Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1989, Side 27
^fttn!mi)Á!tíúk 'ú: bkíÖBÉR ié89.
27
Afrnæli
Hjónin:
Friðbert Pétursson og
Kristjana Guðrún Jónsdóttir
Friöbert Pétursson, b. í Botni í
Súgandafirði, nú til heimilis að
Hjallavegi 16, Suðureyri, er áttræð-
ur í dag. Eiginkona hans, Kristjana
Guörún Jónsdóttir, verður áttræð
7.nóvember nk.
Friðbert er fæddur á Laugum í
Súgandafirði. Hann var tvo vetur í
barnaskóla og útskrifaðist sem bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1931.
< Hann hóf búskap í Botni í Súganda-
firði 1932 og bjó þar í ríflega hálfa
öld. Friðbert sat í stjóm Búnaðarfé-
lags Suöureyrarhrepps í 54 ár, þar
af 39 sem formaöur. Einnig var
hann formaður sauðfjárræktarfé-
lags í 20 ár og formaður nautgripa-
félags í 13 ár. Þá hefur hann veriö
í stjórnum ræktunarfélags og húsa-
gerðarsambandsog er gjaldkeri
Búnaðarsambands Vestfjarða.
Hann hefur setið í hreppsnefnd í
tvö kjörtímabil, í stjórn Kaupfélags
Súgfirðinga um tvo tugi ára og í 12
ár átti hann sæti á búnaðarþingi.
Nokkrar ritsmíðar Friðberts hafa
birst í tímaritum og þá hefur kom-
iö út ljóðabókin Fallin lauf og önn-
ur er frágengin í handriti.
Friðbert og Kristjana gengu í
hjónband 13. nóvember 1932.
Börn Friðberts og Kristjönu eru:
Svavar, f. 14.5.1933, d. 27.7.1968,
bifreiðarstjóri, var giftur Ragnhildi
Friðbertsdóttur.
Birkir, f. 10.5.1936, búfræðingur
og bóndi, kvæntur Guðrúnu Fann-
eyjuBjörnsdóttur.
Kristjana, f. 22.9.1939, gift Haf-
steini Sigmundssyni sem rekur
verslun.
Kristín, f. 30.8.1943, gift Baldri
Ámasyni viðskiptafræðingi.
Ásta Björk, f. 8.7.1947, gift Kjart-
ani Þór Kjartanssyni skipstjóra.
Barnabörnin eru orðin 19 og
barnabarnabörnin eru 22.
Systkini Friðberts voru 11, þar
af eru átta enn á lífi: Guðmundína,
f. 18.3.1908; Sigríður, f. 20.10.1910;
Þórður, f. 23.1.1913; Páll Helgi, f.
26.4.1914, látinn; Kristán Pétur, f.
19.7.1915, d. 13.11.1919; Jófríður,
f. 7.9.1916, látin; Sigmundína, f.
16.9.1918; Kristjana Petrína, f. 16.4.
1920; Elísabet, f. 8.9.1922; Sigur-
björg, f. 30.3.1924; Sveinbjörg, f.
12.9.1926.
Foreldrar Friðberts voru Pétur
Sveinbjörnsson, f. 12.5.1881, d. 11.6.
1950, sjómaður og síðar b. á Laug-
um, og kona hans, Kristjana Friö-
bertsdóttir, f. 24.4.1884, d. 14.9.1981.
Pétur var sonur Sveinbjarnar, á
Kvíamesi, Pálssonar, á Kvíarnesi,
Guðmundssonar, á Kvíamesi, Ara-
sonar.
Móðir Péturs var Guðmundína
Jónsdóttir, á Kirkjubóli, Halidórs-
sonar, á Sléttu, Ólafssonar.
Móðir Jóns var Kristín Torfadótt-
ir. Móðir Guðmundínu var Rann-
veig Ólafsdóttir, b. á Kambsnesi,
Guðmundssonar.
Kristjana, móðir Friðberts, var
dóttir Friðberts, b. í Vatnadal, Guð-
mundssonar, b. á Kaldá í Görðum,
Jónssonar.
Ingibjörg Oddsdóttir húsmóðir,
Öldugötu 34, Reykjavík, er áttræð í
dag. Ingibjörg fæddist í Reykjavík.
Hún lærði hattasaum og var með-
eigandi Hattabúðar’ Reykjavíkur um
skeið. Ingibjörg var árum saman ein
af þekktustu bridge-konum lands-
ins.
Ingibjörg giftist, 24.11.1934, Herði
Þórðarsyni, lögfræðingi og spari-
sjóðsstjóra, f. 11.12.1909, d. 13.12.
1975, en Hörður var sonur Þórðar
Sveinssonar, yfirlæknis á Kleppssp-
ítalanum í Reykjavík, og konu hans,
Elle Johanne, f. Kaaber.
Ingibjörg og Hörður eignuðust tvö
börn. Þau eru Þórður Harðarson, f.
