Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989. Fréttir Væntanlegir kjarasamningar: Munu raska fjár- lagafrumvarpinu - segir Karl Steinar Guðnason, varaformaður VMSÍ „Annaö er ótrúlegt en að næstu kjarasamningar raski ýmsum viö- miöunum sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir,“ sagði Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verka- mannasambands íslands, á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær. Karl Steinar taldi ákaflega ólíklegt að launþegar myndu sætta sig við óbreytt laun á næsta ári. Taldi hann launaþróun þá sem gert væri ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi næsta árs ákaflega óvissa. Sagði hann að gera mætti ráð fyrir að kaupmáttur ASÍ- taxta yrði kominn í 83 stig í desemb- er 1989 og yrði 82 stig 1990. Er þá miðað við aö hann hafi verið 100 stig í júní 1988. Samkvæmt þessum út- reikningum frumvarpsins mun kaupmáttarhrapið stöðvast á næsta ári. Taldi Karl Steinar ólíklegt að launþegar, aUavega VMSÍ, sætti sig viðóbreyttlaun. -SMJ Karl Steinar Guðnason, varaform- aður Verkamannsambandsins taldi ólíklegt að launþegar sætti sig við óbreytt laun á næsta ári. Allir bændur komn- ir á laun frá ríkinu - segir Karl Steinar Guðnason Bankar og lifeyrissjóðir: Engin rök fyrir vöxtum þeirra - segir Ólafur Ragnar Grímsson „I fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir lækkun á niðurgreiðslu land- búnaðarvara. Það er auðvitað spurs- mál hvemig þaö kemur út fyrir laun- þega. Hins vegar nema samanlögð framlög til landbúnaðarins sjö mill- jörðum króna sem þýðir að öll sam- anlögð launaútgjöld, í verðlags- grundvelli landbúnaðarins, koma úr ríkissjóði. Hann borgar um það bil 1,5 milljón króna á hvert ársverk í 'landbúnaöi sem þýðir að alhr bænd- ur eru komnir á laun frá ríkinu,“ sagði Karl Steinar Guðnason, vara- Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra mun eiga fund með Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bretlands, í London í dag. Meðal umræðuefna verða könnun- formaður Verkamannasambands ís- lands, á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær. Þá sagði Karl Steinar að það væri sláandi aö þau tvö lönd sem mest niðurgreiða landbúnaðarvörur, ís- land og Finnland, hafi hæsta land- búnaðarvöruverð í heimi. „Niðurgreiðslur þjóna ekki hags- munum launafólks þegar til lengdar lætur, heldur frjáls innflutningur og samkeppni," sagði Karl Steinar. -SMJ arviðræður EFTA og Evrópubanda- lagsins og áform Breta um endur- vinnslustöðvar fyrir kjamorkuúr- gang í Dounray í Skotlandi. -hlh Atvinnuleysi: fólk í vinnu - segir hagí'ræðingur VSÍ „Atvinnuleysið um þessar mundir er ekki meira en svo að ýmis aðildarfyrirtæki Vinnuveit- endasambandsins fa alls ekki fólk í vinnu,“ sagöi Hannes G. Sigfús- son, hagfræðingur Vinnuveiten- dasambandsins, á fundi Félags viðskipta- og hagfræöinga í gær en þar var rætt um fjárlagafrum- varpið. Þá gagnrýndi Hannes skilgreiningu félagsmálaráðu- neytisins á atvinnuleysi: „Ég tel tíraa til þess kominn að féllagsmálaráðuneytið taki upp nánari sundurliðun á atvinnu- leysi. Gera veröur greinarmun á langtímaatvinnuleysi, sem er böl, og skaramtímaatvinnuleysi sem er í aðalatriðum sá tími sem það tekur fólk að skipta um vinnu,“ sagði Hannes. Harrn gagnrýndi einnig ýmsar