Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Qupperneq 14
14
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsinaar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SÍMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Frestað ferð til fsraels
Mike Harari var handtekinn í innrás Bandaríkjahers
í Panama. Hann var nánasti aöstoðarmaöur harðstjór-
ans Manuel Antonio Noriega. Áöur var hann yfirmaður
í leyniþjónustu ísraels og stóð meðal annars vegna mis-
skilnings fyrir morði á arabiskum þjóni í Noregi.
Annar ísraeli leitaði á náðir sendiráðs Páfastóls í
Panama. Það er Eliezer Ben Gaitan, sem var yfirmaður
hallarvarða Noriegas harðstjóra. Þessir tveir menn eru
dæmi um allmarga ísraelska leyniþjónustumenn, sem
hafa þjónustað harðstjóra í Suður- og Mið-Ameríku.
Yfirleitt standa þessir glæpamenn frá ísrael í sam-
bandi við leyniþjónustu heimalandsins. Harari var í
senn flæktur í eiturlyfjaverzlun Noriegas og milhgöngu-
maður í samskiptum Panama og ísraels. Hann er dæmi
um skaðleg áhrif ísraels á stjómmál í öðrum löndum.
Með falh Nicolae Ceausescu, harðstjóra í Rúmeníu,
missti ísrael helzta vin sinn í Austur-Evrópu. Ceausescu
var eini stjórnandinn í Austur-Evrópu, sem skiptist á
sendiherrum við stjórnendur ísraels og var mihigöngu-
maður í samskiptum ísraels við ríki Austur-Evrópu.
Stjórn ísraels hefur lagt sig fram í samskiptum við
harðstjóra af ýmsu tagi, sem hafa einangrazt á alþjóða-
vettvangi. Hún hefur sérhæft sig í vopnasölu th ýmissa
þeirra, sem fá þau trauðlega annars staðar. Fremst í
þessum hópi em stjórnendur Suður-Afríku og Eþíópíu.
Amnesty hefur reynzt góð heimild um mannréttinda-
brot víða um heim. í nýútkominni skýrslu samtakanna
um ísrael er sagt, að hermenn og öryggisverðir í ísrael
séu hvattir th að beita skotvopnum gegn vopnlausum
Palestínumönnum og þannig hvattir th manndrápa.
Þetta eru ekki nýjar harmafréttir. Á rúmlega tveimur
árum hefur að meðaltali einn Palestínumaður fahið á
degi hverjum fyrir skotvopnum ísraelsmanna. Flestir
hinna drepnu eru unghngar, sem gefið er að sök að
hafa verið með grjótkast eða munnlegan skæting.
Ofbeldi ísraels gegn Palestínumönnum kemur fram
í ótal myndum. Ef einn í fjölskyldu er grunaður um
gæzku, er jarðýtum beitt á heimili ahrar úölskyldunn-
ar. Með skattlagningu og skipulegri eyðheggingu upp-
skeru er reynt að kúga íbúana th hlýðni.
Aðferðir ísraelsmanna eiga sér nákvæma fyrirmynd
í sögu 20. aldar. Öryggissveitir ísraels haga sér eins og
Gestapó í síðari heimsstyrjöldinni og herinn hagar sér
eins og Schutzstaffeln. Hryðjuverk ríkisins hafa af-
myndað þjóðfélagið í sth Þúsund ára ríkis Hitlers.
Vaxandi meirihluti kjósenda í ísrael styður stjórn-
málaflokka, sem keyra ríkið áfram á veginum th vítis.
Það eru ekki aðeins nokkrir stjórnmálaflokkar, sem
bera ábyrgð á glæpunum, heldur ísraelska þjóðfélagið
í hehd. Það hefur látið atburðarásina spiha sér.
Aðrir þátttakendur í ábyrgðinni eru einkum Banda-
ríkin, sem áratugum saman hafa haldið ísrael uppi íjár-
hagslega og styðja það leynt og ljóst á stjórnmálavett-
vangi, þótt það valdi Vesturlöndum margvíslegum vand-
ræðum í nauðsynlegum samskiptum við heim Islams.
ísland má sem ríki ekki taka þátt í ábyrgðinni á
hryðjuverkaríkinu ísrael. Nógu vont er, að formaður
stærsta stjómmálaflokks á íslandi asnist í opinbera ferð
th glæpamannanna, þótt ekki bætist þar á ofan, að utan-
ríkisráðherra okkar sé að spóka sig hjá þeim.
Þess vegna er fagnaðarefni, að frestað skuh hafa ver-
ið sneypuför Jóns Baldvins Hannibalssonar th ísraels.
Vonandi verður henni frestað um langa framtíð.
