Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1989, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Skák:
Naumt gegn
Færeyingum
íslenska stórmeistarasveitin átti
7W erfiðan dag gegn frændum okkar
Færeyingum í átta landa keppninni
í skák sem nú fer fram í Álaborg í
Danmörku. Jóhann tapaði á 1. borði
fyrir Kristiansen en þeir Margeir,
Helgi og Jón L. unnu sínar skákir.
Hannes Hlífar tapaði hins vegar og
Guðfríður Liija gerði jafnteíli. Islend-
ingar unnu því aðeins 3,5-2,5.
Danir unnu Svía 4-2, Pólverjar
unnu Finna 3,5,-2,5 og V-Þjóðverjar
unnu Norðmenn 4-1 og ein skák fór
í biö. V-Þjóðveijar eru efstir með 9
vinninga en íslendingar eru með 6
vinninga. Þeir mæta Finnum í dag.
-SMJ
ísafjörður:
Stakk lög-
regluna af
Lögreglan á ísafirði lenti í eltinga-
leik við ökumann í bænum í gær.
Hann hafði mælst á 104 km hraða á
Skutulsbraut og gerði tilraun til að
stinga lögregluna af er honum var
gert að stöðva bO sinn. í fyrstu tókst
honum að komast undan en fljótlega
náðist tíl hans eftir að lögreglan fékk
"vísbendingu. Ökumaðurinn er átján
ára gamall og hefur áður komið við
sögu lögreglunnar. Lögreglan á
ísafirði varar við lúmskri hálku á
götum bæjarins. -ÓTT
Lögreglan á Hvolsvelli:
Klippt af níu
bilum í gær
Lögreglan á Hvolsvelli klippti
skráningamúmer af níu bílum í gær.
Afskipti voru höfð af fimmtán öðrum
bOum sem ýmist voru boðaðir í skoð-
un eða eigendum geíinn frestur á að
koma bOum sínum í lag. Að sögn
*É-*:ögreglunnar er talsvert um að öku-
tæki séu iUa útbúin. Þessar aðgerðir
hófust um helgina og verður haldið
áfram að stöðva bOa í Rangárvalla-
sýslu á næstu dögum og verður
ástandþeirrakannað. -ÓTT
Innbrot á Blönduósi:
Stolið úr
peningaskáp
Á annað hundrað þúsund krónum
var stolið úr peningaskáp í Kaup-
félaginu á Blönduósi í fyrrinótt. Þjóf-
arnir fóru inn um gluggá á hurð og
notuðu síðan verkfæri úr bygginga-
■—vörudeildinni til að spenna skápinn
upp. Málið er í höndum Rannsóknar-
lögregluríkisins. -ÓTT
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1989.
Hafskipsmalið:
Frávísun á dagskrá
Jon Magnússons, hæstaréttarlög-
maður og verjandi Ragnars Kjart-
anssonar, fyrrum stjórnarformanns
Hafskips, hóf málflutning um frávís-
unarkröfur í Hafskipsmálinu í Saka-
dómi Reykjavíkur klukkan níu í
morgun. Fjórir lögmenn til viðbótar
hafa lagt fram frávísunarkröfur. All-
ar kröfurnar eru byggðar á harðri
gagnrýni á frumrannsókn málsins.
Síðar í þessari viku eða snemma í
þeirri næstu mun úrskurður Saka-
dóms um frávísunarkröfurnar Uggja
fyrir. Eftir það fer málið tO Hæsta-
réttar. Ef Hæstiréttur dæmir á þá
leið að málinu verði ekki vísað frá
dómi - bendir aUt tO að þá hefjist
efnisleg meðferð málsins - með yfir-
heyrslum í Sakadómi.
Ef máhnu verður vísað frá þarf að
hefja rannsókn þess á ný. Hver verö-
ur fenginn til þess verks er að sjálf-
sögðu óvitað.
