Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1990, Page 28
36 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990. Andlát Þröstur Leifsson, Þórufelli 16, Reykjavík, lést 1. janúar. María Tómasdóttir lést í Landa- kotsspítalanum 3. janúar. -r- Regine Dinse, Islandhaus, lést í Seni- orenheim Edelweiss St. Peter-Ording á nýársnótt. Ingveldur J. R. Pálsdóttir, Þórsgötu 2, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum að morgni 30. desember. Bragi Þór Guðmundsson frá Sjónar- hóh, Grindavík, lést 2. janúar í Borg- arspítalanum. Jarðarfarir Hólmfríður Ingimundardóttir lést 23. desember. Hún fæddist á Snartar- stöðum í Presthólahreppi í Norður- Þingeyjarsýslu 11. mars 1918. For- eldrar hennar voru Ragnheiður Reg- ína Vigfúsdóttir og Ingimundur Hall- dórsson. Hómfríður giftist Runólfi Elíneussyni en þau skildu eftir fimm ára sambúð. Hólmfríður stundaði lengst af afgreiðslu- og verslunar- störf eða í nærfellt 30 ár, lengst í Hagkaupi í Skeifunni. Útfór hennar. verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Eygerður Pétursdóttir lést 27. des- ember. Hún fæddist í Reykjavík 30. júní 1942, dóttir hjónanna Péturs Guðmundssonar og Ástu Daviðs- dóttur. Að loknu gagnfræðaskóla- námi stundaði Eygerður nám við Húsmæðraskólann að Varmalandi í Borgarfirði en eftir það hóf hún fljót- lega störf við iðnað og þá aðallega við bókagerð í prentsmiðjum, sem hún vann við lengst af síðan, allt til dauðadags. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Benedikt Eiríksson. Þau hjónin eignuðust tvö börn. Útför Eygerðar verður gerð frá Seltjarnar- neskirkju í dag kl. 15. Kristján Guðjónsson lést 22. desemb- er. Hann fæddist 17. nóvember 1911 í Skaldarbjamarvík viö Geir- ólfsgnúp. Foreldrar hans vom hjónin Anna Jónasdóttir og Guðjón Kristj- ánsson. Eftirlifandi eiginkona Kristj- áns er Jóhanna Jakobsdóttir. Þau Merming Áramótadjass Daginn fyrir gamlársdag var haldin djasshátíð í sal tónlistarskóla FÍH og komu þar fram flest- ar, ef ekki allar, djasshljómsveitir sem starfandi em í Reykjavík. Tómas R. Einarsson og félagar hófu leikinn með tveimur lögum af hljómplötunni „Nýr tónn“. Þeir eru orðnir vel samanspilaðir og húlaboppið var hressilegt. Því næst steig á svið- ið (sem vonandi verður komið í gagnið næst) hljómsveit Carls Möllers ásamt söngkonunni Andreu Gylfadóttur. Þau fluttu lögin „Satin Doll“ og „Lady Be Good“. Andrea virðist hafa góða tilfinningu fyrir djasssöng en impróviser- aði kannski örlítið meira af kappi en forsjá í síðara laginu. Guömundarnir Ingólfs- og Steingrímsson mættu svo til leiks með þeim félögum Gunnari Hrafnssyni og Stefáni S. Stefánssyni og fluttu tvö lög eftir Ingólfsson. Þeir fóru á kostum í „One for Mr. Silver“, fallegu lagi sem tileinkaö er píanistanum Horace Silver. Það gneistaði hreinlega af firnagóðu píanósólói sem aö sjálf- sögðu var skyldara Mr. Ingólfsson en Mr. Sil- ver, þótt andi síðarnefnda herrans svifi yfir lag- inu. Dúndrandi kraftur Ellen Kristjánsdóttir og flokkur mannsins hennar(semereiginlegaMezzoforte + Sigurður Flosason) vora þá á dagskrá. „Easy Street“ hljómaði vel og lag eftir Parker í eins konar bop/funk útgáfu var alveg þrælskemmtilegt og leikiö af dúndrandi krafti. Varla auðvelt lag að syngja en Ellen fór vel með það, sem og aðrir í flokknum. Það