Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989. 11 Utlönd Tíu milljónir barna selja blíðu sína Þessar litlu brasilísku telpur voru seldar af foreldrum sinum. Tíu milljónir bama, á aldrinum fjögurra til fimmtán ára, eru seldar af foreldrum sínum, neyddar til vændis og svívirtar af vestrænum frygðarferðalöngum. Samkvæmt mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna er að minnsta kosti ein milljón barna neydd til vændis á hverju ári. Ekkert virðist geta spornaö við þessu þrælahaldi nútímans í Thai- landi, Fiiippseyjum, Brasilíu, Kenýa og fleiri löndum þriðja heimsins. Daglega fljúga Evrópubúar, Amerík- anar og Japanir í hópum til þessara landa til þess að kaupa konur og böm sem flúið hafa frá landsbyggð- inni og úr fátækrahverfum stórborg- anna í rúm ferðalanganna. Án nokkurrar vonar um menntun eða starf em milljónir bama neyddar af foreldrum sínum til þess að afla sér tekna á einhvem hátt. Vinna barnanna er oft síðasta úrræði fá- tækra foreldra til að framfleyta fjöl- skyldunni. En skrefið frá bamavinn- unni til barnavændisins er ekki langt. í þróunarlöndunum fer þeim bömum fjölgandi sem selja sig á meðan velmegunin og feröalöngunin eykst í hinum vestræna heimi. Árið 1978 komu átján milljónir ferða- manna til þessara landa, tíu áram seinna hafði fjöldi ferðamanna tvö- faldast. Tókstaöflýja í nuddstofum og hóruhúsum stór- borganna njóta margir ferðamenn þeirra stúlkna sem fluttar hafa verið frá landsbyggðinni. Ein þeirra er hin fimmtán ára gamla Pim sem kom frá norðurhluta Thailands til Bangkok. Henni tókst að flýja heim í þorpið sitt en í hvert skipti sem hún heyrir í bifreiö hrekkur hún við. Pim er hrædd um að þar sé á ferðinni um- boðsmaður hennar sem gegn gjaldi lofaði skuldugri fjölskyldu hennar að hún fengi góða stöðu í spunaverk- smiðju. Þegar til Bangkok var komið var farið með Pim, sem þá var fjórtán ára, beint í nuddstofu sem var eitt af mörgum hundraöum hórahúsa í stórborginni. „Það voru þrjú hundr- uð stúlkur þar,“ segir Pim og hylur andht sitt. „Ég gerði það fyrir móður mína og litlu bræður mína þrjá.“ Pim er hrædd um að umboðsmaðurinn komi og sæki hana þar sem hún hafði aðeins unnið fyrir helmingi þess gjalds sem greitt var fyrir hana. Skammt frá Pim býr Subin sem er sautján ára. Hún hefur unnið þrjú ár á sömu nuddstofu og Pim var.n á og er löngu búin að greiða skuldir sínar. Fjölskylda Subin hefur notið góðs af atvinnu hennar. Gerðar hafa verið endurbætur á húsinu og fjöl- skyldan getur státað af litasjónvarpi. „Blessað bamið sér fyrir okkur," segir faðir hennar um leið og hann sýnir nýtt mótorhjól sem Subin hefur unnið fyrir. Hún er ekkert að hugsa um að hætta vændinu. Dóttir fagnaðarefni Áður fyrr var fæðing sonar tilefni fagnaðar því það vora þeir sem gátu séð fyrir fjölskyldunni. Nú gleðjast bændur meir yfir fæðingu dóttur „því stúlkur eiga svo auðvelt með að útvega sér vinnu.