Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990.
Fréttir__________________________________________________________________________________dv
Deilumál vegna forsjár bama íslenskrar konu og bandarísks föður:
Flutfti heim með börnin
án vitundar föðurins
- bandarískur faðir er talinn hafa verið tvígiftur
Deilur hafa risið á milli íslenskrar
konu og Bandaríkjamanns um forsjá
tveggja bama þeirra og tvíkvænis
mannsins. Þau giftu sig hér á landi
árið 1984 en fluttu síðan til Banda-
ríkjanna. Varð konunni þá ljóst aö
maöurinn, sem er frá Perú og er
bandarískur ríkisborgari, hafði áður
verið giftur og haíði ekki fengið lög-
skilnað.
Eftir að hann hafði fengið lögform-
legan skilnaö giftu hjónin sig því aft-
ur ytra. Bjuggu þau saman í New
York þar til síðastliðið sumar. Flutti
konan þá með börnin til íslands án
vitundar mannsins. Faðirinn taldi
að hún myndi snúa aftur. Áttu hjón-
in nokkur samskipti í síma vegna
eignanna og forsjár barnanna en án
þess að málin leystust.
Bandarískur dómsúrskurður
Faðirinn kom siðan til íslands um
jólin til að sjá börnin en honum var
synjað um það af konunni og lög-
manni hennar. Krafðist lögmaðurinn
þess að áður en eiginmaðurinn fyrr-
verandi fengi að sjá börnin yrði geng-
ið frá búskiptum á eignum þeirra.
Að sögn Jóns Oddssonar, lögmanns
konunnar, var maðurinn látinn vita
af þeim kröfum áður en hann kom
hingað. Þegar faðirinn var staddur
hér á landi um jóhn leitaði kaþólskur
prestur sátta í málinu en án árang-
urs.
í haust fékk faöirinn úrskurð siíja-
réttar í New York þar sem segir að
börnunum sé best borgið hjá honum
enda séu þau ríkisborgarar þar í
landi og eigi lögheimili þar. Hann
telur sig því hafa forsjá bamanna.
Lögmaður konunnar sagði hins
vegar að ljóst væri að maðurinn hefði
unnið til refsiverðrar háttsemi með
tvíkvæni. Hann benti á að hjóna-
bandi parsins hér á landi hefði aldrei
verið slitið. Því væri allt eins líklegt
að seinna hjónaband þeirra í Banda-
ríkjunum væri ógilt. Konan hefur
ekki kært manninn vegna tvíkvænis
en gerir kröfu til þess að hún haldi
bömunum.
Kreppa í forsjármálum
Hróbjartur Jónatansson, lögmaður
mannsins, sagði í samtali við DV að
miðað við íslensk lög væri fullkom-
lega óljóst hvort ofangreindur úr-
skurður sifjaréttarins í New York
heíði gildi á íslandi.
„Þetta mál staðfestir þá kreppu
sem íslensk stjórnvöld eru í gagnvart
forsjármálum. Á íslandi er einungis
í gildi samningur við Norðurlöndin
um viðurkenningu á dómum og úr-
skurðum, þar á meðal í forsjármál-
um. Hvað önnur lönd varðar er um
fullkomlega óskýrar reglur að ræða
vegna dóma og úrskurða. Því er al-
veg óvíst hvaða gildi forræðisúr-
skurður mannsins frá New York hef-
ur á íslandi. Að mínu mati er mjög
brýnt að stjórnvöld setji skýrari regl-
ur og að ísland geri samning við
önnur ríki um viðurkenningu dóma.
Réttarstaða útlendinga þarf að vera
skýrari," sagði Hróbjartur.
-ÓTT
Aðalskipulag fyrir Vatnsendalandið:
Framkvæmdir eiga fyrst
að hefjast eftir árið 2008
Samkvæmt aðalskipulagi Kópa-
vogskaupstaðar til ársins 2008, sem
nú hangir uppi til auglýsingar, munu
frcunkvæmdir á Vatnsendalandinu
fyrst heíjast eftir árið 2008. Fram-
kvæmdir munu í fyrstu fara af stað
nær bænum en íbúafjöldi og þróun
byggðarinnar mun þó ákveða nánar
um hversu fljótt framkvæmdir í
Vatnsendalandi hefjast.
Á svæðinu er gert ráð fyrir gisinni
íhúðabyggð, meðal annars einbýbs-
og raðhúsum. Ekki er gert ráð fyrir
fjölgun sumarbústaðabygginga til
2008 og óvíst um framtíð þeirra. Ekki
er gert ráð fyrir að sumarbústaðir
notist sem heúsársbústaðir. Þá verða
verslunar-, þjónustu- og iðnaðar-
svæði á Vatnsendalandinu. Smærri
svæði, fyrir skóla og verslanir, munu
þjóna íbúðabyggöinni en stærri
verða með fjölþættari starfsemi,
enda við umferðaræðar.