er gaman til þess að vita aö fram á sjónarsviðið eða heyrnarsviöið eru nú komnar hvorki meira né minna en tvær söngkonur sem flnnst ástæða til að reyna sig við djassmúsík og gera það með nokkuð góðum árangri. Báðar hefðu þær þó mátt huga aö því á þessum hljóm- leikum aö hörfa aðeins frá hljóðnemanum þegar raddstyrknum var beitt sem mest. Djass Ingvi Þór Kormáksson Þá var það gestur frá Svíþjóð sem lét í sér heyra. Halldór Pálsson er að visu eins íslenskur og jólahangiket, að því er ég best veit, en hefur undanfarin ár búiö og starfað í Svíþjóð og m.a. leikið þar með stórsveit Leifs Kronlunds. Halld- ór lék ásamt félögum lögin „Nica’s Dream“ eftir áðurnefndan Mr. Silver, „The Trouble with Hello Is Goodbye" eftir Dave Grusin og „Nostal- gia in Times Square“ eftir Mingus. Hina rómant- ísku ballöðu Grusins blés Halldór listavel eins og við var að búast og fór síðan mikinní Ming- usi með þennan mjúka tón á altóinn. Ánægju- legt að fá að heyra í kappanum. Spilað með höfðinu Kvartett Reynis Sigurðssonar og Friðriks Karlssonar (sem reyndar var kvintett hér) hefur leikið m.a. í listasöfnum og bókasöfnum. Menn- ingarleg hljómsveit sem sé, ef svo má taka til orða, sem höfðar ef til vill stundum meira til höfuðsins en hjartans líkt og Tómas og co. Lag- ið eftir Pat Metheny var flott og féll í góðan jarð- veg. - Það var óvenjulegt og ánægjulegt að sjá og heyra á sömu tónleikunum tvo helstu víbra- fónleikara landsins, þá Árna Scheving og Reyni Sig. Kynnirinn kallaði reyndar hljóðfæri þeirra ýmist bifhörpu eða krómatíska dyrabjöllu. Lokaatriði tónleikanna var svo kennarasam- kundan, Tentett FÍH, sem flutti þrjú lög eftir Jukka Linkola. Fínar útsetningar og fín spila- mennska. Hafíð þökk fyrir. Pétur Grétarsson fékk ekki að spila með þenn- an dag, að eigin sögn, en impróviseraði í staöinn rækilega í kynningum sínum og þyngdi síður en svo andrúmsloft staðarins. Hljómleikunum verður svo útvarpað síðar á rás tvö. -IÞK Andrea Gylfadóttir og Ellen Kristjánsdóttir: tvær söngkonur í jasshugleiðingum. hjónin eignuðust níu börn. Utför Kristjáns verður gerð frá ísafjarð- arkapellu í dag kl. 14. Gunnar Ásgeirsson, Krosseyrarvegi 11, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju á morgun, fóstu- daginn 5. janúar, kl. 13.30. Unnur Ósk Ásmundsdóttir, áður til heimihs á Austurbrún 4, Reykjavík, sem lést í Hrafnistu, Hafnarfirði, 20. desember sl„ verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fóstudaginn 5. jan- úar nk. kl. 15. Rebekka Sverrisdóttir byggingar- verkfræðingur, fædd 19. október 1954, lést í Kaupmannahöfn 30. des- ember sl. Mary A. Friðriksdóttir frá Gröf, Vest- mannaeyjum, sem andaðist á sjúkra- húsi Vestmannaeyja 23. desember, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, fóstudaginn 5. janúar. Thordur Johnsen er látinn. Jarðar- forin hefur farið fram. Sigurður Oddur Sigurðsson, Háaleit- isbraut 56, stöðvarstjóri við Elliðaár, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju í dag, 4. janúar, kl. 13.30. Benedikt Sveinbjarnarson, Lyng- brekku, Biskupstungum, áður til heimilis að Austvaðsholti, Landsveit, sem andaðist 29. desember, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju, Mosfellsbæ, laugardaginn 6. janúar kl. 14. Daníel Vestmann, Alfhólsvegi 4, Kópavogi, sem andaðist 