14.3.1940, læknajirófessor og forseti
læknadeildar HI, kvæntur Sólrúnu
Björgu JenSdóttur, skrifstofustjóra
í menntamálaráðuneytinu, en þau
eiga þrjú böm, Hörð, f. 23.10.1965,
sem lærir veðurfræði í Osló, Stein-
unni, f. 6.7.1977, og Jens, f. 14.2.1982;
Anna Harðardóttir, f. 12.6.1943,
skrifstofustjóri læknadeildar HÍ,
gift Leifi N. Dungal lækni en dóttir
Ónnu er Ingibjörg Helga Valsdóttir,
f. 18.10.1962. Kjörsonur Leifs og
Önnu er Sverrir L. Dungal, f. 9.7.
1974.
Ingibjörg átti fiögur systkini.
Systkini hennar: Bjarni Oddsson, f.
19.6.1907, d. 6.9.1953, læknir í
Reykjavík, var kvæntur Ástu Júhu
Árnadóttur og eignuðust þau fiögur
börn, Odd, lækni í Garðabæ, Öm
Helga, rithöfund í Reykjavík, Hall-
dór Árna kennara og Gunnar jarð-
fræðing; Anna Oddsdóttir, f. 2.10.
1908, húsmóðir í Reykjavík, en fyrri
maöur hennar var Ölafur Jónsson
og er Flosi Ólafsson leikari þeirra
sonur, en seinni maöur Önnu er
Friðjón Stephensen, forstjóri í
Reykjavík og eru þeirra börn Þuríð-
ur Stephensen fóstra, Ólafur félags-
fræðingur og Guðlaug húsmóðir;
Kristján Oddsson, f. 3.12.1910, vél-
smiður í Keflavík, en fyrri kona
hans var Ingunn Elín Ölafsdóttir og
er sonur þeirra Ólafur Sigvaldi,
sölumaður í Reykjavík, en seinni
kona Krisfiáns er Ingunn Runólfs-
dóttir, og Steingrímur Oddsson, f.
7.10.1914, málarameistari í Reykja-
vík, kvæntur Laufeyju Ásu Ingj-
aldsdóttur.
Foreldrar Ingibjargar voru Oddur
Jón Bjamason, f. 28.7.1883, d. 3.1.
1953, skósmiður í Reykjavík, og
kona hans, Andrea tíuðlaug Kristj-
ánsdóttir, f. 11.9.1882, d. 8.11.1960.
Oddur var sonur Bjarna, b. á
Hömrum Sigurðssonar, b. á Hömr-
um Bjamasonar. Móðir Bjarna á
Hömrum var Margrét Þórðardóttir.
Móðir Odds var Ingibjörg, systir
Jóns, langafa Dóra, móður Jóns
Páls Sigmarssonar. Ingibjörg var
dóttir Odds, b. á Brennistöðum,
bróður Ögmundar, langafa Sveins,
langafa Valgeirs Guðjónssonar.
Bróðir Odds var Loftur, langafi
Kristjáns Loftssonar, forstjóra
Hvals hf. Annar bróðir Odds var
Jón, langafi Sigmundar Guðbjarna-
sonar rektors, og Stefáns, föður
Svölu Thorlacius hrl. Systir Odds
var Kristín, móðir Ingibjargar Ó.
Johnson kaupkonu. Oddur var son-
ur Bjama, b. í Vatnshorni í Skorra-
dal, Hermannssonar, ættfóður
Vatnshomsættarinnar. Móðir Odds
var Ingibjörg Jónsdóttir, b. í Vatns-
horni, ísleifssonar og konu hans,
Guðrúnar Sigurðardóttur, systur
Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Ingi-
bjargar var Helga Böðvarsdóttir, b.
í Skáney, Sigurðssonar og konu
hans, Ástríðar Jónsdóttur, b. í
Deildartungu, Þorvaldssonar, for-
föður Deildartunguættarinnar.
Andrea Guðlaug var dóttir Krisfi-
Friöbert Pétursson og Kristjana Guðrún Jónsdóttir.
Systkini Kristjönu Guðrúnar
Jónsdóttur: Kristín Þóra, f. 19.12.
1896; Sigríður, f. 20.8.1899, d. 30.8.
1899; Sigríður, f. 20.8.1899, d. 2.9.
1899, Einar Sturla, f. 24.8.1902; Þor-
lákur Jón, f. 23.12.1907; og Jóhann-
es Þórður, f. 21.6.1916.
Foreldrar Kristjönu voru Jón, f.
9.6.1873, d. 22.9.1939, útgerðarmað-
ur á Suðureyri, og kona hans,
Kristín Kristjánsdóttir, f. 28.6.1874,
d. 25.1.1931.
Jón var sonur Einars, b. á Meiri-
bakka í Skálavík Jónssonar, b. í
Þjóðólfstungu Einarssonar, b. á
Meiribakka Jónssonar.
Kristín, móðir Kristjönu, var
dóttir Kristjáns, útvegsbónda og
verslunarstjóra á Suðureyri, Al-
bertssonar, b. á Gilsbrekku í Súg-
andafirði, Jónssonar, b. á Tanna-
nesi, Ólafssonar.