“ Skiptir þá ekki máh hvort þær vinna á hrísgrjóna- akri, í verksmiðju eða vændishúsi - þær gegna dótturhiutverki sínu. Fórnarlömbunum fjölgar Á meðan eymdin í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku vex fjölgar möguleg- um fórnarlömbum vændisins. Eins og til dæmis í Brasihu þar sem böm hafa lengi þurft að sjá fyrir sér sjálf. Bara í námuhéraðinu Pará bjóða þijátíu þúsund telpur á aldrinum tíu til fjórtán ára sig th sölu, að áhti héraðsstjórans þar. í Suður-Ameríku eru bömin, sem selja sig, oft í lífs- hættu. Hommar, sem eru sérstaklega fyrirhtnir í þessum hluta heimsins þar sem ímynd karlmennskunnar ríkir, myrða oft bömin eftir að hafa keypt bhðu þeirra. A Indlandi blandast trúarbrögð bamavændi. í fylkinu Kamataka fórna fátækir bændur einu sinni á ári einni dætra sinna gyðjunni Jeh- amma. Á það að færa fjölskyldunni hamingju. Næstum allar telpumar, sem eru um fjögur þúsund á ári og á aldrinum fjögurra th tólf ára, enda í hóruhúsi. Slíkar fómir hafa verið bannaðar frá árinu 1983 en era samt færðar. Fimm milljarðar dollara Samkvæmt norskri könnun fyrir Evrópuráðið var veltan í viðskiptun- um með börn áriö 1986 fimm millj- arðar doUara. Framboð og eftirspum ræður verðinu eins og í öðram við- skiptum. Útflutningssvæðin era að- aUega löndin í Suðaustur-Asíu, eink- um ThaUand, Sri Lanka og FUipps- eyjar, Suður-Ameríka og einnig Áfr- íka upp á síðkastið. Innflutnings- svæðin eru Vestur- og Norður-Evr- ópa, Bandaríkin og Austurlönd nær. Bara í Vestur-Berhn grípur lögreglan um eitt þúsund vændiskonur frá Thailandi á ári en flestar þeirra, eins og annars staðar á Vesturlöndum, eru átján ára og eldri. Þær voru þó vepjulega neyddar tíl vændis börn að aldri. Hermenn í endurhæfingu Glæpahringir selja börn gegnum mUhgöngumenn th ríkra viðskipta- vina eða vændishúsa í eigin landi eða tU útlanda. Oft era böm frá Burtna seld tU Thailands og telpur frá Bangladesh fylla indverska markað- inn. Starfsemin er vel skipulögð og spUitir stjómmálamenn og lögreglu- menn láta hana viðgangast. Grunnurinn að starfseminni í ThaUandi og FUippseyjum var lagð- ur í kringum 1960 þegar tugir þús- unda bandarískra hermanna fóru að falast efhr bhðu kvenna. Á meðan á Víetnamstríðinu stóð komu sjötíu þúsund hermenn á hverju ári tU end- urhæfingar á bari, vændishús og nuddstofur í ThaUandi. Kynferðisleg misnotkun bama jókst í grennd við bækistöðvar her- mannanna, samkvæmt könnun sem norsk samtök tU hjálpar börnum hafa gert. 80 prósent með kynsjúkdóma Hin gífurlega eftirspurn byijaði hins vegar ekki fyrr en kynlífsferð- imar hófust. Árið 1987 komu þijár og hálf rnUljón eriendra ferðamanna til ThaUands, 1988 vora þeir yfir fjór- ar miUjónir. Gert er að ráð fyrir að 1990 verði ferðamennirnir, sem koma með velþeginn gjaldeyri til landsins, yfir fimm mUljónir. Auðvitað koma ekki alhr ferðamennimir tíl þess að njóta bhðu thaUenskra stúlkna en samtök í ThaUandi, sem beijast gegn auknum fjölda ferðamanna tU lands- ins, segja að þrír fjóröu hlutar ferða- langanna séu karlmenn. Enginn veit nákvæmlega hversu mörg börn í ThaUandi stunda vændi. Samkvæmt ágiskun franskra mann- réttindasamtaka gætu þau verið um fjöratíu þúsund en samtök tíl vernd- ar réttindum barna í Bangkok óttast að fjöldi barnanna sé um átta hundr- uð þúsund. Áttatíu prósent þeirra barna, sem samtökunum hefur tekist að bjcirga úr hóruhúsunum, era með kynsjúkdóma. Hreinar meyjar og hjátrú Á Indlandi og í Thailandi greiða viðskiptavinirnir sérstaklega hátt verð fyrir hreinar meyjar því sam- kvæmt útbreiddri hjátrú, sérstak- lega meðal eldri karlmanna, eykst kyngeta þeirra