Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Blaðsíða 11
01 ~1 11 .oeer haijmal ,o£ huoa.oh/.o'Ja.í bAUeAHÐA-GUR 20. JANÚAR l'99t)r------ |---fcA Þeir sem fylgjast með í poppinu geta sjálfsagt ílestir samþykkt aö stærsta (þýðir ekki endilega það sama og það besta) nafnið í poppi 9. áratugarins sé nafn írsku hljóm- sveitarinnar U2. U2 hefur átt miklu fylgi að fagna frá árinu 1980. Ung- viði sem ellibelgir, háir sem lágir um allan heim, hafa fylgst með til- burðum íranna, fullir lotningar. Á sumum bæjum nálgast aðdáunin trúarbrögð og í seinni tíð hefur gúrúinn í hópnum tæplega mátt leysa vind án þess að út af því sé lagt á hugvitsamlegan hátt. Það hefur reyndar verið taliö U2 til tekna (af sumum lastað) að innan- húss þrífist heilbrigður hugur og hugsjónir. Þessar dyggðir vilja oft í klósettið þegar menn auðgast efn- islega og því var það aðdáendum hljómsveitarinnar talsveröur léttir þegar fréttist af stofnun útgáfufyr- irtækisins Mother Records árið 1984 en eigandi var einmitt U2. Hlutverk fyrirtækisins er að leita uppi efnilegar hljómsveitir og gefa út með þeim eina smáskífu í þeim tilgangi að koma nýliðunum á framfæri við almenning og stóru útgáfufyrirtækin. Fyrirtækið var hugsað sem eins konar stökkpallur til frekari frama. Þannig hefur U2 tekið að sér hálfgert móðurhlut- verk. Hljómsveitin hleypir á spena upprennandi listamönnum sem ekki eru famir að fóta sig á svellinu Hljómsveitin U2. Helgarpopp farnaðaróskum er kannski rétt að minna á að hér á landi er starfrækt eitt hljómsveitarútgáfufyrirtæki sem er Smekkleysa þeirra Sykur- mola. Megi því blómlega fyrirtæki verða forðað frá þeim örlögum sem hér hafa verið tíunduð. Black Velvet Band í ágúst 1988 gaf Mother Records út smáskífu með hljómsveitinni Black Velvet Band. Eftir að hafa heyrt lagið „Old man stone“ fékk útgáfyfyrirtækið Elektra áhuga og bauð Black Velvet Band samning sem hljómsveitin þáði. Undir lok nýliðins árs kom á markað fyrsta breiðskífa Black Velvet Band, „When Justice came“. Hljómsveitin, sem er skipuð þremur körlum og konu, fer vítt og breytt um refilstigu rokksins og án þess beint að vera að gera nýja hluti virkar hljómsveitin fersk. Lögin eru í huggulegum umbúð- um þar sem harmóníka, mandólín, fiðlur, selló og Hammond gefa tón- listinni aukna dýpt. Þannig má segja að efninu, sem gæti verið feit- ara, sé aukið gildi með skemmtileg- um efnistökum. Black Velvet Band getur auðveldlega falhð í flokk með því sem einhverju sinni var kahað gæðapopp. Hér er ekki stefnt að öruggu sæti á hégómlegum vin- Hriktir í stoðum Fer eins um fyrirtæki U2 og Apple-fyrirtæki Bítlanna? og koma þeim á legg. Á þennan . hátt hefur átta hljómsveitum veriðj gefið tækifæri til að hljóðrita eigið efni (efnið þurfti ekki að uppfylla kröfur markaðarins, eins og stóru fyrirtækin gera kröfur um) við bestu hugsanlegar aðstæður og með frægum útsetjurum. Hljóm- sveitirnar átta og lög þeirra á merki Mother eru eftirfarandi: Júlí 1984: In Tua Nua - „Coming thru“, samdi síðar við Virgin. Nóvember 1985: Cactus World News - „The Bridge", samdi síöar við MCÁ. Apríl 1986: Tuesday Blue - „Tunnel vision", samdi síðar við E.M.I. Júlí 1986: Operating Theatre - „Queen of no heart“. Júh 1986: The Painted Word - „In- dependence Day“, samdi síðar við RCA. Apríl 1987: The Subterraneans - - „Slum“. The Beatles. Maí 1987: Hothouse Flowers - „Love dont work this way“, samdi síðar við