Græn svæði verða meðfram vatn-
inu og hluta sumarbústaðalandsins.
Þar sem Vatnsendabýlið er í dag
verður landbúnaðarsvæði þar sem
heimilt verður að stunda búskap í
smærri mynd.
Á hæðunum, Vatnsenda- og
Rjúpnahæð eru opinber svæði sem
notast sem slík, fyrir útvarpsmöstur
og fleira, og græn svæði í kring.
Skipulagið er til auglýsingar hjá
skipulagi Kópavogskaupstaðar til 25.
janúar og frestur til að skila inn at-
hugasemdum er til 8. febrúar. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins hefur
skipulagið og umræðan um Vatns-
enda verið mjög til umræðu hjá þeim
er búa í nágrenninu og eiga sumar-
bústaði á Vatnsendalandinu. Mun
leigusamningur margra sem eiga eða
búa í sumarbústöðum renna út fljót-
lega og þá boðaðar hækknir á leigu.
-hlh
Sjómaður slasast alvarlega
Ómar Garðarasan, DV, Vestmarvnaeyjum;
Alvarlegt slys varð um borð í Styrmi
VE þegar verið var að leggja net 18
sjómílur suðaustur af Eyjum í gær.
Sjómaður flæktist í sérta, tóg sem
liggur úr neti í dreka, og kastaðist
útbyrðis. Krafturinn var svo mikill
að hann kipptist upp á efra dekk
áður en hann þeyttist í sjóinn. Eftir
nokkra stund náöist hann úr sjónum
og var fluttur til Reykjavíkur í
sjúkraflugvél. Hann er alvarlega
slasaður, mjaðargrindar- og lærbrot-
inn en ekki í lífshættu.
Sjómaðurinn var með meðvitund
allan tímann og auöveldaði þaö
björgunarstarfið. Hann náði í færi í
sjónum og tókst að halda sér í það
þar til hann náðist.
Mikið var skotið upp af flugeldum á gamlárskvöld á Dalvik enda gott veð-
ur, hiti um frostmark og stillur, - mikil sala hjá Hjálparsveit skáta og öðrum
félagasamtökum sem seldu flugelda og blys. Myndin er af skátum við sölu
á varningi sínum. DV-mynd Geir
Dalvlk:
íbúum fjölgar og
atvinnuástand gott
Geir A. Guðsteinsson, DV, DalvQc
Dalvíkingar voru 1454 um 'síðustu
áramót og hafði fjölgað um 1,7% milli
ára. Það er þrisvar sinnum meira en
landsmeðaltal samkvæmt upplýsing-
um Hagstofunnar.
Aö sögn bæjarstjóra gekk inn-
heimta gjalda gekk verr á árinu.
Fasteignagjöld innheimtust svipað
en eftirstöðvar útsvars og aðstöðu-
gjalda lakar og er það fyrst og fremst
að kenna ofáætlun frá skattyfirvöld-
um. Greiðslustaða bæjarsjóös Dal-
víkur er mjög góð um þessi áramót
og má því segja aö Dalvíkurbær eigi
fyrir þeim framkvæmdum sem hann
stendur nú í.
Atvinnuástand er mjög gott hér.
Vinna hjá stærsta atvinnurekanda
staðarins, Frystihúsi UKED - Út-
gerðarfélags Kaupfélags Eyfirðinga
Dalvík - hefst 10. janúar. Togararnir
fara allir á veiðar í þessari viku nema
Baldur sem fer í viðgerð á vél, auk
þess sem þrífa þarf allar vistarverur
skipverja og brú eftir bruna sem varð
í stakkageymslu skipsins skömmu
fyrir jól. Sót og annar óþrifnaður
barst um allt skipið.
Að sögn lögreglu voru áramótin
hér hin friðsömustu.
Jólahald Ríkisspítalanna:
Keyptu áfengi
fyrir 300 þúsund
Ríkisspítalarnir keyptu á síðustu
vikum ársins 1989 áfengi fyrir tvö til
þrjú hundruð þúsund krónur. Á ár-
inu 1988 keyptu Ríkisspítalarnir
áfengi fyrir 276 þúsund krónur.
Heildarrisna á því ári var 796 þúsund
krónur. Heildartölur fyrir árið 1989
liggja ekki fyrir.
„Það var keypt áfengi fyrir um 60
þúsund krónur til að halda árvissa
jólamóttöku fyrir starfsfólk. Þar er
aðeins veitt létt vín. í jólamóttökúna
mæta milb sex og sjö hundruð
manns. Þaö var einnig keypt áfengi
vegna ársfundar okkar. Ég er mikið
á móti því að veita áfengi og þyki
leiðinlegur í þessum málumi,“ sagði
Davíð A. Gunnarsson, forstjóri Rík-
isspítalanna, um áfengiskaupin.
-sme