Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 29
lAUCARÐAGlJK -20) JAJS'ftA^ -19?0-
i41
LífsstHL
Séð yfir skíðasvæðið á Seljalandsdal.
Seljalandsdalur:
„Það er víða orðið ágætt skíðafæri
hér á Seljalandsdal viö ísafjaröar-
djúp. Snjódýptin er i kringum 20 cm
en sumstaðar eru auöir blettir eða
nibbur sem standa upp úr snjón-
um,“ segir Hafsteinn Ingólfsson,
umsjónarmaður skíðasvæðisins.
„Við opnuðum eina lyftu um síð-
ustu helgi svo og barnalyftuna, um
þessa helgi stefnum við á að opna
tvær lyftur til viðbótar. Ef það tekst
verður allt komið í fullan gang hér
um helgina.
Lengsta lyftan hér er 1250 metrar
en fyrir ofan hana er önnnur 630
metra löng, þaö er því hægt að
rennna sér tæpa 1900 metra niður á
jafnsléttu. Þriðja lyftan er svo á milii
800 og 900 metrar að lengd,“ segir
Hafsteinn
Stutt úrbænum
Heilsdagslyftukort kostar 700
krónur fyrir fulloröna en hálfsdags-
kort kostar 400 krónur. Barnakort
kostar 300 krónur fyrir daginn en 200
krónur fyrir hálfan daginn. Vetrar-
kort kostar 8.250 krónur fyrir full-
oröna en 4000 krónur fyrir böm.
Þaö er tæplega tíu mínútna akstur
frá kaupstaðnum á skíðasvæðið. í
vetur munu rútur fara á milli á
klukkutíma fresti virka daga en um
hélgar verða ferðimar aöeins stop-
ulh.
Á Seljalandsdal er gamall skíða-
skáli og þar eru seldar léttar veiting-
ar auk þess sem þar er gistiaðstaða
fyrir um 40 manns í svefnpokapláss-
um og kostar gistingin 500 krónur
fyrir manninn.
Skíðakennsla
„Það verður skíðakennsla hér á
daginn fyrir börn og unghnga en á
kvöldin fyrir þá sem eru orðnir fuh-
orðnir og vilja læra á skíðum. Við
erum hins vegar svo nýbúnir að opna
aö við emm ekki alveg búnir að
skipuleggja hvemig viö háttum
skíðakennslunni.
Við voram nokkuð ánægðir með
aðsóknina á skíðasvæðið í fyrra.
Hingað kom þónokkur Ijöldi fólks úr
öðmm landshlutum til að fara á
skíði. Það eina sem setti strik í reikn-
inginn var veörið, sérstaklega um
helgar," segir Hafsteinn.
Helgarpakkar
Hótel ísafjörður mun í samvinnu
við Flugleiðir bjóða upp á helgar-
pakka til Ísaíjarðar í vetur líkt og
undanfarin ár. Helgarpakkinn kost-
ar 11.300 krónur og innifalið í verði
er flug, gisting í tvær nætur og morg-
unverður, aukanótt kostar 2.800
krónur. Ef ekki er farið í pakkaferð
heldur flugfar og gisting keypt í sitt-
hvoru lagi þá kostar eins manns her-
bergi á Hótel ísafirði 4.400 krónur og
tveggja manna herbergi kostar 5.600
krónur.
Flugfar fram og til baka til ísafjarð-
ar kostar 9.046 krónur en auk þess
er hægt að fá afsláttarmiða. Apex
miði kostar 5.547 krónur og pex far-
gjald kostar 7.296 krónur. Afsláttar-
miðarnir em ýmsum skilyrðum háð-
ir svo sem aö bóka verður þá með
ákveðnum fyrirvara og greiða og
þeir gilda ekki alla daga vikunnar.
J.Mar
Skíðasvæði Evrópu:
Skíðamenn orðnir langeygðir eftir snjó
Víða er enn snjólítið á skiðasvæðum í Evrópu. Myndin er frá Adelboden í Sviss en þar örvænta menn yfir
snjóleysi þessa dagana.