Londin Records. Ágúst 1988: The Black velvet band - „Old man stone", samdi við El- ektra. Eplið sem úldnaði Þetta hugsjónafyrirtæki U2 minnir um margt á Apple, fyrir- tæki Bítlanna, sem stofnsett var í ársbyriun 1968. Thgangurinn með Apple var að styrkja listsköpun af ýmsu tagi. Listafólk, sem haíði frumlegar og spennandi hugmynd- ir að hstsköpun, gat leitað til Apple eftir fjárstuðningi án skuldbind- inga. Ápple var fyrirtæki eins og Bítlarnir vhdu að hefði verið til í Umsjón: Snorri Már Skúlason Liverpool í kringum 1960 þegar þeir voru að hefja sína hstsköpun. Bítlarnir veittu ómældu fjár- magni í Apple en aht kom fyrir ekki, þrátt fyrir góðan hug kolféll hugmyndin. Engin stjórn var á peningamálum fyrirtækisins og það nýttu óprúttnir aðhar sér ag mergsugu Apple-fyrirtækið. Apple- hugmyndin, sem var mjög í takt við tíðarandann, snerist upp í and- hverfu sína, varð kvöl og klafi á Bítlunum. Blikur á lofti Ástæðan fyrir því að þessi saga er rifjuð upp er sú að nú virðast blikur á lofti í sambandi við fram- tíð Mother Records. Fyrirtækið hefur verið ásakað um skattsvik og U2 veldinu líkt við hálfgerða maflu í tónlistarhfi Dublinborgar. Hljómsveitir, sem ekki eru tengdar U2 á einn eða annan hátt, eiga enga möguleika á því að meika það upp á eigin spýtur, segja gagnrýniradd- ir. Auk þessa hafa virtir hæfileika- menn úr viðskipta- og hljómplötu- geiranum, sem fengnir hafa verið th starfa hjá Mother, fengið að fjúka af minnsta tilefni. Þetta hefur spiht mjög ímynd fyrirtækisins á írlandi. Frá og með árslokum 1987 hættu Bono, Adam Clayton og The Edge öllum afskiptum af Mother vegna hárra gagnrýniradda en trymbhlinn Larry Mullen rembist eins og rjúpan við staurinn við að færa málefni fyrirtækisins til betri vegar. Poppsíðan vonar að Mother Rec- ords nái að rétta úr kútnum og styrkist í kjölfar þessarar innri kreppu því að hér er merkilegt fyr- irbæri á ferðinni sem hefur komið mörgu góðu til leiðar, sbr. hstinn hér að framan. í framhaldi af vel- sældahstum með ódýrum laga- smíðum heldur spilað inn á hug- læga þætti sem hlustandinn man og virðir löngu eftir að vinsældar- Ustinn er gleymdur. RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS RANNSÖKNASJÖÐUR RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna árið 1990 Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu ráðsins, Laugavegi. 13, sími 21320. • Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar. • Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurðum sem talin er þörf fyrir næsta áratug. • Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal m.a. byggt á: - líklegri gagnsemi verkefnis, sérstaklega markaðsgildi niður- staðna sem sóst er eftir, - gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér á landi, - hæfni umsækjenda/rannsóknarmanna. • Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að: - samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þátt- ur í framkvæmd verkefnisins, - samstarf við erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnan- ir er mikilvægt, - fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins, - líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri. Heimilt er einnig að styrkja verkefni sem miða að uppbyggingu þekk- ingar og færni á tæknisviðum sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþró- un hér á landi í framtíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.