Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990.
íþróttir
Nokkrir leikir fóra íram
í NBA körfuboltanum í
fyrrinótt. Úrslit þeirra
urðu þannig:
Atlanta-Milwaukee......113-107
Orlando-Detroit........113-115
Washington-New Jersey...110-96
Minnesota-LA Clippers....79-87
NY Knicks-Phoenix.......99-113
Dallas-Indiana.........110-106
Golden State-Utah Jazz.133-120
Portland-Miami..........119-95
Vésteinn íþróttamaður
ársins á Selfossi
Vésteinn Hafsteinsson var út-
nefndur íþróttmaður órsins 1989 á
Selfossi á verðlaunahátíð UMFS
sem haldin var 30. desember. Vé-
steinn setti á árinu nýtt glæsilegt
íslandsmet í kringlukasti þegar
hann kastaði 67,64 m og mældist
þetta kast það 5. besta í heíminum
á árinu. Önnur í kjörinu varð
Kristgerður Garðarsdóttir sund-
kona og í þriöja sæti varð Gylfi
Sigujónsson knattspyrnumaöur.
Stjóri Luton hættur
Ray Harford, fram-
kvæmdastjóri Luton í
ensku l. deildinni í
knattspyrnu, hætti í gær
störfum hjá félaginu. Harford, sem
nýlega hafði skrifað undir tveggja
ára samning við félagiö, hætti
vegna ágreinings við stjórnarform-
ann Luton. Liðinu hefur gengið iila
á keppnistímabilinu og er í næstn-
eðsta sæti deildarinnar en á síðasta
ári spilaöi liöið til úrslita í deildar-
bíkarkeppninni og tapaöi fyrir
Nottingham Forest á Wemhley.
Þoka í Mílanó
og flautaö af
Leikur AC Milan og Ver-
ona í ítölsku l. deildinni
í knattspymu í gær stóð
aðeins í 27 mínútur. Þá
skall á niöadimm þoka og dómar-
inn átti einskis annars úrkosti en
að flauta leikinn af. Honum hafði
áður verið frestaö vegna úrslita-
leiks AC Milan um heimsbikar fé-
lagsliða í síðasta mánuði.
Knattspyrnumaður í ítölsku bikarkeppninni vann
fékk hjartaáfall Roma stórsigur á Ascoli, 3-o,
ítalski knattspyrnumað- Sampdoria vann Pescara, 2-1, Bo-
urinn Lionello Manfre- logna sigraði Fiorentina, 3-2, og
donia, sem leikur með Messina og Atalanta gerðu marka-
Roma frá Italíu, var hætt laust jafntefli.
kominn um helgina þegar hann lék
með liöi sínu gegn Bologna. Manf-
redonia hné skyndilega niður á lei-
kvellinum og hjartað hætti að slá.
Leikmenn og læknir Roma voru
fljotir aö átta sig og hófu þegar í
stað hjartahnoð og blástursaðferð.
Manfredonia var þegar í stað flutt-
ur á sjúkrahús til aðhlynningar og
þar var hann fljótur að ná sér en
hann mun þó ekki leika knatt-
spymu í bráð. Mjög kalt var í veðri
á meðan leiknum stóö og er þaö
talin ein af orskökunum hvemig
fór fyrir Manfredonia, sem er 33
ára og fyrrverandi landsliðsmaður
ítala í knattspymu.
Ásmundur iþróttamaður
ársins á Húsavík
Ásmundur Arnarsson var á dögun-
um útnefndur íþróttamaður ársins
1989 á Húsavík. Ásmundur er fjöl-
hæfur því hann leikur í meistara-
flokki Völsungs í knattspyrnu og í
handknattleik.
Sigur hjá Dundee United
Dundee United vann þýðingarmik-
inn sigur á Dunfermline, 1~0, í
skosku úrvalsdeildinni I knatt-
spyrnu í gærkvöldi, og komst þar
með í betri fjarlægð frá neöstu hð-
um deildarinnar.
Unglingameístaramót
TBR um helgína
r—■— Unglingameistaramót
TBR í badminton verður
haldið í húsum félagsins
um helgina, 6. og 7. jan-
úar. Keppni hefstkl. 13.30 á laugar-
dag og verður fram haldiö kl. 10 á
sunnudag. Keppt veröur í öllum
greinum og flokkum unglinga,
fæddum 1. september 1971 og síöar,
ef næg þátttaka fæst. Þátttökutil-
kynningar skuiu berast í síðasta
lagi kl. 12 á hádegi á morgun, fóstu-
dag.
