Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 11
01
~1 11
.oeer haijmal ,o£ huoa.oh/.o'Ja.í
bAUeAHÐA-GUR 20. JANÚAR l'99t)r------
|---fcA
Þeir sem fylgjast með í poppinu
geta sjálfsagt ílestir samþykkt aö
stærsta (þýðir ekki endilega það
sama og það besta) nafnið í poppi
9. áratugarins sé nafn írsku hljóm-
sveitarinnar U2. U2 hefur átt miklu
fylgi að fagna frá árinu 1980. Ung-
viði sem ellibelgir, háir sem lágir
um allan heim, hafa fylgst með til-
burðum íranna, fullir lotningar. Á
sumum bæjum nálgast aðdáunin
trúarbrögð og í seinni tíð hefur
gúrúinn í hópnum tæplega mátt
leysa vind án þess að út af því sé
lagt á hugvitsamlegan hátt. Það
hefur reyndar verið taliö U2 til
tekna (af sumum lastað) að innan-
húss þrífist heilbrigður hugur og
hugsjónir. Þessar dyggðir vilja oft
í klósettið þegar menn auðgast efn-
islega og því var það aðdáendum
hljómsveitarinnar talsveröur léttir
þegar fréttist af stofnun útgáfufyr-
irtækisins Mother Records árið
1984 en eigandi var einmitt U2.
Hlutverk fyrirtækisins er að leita
uppi efnilegar hljómsveitir og gefa
út með þeim eina smáskífu í þeim
tilgangi að koma nýliðunum á
framfæri við almenning og stóru
útgáfufyrirtækin. Fyrirtækið var
hugsað sem eins konar stökkpallur
til frekari frama. Þannig hefur U2
tekið að sér hálfgert móðurhlut-
verk. Hljómsveitin hleypir á spena
upprennandi listamönnum sem
ekki eru famir að fóta sig á svellinu
Hljómsveitin U2.
Helgarpopp
farnaðaróskum er kannski rétt að
minna á að hér á landi er starfrækt
eitt hljómsveitarútgáfufyrirtæki
sem er Smekkleysa þeirra Sykur-
mola. Megi því blómlega fyrirtæki
verða forðað frá þeim örlögum sem
hér hafa verið tíunduð.
Black Velvet Band
í ágúst 1988 gaf Mother Records
út smáskífu með hljómsveitinni
Black Velvet Band. Eftir að hafa
heyrt lagið „Old man stone“ fékk
útgáfyfyrirtækið Elektra áhuga og
bauð Black Velvet Band samning
sem hljómsveitin þáði.
Undir lok nýliðins árs kom á
markað fyrsta breiðskífa Black
Velvet Band, „When Justice
came“. Hljómsveitin, sem er skipuð
þremur körlum og konu, fer vítt
og breytt um refilstigu rokksins og
án þess beint að vera að gera nýja
hluti virkar hljómsveitin fersk.
Lögin eru í huggulegum umbúð-
um þar sem harmóníka, mandólín,
fiðlur, selló og Hammond gefa tón-
listinni aukna dýpt. Þannig má
segja að efninu, sem gæti verið feit-
ara, sé aukið gildi með skemmtileg-
um efnistökum. Black Velvet Band
getur auðveldlega falhð í flokk með
því sem einhverju sinni var kahað
gæðapopp. Hér er ekki stefnt að
öruggu sæti á hégómlegum vin-
Hriktir í stoðum
Fer eins um fyrirtæki U2 og Apple-fyrirtæki Bítlanna?
og koma þeim á legg. Á þennan .
hátt hefur átta hljómsveitum veriðj
gefið tækifæri til að hljóðrita eigið
efni (efnið þurfti ekki að uppfylla
kröfur markaðarins, eins og stóru
fyrirtækin gera kröfur um) við
bestu hugsanlegar aðstæður og
með frægum útsetjurum. Hljóm-
sveitirnar átta og lög þeirra á merki
Mother eru eftirfarandi:
Júlí 1984: In Tua Nua - „Coming
thru“, samdi síðar við Virgin.
Nóvember 1985: Cactus World
News - „The Bridge", samdi síöar
við MCÁ.
