Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990.
Utlönd
Hundrað
Óttast er að rúmlega eitt hundrað og fimmtíu hafi látist í lestarslysi i
suðurhluta Pakistans snemma í morgun þegar íarþegalest rakst á Qutn-
ingalest. Taliö er að fiögur hundruð hafi slasast í frétt hinnar opinberu
fréttastofu APP í morgun sagði að tala látinna kunni aö hækka. Slys
þetta er taliö versta lestarslys í sögu Pakistan.
Farþegalestin var á leið firá Zakaria til Bahauddin. Á lestarstöðinni í
Sangi, rúmlega tvö hundruð kílómetra norður af Karachi, rakst hún á
Qutningalestina. Embættismenn segja að átta lestarvagnar hafi farið af
sporinu.
Kínverjar netta Fang um fararleyfi
Kínversk yfirvöld vísuöu því á bug í gær að samningar hefðu tekist
milli Bandaríkjanna og Kina um aö Fang Lizhi, einn þekktasti andófsmaö-
ur Kína, og eiginkona hans fengju fararleyfi til þriöja lands, líklega Ástral-
íu. Þau hjón leituðu hælis í sendiráði Bandarikjanna í Peking í kjölfar
blóðbaðsíns á Torgi hins himneska friðar í sumar er hermenn réðust
gegn friðsamlegri mótmælagöngu. Óttast er aö þúsundir hafi látist.
Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins sagði fréttir um að Fang
og kona hans fengju að fara til þriöja lands „tilhæfúlausari'. Það var tíma-
rit í Hong Kong sem skýrði frá því að samningar hefðu náðst milli Kína
og Bandaríkjanna í nýafstaðinni ferð bandarískra embættismanna til
Kína.
Marokkóskir verkamenn vinna afl vamargirflingu vifl strendur Marokkó.
Símamynd Reuter
Hætta er talin á að íranska olíuskipiö Kharg-5, sem verið hefur á reki
í AQantshafi úti fyrir strönd Marokkó i hálfan mánuð, brotni í tvennt á
næstunni lægi veðrið á þessum slóðum ekki. Fari svo að skipiö, sem er
mikið laskað, brotni er hætta á að enn meiri olía fiæði úr tönkum þess
en þegar hefur átt sér stað.
Um sjötíu þúsund tonn af olíu hafa lekíð úr skipinu í sjóinn síðustu
dægrín og var lengi vel talin hætta á mikilh mengun við strendur Ma-
rokkó. Nú segja sérfræðingar að hætta á stórfelldu mengunarslysi hafi
minnkað, Stór hluti olíubrákarinnar hefur þegar sundrast, segja þeir, og
líkumar á að hún nái til strandar fara minnkandi. Jafnvel þó skipið
brotni í spón er ekki mikil hætta á að sú olía, sem enn er í tönkum þess,
nái til lands því Kharg-5 er nú um 300 milur vestur af strönd Marokkó,
úti fyrir þorpinu Safi.
Ekki eru allir sammála þessu mati og segir umhverfismálaráðherra
Frakka að best sé að sprengja skipið í loft upp áður en verr fari. Síðasta
sólarhring hefur sjór veriö úfmn við strendur Marokkó og öldurnar allt
að sex metra háar.
Þúsundir mótmæla í Búigaríu
Todor ZhivKov, fyrrum forseti
Búlgaríu.
Þúsundir Búlgara efhdu til mót-
mæla í gær gegn ákvörðun yfir-
valda um aukin réttindi handa
tyrkneska minnihlutanum. Fóru
mótmæiin fram í ýmsum borgum
landsins. Fyrri stjóm landsins,
undir forystu Todors Zhivkov, sem
var steypt af stóh í nóvember, hafði
neytt Tyrki til að taka búlgörsk
nöfti auk þess sem lagðar voru
hömlur á að þeir gætu iökað trú
sína sem er múhameðstrú. Núver-
andi sljóm hefúr falhð frá kröfún-
um um aðlögun Tyrkja að búlg-
örskum þjóðháttura.
Kröfumenn viija að fram fari
þjóðaratkvæðagreiðsla um örlög
tyrkneska minnihlutans.
Oiíuleki í New York
Umhverfisvemdarsinnar sökuöu í gær ohufyrirtækið Exxon um að
bera ábyrgö á tveggja milljóna Utra ohuleka í sjóinn mihi New York-
borgar og New Jersey. í fyrstu haföi veriö tilkynnt að tæplega nítján
þúsund Utrar hefðu streymt í sjóinn.
Það var á þriðjudaginn sem upphitunarolía rann úr leiðslu í sjóinn
rétt við höfbina í New York, ekki langt frá Frelsisstyttunm. TáUð er að
skip hafi rekist á leiðsluna.
Reuter
Austur-Þýskaland:
Sameinuð breið-
fylking andófsafla
Sex austur-þýskir stjómarand-
stöðuflokkar og andófshópar hafa
sett á laggimar breiðfylkingu til að
sameina krafta stjómarandstöðunn-
ar í landinu áður en kosningar verða
haldnar, að því er fram kom í fréttum
ADN, hinnar opinberu fréttastofu.
Fyrirhugað er að fijálsar þingkosn-
ingar fari fram í maí og verður það
í fyrsta sinn sem frjálsar kosningar
fara fram í Austur-Þýskalandi í fióra
áratugi.
