Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990.
5
Viðgerð Bessastaðastofu er mun umfangsmeiri en talið var:
Fréttir
Kostnaður nú áætlaður
fjórföld fjárveitingin
- áætlanir breytast nær daglega þar sem ástand hússins er hrikalegt
Útveggirnir reyndust hriplekir og sprungnir. í Ijós kom að ekki aðeins þakið lak heldur átti vatn greiða leið í gegnum veggina. Múrhúðunin hefur verið
skafin af veggjunum. DV-myndir Brynjar Gauti
Bessastaðastofa áður en ráðist var í framkvæmdirnar, þegar verið var að reisa skemmu um húsið. Á hinni mynd-
inni má sjá hvernig umhorfs er á Bessastöðum í dag.
„Þetta er á viðkvæmu stigi. Það er
verið að fara yfir allar kostnaðará-
ætlanir þar sem skemmdir á húsinu
hafa reynst mun meiri en tahð var,“
sagði Gunnar Hall, en hann á sæti í
Bessastaðanefnd en nefndin sér um
framkvæmdir á Bessastöðum.
í fjárlögum er gert ráð fyrir að 52
milljónum krória verði varið til þessa
verkefnis á þessu ári. Bessastaða-
nefnd telur hins vegar að 200 milljón-
ir króna þurfi til að ljúka endurbygg-
ingunni auk annarra smærri verk-
efna. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir að allar framkvæmdir á Bessa-
stöðum kæmu til með að kosta 300
milljónir. Nú liggur fyrir að sú tala
stenst engan veginn. Hluti skýring-
arinnar er verðlagsbreytingar frá því
að fyrstu áætlanir voru gerðar. .*■
Endurbygging,
ekki viðgerð
Ef áætlanir standast verður um-
fangsmikilh viðgerð á Bessastaða-
stofu lokið á þessu ári. Þeir sem DV
hefur rætt við vegna þessa verkefnis
segja að allt eins sé hægt að tala um
endurbyggingu eins og viðgerð.
Ástand hússins héfur reynst mun
verra en nokkurn virðist hafa órað
fyrir í upphafi. Þegar komið er inn í
skemmuna, sem reist hefur verið
yfir Bessastaðastofu, er fátt að sjá
sem minnir á forsetabústaðinn. Að-
eins veggir neðri hæðarinnar standa
uppi og hefur öll múrhúð verið skaf-
in af.
Arkitektar eru Garðar Halldórs-
son, húsameistari ríkisins, og Þor-
steinn Gunnarsson, arkitekt og leik-
ari. Framkvæmdir eru í höndum
Bessastaðanefndar. Formaður henn-
ar er Helgi Bergs, fyrrverandi banka-
stjóri. Verkefnisstjóri er Pétur Stef-
ánsson verkfræðingur.
Verulega meira verk
„Það var áætlað að vinna fyrir 50
milljónir, samkvæmt fjárlögum. Það
var farið það seint af stað aö það var
áætlað að vinna fyrir 39 milljónir.
Tölur liggja ekki fyrir en það mun
láta mjög nærri þeirri tölu. Það er
fjárveitinganefndar og löggjafans að
ákveöa hvað verður lagt í þetta verk-
efni. Þó ég telji mig vita hvaö er gert
ráð fyrir miklum peningum í fjárlög-
um þá vil ég ekki fara með það,“
sagði Pétur Stefánsson.
„Mikil skelfing. Þetta er verulega
meira verk heldur en áætlað var. Það
var vitað að þakiö var ónýtt. Loftið
yfir fyrstu hæðinni reyndist ónýtt
hka og það varð að rífa það. Þegar
múrhúöun, sem víöa var orðin laus,
var fleyguð utan af veggjunum komu
í ljós miklar skemmdir á útveggjun-
um sjálfum. Þeir eru bæði illa
sprungnir á köflum og síðan eru
stafnarnir illa morknir. Þetta er því
mun meiri viðgerð en haldið var þeg-
ar farið var af stað. Þá var haldið að
lekinn væri fyrst og fremst frá þak-
inu en það er orðið augljóst að það
hefur lekið beint inn um útveggina
líka. Það er verið að vinna að því
núna aö þétta veggina og gera við
gaflana áður en farið verður að
byggja þakið upp aftur. Þetta hefur
óneitanleg undið töluvert upp á sig.“
Samkvæmt lögum á endurbygg-
ingu Bessastaðastofu að ljúka á
þessu ári. Reiknað er með að þakið
verði tilbúið fyrsta maí. Þá verður
hafist handa við innréttingár og
áætlað er að því verki ljúki seint á
þessu ári.
Fornleifagröftur í kjallara
Unnið er að fornieifagreftri í kjall-
ara - undir eldhúsi hússins. Sú vinna
er unnin á sama reikning og endur-
byggingin. Þetta er síðasti hðurinn í
fornléifarannsóknum undir Bessa-
staðastofu. Áður hafa fornleifarann-
sóknir farið fram undir öðrum gólf-
um hússins. Óvíst er hversu um-
fangsmiklar eða kostnaðarsamar
fornleifarannsóknirnar verða.
Önnur verkefni, sem ráðist verður
í á Bessastöðum, eru endurbætur á
aðhggjandi húsakosti umhverfis
húsagarð, bygging nýs forsetabú-
staðar, endurbygging Bessastaða-
kirkju, endurbætur á öðrum húsa-
kosti og endurbætur á umhverfi og
aðkomu. Öðrum byggingafram-
kvæmdum en Bessastaðastofu á að
vera lokið á árinu 1991.
-sme
Fornleifarannsóknir fara fram í kjallara hússins. Þetta eru lokarannsóknirnar undir húsinu. Efri hæðin hefur öll verið rifin og loftið á milli hæðanna.