París Dakar rallið:
Erfiðasta akst-
urskeppni heims
- 597 áhafnir taka þátt að þessu sinni
Á sama tíma og flestir íslendingar
voru að plokka hangikjötsleifarnar
úr tönnunum lögðu 597 áhafnir af
stað í erfiðustu þolaksturskeppni
veraldar, París Dakar ralliö sem
hófst í París á jóladag. Þessi rall-
keppni er rúmlega þrettán þúsund
kílómetra löng og liggur um mörg
erfiðustu landsvæði heimsins.
Eftir eina stutta sérleið skammt frá
París liggur leið kappanna með feij-
u(m?) yfir til Líbýu þar sem þeir
verða að þvælast um Sahara eyði-
mörkina með áttavita til leiðsagnar
og sandpappír í stað landakorts.
Þeirra sem tekst að ljúka við þá
mannraun bíða ekki neinir glæsidag-
ar því í hönd fara erfiðir dagar þar
sem ekið verður víðsvegar um Áfr-
íku. Má þar nefna lönd eins og Niger-
iu, Chad, Mali, Máretaníu og Seneg-
al.
Miðað viö fyrri reynslu af þessari
rallkeppni má reikna með að það
verði innan við 100 áhafnir sem kom-
ast í endamark þann 16. janúar. Það
er fyrirfram vitað að þessi rallkeppni
verður einvígi tveggja bílaframleið-
enda, Peugeot og Mitsubishi. Báðir
þessir bifreiðaframleiðendur leggja
ofurkapp á að tryggja sér sigur í rall-
inu og gulltryggja með því stóraukna
sölu á bílum sínum.
Peugeot etur fram fjórum súperbíl-
um af gerðinni Peugeot 405 T16.
Fransmennirnir hafa sigrað í keppn-
inni fjórum sinnum og hyggjast
halda sigurgöngunni áfram. Finninn
fljúgandi, Ari Vatanen, hefur sigrað
þrisvar sinnum og veðbankar spá
honum sigri að þessu sinni.
En það er víst að Mitsubishi menn
eru því ekki sammála því að þeir
hafa með mikilli leynd smíðað öfluga
Pajero jeppa sem eiga víst fátt sam-
eiginlegt með virðulegum forstjóraj-
eppum er hér aka um götur. Jap-
anska liðið segist eiga mesta mögu-
leika á sigri síðan árið 1985 en þá
vann það sætan sigur. Besti ökumaö-
ur þeirra er gamall skoskur refur,
Andrew Cowan, sem hefur mesta
reynslu allra núlifandi jarðarbúa af
rallkeppnum. Hann er kominn vel á
sextugsaldur og hefur haft lifibrauð
sitt af rallakstri í nær 40 ár. Hann
býr yfir sérstakri tækni sem engum
hefur tekist að leika eftir en það er
að hann getur sofið meö öðru auganu
í einu og geti ekið á fullu með hitt
augað vakandi á eyðimerkurslóðun-
um.
París Dakar ralliö er óskapleg þol-
raun á áhafnir og ökutæki og hefur
verið gagnrýnt harðlega undanfarin
ár því það hefur tekið mikinn toll af
keppendum. Hafa orðið nokkur
dauðaslys 1 keppninni á undanfórn-
um árum, sérstaklega þó eftir að bíla-
framleiðendur hófu þáttöku og
keppnisharkan jókst til mikilla
muna. Á bemskudögum París Dakar
rallsins fyrir tólf árum var lítið um
raunverulegan kappakstur því í þá
daga þetta var meira ekið sem skipu-
lögð skemmtiferð auðugra ævintýra-
manna.
-ás/bg
Gunnar tryggði sigurinn
- þegar Ystad lagði Lugi 1 gærkvöldi
Gunnar Gunnarsson tryggði Ystad
dýrmætan sigur á Lugi, 23-21, í
sænsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í gærkvöldi. Mikill hasar var
undir lokin, Lugi lék „maður á
mann“ og freistaði þess að ná boltan-
um og jafna, en Gunnar einlék þá í
gegnum vörn liðsins og skoraði síð-
asta mark leiksins. Hann geröi fimm
af mörkum Ystad í leiknum.