í hinni nýju fylkingu sfiómarand-
stöðunnar er m.a. að finna sósíal-
demókrata og Nýjan Vettvang,
stærsta stjómarandstöðuhóp lands-
ins. Auk Nýs Vettvangs hafa fiöl-
margir aðrir stjórnarandstöðuflokk-
ar og andófshópar sprottiö upp síðan
kommúnistar misstu völdin síðla árs
1989. Nýr Vettvangur er samstarfs-
gmndvöhur margra mismunandi
skoðana og fylkinga. Talsmenn þess
segja að ekki sé ætlunin að Nýr vett-
vangur verði formlegur stjórnmála-
flokkur en hann mun þó bjóða fram
í kosningunum.
Einn af þekktari leiðtogum komm-
únista og sá er talinn er líklegur leið-
togi flokksins í framtíðinni, Wolf-
gang Berghofer, sagði í gær að hætta
væri á frekari óstöðugleika í Austur-
Þýskalandi að afloknum maí-kosn-
Gregor Gysi, leiðtogi kommúnista i Austur-Þýskalandi, ávarpar rúmlega
eitt hundrað þúsund landa sina á útifundi gegn fasisma. Simamynd Reuter
ingunum nema stjómarandstöðu- flestum andófshópum og stjómar-
flokkamir legðu til hhðar ágreining andstöðuflokkum 1 Austur-Þýska-
sinn. Mikla togstreitu á milh róttæk- landi.
ari og íhaldssamari afla má finna í Reuter
Grænland:
Ofdrykkja helsta ástæðan
fyrir fjölda morða
Byssueign er almenn á Grænlandi vegna mikils veifliáhuga. Auðveldur
aðgangur að skotvopnum er ein af ástæðunum fyrir fjölda morða í landinu
að áliti margra.
Umræðan um stefnuna í áfengis-
málum á Grænlandi hefur blossað
upp á ný í kjölfar fiöldamoröanna í
Narsaq á Grænlandi á nýársdag.
Borgarstjórinn í Uummannaq hefur
krafist áfengisbanns um allt Græn-
land og margir grænlenskir stjóm-
málamenn taka undir þá kröfu.
Samkvæmt fréttum grænlenska
útvarpsins var það enn óljóst í gær
hvort morðinginn, sem var átján ára,
hafi haft með sér riffil þegar hann
birtist sem óboðinn gestur í sam-
kvæmi eöa hvort hann fór heim til
að ná í hann, eins og áður hefur ver-
ið haldiö fram. Alls féllu sjö manns
fyrir hendi morðingjans sem var of-
urölvi þegar hann framdi verknað-
inn. Bróöir morðingjans lifði blóð-
baðið af.
Krafan um áfengisbann er ekki ný.
Sumarið 1988 myrti maður þijá
menn í Uummannaq og þvínæst
framdi hann sjálfsmorð. Þá var sett
á áfengisbann í bænum í einn mánuð
eins og gera á í Narsaq nú. Að sögn
lögreglunnar þurfti þá ekki nema
einn lögreglumann til að sinna Uum-
mannaq en nú eiga fiórir fullt í fangi
með gæslustörf vegna mikillar
áfengisneyslu bæjarbúa.
Árlega eru framin mörg morð á
Grænlandi. Ein af helstu ástæðunum
er það hversu margir Græniendingar
verða óðir meö víni og hversu byssu-
eign er almenn, samkvæmt skoðun
Bent Jörgensen læknis. Hann hefur
um árabil starfað við sjúkrahúsið í
Narsaq.
Á síðasta áratug voru að meðaltah
tíu manns myrtir á ári á Grænlandi.
Miðað viö mannfiölda er þaö svipað
og í New York. Samkvæmt könnun
blaðsins Sermitsiaq voru átján
manns myrtir í fyrra.
Bent Jörgensen reyndi þegar 1982
að vekja athygli fiölmiðla á miklu
ofbeldi. Niðurstöður könnunar sem
hann og starfsbróðir hans gerðu á
niu mánaða tímabih sýndu að meðal
hinna tvö þúsund íbúa í umdæmi
þeirra urðu hundrað fimmtíu og átta
fyrir meiðslum af völdum ofbeldis,
eöa fiórir á viku, og í 96 prósentum
tilvikanna var árásarmaöurinn und-
ir áhrifum áfengis. Á miðju rann-
sóknartímabilinu var skömmtun
áfengis hætt og það hafði í fór með
sér 58 prósenta aukningu á heildar-
fiölda líkamsmeiðinga. Jörgensen
heldur því fram aö frá því að hann
gerði rannsókn sína hafi engar veru-
legar breytingar orðið á ofbeldis- og
áfengismálum á Grænlandi. Hann
nefnir að breytingum á þjóðfélagi
Grænlendinga sé kennt um ofbeldið
og segir að þær eigi einhvem hlut
aö máli. Hins vegar hafi þessi útskýr-
ing oröiö til þess aö áfengisvandan-
um hafi verið ýtt til hhöar.
Læknirinn bendir á að Grænlend-
ingar bregðist við á næstum geðveik-
islegan hátt þegar þeir hafa drukkið
áfengi, Grænlendingar drekki til að
verða fullir og geti ekki hætt þegar
þeir eru orðnir góðglaöir. Þeir geri
■sér síðan enga grein fyrir afleiðing-
um gerða sinna.
Samkvæmt könnuninni, sem
læknirinn gerði í Narsaq, voru 89
prósent árásarmannanna karlmenn
og þegar um pör var að ræða voru
94 prósent fórnarlambanna konur.
Veiðiáhugi Grænlendinga hefur orð-
ið til þess aö aðgangur þeirra að skot-
vopnum hefur verið næstum ótak-
markaður. Aukin útbreiðsla mynd-
manda með ofbeldi hefur einnig
stuðlað að fiölgun ofbeldisverka, að
áhti læknisins.
Ritzau