Jónas Kristjánsson
Mikiö hefur borið á þvi nú á undan-
fomum missemm aö starfsfólk er
ráðið til starfa sem verktakar. Með
þessu er talið að tvennt vinnist,
launamaðurinn ber meira úr být-
um og atvmnurekandinn losnar
við að greiða launatengd gjöld. Oft
er gerður um þetta sérstakur
samningur og verður að ætla að
þeir sem hann gera átti sig á því
hvemig réttarstaða aðila breytist
við gerð slíks samnings. Þar sem
m.a. hafa komið upp tilvik um al-
varleg vinnuslys og ágreiningur
um skaðabætim þeirra vegna vil ég
Qalla lítUlega um verktaka og
launamenn og þær breytingar sem
verða á réttarstöðu manna þegar
þeir hætta að vera launþegar og
veröa verktakar.
I upphafi skyldi endirinn skoða - t.d. missi réttar til launa í veikinda-
og slysatilfellum, segir m.a. í greininni.
Launþegar
verktakar
Að semja sig ffá réttarbótum
Verktakar em atvinnurekendur
sem taka að sér að vinna ákveðið
verk gegn fyrirfram ákveðinni
greiðslu. Verkið er þá unnið á
ábyrgð verktakans, og er honum
ffjálst að ráða til sín starfsmenn til
að vinna það. Verktaki er meðal
annars bótaskyldur vegna galla
sem upp kunna að koma, svo og
vegna tjóns sem starfsmenn hans
kunna að valda eftir almenum regl-
um skaðabótaréttarins. Oftast er
samið um að verkið skub vinna
innan ákveðinna tímamarka.
Verktakinn framkvæmir verkið
oftast meö eigin verkfærum.
Launamenn eru aftur á móti
starfsmenn atvinnurekenda, sem
ráða sig til ákveðinna starfa með
ráðningarsamningi. Skv. honum
eiga þeir rétt á launum og um kjör
þeirra fer eftir ákvæðum kjara-
samninga. Starfsmaöur lýtur verk-
stjóm yfirmanns á vinnustað, hann
er í vinnuréttarsambandi við at-
vinnurekanda og þvi sambandi er
einungis hægt að slíta með ákveön-
rnn fyrirvara. Starfsmaðurinn not-
ar oftast verkfæri atvinnurekand-
ans við vinnuna, öryggi á vinnu-
stað er á ábyrgð atvinnurekanda.
Ýmis markatilvik geta komið
upp, og menn greinir á um hvort
þeir hafi verið ráðnir sem verktak-
ar til starfa eða launamenn. Úr
nokkrum þeirra hefur verið skorið
með dómum Hæstaréttar á undan-
fomum árum.
Full ástæða er til að vara fólk við
að ráða sig sem verktaka til starfa,
jafnvel þótt í boði séu verulega
hærri greiðslur. Barátta verkalýðs-
hreyfingarinnar á undanfömum
áratugum hefur ekki einungis
beinst að bættum launum heldur
ekki síður að bættum tryggingum.
Með svokölluðum verktakasamn-
ingum era aðilar að semja sig frá
öllum þeim réttarbótum sem samið
hefur verið um.
Réttindi launafóiks
í kjarasamningum er ekki ein-
ungis kveðið á um ákveðin lág-
markslaun, heldur er þar að finna
margvisleg ákvæði um rétt launa-
fólks. Ennfremur er víða í lögum
að finna ákvæði um réttindi launa-
fólks. Mig langar að tína til nokkur
dæmi.
Greiðsla orlofs. Skv. orlofslögum
eiga allir þeir sem starfa í þjónustu
annarra gegn launum rétt á orlofi
sem nemur tveimur dögum fyrir
hvem unninn mánuð. Orlof er að
lágmarki 10,17% ofan á laun. Sé
atvinnurekanda ókleift að greiða
orlof vegna greiðsluerfiðleika
ábyrgist ríkissjóður þessa greiðslu.
Réttur til orlofsgreiðslna fellur al-
fariö niður hjá verktökum. Þeir
verða að vera launalausir 1 sínu
sumarfríi.
Réttur til launa í sjúkdóms- og
slysatilvikum. Þessi réttur er
áunninn og mislangur eftir kjara-
samningum og starfslengd viökom-
andi. Rétturinn á fyrsta starfsári
er tveir dagar fyrir hvem unnninn
mánuð. Vegna vinnuslysa og at-
KjaUariim
Lára V. Júlíusdóttir
framkvæmdastjóri ASÍ
töku starfsmanns á sl. 12 mánuö-
um. Verktakar eiga ekki rétt á at-
vinnuleysisbótum, þar sem þeir
eru atvinnurekendur.
Lífeyrissjóður. Atvinnurekandi
greiðir 6% framlag í lifeyrissjóð á
móti 4% framlagi starfsmanns.