Móðir Kristínar var Kristínar var
Kristín Guðmundsdóttir, hrepp-
stjóra á Laugum, Guðmundssonar,
í Breiðadal, Ólafssonar.
Móðir Guðmundar Guðmunds-
sonar var Herdís Árnadóttir. Móðir
Kristínar Guðmundsdóttur var
Kristín Þorleifsdóttir á Suðureyri,
Þorkelssonar.
Þau hjónin, Friöbert og Kristj-
ana, taka á móti gestum á heimih
sínu, Hjallavegi 16, Suðureyri,
laugardaginn4. nóvember.
Ingibjörg Oddsdóttir
Ingibjörg Oddsdóttir
áns, trésmiðs á Eyrarbakka, Teits-
sonar, b. í Vatnahjáleigu í Flóa,
Jónssonar, b. á Hamri, bróður Guð-
ríðar, langömmu Eyjólfs, langafa
Guðlaugs Tryggva Karlssonar hag-
fræðings. Jón var sonur Árna,
prests í Steinsholti, bróður Ög-
mundar, afa Tómasar „Fjölnis-
manns“. Bróðir Áma var Stefán,
langafi Árna, langafa Björns Th.
Björnssonar. Annar bróðir Áma
var Böðvar, langafi Þorvalds, afa
yigdísar Finnbogadóttur. Faðir
Árna var Högni „prestafaðir" Sig-
urðsson.
Móðir Teits var Helga Ólafsdóttir,
b. og hreppstjóra á Eystri-Loftsstöð-
um Vernharðssonar, b. á Vestri-
Loftsstöðum, Ögmundssonar. Móðir
Helgu var Sesselja Aradóttir, b. í
Götu á Stokkseyri, Bergssonar, b.
og hreppstjóra í Brattsholti, Stur-
laugssonar, ættfóður-Bergsættar-
innar.
Móðir Guðlaugar var Anna Jóns-
dóttir, b. á Syðri-Rauðalæk í Holt-
um, Hólmfastssonar, b. í Tobbakoti
í Þykkvabæ, Péturssonar.
85 ára
50ára
Vigfús Þorsteinsson,
Austurbyggð 17, Akureyri.
80 ára
KristjánM. Kristjánsson,
Borgarholtsbraut 1, Kópavogi.
Birna Þorleifsdóttir,
Ólafsvegi 12, Ólafsfirði.
Guðrún Sigurðardóttir,
Brekkubyggð 23, Blönduósi.
Heimir Gislason,
Eyjahrauni 24, Þorlákshöfn.
40ára
70 ára
Bjarni E. Amgrímsson,
Vesturbergi 48, Reykjavík.
Ingveldur Guðnadóttir,
Háaleitisbraut 52, Reykjavík.
ara
GuðrúnS. Óskarsdóttir,
Stafholti 18, Akureyri.
Jón Kr. Jóhannesson,
Reykjavíkurvegí 38, Hafnarfiröi.
Jónas Guðgeir Björnsson,
Strandgötu 73, Eskifirði.
Reynir Þórðarson,
Furulundi 6, Gárðabæ.
Stefán Valur Stefánsson,
Austurbrún 2, Reykjavik.
Þóra Þórarinsdóttir,
Flókagötu57, Reykjavík.
Guðjón R. Gunnarsson,
Frostafold 20, Reykjavík.
. Hafdis Kjartansdóttir,
Seljabraut 74, Reykjavik.
Hrafnhildur Jónsdóttir,
Mjósundi 16, Hafnarfirði.
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Traðarlandi 6, Reykjavík.
Ingibjörg Sigurjónsdóttir,
Breiðvangi 20, Hafnarfirði.
Jóhann Þór Friðgeirsson,
Hofi, Hofshreppi.
Kuija JennýKim,
Þrastanesi 20, Garöabæ.
MargrétÞ. Blöndai,
Keilufelli 25, Reykjavík.
Ólöf Steinnnn Ólafsdóttir,
Breiðabliki 11, Neskaupstað.
Pétur Björnsson,
Kaplaskjólsvegi65, Reylfiavík.
Sigríður Ragnarsdóttir,
Túngötu l.ísafirði.
Þórey Eiríksdóttir,
Þverbrekku 4, KópavogL
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda
því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum
fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir.
Brúðkaups- og
starfsafmæli
Ákveðið hefur verið að birta á afmælis- og ættfræði-
síðu DV greinar um einstaklinga sem eiga merkis
brúðkaups- eða starfsafmæli.
Greinarnar verða með áþekku sniði og byggja á
sambærilegum upplýsingum og fram koma í afmælis-
greinum blaðsins en eyðublöð fyrir upplýsingar af-
mælisbarna liggja frammi á afgreiðslu DV.
Upplýsingarvarðandi brúðkaups- eða starfsafmæli
verða að berast ættfræðideild DV með minnst þriggja
daga fyrirvara.
Það er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar andlits-
myndirfylgi upplýsingunum.