Fari svo að máhnu verði ekki vísaö
frá hafa lögmenn boðað að þeir verði
að yfirheyra menn mjög mikið þar
sem þeir hafa gagnrýnt rannsóknina
fyrir það að þeir sem eru ákærðir
hafi ekki verið yfirheyrðir um stóran
hluta málsins. Óvíst er hversu lang-
an tíma yfirheyrslurnar fyrir Saka-
dómi munu taka. Allir forvígismenn
Hafskips - og margir aðrir - verða
kallaðir fyrir réttinn. -sme
f suraar hafa verið gerðar tOraunir
á sanddæluskipinu Sandey með að
veiða kúfisk meö venjulegri sand-
dælu. Aö sögn Einars HaUdórsson-
ar, skrifstofustjóra hjá Björgun,
hefur það gengið vel að ná kúfiskn-
um upp með sanddælunni, en gaU-
inn er bara sá að skehn viU brotna.
Við það kemur sandur í sjálfan
fiskinn og því verður hami vart
nothæfur til manneldis nema að
eytt sé mikOU vinnu í að hreinsa
hann. Aftur á móti er fiskurinn
kjörinn í beitu.
Einar sagði að vel kæmi til greina
að gera frekari tilraunir með þess-
ar veiöar. Það væri þó einn hængur
á og hann er sá að það þarf að vera
gott í sjóinn svo hægt sé að dæla
kúfisknum upp. Hann sagði að fil-
raunin hefði verið gerð meira í
gamni en alvöru tU að byrja með.
Það hefði sýnt sig að enginn vandi
væri að ná skelinni upp og ef til
viU væri hægt að finna leið tU aö
koma í veg fyrir að skelin brotnaöi
jafnmikiö og komið hefði í fjós við
fyrstu tUraunir.
Þess má geta að Bylgjan á Suöur-
eyri lét byggja fyrir sig sérsmíðað
kúfiskveiðiskip, ViUa Magg. Vegna
þess hve markaðsmálin i kúfiskin-
um erlendis eru í miklum ólestri
hefur rekstur þess skips ekki borg-
að sig til þessa. Margir eru vissir
ura aö hægt sé að vinna upp mark-
aði erlendis sem borga gott verö
fyrir kúfiskmn. Það kostar hins
vegar bæði mikinn tíma og peninga
aO vinna þann markað upp.
-S.dór
Tilraunir áhafnarinnar á sanddæluskipinu Sandey sýna að kúfiskur, veiddur
með sanddælu, er kjörinn í beitu en hentar ekki til manneldis þar sem
skelin vill brofna. DV-mynd GVA
Eigendur Bjartmars á ísaflrði:
Riftun kaupsamnings?
Eigendur Bjartmars hf. á ísafirði,
en fyrirtækið keypti þrotabú niður-
suðuverksmiðjunnar O.N. Olsen,
munu hugsanlega kreíjast þess að fá
kaupsamningi rift fyrir dómstólum.
Fyrir helgi hafnaði skiptafundur
beiðni þeirra um að losna frá samn-
ingnum. Árni Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Bjartmars, vUdi ekki
staðfesta þetta né láta hafa nokkuð
eftir sér um máhð.
Samkvæmt heimildum DV eru
ýmsar ástæður tU þess að Bjartmar
viU losna frá kaupunum. Þar vegur
þyngst afstaða Landsbankans sem
er einn stærsti hagsmunaaðihnn í
gjaldþroti O.N. Olsen. Eins hafa
markaðsaðstæður breyst frá því
kaupin voru gerð - fyrir um einu ári.
Bjartmar er í talsverðum vanskil-
um vegna kaupanna. Þegar átti að
vera búið að greiða sjö milljónir.
Aðeins tvær hafa verið greiddar og
því eru fimm mUljónir í vanskilum.
Forráðamenn Bjartmars eru í per-
sónulegum ábyrgðum fyrir þessum
fimm milljónum. Innan skamms á
samkvæmt samningnum að gefa út
25 mUljóna króna skuldabréf - sem
eru eftirstöðvar kaupverðsins.
-sme
LOKI
Bara að þeir sjúgi ekki
nálægt klóakinu!
Veörið á morgun:
Hægar
sunnan-
áttir
Fremur hæg sunnan- og suð-
vestanátt verður á landinu á
morgun. Skúrir suðvestan- og
vestanlands en úrkomulaust og
skýjað annars staðar. Hitinn
verður 2-8 stig.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
Kentucky
Fried
Ghicken
Hjallahrauni ij, Hafnarfirði
Kjúklingarsem bragö erað.
Opið alla daga frá 11—22.