Með aðild að lífeyrissjóði öðlast
starfsmaður rétt til örorkubóta
vegna örorku svo og eftirlauna þeg-
ar eftirlaunaaldri er náð. Öllum er
skylt að eiga aðild að lífeyrissjóð-
um, launafólki og atvinnurekend-
um. Atvinnurekendur verða þó að
greiða iðgjald til sjóðanna sem
nemur 10% af launum.
Staðgreiðsla skatta er þegar innt
af hendi af atvinnurekanda þegar
laun era greidd til launafólks. Eftir
að atvinnurekandi hefur dregið
skatt af starfsmanni verður starfs-
„Full ástæða er til að vara fólk við að
ráða sig sem verktaka til starfa Jafnvel
þótt í boði séu verulega hærri greiðsl-
ur.
vinnusjúkdóma bætast 3 mánuðir
við áunninn veikindarétt. Vegna
veikinda bama undir 13 ára aldri
á launafólk rétt á 7 daga leyfi á ári.
Verktakar eiga engan rétt á laun-
um í veikindum. Vilji þeir tryggja
sér slíkt geta þeir keypt sér sjúkra-
tryggingar hjá tryggingarfélögum,
sem em mjög dýrar. í þeim trygg-
ingum em yfirleitt ákvæði um bið-
tíma, þannig að sjaldnast fást
greiöslur frá tryggingarfélögunum
vegna styttri veikinda. Verktakar
eiga heldur engan rétt til greiðslu
úr sjúkrasjóðum verkalýðsfélag-
anna.
Réttur til uppsagnarfrests. Rétt-
urinn er mislangur eftir kjara-
samningum og eftir starfslengd
viðkomandi. Rétturinn er gagn-
kvæmur. Starfsmenn halda laun-
um út uppsagnarfrest, jafnvel þótt
engin verkefni séu fyrir þá. Enn-
fremur halda starfsmenn launum
þótt verkefnaskortur verði dag og
dag hjá vinnuveitanda. Hjá verk-
tökum er uppsagnarfrestur enginn.
Þá daga sem engin vinna er greið-
ast engin laun.
Starfsmenn eru tryggðir vegna
vinnuslysa. Skyldutrygging at-
vinnurekanda greiðir bætur vegna
dauða, varanlegrar örorku og tíma-
bundinnar örorku starfsmanna
vegna vinnuslysa. Verktakar þurfa
sjálfir að,kaupa sér þessar trygg-
ingar.
Ríkisábyrgð á launum við gjald-
þrot. Verði atvinnurekandi gjald-
þrota ábyrgist ríkissjóður óupp-
gerð laun starfsmanna, svo og bæt-
ur vegna ráðningarslita. Launa-
kröfur em einnig forgangskröfur í
bú við gjaldþrotaskipti. Kröfur
verktaka njóta hvorki ríkisábyrgð-
ar né em forgangskröfur í bú.
Réttur til atvinnuleysisbóta.
Bótafjárhæð fer eftir atvinnuþátt-
maður gegn framvísun launaseðla
ekki krafinn aftur um skattinn,
jafnvel þótt atvinnurekandi standi
ekki skil á skattgreiðslunum í rík-
issjóð. Verktakar verða sjálfir að
standa skil á skattgreiðslum í ríkis-
sjóð.
Réttur til launa á lögbundnum
frídögum. Launafólk á rétt á laun-
um fyrir aukahelgidaga í langflest-
um tilvikum. Verktakar fá ekki
greiðslur vegna aukahelgidaga.
í upphafi skyldi...
Sem dæmi um þau atriði sem
breytast við að ráða sig sem verk-
taka má nefna:
- Missir réttar til launa í veikinda-
og slysatilvikum.
- Missir slysatryggingar.
- Missir réttar til atvinnuleysis-
bóta.
- Greiðsla 10% iðgjalds til lífeyris-
sjóðs í stað 4%
- Verktaka er sjálfum skylt að
standa skil á staögreiðslu skatta.
- Verktaka er gert að greiða launa-
skatt af eigin vinnu.
- Orlofsgreiöslur falla riiður.
- Uppsagnarfrestur fellur niður.
- Verktaki er bókhaldsskyldur
skv. bókhaldslögum og ber að
telja fram til skatts sem atvinnu-
rekandi. Honum ber í flestum til-
fellum að standa skil á greiðslu
virðisaukaskatts til ríkissjós.
Þótt í mörgum tilfellum megi
draga í efa lögmæti svokallaöra
verktakasamninga m.a. á grund-
velli ógildingarreglna samninga-
laganna tel ég fyllstu ástæðu til að
vara menn við að gera slíka samn-
inga. í upphafi skyldi endirinn
skoða og það kann að verða orðið
of seint að kaupa sínar eigin sjúkra-
og slysatryggingar þegar slysiö er
orðiö.
Lára V. Júlíusdóttir