forsendur fjárlaga- frumvarpsins og taldi meðal ann- ars að hallinn á ríkissjóöi gæti hæglega tvöfaldast frá því sem núværiráðfyrirgert. -SMJ „Sá rammi, sem ríkisstjórnin hef- ur dregið upp með fiárlagafrum- varpinu varðandi raungengi og ríkis- fiármál, er sá rammi sem aðilar vinnumarkaðarins verða að laga sig að í kjarasamningum. Þeir geta ekki vænst raungengisbreytinga í kjöll'ar næstu kjarasamninga,“ sagði Olafur Ragnar Grímsson fiármálaráðherra á þingi Félags viðskipta- og hagfræð- inga í gær þar sem rætt var um for- sendur fiárlagafrumvarpsins. „Þess vegna er þess vænst að verð- „Ég hef lesið það í blöðum að það sé búið að fresta ákvörðun um að laga íslenska skattakerfið að skatt- lagningu fiármagnstekna í Evrópu- bandalaginu og í vestrænum hag- kerfum. Það hefur ekki verið rætt á vettvangi ríkisstjómarinnar að fresta því og það hefur engin ákvörð- bólga fari minnkandi á næsta ári og einnig sé hægt að miða við það að raunvaxtalækkunin haldi áfram, sérstaklega á þeim sviðum sem hún á enn eftir að eiga sér stað. Þaö eru auðvitað engin efnisleg og fagleg rök fyrir viðskiptabankana að halda uppi því vaxtastigi sem þeir halda uppi í dag. Það eru heldur ekki efnisleg rök fyrir lífeyrissjóðina að halda uppi nákvæmlega því raunvaxtastigi sem þeir eru með í dag,“ sagði fiármála- ráðherra. -SMJ un verið tekin um þaö innan ríkis- stjórnarinnar,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fiármálaráðherra á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær þegar hann var spurður hvað liði áformum um að skattleggja fiár- magnstekjur. -SMJ Jón Baldvin hittir Hurd í dag Skattlagning á íj ármagnstekj ur: Engin ákvörðun um frestun - segir Ólafur Ragnar Athugasemdir við launafréttir Föstudaginn 27. október sl. birti DV fréttir af kauphækkunum þing- manna skv. niðurstöðum kjara- dóms og síðan hvaða kostnað landsbyggðarþingmenn fá sérstak- lega greiddan. í tilefni af því sér blaðamaðurinn sérstaka ástæðu til þess að fialla á afar ónákvæman hátt um búsetumál mín öðrum fremur. Laugardaginn 28. október birtast síðan ummæh sem ég mun hafa viðhaft um þessi mál þar sem sömu ónákvæmni gætir og atriðum sleppt sem breytt hefðu hinni upp- haflegu „hasarfrétt" þar sem við- talið var tekið áður en hún birtist, eða á föstudagsmorgni. En það hefði sennilega dregið úr púðri fréttarinnar. Eg vildi því fá að gera eftirfarandi athugsemdir við þessa fréttamennsku. Lögheimili mitt Þegar maður er kosinn á þing er oftast ætlast til að hann komi úr viðkomandi kjördæmi eða að hann samsami sig því með þvi að eiga þar búsetu. Þannig rennur m.a. af- rakstur opinberra gjalda af launum hans til viðkomandi sveitarfélags sem er minnsta viðleitni þing- mannsins til að standa vörð um þá hagsmuni sem hann er kjörinn til að sinna. Landsbyggðarþingmenn ættu því að eiga lögheimli í kjör- dæmum sínum. Ég hef átt lögheimili að Suður- götu 16 á Siglufirði í yfir 40 ár. Ég KjaUaiirm Jón Sæmundur Sigurjónsson alþingismaður nema Sunnlendingar og Suður- nesjamenn, að ég hygg, eiga sitt eigið húsnæöi eða leigja á höfuö- borgarsvæðinu. Þannig eiga ég og fiölskylda mín raðhús í Hafnar- firði. Af því greiddum við kr. 51.350 í fasteignagjöld á þessu ári. Margir landsbyggðarþingmenn halda síð- an einnig húsnæði í heimabyggð. Ég og kona mín eigum einnig fast- eignir á Siglufirði, þ.