Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989. Útlönd Fulltrúar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna hafa rætt um að flýta fundi Georges Bush Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbatsjov, sovéska forset- ans, og getur farið svo að hann verði haldinn í desember, eftir því sem ins segir aö fundurinn fari ef til vill fram á hlutiausum fundarstað. Utanríkisráðherrar stórveldanna náðu samkomulagi i síðasta mánuði um að leiðtogarnir tveir hittust í Bandarikjunum annaðhvort næsta vor eða sumar. Blaðamenn Post segja að annar hugsanlegur fundur fyrr, á hlutlausum ftmdarstað, myndi ekki raska undirbúningi leiðtogafundar í Bandaríkjunum síðar. Samkvæmt heimildarmönnum dagblaðsins myndi leiðtogafundur í desember líklega ekki snúast um afvopnunarmál, eins og búist er við að muni verða efst á baugi á fundi þeírra á næsta ári, heldur um samskípti á.milli ríkjanna. í ft-étt blaðsins er einn mögulegur fimdarstaður neíhdur og er það að leiðtogamir hittist um borö í skipi á Miðjarðarhafi. Pólitískur órói á Indlamli Stuöningsmenn Congress-flokksins á Indlandl I kosningabarattunnt Nýju-Dehli. Þingkosningar fara fram á Indlandi 22. og 24. nóvember. Simamynd Rcuter Miki] pólitísk spenna ríkir nú innan indverska sfjómarflokksins, Congress-flokks Rajivs Gandhi forsætisráðherra, eftir að varnarmálaráð- herrann neitaði aö taka þátt í þingkosníngunum sem fram fara í næsta mánuði, Heimiidir herma að neitun Chandra Pant varnarmálaráðherra sé bein ógnun við stöðu Gandhis og tilraun af hálfu íhaldsafla innan flokksins til að ná völdum úr höndum hinna yngri flokksfélaga. Pant segir ástæðúna vera þá að hann fói ekki að bjóða sig fram fyrír heimahér- áö sitt Pant hefur og látið í Ijósi skoðanir sem ganga á skjön við opínberar skoðanir forsætisráðherrans. Segja fréttaskýrendur aö það og neitun hans um sæti á framboöslista flokksins muni koma sér illa fýrir Gandhi. Sönnunargögní Lockerbie-málinu? RannsóknaraöiJar i Evrópu hafa sönnunargögn sem tengja palestinsk landi í í desember í fyrra. Frá þessu er greint í bandaríska dagblaðinu The New York Times í dag. Blaðið hefur það eftir bandarískum embættismönnum að Palestínumað- ur, sem er í haldi i Svíþjóð ákærður um hryðjuverk, hafi játað að hafa náð í og afhent öðrum manni sprengju sem falin var í byggingu í Vestur- Þýskalandi. Byggingin hafði verið notuð af Alþýöufylkingunní sem herst fyrir frelsi Palestínu. Talið er að sprengjan sé svipuð þeirri sem grandaði Boeing 747 far- biðu bana. Er haft eftir bandarískum embættismönnum að jafnvei geti verið um sömu sprengju aö ræða. Vestur-þýska lögreglan fann ekki sprengjuna þegar hún gerði húsleit hjá samtökunum í október í fyrra og handtók fjórtán meðhmi þeirra. Þrjú hundruð þúsund Austur-Þjóðverja gengu um götur Leipzig í gær og kröfðust umbóta. Símamynd Reuter Krenz heimsækir Gorbatsjov Egon Krenz, leiðtogi Austur- Þýskalands, sagði í viðtali við sov- éska sjónvarpið í gærkvöldi að hann hefði áhuga á að kynna sér þær breytingar sem orðið hefðu í Sovét- ríkjunum. Krenz kemur í opinbera heimsókn til Moskvu í dag í boði Gorbatsjovs Sovétforseta. Verður það fyrsta utanlandsferð hans frá því að hann tók við leiðtogaembættinu af Honecker fyrr í þessum mánuði. Samtímis því sem Krenz kom fram í sovéska sjónvarpinu efndu hundr- uð þúsunda Austur-Þjóðverja til mótmælaaögerða í þremur borgum Austur-Þýskalands. Um þrjú hundr- uð manns gengu um götur Leipzig í gærkvöldi og kröfðust umbóta, að því er austur-þýska sjónvarpið greindi frá. Einnig var sýnt frá mótmælum í Schwerin þar sem um áttatíu þús- und manns söfnuðust saman. Nokkrir mótmælenda báru spjöld með kosningaseðlum fyrir stjórnar- andstöðusamtökin Nýjan vettvang og nýja sósíaldemókrataflokkinn. Var greinilegt að veriö var að hvetja til frjálsra kosninga. Þúsundir Austur-Þjóðverja gengu að aðalstöövum kommúnistaflokks- ins í Halle en lögreglan hafðist ekk- ert að þar frekar en annars staðar. Krenz lagði í gærkvöldi áherslu á að enginn mætti draga í efa styrk kommúnistastjómarinnar þó svo að nú væri verið að ræða bresti opin- berlega. Hann þykir þar með hafa gert ljóst að þær umbætur, sem gerö- ar verða í Austur-Þýskalandi, verði í samræmi