann Þröstur ÞórhaHsson Tómas,
Hannes Hlífar vann Þröst Ámason,
Guðmundur vann Sigurð Daða en
Jón L. og Jón Garðar og Rúnar og
Björgvin gerðu jafntefli.
í dag kl. 15 teflir Bent Larsen fjöl-
tefli í Kringlunni og er öllum heimilt
að spreyta sig en menn verða að hafa
taflogklukkumeösér. -SMJ
LOKI
Ná þeir ekki að
„bræða" þetta saman
í álbræðslunni?
Búist við verkfalli í Álverinu airnað kvöld:
Kröf ur starfsmanna á
bilinu 12-15 prósent
- ÍSAL-menn vilja fækka starfsmönnum og leggja niður kafBtima
Samkvæmt heimildum DV er það urbetrikjörensambærilegarstétt- Atvinnurekendur hafa boðiö lega keppinauta um byggingu ál-
álit flestra sem viöriðnir eru kjara- ir í þjóðfélaginu. Árið 1986 var starfsmönnum Álversins 12 pró- vers hér á landi. Þeir viiji stækka
deiluna í Álverinu að ekki verði reiknuö út það sem kallaö er sent kauphækkun gegn þvi að þeir álverið 1 Straumsvík og ætli sér aö
komist hjá því að boðað verkfall „ÍSAL-vog“ og var þá í úrtaki mið- samþykki fækkun starfsmanna um vera einir um hituna. Þessu hefúr
hefjist þar annað kvöld. Mjög mikil að við laun sambærilegra stétta 22 og niöurfeliingu á nokkrum kaf- veriö haldiö fram 'opinberlega og
harka er í deilunni og hefur í raun utan Álversins. Þá kom í ijós að fitímum. Þessu hafna starfsmenn ekki verið mótmælt.
ekkert þokast til samkomulags það starfsmennÁlversinshöföudregist alfariö. Þeir benda á að fækkun Þaö er álit þeirr^ samninga-
sem af er. Nýr samningafundur aftur úr sem nemur 13 prósentum starfsmanna komi af sjálfu sér. manna, sem DV hefur rætt við, aö
hefúr verið boðaður hjá rikissátta- í launum, miðaö við þaö forskot Þegar hafi fækkað um 9 manns það harka ÍSAL-manna í kjaradeilum
semjara í dag. sem þeir höföu áður. Þennan mun sem af er þessu ári og þeir eru ekki hafi aldrei veriö jafnmikil og aö
AðalkrafastarfsmannaÁlversins vilja þeir nú vinna upp aftur. Að tii viðræðu um fækkun kaffitíma. þessu sinni. Verði engin breyting
er upp á 12 til 15 prósent kaup- auki eru þeir uppi með kröfur um Því er haldið fVam að Alusuisse þar á í dag eða á morgun geti ekki
hækkun. Starfsmenn ÍSALs hafa eitt og annað tii viðbótar, eins og vfiji gjaman að til verkfalls komi í hjá þvi farið að til verkfalis komi.
um nokkurt árabii verið meö held- alltaf er í kjarasamningum. nokkra daga til aö fæla frá hugsan- S.dór
Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands voru í gær afhent friðarverðlaun kvenna árið 1988 er friðarsamtökin Toget-
her for Peace Foundation veita. Það var forseti samtakanna, Mariapia Fanfani, sem afhenti forsetanum verðlaun-
in. Að þessu sinni hlutu þrjár konur friðarverðlaunin, þær Raisa Gorbatsjov og Nancy Reagan, ásamt forseta
íslands. Næst verða friðarverðlaunin veitt í nóvember og fer sú athöfn fram í New York. Hefur Vigdísi verið boðið
að vera heiðursgestur við þá afhendingu. DV-mynd GVA
Fær ekki
hundinn
Eigandi scháferhundsins, sem skii-
inn var eftir í lokuðum bíl í Breið-
holti í tvo sólarhringa, hefur vitjað
hans á dýraspítalanum. Samkvæmt
upplýsingum þaðan fær eigandinn
ekki hundinn fyrr en hann hefur
uppfylit öll skilyrði varðandi undan-
þágu til hundahalds sem borgaryfir-
völd setja. Munu þau skilyrði ekki
hafa veriö uppfyllt af hálfu eigand-
ans.
Schaferhundurinn, sem er tík að
nafni Tina Turner, þrífst vel á dýra-
spítalanum og hefur náð sér eftir
veruna í lokuðum bílnum.
-hlh
Jóhann vann
Lubojevic
Jóhann Hjartarson vann góðan sig-
ur á Lubojevic á Tilburg mótinu í
gær. Eftir aðeins 24 leiki varð Júgó-
slavinn að játa sig sigraðan. Kortsnoj
og Kasparov gerðu jafntefli en Ivanc-
huk vann Agdestein og Sax vann
Piket. Jóhann er með 2,5 vinninga
en efstu menn 3 vinninga.
Þá vann Margeir Pétursson sína
fyrstu skák á móti í Sviss. Hann tefldi
við titillausan Svisslending.
-SMJ
Veðrið á morgun:
Slydda
fyrir
norðan
Allhvöss eða hvöss norðan- og
norðaustanátt verður um allt
land og víðast skýjað. Slydda eða
kalsarigning um norðanvert
landið en þurrt að mestu syðra.
Hitinn verður 2-9 stig.
ÞRttSTUR
68-50-60
VANIR MENN
BÍLASPRAUTUN
ÍLARÉTTINGAR
® BÍLASPRAUTUN
Almálun og blattanir.
* RÉTTINGAR og hver*
konar boddívlógerölr.
® BlLALOKK og undlrefnl.
Blöndufi á etaönum.
Varmi
Sími 44250