eftir mök við óspjah- aða mey. Aðrir era þeirrar skoðunar að mök við óflekkaöar meyjar lækni þá af kynsjókdómum. Telpurnar smitast auðvitað samtímis. Haft er eftir lækni nokkram að það sé ekki fyrr en þær komi tU hans sem þær trúi einhverjum fyrir því að þær geti ekki lengur unnið vegna sárs- auka. Margar þeirra taka inn róandi lyf og fíkniefni. „Ég get htiö gert þeim til sáluhjálpar," segir læknirinn. Munurinn á barnavændi í iðnað- ariöndunum og þróunarlöndunum er sá að í iðnaðarlöndunum bjóða táningar sig til sölu til að geta greitt fyrir flkniefnanotkun sína en í þró- unarlöndunum taka þeir inn fíkni- efni tU að geta frekar umborið kval- imar sem fylgja kynferðislegri mis- notkurt. Óttinn við eyðni Embættismaður í thaUenska heU- brigðisráðuneytinu spáir því að inn- an fimm ára verði ein milljón manns í ThaUandi smituð af eyðni, þar á meðal fjöldi mjög ungra barna. Eftir því sem ótti viöskiptavina frá ríku löndunum við eyðni eykst vex eftirspumin jafnframt eftir börnum. Margir karlmenn eru sagðir vera þeirrar skoðunar að því yngri sem bömin era því minni sé smithættan. Fjölmiðlar eru farnir að fjaha um eyðnivandamáhð og einkasamtök úthluta ferðalöngum í skemmti- hverfum Bangkók smokkum. Her- menn og lögreglumenn gangast und- ir eyðnipróf og yfirvöld hafa fyrir- skipað að vændiskonur verði skyld- aðar í eyðnipróf og þær sem reynist smitaðar verði lokaðar inni. Tals- maður mannréttindasamtaka gagn- rýnir þessa afstöðu yfirvalda. „Af hveiju mega viðskiptavinirnir halda áfram að breiöa út sjúkdóminn?" spyr hann. Hann segir frá Tat sem er þrettán ára. Þegar hún var tólf ára var hún numin á brott og komið fyrir í hóru- húsi. Ári seinna tókst henni að smygla bréfi úr húsinu til foreldra sinna: „Elsku pabbi og mamma, seg- ið engum hvar ég er en bjargið mér héðan!“ Lögreglan frelsaði barnið og við rannsókn kom í ljós að Tat var með eyðnismit. Höfðað verður mál gegn eiganda hóruhússins. Vægar refsingar Til stendur að þyngja refsinguna gegn hórmöngurum en hingað tíl hafa þeir sloppið með væga dóma, þriggja mánaða fangelsi eða sekt. Það er heldur ekki oft sem eigendur hóruhúsa og barnasalar koma fyrir rétt. Það gerðist þó 1984 eftir stór- bruna í ferðamannaparadís. Þá fór- ust fimm ungar vændiskonur. Þær gátu ekki bjargað sér úr eldsvoðan- um þar sem þær vora hlekkjaðar við rúm sín. Ýmis mannréttindasamtök beita yfirvöld í umræddum löndum þrýst- ingi og reyna jafnframt að auka ábyrgðartilfinningu manna í ríku löndunum: Það er ekki fyrr en eftir- spurnin hættir sem hægt verður að binda enda á bamavændi. Norskar konur hafa sérstaklega látið til sín taka við að koma í veg fyrir kynlífsferðir karla til Thai- lands. Þær eru sagðar hafa mætt á Fomebuflugvöll við Osló meö spjöld þar sem á stóð: „i dag klukkan 10.55 fara tuttugu norskir karlar til Bang- kok til þess að nauðga fátækum kon- um í Thailandi." Eigandi ferðaskrif- stofunnar, sem skipulagði Thai- landsferðina, kærði konurnar en ákærunni var vísað frá á þeim for- sendum að ásakanir kvennanna ættu við raunverulegt ástand í Thailandi. Der Spiegel Bnma- kuldasKgvél 2 litir Kr. 1.695,- /VIIKIIOIRÐUR MARKADURVIÐSUND Vegna vændis Subin gat faðir hennar eignast mótorhjól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.