Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1989, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1989.
Utlönd
Róstur í A-Jerúsalem
Verðbréfamarkaðir 1 morgun:
Landamæravörður úr herlögreglunni aðstoðar israelskan lögreglumann
ettir að til átaka kom mitli Palestinumanna og ísraelsmanna i austur-
hluta Jerúsalem i gær. Simamynd Reuter
ísraelska lögreglan hefur sent aukaliö til Jerúsalem í kjölfar vaxandi
óróa. Lögreglustjórinn sagöi aö fjölgun bílaíkveikja, um eitt hundrað og
fimmtíu þaö sem af er ári, sem og grímuklæddir arabar á götum borgar-
innar, vektu ugg í brjóstum palestínskra íbúa austurhlutans. Kvaðst hann
vonast til að fjölgunin hjálpaöi til við að koma á ró og spekL
í gær réðst lögregla vopnuð táragasi að hópi um eitt hundrað palest-
ínskra námsmanna í austurhluta Jerúsalem i því sem telja má fyrstu
alvarlegu rósturnar í þeim hluta borgarinnar. Fjörutíu voru handteknir
að sögn lögreglu og segja embættismenn sjúkrahúsa í A-Jerúsalem að
um fimmtán hafi særst í þessum átökum. Palestínskir heimildarmenn
segja að námsmennirnir hafi komið saman til aö taka þátt í kröfugöngu
skólastúlkna til gamla bæjarhluta Jerúsalems. Var gangan farin í þeim
tilgangi að mótmæla fyrirhugaðri ferð ofstækisfullra gyðinga til að leggja
homstein viö Vesturvegginn, nærri ai-Aqsa moskunni, þriðja helgasta
stað araba sem stendur þar sem tvö bænahús gyöinga stóðu áöur, til
marks um þrá gyðinganna til að endurreisa þar bænahúsið. Lögregla, sem
veitti gyöingunum leyfi að leggja steininn endurkallaði þaö siðar meir
vegna ótta um að óeirðir brytust út.
Reuter
Ostrumar ekki svipur hjá sjón
Sigiíöur Eyjólfadómx, DV, Frakklandi:
Þaö horfir illa á þessu ári fyrir einum af hefðbundnum áramótakræsing-
um Frakka. Þaö er alít í fina lagi með kampavínið en ostmrnar era ekki
svipur hjá sjón. Þær verða alla vega minni en undanfarin ár.
Ostrubændur fengu nefnilega líka að kenna á hinum miklu sumar-
þurrkum. í ostruræktunarstöövum þjóna þörungamir ekki algjörlega
sínu hlutverki og því er regnvatn nauösynlegt til að bæta viö ýmsum
nauösynlegum efnum til vaxtar og viðhalds ostranna. Vegna þurrkanna
í sumar veröa þær einu numeri minni en í fyrra og það er næg ástæða
til þess aö sýslumaður í ostrabæjarfélagi telur að hægt sé aö lýsa yfir
neyðarástandi.
Lítið áunnist
Egyptalandsforseti, Hosni Mu-
barak, virðist reiöubúinn til aö
bæta hægt og rólega samskiptin viö
Líbýu í kjölfar lieimsóknar Mu-
ammars Gaddafi Líbýuleiötoga til
Egyptalands í gær. Var það í fyrsta
sinn i sextán ár sem Gaddafi stígur
á egypska jörð.
En eftir þriggja tíma viöræður
leiðtoganna tveggja virtust sem lít-
ið heföi áunnist og ekki var um
neinn tímamótafund að ræöa. Ekki
var tilkynnt um að rlkin tvö hefðu
tekið upp stjórnmálasamband á
nýjan leik en því var slitiö i kjölfar
friöarsáttmála Egypta og ísraela
árið 1979. Mubarak sagði í samtali
við blaöamenn aö hann hcfði ekki
ympraö á þessu máli viö Gaddafi.
Mennirnir tveir ræðast aftur við í næstu viku og mun helsta umræðu-
efnið vera deila Palestínumanna og ísraela. Fréttaskýrendur segja að hið
eina áþreifanlega sem kom út úr fundinum nú hafi verið aukið ferða-
frelsi íbúa beggja rikja yfir landamærin.
Reuter
Kóngurinn notaður í kosningaáróðri
Pétux L. Pétuiason, DV, Baxœlona:
Kosningabaráttan fer harönandi hér á Spáni og er helsti ásteytingar-
steinninn sjónvarpsauglýsing nokkur er sósíalistar hafa látiö gera.
Það vakti gífurlega reiöi í herbúðum stjórnarandstöðu er frmnsýnt var
kosningamyndband sósíalista. Þar er brugðið upp svipmyndum af kon-
ungshjónunum, hernum.og áUs kyns frægum andlitum sem ekkert eiga
skylt viö flokk sósíalista. Þótti stjómarandstöðu sem þarna væri verið
að draga kóng inn i pólitískt argaþras, og ýmsir eigendur hinna frægu
andlita hafa mótmælt því að þau séu notuð í þessu skyni
Flokkur sameinaðra vinstri manna hefur nú fariö þess á leit viö hirðina
aö fá að nota kónginn í áróöursskyni fyrir flokkinn. Með þessu vill flokk-
urinn knýja fram svar við lögmæti þess að sósíalistar skuli nýta sér ímynd
konungs sér til framdráttar. Sósíalistar segja hins vegar aö myndbandinu
hafi veriö ætlað að bregöa upp svipmyndum af Spáni níunda áratugarins
og hyggjast ekki breyta því á nokkum hátt.