Gunnar var á dögunum valinn til
að leika með „pressuliði" gegn
sænska landsliðinú, og fyrir leikinn
var hann valinn fyrirliði pressuliðs-
ins af leikmönnum þess. Landsliðið
vann eftir mikla baráttu, 26-24, og
gerði Gunnar eitt mark í leiknum.
-VS
• Félag meistaraflokkskylfinga á ísland
asta keppnistímabil. Félagar í FMÍ völdu
asta. Þeir eru í fremri röð á myndinni, f
son, GR, sem var valinn sá vinsælasti,
Jónsson, GK, sem var kylfingur ársins í
félags, en fyrir aftan standa gefendur ve
Undirbúnii
skorðum e
- gerum ráð fyrir að þí
„Við höfum ekkert heyrt frá Rúmen-
um og erum að leita leiða til að ná sam-
bandi við handknattleiksforystuna þar í
landi. En við gerum fastlega ráð fyrir
því að þeir mæti hingað með landsliö
sitt dagana 10.-12. febrúar, enda þurfa
þeir ekki síður en við nauðsynlega á
undirbúningi að halda fyrir heimsmeist-
arakeppnina,“ sagði Guðjón Guömunds-
son hjá Handknattleikssambandi fs-
lands í samtali við DV í gærkvöldi.
Ríkisútvarpið skýrði frá því í gær aö
Hver verður útnefndur í|i
- DV kynnir tíu efstu menn 1 kjörínu en einn þeirra
Alfreö Gíslason
Leikmaður með íslenska landsliðinu
í handknattleik og spænska úrvals-
defldarfélaginu Bidasoa. Var kjörinn
besti leikmaður B-keppninnar í
Frakklandi og einnig besti leikmaður
íslensku 1. deildarinnar í handknatt-
leik 1988-89, en þá lék hann með KR.
Alfreð er ofarlega á blaði yfir marka-
hæstu leikmenn spænsku úrvals-
deildarinnar á yfirstandandi keppn-
istímabili.
Arnór Guðjohnsen
Var að mestu úr leik fyrri part ársins
vegna meiðsla en hefur bætt það upp
með frábærri frammistöðu með liði
sínu, Anderlecht í Belgíu, það sem
af er núverandi keppnistímabili.
Hann hefur þótt jafnbesti leikmaður
Anderlecht sem er efst í belgísku 1.
deildinni og komið í 8 liða úrslit Evr-
ópukeppni bikarhafa. Arnór lék tvo
síðustu leiki íslands í undankeppni
HM í haust.
Asgeir Sigurvinsson
Er að leika sitt sautjánda og væntan-
lega síðasta keppnistímabil sem at-
vinnumaður en hefur sjaldan veriö
betri en á árinu 1989. Lék með Stutt-
gart til úrslita um UEFA-bikarinn
síðasta vor en þar beið félagið lægri
hlut gegn Napoh frá Ítalíu eftir tvo
leiki. Ásgeir lék sinn 45. landsleik
þegar ísland mætti Tyrklandi í sept-
ember og átti þar dijúgan þátt í góð-
um sigri.
Bjarni Friðriksson
Hefur veriö í sérflokki meðal ís-
lenskra júdómanna í rúman áratug
og stóð sig mjög vel, innanlands sem
utan, á árinu 1989. Hann hlaut tvenn
gullverðlaun á opna skandinavíska
meistaramótinu og ein á smáþjóða-
leikunum á Kýpur, bronsverðlaun á
opna skoska meistaramótinu, missti
naumlega af bronsi á Evrópumeist-
aramótinu og varð í 7. sæti á heims-
meistaramótinu.
Einar Vilhjálmsson
Enn í hópi fremstu spjótkastara
heims og vann á mörgum alþjóðleg-
um mótum á árinu 1989. Hann var
með í baráttunni um efstu sætin í
Grand Prix-mótunum og stóö að lok-
um uppi í flmmta sætinu. Lengst
kastaði Einar 84,50 metra þegar hann
vann Grand Prix-mót í Malmö, og
það var fimmti besti árangurinn í
heiminum á árinu. Hann er núver-
andi handhafi titilsins íþróttamaöur
ársins.