á m. stórt íbúðarhús með tveimur íbúðum sem engar tekjur eru af. Af þessum eignum greiddum við kr. 98.770 í fasteignagjöld á þessu ári. Ég hef ekki séð ástæðu til að flytja lögheimili mitt í eigið húsnæði á Siglufirði. Ég hef þægilega íbúðar- aðstöðu í stóru húsnæði foreldra minna sem kemur mér að fullum notum; þar eru allir mínir pappírar frá fomu fari og þar vita menn á „Þegar maður er kosinn á þing er oft- ast ætlast til að hann komi úr viðkom- andi kjördæmi eða að hann samsami sig því með því að eiga þar búsetu.“ átti þar lögheimili er ég var kosinn á þing fyrir tveimur árum. Mér fannst sá viðburður síst gefa tilefni til að breyta um heimilisfang. Allir landsbyggðarþingmenn, Siglufirði og í kjördæminu hvar mig er að finna. Það er sjálfsagt allur gangur á því þjá landsbyggðarþingmönnum hvort hús þeirra standa auð á þing- tímanum eða hvort einhver úr fiöl- skyldunni býr þar að staðaldri. Allavega fellur til rekstrarkostnað- ur. Það er ekki öðruvísi hjá mér. Léleg blaðamennska Greinar blaðamanns DV eru óvenju ónákvæmar, bæði að formi og innihaldi. Fyrirsögnin á fostu- dagsgreininni var: „Tæpar 800 þús- und vegna lögheimilis hjá pabba.“ Síðan var sagt í laugardagsfréttinni að ég fyndi ekkert athugavert viö þessar aukagreiðslur. í hinu stutta og snubbótta viðtali við blaðamanninn að morgni fóstu- dags vissi ég ekki hvaða hugmynd- ir hann gerði sér um þessar tölur. Ég hef aldrei séð viðlíka upphæðir vegna þessa kostnaðar og mun ekki sjá þrátt fyrir síðustu hækkun kjaradóms. Ég skora á blaðamanninn aö greiða mér persónulega mismun- inn á þessum tæpu 800 þúsundum sem hann segir mig fá umfram Reykjavíkurlandsbyggðarmenn og því sem ég raunverulega fæ eins og aðrir landsbyggðarþingmenn sem hafa kostnað af húsum og heimilum á landsbyggðinni. Þetta verða nokkur hundruð þúsund krónur sem blaðamaðurinn verður að punga út með, sóma síns vegna, til að standa við fleiprið. Síðan finnum við verðugan við- takanda fiárins á Noröurlandi vestra til að njóta góðs af. Ég sting t.d. upp á sambýh fatlaðra sem væntanlegt er að Gauksmýri í Vestur-Húnavatnssýslu. Ef blaða- maður treystir sér ekki til þessa setur hann niður fyrir ómerkilega blaðamennsku. Eftirfarandi eru þessar staö- reyndir: 1. Kostnaður minn við hús og heimili í heimabyggð og nálægt þingstað stenst ahan samanburð við aðra þingmenn. 2. Samanburð- ur á mínum högum sérstaklega með þessum hætti og svo þeirra sem eingöngu halda heimili í Reykjavík er vægast sagt ósann- gjam. 3. Þær tölur, sem blaðamað- urinn nefnir, eru skelfilega illa unnar og fiarri lagi og fréttin öll til þess eins að kasta rýrð á mig per- sónulega. Utanríkisráðherra er eini ráð- herrann sem hefur haldið kostnaði ráðuneytis síns innan ramma fiár- laga. Það forðaði honum þó ekki frá því að lenda í geirska ævintýrinu vegna brots þeirra upphæðar sem blaðamaður DV kastar hér um sig. Ráðherrann spurði: „Af hveiju ég einn? Hvar eru hinir níu?“ - Mér datt það svona líka í hug. Er andlegt „haardlífi" ungra íhaldsdrengja virkilega svo fram gengið að þeir hnjóta nú hver um annan þveran við aö leggja krata í einelti, nú þegar alhr almennilegir skyttuliðar eru löngu famir til ijúpna? Jón Sæmundur Sigurjónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.