Verðbréf
hækka á ný
- eftir „taugatitring“ í Evrópu
Verðbréf í kauphöllinni í Tokýo,
stærsta verðbréfamarkaði heims,
hækkuðu í verði í morgun í kjölfar
88 stiga hækkunar á verðbréfamark-
aði í New York í gær. Og í kauphöll-
um í Sydney, Wellington, Singapore
og Hong Kong hækkuðu verðbréf
einnig í verði. Kemur þessi hækkun
degi eftir að bréf féllu í verði á mörk-
uðum bæði í Asíu og í Evrópu. Telja
fréttaskýrendur nú að áhrifm af
verðhruninu á Wall Street á föstu-
dag, þegar verðbréf féllu um rúmlega
sjö prósent, verði minni en í fystu
var ætlað.
Nikkei-verðbréfavísitalan í Tokýo
hækkaði um 527,39 stig, eða 1,53 pró-
sent, í dag en haföi fallið um rúmlega
1,80 prósent, 647,33 stig, í gær. Við
lokun í dag var vísitalan skráð á
34.996,08. Hálfgert kaupæði gerði
vart við sig í kauphöllinni og þrýsti
skráningu bréfanna upp á við í morg-
un. Stóð markaöurinn-nærri á jöfnu
þegar honum var lokað í dag eftir
fall gærdagsins.
Þrátt fyrir að verðbréfasalar segi
að nú sé óróanum á verðbréfamörk-
uðum heimsins lokið era margir enn
eftir sig eftir fallið á Wall Street á
föstudag og hrunið á mörkuðum í
Evrópu sem á eftir fylgdi. Morgun-
dagurinn mun gera út um hvernig
markaðurinn stendur, segja sumir
verðbréfasalar.
Verðbréfamarkaðurinn í New
York hrundi á föstudag en þá féll
Dow Jones-verðbréfavísitalan um
rúmlega 190 stig, eða tæp sjö pró-
sent. Er þetta þriðja mesta hrun á
einum degi sem nokkurn tíma hefur
átt sér stað á bandarískum verð-
bréfamörkuðum.
Því beindust allra augu að kaup-
höllinni á Wall Street í New York í
gær þegar opnað var fyrir viðskipti.
Verðbréfasalar sem og kaupendur
höföu óttast annað hrun svipað því
sem átti sér stað þann 19. október
1987, „svarta mánudaginn," þegar
verðbréf lækkuðu í verði um rúm
fimm hundruð stig. Svo var þó ekki
og náði Wall Street sér fljótlega á
strik. Þegar viðskiptadeginum lauk í
gær hafði Dow Jones-vísitalan náð
áð rísa um 88,12 stig og strikað þar
með yfir nær helming tapsins frá
föstudeginum. Segja fréttaskýrendur
að fuOvissa bandaríska seðlabanka-
stjórans um að fjármagn yrði veitt í
bankakerfið til að taka viö aukinni
eftirspurn, kæmi tO þess, hafi átt
sinn þátt í að markaðurinn náöi sér
á strik.
Hagfræðingar segja að engin efna-
hagsleg ástæða hafi veriö fyrir hrun-
inu á föstudag þar sem hagvöxtur í
Bandaríkjunum er hægur en stöðug-
ur og vextir tiltölulega lágir. Stærri
verðbréfafyrirtæki ráðlögðu við-
skiptavinum sínum að fjárfesta í
veröbréfum á meðan verðið væri
lágt.
Fyrsta titringsins á Wall Street
varð vart á föstudag þegar fréttir
bárust af því að vongóðum kaupend-
um United Airlines-flugfélagsins
bandaríska tilkynntu að þeim hefði
ekki tekist að afla nægilegs íjár-
magns til að ganga frá kaupunum.
Kaupverðiö hafði verið áætlað 6,75
milljarðar dollara eða rúmlega fimm
hundrað milljaröar íslenskra Til-
kynningin um að kaupin hefðu mis-
tekist sem og bakslag í sölu svokall-
aðra „áhættu-bréfa“ varð svo kveikj-
an að mikiOi sölu á markaðnum.
í kjölfar hransins á Wall Street á
föstudag gekk titringur yfir verð-
bréfamarkaði í Evrópu og var
ástandið þar sæmt.
í London voru menn fegnir þegar
viðskiptum dagsins lauk. Á fystu
mínútum viðskiptadagsins féO
FTSE-vísitalan nærri um tvö hundr-
uð stig. Hún náði sér þó á strik og
hafði falli alls um rétt rúm 70 stig
þegar deginum lauk.
í Frankfurt varö einna mesta hrun-
iö á verðbréfamörkuðum í Evrópu
eða rúm tólf prósent. Nokkurs stöö-
ugleika gætti aftur á móti á mörkuð-
um í Tókýo og nam faO Nikkei-
veröbréfavísitölunnar tæpum tveim-
urprósentum. Reuter
Kosningar á Indlandi?
Fastlega er búist við að forsætis-
ráöherra Indlands, Rajiv Gandhi,
boði til þingkosninga innan
skamms samkvæmt fréttum frá
Indlandi. Gandhi átti fund með for-
seta landsins, Ramaswamy Veml-
ataraman, i gær.
HeimOdarmenn segja aö ákvörð-
un um kosningar hafi veriö tekin
á fundi stjómamefndar og síðar
samþykkt á rikisstjórnarfundi.
Ekki hefur fengist staðfesting á
þessu opinberlega.
í fréttum UNI-fréttastofúnnar á
Indlandi í morgun sagði að búast
mætti við að kosningaráð tUkynnti
síðar í dag hvenær kosiö yröi til
neðri deUdar, Lok Saba. Talið er
aö þær kosningar fari fram í næsta
mánuði eða snemma í desember.
Gandhi gæti tafið kosningar fram
till4.janúar.
Reuter