Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 20. JANUAR Í990. 19 8í Vil vinna sjálfstætt - segir Guðrún Hrund Sigurðardóttir fatahönnuður „Það gagnar ekkert að bíða eftir tækifærunum. Maður verður ein- faldlega að koma sjálfum sér á fram- færi til að hlutimir skili sér,“ segir Guðrún Hrund Sigurðardóttir fata- hönnuður. Nýverið efndi Guðrún til tískusýningar á Holiday-Inn og fékk mjög góðar viðtökur. „Ég stefndi allt- af að því að vinna sjálfstætt og get það núna.“ Sýndi í London Guðrún er handavinnukennari frá KHI, lauk síðan prófl frá Köben- havns Mode og Design Skole í vor og fluttist heim skömmu síðar. í fyrra tóku norrænir nemar í fata- hönnun, en þeir stunda nám sitt víðs hönnun. Mikill tími færi í undirbún- ingsvinnu áður en flíkin yrði til í sinni endanlegu mynd. „Eftir að hugmynd kviknar þarf að teikna hana niður á blað, gera snið og sauma síðan flíkina úr lérefti. Léreftsflíkin er þaulprófuð og athug- að hvernig hún „funkerar“. Lérefts- flíkina þarf jafnvel að sauma úpp aftur og aftur áður en hún kemst í endanlegt horf. Síðan er flíkin saum- uð úr því efni sem henni var ætlað og þá er hún fyrst tilbúin.“ Guðrún segist helst hanna föt sem hafa sem mest notagildi fyrir eigand- ann. Það að vita að viðkomandi flík sé notuð og eigandinn ánægður sé fyrir mestu. „Auðvitað er gaman að velta upp alls konar hugmyndum að fatnaði sem ekkert notagildi hefur en það verður aldrei nema hugmynd á blaði hjá mér. Helst vil ég vinna með vönd- uð efni en þá gefur augaleið að flíkin verður dýrari. Það vilja margir kaupa dýrari og vandaðri fatnað sem endist vel frekar en ódýra íjölda- framleiðslu." Guðrún saumar fötin sjálf en segist hugsanlega geta ráðið til sín aðstoð- armann ef svo heldur fram sem horf- ir. Hún er bjartsýn á framtíðina enda ekki ástæða til annars, segir hún. En hannar hún og saumar sín eigin föt? Guðrún hlær við og svarar að bragði: „Það er nú það. Síðan ég fór að sauma fyrir aðra hef ég minni tíma til að sauma á mig og bömin." Sitt jerseypils og peysa úr sama efni. f Skissa eftir Guðrúnu Hrund. Víð kápa úr ullarkrepi, blússa úr siffoni og pils úr bómullarjerseyi. Dökkgrænar, víðar buxur og bolur úr jersey. Allsérstætt vesti er yfir úr ryðrauðu jerseyi. vegar um heim, þátt í samkeppni. Valinn var sigurvegari frá hverju Norðurlandanna og komu íslensku verðlaunin í hlut Guðrúnar. í kjöl- farið fékk hún færi á að sýna hönnun sína i London. „Sýningin í London gekk vel og ég var mjög ánægð með þá umfjöllun sem ég fékk þar,“ sagði Guðrún þegar hún var innt eftir móttökunum. „Hins vegar tókum við Norðurlandabúamir ekki þátt í neinni keppni þama heldur sýndum sem gestir.“ í viðtah, sem birtist við Guðrúnu í DV 8. febrúar í fyrra, kom fram að htlu heföi munað að hún tæki ekki þátt í samkeppninni. Hún væri gift, tveggja bama móðir og miklar annir tefðu hana frá hönnuninni. Því væm allar viðtökur gesta og fjölmiðla henni mikil hvatning. Nú er Guðrún flutt heim, eins og fyrr segir, og farin að hanna á fullum krafti fyrir íslenskar konur. „Börnin mín, þriggja og fimm ára, eru í leik- skója hálfan daginn og þann tíma nýti ég eins og mér er unnt,“ sagði Guðrún og bætti við að ekki væri allt sem sýndist í sambandi við fata- „Merkin“ á góðu verði Þeir sem heimsækja Hamborg eru hrifnir af því hve vandaðar vörurnar eru þar. „Stóru merkin", eins og Gucci, Boss, YSL og fleiri og fleiri, eru þar á ein- staklega hagstæðu verði. Og það þótt ekki séu útsölur. Útsölurnar hefjast í Hamborg 29. janúar og standa í tvær vikur. Menning, skemmtun, góður matur En það eru ekki bara verslanirnar sem laða fólk til Hamborgar. Þar, eins og hér heima, er menningar- og skemmtanalíf meó hvað mestum blóma yfir vetrartímann. Óperur, ballett, tónleikar, myndlist, allt er til staðar í Hamborg. Fjöldi og fjölbreytni veitingastaða er með ólíkindum. Einstakt verð Við fljúgum til Hamborgar á fimmtudögum og sunnudögum og í janúar og febrúar bjóðum við einstakt fargjald, kr.18.300. Ef óskað er getum við auðvitað útvegað hótel á sérstöku samningsverði Arnarflugs. Vinsamlegast athugiö að aðeins er selt á þessu verði í janúar þannig að þótt þú ætlir ekki aö leggjaland undirfótfyrren í febrúar þarftu að þantafyrir mánaðamótin. Jil Sander, Mondi, Armani og öll hin bíða þín í Hamborg - þau eru með meiriháttar útsölu þar ARNARFLUG HF. Lágmúla 7, sími 84477, Austurstræti 22, sími 623060, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sími 92-50300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.