Astandið á skíðasvæðunum í
Austurríki hefur lítið skánað frá
síðustu viku og raunar var svo
hlýtt á mörgum skíðasvæðanna aö
snjó tók upp. í Kitzbúhel fer fram
um helgina heimsbikarmót í bmni
en vegna snjóleysis hefur þurft að
flytja snjó á þyrlum th að fylla upp
í keppnisbrautina. Hefur það kost-
að um 72 milljónir íslenskra króna
og þykir mörgum nóg um. Fyrr í
vikunni ætluðu nokkrir keppendur
í heimsbikarmótinu í bruni að nota
tímann th æfinga í Kitzbúhel en
hættu við þar sem aðstæður th
æfmga voru miög slæmar. Einung-
is á þeim skíðasvæðum sem hæst
standa er þokkalegt skíðafæri.
Bad Kleinkircheim: Snjóþykkt í dal
og skíðabrekkum 40 cm. Ágætt
skíðafæri og færar gönguskíða-
brautir 3 kílómetrar.
Anton/Arlberg: Snjóþykkt í daln-
um er 30 cm, í skíðabrekkunum 75
cm. Mögulegt er á stöku stað að
renna sér ofan úr efstu hhðum og
niður á jafnsléttu. Skíðafæri í daln-
um er fremur slæmt en gott efst í
brekkunum. Opnar gönguskíða-
brautir 22 kílómetrar.
Lech:Snjótdýpt í dal 25 cm, í skíða-
brekkunum 50 cm. Sums staöar
þokkalegt skíðafæri. Opnar göngu-
skíöabrautir 4 km.
Sviss
Skíðafærið í Sviss hefur htið
skánað frá síðustu viku og á nokkr-
um skíðasvæðanna em lyftur enn
lokaðar vegna snjóleysis.
Arosa: Snjóþykkt í dal 20 cm, í
skíðabrekkunum 30 cm. Skíðafæri
slæmt neðst í brekkunum en skán-
ar eftir því sem hærra dregur.
Færar göngubrautir 24 khómetrar.
Sas-Fee:Snjóþykkt á jafnsléttu 5
cm en 70 cm í brekkunum og þar
er gott skíðafæri. Ekki hægt að
renna sér ofan úr efstu hhðum og
niður á jafnsléttu.
Frakkland
Frakkar em orðnir langeygðir
eftir snjó í frönsku ölpunum en líkt
og í Sviss og Austurríki hefur
skíðafærið ekkert skánað að und-
anfömu og eins og á fyrmefndu
stöðunum er einungis hægt að fara
á skíði á stöðum sem standa hátt
yfir sjávarmáli.
Alpe d’Huez Snjóþykkt í dal 10
cm, í skíðabrekkum 50 cm. Hvergi
hægt að renna sér ofan úr efstu
brekkum niður á jafnsléttu en
skíðafæri gott efst í brekkunum.
Færar gönguskíðabrautir 12 km.
Val d’Isére: Snjóþykkt í dal 10 cm
en 40 cm efst í skíðabrekkunum.
Skíðafæri í neðri brekkunum
slæmt en gott eftir því sem hærra
dregur. Færar gönguskíðabrautir
10 km.
Italía
Það er búið að opna skíðalyftur á
stöku stað á Ítalíu. Skíðafærið er
þó víða slæmt og einungis á fáum
stöðum hægt að renna sér úr efstu
hlíðum niður á jafnsléttu. Nær alls
staðar er slæmt gönguskíðafæri.
Courmayer: Snjóþykkt 15 cm á
jafnsléttu, 50 cm í skíðabrekkun-
um, skíðafæri sæmhegt.
Gröden: Snjóþykkt í dal 5 cm, í
skíðabrekkunum 40 cm. Skíðafæri
þokkalegt í brekkunum.
Livingo: Snjóþykkt í dal 30 cm, í
brekkum 120 cm, hægt að renna sér
úr efstu hlíðum og niður á jafn-
sléttu, skíðafæri með ágætum.
Færar gönguskíðabrautir 30 km.
Þýskaland
Það snjóaði ofurhtið á sumum
skíðasvæðanna í Þýskalandi í hð-
inni viku, þrátt fyrir það er víða
lítih snjór og ekki útlit fyrir aö
ástandið skáni í þessari viku.
Zugspitze: Snjóþykkt 115 cm, skíða-
færi gott, sjö lyftur opnár.
Oberstordorf:Snjóþykkt í dal 5 cm,
í skíðabrekkunum 50 cm. Skíöafæri
í brekkum ágætt en versnar eftir
því sem neðar dregin-. Færar
göngubrautir 35 km.
Bodenmais:Snjóþykkt í dal 20 cm,
í brekkum 30 cm. Skíðafæri þokka-
legt, færar gönguskíðabrautir 40
km.