22. desember 1989, verður jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju föstudaginn 5. janúar kl. 13.30. Dagbjört Eiríksdóttir fóstra, Klepps- vegi 120, Reykjavík, andaðist á gjör- gæsludeild Borgarspítalans aðfara- nótt31. desember. Jarðsungið verður frá Áskirkju miövikudaginn 10. jan- úar kl. 15. Tilkyimingar Áhugafólk um dans og dansmennt Fundur verður haldinn í kvöld, funmtu- dagskvöld, í Risinu, Hverfisgötu 105, ki. 20.30. Húnvetningafélagið Félagsvist spiluð nk. laugardag, 6. jan- úar, kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir. Tapað fundið Páfagaukur tapaðist Grár páfagaukur með hvítan gogg flaug út um gluggann á Austurbrún 2 30. des- ember sl. Ef einhver veit hvar hann er niðurkominn er hann vinsamlegast beð- inn að láta vita í sima 36790 eða 31217. Köttur týndur frá Hlíðargerði Svart fress með hvíta sokka týndist frá Hlíðagerði 20 29. desember sl. Ef einhver hefur orðið var viö hann eða veit hvar hann er niðurkominn er hann vinsam- legast beðinn að hringja í síma 83979. Tónleikar Tónleikar í Norræna húsinu Sönghópurinn Emil ásamt Önnu Siggu verður með tónleika í Norræna húsinu í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Ásdís Kristmundsdóttir sópran- söngkona. Leiðrétt- ing á rit- dómi um jólatón- leika Þau leiðu mistök urðu í ritdómi undirritaðs um jólatónleika í Hall- grímskirkju þann 28. desember síð- asthðinn að nöfn þeirra Ásdísar Kristmundsdóttur og Mörtu Hall- dórsdóttur víxluðust. Áskell Másson. Olafur Ingi Jónsson - minning Við útgáfu dagblaðs þarf að hafa hraðar hendur. Þar þurfa að vinna saman sem einn maður blaða- menn, prentarar og aðrir þeir sem eru hlekkir í þeirri keöju sem stendur að stóra og útbreiddu blaði. Einn traustasti hlekkurinn í DV-keðjunni var Ólafur Ingi Jóns- son, prentsmiðjustjóri Frjálsrar fíölmiðlunar hf. Þar fór maöur sem kunni sitt fag. Það vissu reyndar flestir fyrir. OM Ingi var bæði gam- all og nýr kunningi og samstarfs- maður. Hann hóf nám í prent- smiðju Vísis í maí 1963 og tók sveinspróf árið 1967. Þar vann hann allt til ársins 1972 er fjögur blöö sameinuðust um rekstur Blaðaprents. Óh Ingi var verkstjóri í Blaða- prenti um árabil en kenndi jafn- framt við Iðnskólann og gerði áfram. Um tíma starfaði hann að innflutningi á tölvuútbúnaði hjá fyrirtækinu ACO en árið 1984 réðst Kveðja frá DV Ólafur Ingi Jónsson. hann til starfa sem prentsmiðju- stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar hf. og gegndi því starfi til dauðadags. Þar naut sín yfirburðaþekking Óla Inga þegar bæði prentsmiðja og ritstjóm tæknivæddust með nýjum tölvubúnaði og var hann í þeirri forystusveit sem bar hita og þunga þeirra miklu breytinga. Umfram aht var þó Óh Ingi ljúfur samstarfsmaður, kappsamur, út- sjónarsamur og léttur í lund. Hon- um uxu ekki verkefnin í augum, hann var boðinn og búinn til aö leysa hvern vanda, skemmtilegur í umgengni, jákvæður, brosmildur og hvers manns hugljúfi. Nú er skarð fyrir skildi þegar hlekkurinn er brostinn, þegar dauðinn hefur hrifsað þennan unga og lífsglaöa mann til sín. Hans er sárt saknað á yinnustaö. Útgáfuráð DV, starfsfólk fyrir- tækisins og alhr vinir hans á rit- stjórn og öðrum deildum þakka honum samfylgdina og senda fjöl- skyldu Óla Inga sínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.