við stjórnarskrána og að ekki verði hægt að breyta forystu- hlutverki kommúnistaflokksins. Krenz gaf einnig í skyn að flokkur- inn myndi einungis samþykkja um- bætur ef það væri hægt án jafn- mikils óróleika og í Póllandi og Ung- verjalandi þar sem kommúnista- flokkarnir hafa misst forystuhlut- verk sitt. Reuter og Ritzau Mótmælendur í Prag ákærðir Tékknesk yfirvöld munu ákæra hundrað fjörutíu og níu manns vegna þátttöku þeirra í mestu mót- mælum í landinu í tuttugu ár. Alls voru þijú hundruð fimmtíu og fimm manns handteknir þegar lög- regla leysti upp mótmælafund tíu þúsund Tékka í miðborg Prag á laugardaginn. Hundruð lögreglumanna börðu á mótmælendum sem kröfðust nýrr- ar stjómar, frjálsra kosninga og afsagnar harðlínumannsins og flokksforingjans Milos Jakes. Það hefur vakið athygli að gagn- stætt málgagni kommúnistaflokks- ins, Rude Pravo, skrifar málgagn unghðahreyfingarinnar, Mlada Fronta, að lögreglan hafi umkringt marga mótmælendur og ráðist á þá. Rude Pravo sagði að mótmæl- endur hefðu ráðist að lögreglunni með grjótkasti en Mlada Fronta kvað mótmælendur hafa verið frið- sama og að þeir hefðu kallaö að þeir vildu ekkert ofbeldi. Mlada Fronta skýrði einnig frá því aö mótmælendur hefðu hrópað að þeir vildu lýðræði og umræður. Reuter Pravda ól Hinn nýi ritstjóri Prövdu, mál- gagns sovéska koramúnistaflokks- ins, lofaði því í gær að blað hans yrði óháð og fijálst og helgað um- bótastefnunní. Ritstjórinn, Ivari Frolov, sem veriö hefur aöstoöar- maður Gorbatsjovs síöustu tvö ár- in, hét þessu á óvæntum fundl meí eriendum fréttamönnum ellefu dögum eftir aö hann tók viö rit- stjóraembættinu, Frolov tók viö af Afanasyev, hug- myndafræðingi sem verið hafði rit- stjóri Prövdu frá 1976 og ekki farifi leynt með andúö sína á mörgu varðandi perestrojku Gorbatsjovs. Hann var rekínn 19. október. Ivan T. Frolov, hinn nýi ritstjóri Prövdu. Símamynd Houter De Klerk til Fílabeinsstrandarinnar De Klerk, forseti Suöur-Afriku, mun fara í opinbera heimsókn til FOa- beinsstrandarinnar í desember. Mun það verða fyrsta heímsókn de Klerks, leiötoga minnihlutastjómar hvítra x Suöur-Afríku, til lands sem er undir stjóm blökkumanna. Það var forseti f'ílabeinsstrandarinnar, Felix IIouphouct-Boigny, sem tilkynnti fyrirhugaöa heimsókn de Klerks. Ekki er Ijóst um hvaö Houp- houet-Boígny og de Klerk munu ræða. Reuter Ortega, forseti Nicaragua: „Mun sýna sveigjanleika“ Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Perez de Cuellar, lagði að forseta Nicaragua, Daniel Ortega, í gær að binda ekki enda á vopnahlé sandinistastjómarinnar og kontra- skærufiða í Nicaragua eins og forset- inn hefur hótað að gera. Þetta kom fram í máli heimildarmanns í gær. Ortega hefur sagt að ef ekki kæmu fram greinileg merki afvopnunar skæruiiðanna í dag, þriðjudag, myndi sljóm sín strax á morgun falla frá vopnahléi því sem nú hefur ríkt í nítján mánuði. De Cuellar, sem stutt hefur friðar- áætlun forseta fimm Mið-Ameríku- ríkja, sendi Ortega bréf þar sem hann kvaðst óttast að frekari átök í Nic- aragua kynnu að ógna kosningunum sem þar eiga að fara fram í febrúar á næsta ári. Sameinuöu þjóðimar munu fylgjast með þeim kosningum. Talsmaður stjómvalda sagði að Ortega myndi tilkynna ákvörðun sína varðandi vopnahléið í dag. í morgun, vegna mikils póhtísks þrýstipgs utan að, kvaðst forsetinn mundu sýna sveigjanleika er hann tæki ákvörðun um vopnahléið þar sem þrír forsetar Mið-Ameríku hefðu samþykkt aö leggja að Bandaríkjun- um, sem styðja við bakið á kontra- skæruhðunum, að hvetja skærulið- ana til afvopnunar. Forsetar fimm Mið-Ameríkuríkja náðu samkomulagi í ágúst þar sem kveðið er á um afvopnun kontra- skæruliðanna fyrir 5. desember. Enn sem komið er bendir ekkert til þess að slík afvopnun fari fram á réttum tíma. Talsmaður vamarmálaráðuneytis Nicaragua sagði að fimm stjómar- hermenn heíðu verið myrtir og ellefu særðir í árásum kontraskæruliða í Norður- og Mið-Nicaragua síðustu dægrin. Báðir stríðsaðilar hafa sakað hinn um að brjóta gegn vopnahléinu. Reuter Daniel Ortega, forseti Nicaragua, mun tilkynna hvort stjórn sandinista hyggst halda vopnahlé það sem rikt hefur. Teikning Lurie

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.