Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 9
9 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990. Þær velj a Nýtt tískufyrirbrigði í heimi þekktra og frægra kvenna er að ná sér í elskhuga sem er minnst tíu árum yngri. Þessir menn hafa fengið á sig stimpilinn „leikfélagar" en sam- bönd þessi virðast oft á tíðum blómstra svo að úr verði hjónabönd. Það er sem sagt ekki lengur að aðeins karlar nái í yngri konur, nú hefur dæmið sannarlega jafnast ef ekki snúist við. Þessar rosknu konur láta helst ekki lengur sjá sig með jafn- öldrurn eða eldri mönnum - það er nefnilega staðfesting þess að þær séu ekki lengur unglegar - eða það skyldi maður ætla. Svokallaður grái fiðringur hefur tíðkast hjá karlpeningnum svo lengi sem elstu menn muna og sálfræðing- ar skilgreina hann þannig að þeir menn sem fái þennan „fiðring" þoli ekki að eldast og vilji sýnast yngri með því að ná sér í yngri konur. Spurningin er því sú hvort konur séu famar að fá þennan „Ððring“ lika. Dæmin um konumar frægu sem sýna sig einungis með yngri mönn- um eru í öllum tilfellum svipuð; þær eru yfir fertugt, fallegar og ákaflega Það eru tólf ár á milli Lindu Gray og Patrick Markey. ánægðar með lífið eða svo sýnist að minnsta kosti. Nefna má nokkur dæmi um frægar konur sem ná sér í leikfélaga. Fræg- ust er Joan Collins en það er ekkert nýtt að hún nái sér í yngri menn. Joan er 56 ára gömul og nýjasti herr- ann hennar Robin Hurlstone er 29 ára. Jane Fonda hefur einnig yngt Sviðsljós sér yngri menn Yoko Ono sést oft í fylgd Paris sem er tuttugu árum yngri. upp, sjálf er hún 53ja ára og félaginn, Lorenzo Caccialanza, er 35 ára. Zsa Zsa Gabor er 73ja ára og reynd- ar náði hún ekki beint í unglamb en þó miðað við eigin aldur því kærast- inn er um fimmtugt. Rachel Walchs skildi fyrir ekki löngu við ektamak- ann og náði sér í einn þrítugan en sjálf er hún 45 ára. Ali McGraw er 51 árs og samfylgdar- maður hennar, Rod Streicher, er 25 ára. Linda Evans, 47 ára, náði í Yanni 32ja ára. Þær eru kræfar Dynasti- konurnar. Yoko Ono, sem er 56 ára, hefur alloft sést í fylgd herramanns- ins Paris sem er 37 ára að undan- förnu. Frægt er samband Tinu Turn- er, sem er fimmtug, við Edwin Bac sem er 34ra ára. Ali McGraw, sem fræg varð fyrir leik sinn í Love Story, er orðin 51 árs en fylgdarmaður hennar um þessar mundir er Rod Streicer, 25 ára. Reyndar er Ah löngu orðin þekkt fyrir sambönd sín við yngri menn og skiptir oft um. Olivia Newton John gerði allt vitlaust á sínum tíma með John Travolta. Fylgdarsveinn hennar heitir Matt Lattanzi og er 32ja ára. Ekki var sambandi Britt Ekland, 45 ára, við Slim Jim, 28 ára, talið eiga eftir að endast lengi. Raunin hefur orðið önnur og nú eiga þau saman ársgamlan son. Linda Gray, 48 ára, fræg sem Sue Ellen í Dallas, á sér engan einn fastan vin heldur fer með þeim yngri út eftir því sem henni dettur í hug. Einn þeirra er Patrick Markey, 36 ára. Ursula Andress er 54 ára og nýjasti elskhugi hennar heitir Fausto og er 24ra ára. Jac- queline Bissett er 45 ára og hennar leikfélagi, Vincent Perez, er 27 ára. Af þessu má sjá að allmargar leik- konur velja sér mun yngri menn og maður verður að vona að þeir séu ekki bara með þessum konum pen- inganna og frægðarinnar vegna. MATSEÐELL Villibráðarsúpa með portvínsstaupi Léttsteikt lambafillet með koníaksrjómasósu ÞAR SEM FJÖRIÐ ER MEST SKEMMTIR FÓLKIÐ SÉR BEST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.