Apríl 1986: Tuesday Blue - „Tunnel
vision", samdi síðar við E.M.I.
Júlí 1986: Operating Theatre -
„Queen of no heart“.
Júh 1986: The Painted Word - „In-
dependence Day“, samdi síðar við
RCA.
Apríl 1987: The Subterraneans -
- „Slum“.
The Beatles.
Maí 1987: Hothouse Flowers -
„Love dont work this way“, samdi
síðar við Londin Records.
Ágúst 1988: The Black velvet band
- „Old man stone", samdi við El-
ektra.
Eplið sem úldnaði
Þetta hugsjónafyrirtæki U2
minnir um margt á Apple, fyrir-
tæki Bítlanna, sem stofnsett var í
ársbyriun 1968. Thgangurinn með
Apple var að styrkja listsköpun af
ýmsu tagi. Listafólk, sem haíði
frumlegar og spennandi hugmynd-
ir að hstsköpun, gat leitað til Apple
eftir fjárstuðningi án skuldbind-
inga. Ápple var fyrirtæki eins og
Bítlarnir vhdu að hefði verið til í
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
Liverpool í kringum 1960 þegar
þeir voru að hefja sína hstsköpun.
Bítlarnir veittu ómældu fjár-
magni í Apple en aht kom fyrir
ekki, þrátt fyrir góðan hug kolféll
hugmyndin. Engin stjórn var á
peningamálum fyrirtækisins og
það nýttu óprúttnir aðhar sér ag
mergsugu Apple-fyrirtækið. Apple-
hugmyndin, sem var mjög í takt
við tíðarandann, snerist upp í and-
hverfu sína, varð kvöl og klafi á
Bítlunum.
Blikur á lofti
Ástæðan fyrir því að þessi saga
er rifjuð upp er sú að nú virðast
blikur á lofti í sambandi við fram-
tíð Mother Records. Fyrirtækið
hefur verið ásakað um skattsvik
og U2 veldinu líkt við hálfgerða
maflu í tónlistarhfi Dublinborgar.
Hljómsveitir, sem ekki eru tengdar
U2 á einn eða annan hátt, eiga enga
möguleika á því að meika það upp
á eigin spýtur, segja gagnrýniradd-
ir. Auk þessa hafa virtir hæfileika-
menn úr viðskipta- og hljómplötu-
geiranum, sem fengnir hafa verið
th starfa hjá Mother, fengið að
fjúka af minnsta tilefni. Þetta hefur
spiht mjög ímynd fyrirtækisins á
írlandi. Frá og með árslokum 1987
hættu Bono, Adam Clayton og The
Edge öllum afskiptum af Mother
vegna hárra gagnrýniradda en
trymbhlinn Larry Mullen rembist
eins og rjúpan við staurinn við að
færa málefni fyrirtækisins til betri
vegar.
Poppsíðan vonar að Mother Rec-
ords nái að rétta úr kútnum og
styrkist í kjölfar þessarar innri
kreppu því að hér er merkilegt fyr-
irbæri á ferðinni sem hefur komið
mörgu góðu til leiðar, sbr. hstinn
hér að framan. í framhaldi af vel-
sældahstum með ódýrum laga-
smíðum heldur spilað inn á hug-
læga þætti sem hlustandinn man
og virðir löngu eftir að vinsældar-
Ustinn er gleymdur.
RANNSÓKNARÁÐ
RÍKISINS
RANNSÖKNASJÖÐUR
RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS
auglýsir styrki til rannsókna og
tilrauna árið 1990
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu ráðsins, Laugavegi. 13, sími 21320.
• Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar.
• Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og
afurðum sem talin er þörf fyrir næsta áratug.
• Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal m.a. byggt á:
- líklegri gagnsemi verkefnis, sérstaklega markaðsgildi niður-
staðna sem sóst er eftir,
- gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér
á landi,
- hæfni umsækjenda/rannsóknarmanna.
• Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að:
- samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þátt-
ur í framkvæmd verkefnisins,
- samstarf við erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnan-
ir er mikilvægt,
- fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri.
Heimilt er einnig að styrkja verkefni sem miða að uppbyggingu þekk-
ingar og færni á tæknisviðum sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþró-
un hér á landi í framtíðinni.