Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 17
16 FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990. 25 íþróttir FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990. Sport- stúfar Los Angeles Lakers tapaði nokkuð óvænt í NBA-deildlnni í körfu- knattleik í fyrrinótt þegar liðiö sótti Houston heim. LA Lakers er þó enn með besta vinnigshlutfall allra liða í deild- inni. Urslit í leikjunum í fyrrinótt urðu þessi: New York - Portland..100-112 Orlando - Utah Jaz2..101-111 Atlanta - Phoenix....111-113 Detroit - Sacramento.101-91 Indiana - Washington.113-98 Milwaukee - Chicago..105-114 Houston - LA Lakers..112-95 Denver - Charlotte...122-96 Seattle - Cleveland...95-90 Stórleikir i bikarnum i körfuknattleik í kvöld Síöari leikirnir í undanúrslitum bikarkeppni karla í körfuknatt- leik er á dagskrá í kvöld. í Kefla- vík leika heimamenn gegn KR og hefst leikurinn kí. 21. KR-ingar unnu fyrri leikinn á Selfjarnar- nesi með níu stiga mun, 64-55, svo aö Keflvíkingar eiga erfltt verk fyrir höndum að vinna þennan mun upp. í hinum undanúrslita- leiknum eigast við Haukar og Njarðvík í íþróttahúsinu í Hafn- arfirði kl. 20.30. Njarðvikingar unnu fyrri leikinn i Njarðvík með aðeins tveggja stiga mun, 86-84, svo að búast má við hörkuleik. Liðin sem sigra í þessum viður- eignum leika til úrslita í bíkar- keppninni fimmtudaginn 22. mars. Þá verða tveir leikir i bik- arkeppni kvenna í kvöld. í Kefla- vík leika ÍBK og ÍR kl. 19 og í Hafnarfirði leika Haukar og Njarðvik kl. 22. Stjaman og FH áfram í bikarnum Stjaman sigraði Val, 20-21, i leik liðanna í bikarkeppni kvenna í handknattleik í gærkvöldi. Leíkið var i 16-liða úrslitum keppninnar. Staöan í leikhléi var 12-14 Stjörn- unni í vil. Katrín skoraði 5 mörk fyrir Val en þær Una og Margrét 4 hvor. Ragnheiður Stephensen skoraði 8 mörk fyrir FH. • FH og Grótta léku í sömu keppni i gærkvöldi. FH sigraði, 22-20, eftir að Grótta hafði haft. yfir í leikhléi, 8-10. Rut skoraði 7 mörk fyrir FH en Kristín 6. Lauf- ey skoraði 10 mörk fyrir Gróttu en Elísabet 5. Leika Selfyssingar í l.deíid ífyrstasinn Selfyssingar eiga nú mjög góða möguleika á að tryggja sér sæti í 1. deild karla í hand- knattleik á næsta ári í fyrsta sinn í sögu félagsins. Fram heíúr þeg- ar sigraði í 2. deildinni en Selfoss er í öðru sæti deildarínnar. Liðið er með 20 stig og á eftir að leika tvo leiki, gegn UMFN, sem er þegar fallið í 3. deild á útivelli og UBK á heimavelli. UBK er eina liðið sem getur komið í veg fyrir að Selfoss leikí í 1. deild að ári og liðiö á enn veika von að endur- heimta sæti sitt í 1. deild. UBK er með 18 stig og á tvo leiki eftir, fyrst gegn b-liöi FH á heimavelli og síðasti leikur liðsins er gegn Selfyssingum á útivelli og gæti það orðið úrslitaleikur. • Anders Dahl, landsliðsþjálfari Dana í handknattleik, segir að íslendingar hljóti að hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með landslið sitt i Tékkó. „Uppgjöf ekki «l“ - í íslenska liðinu, segir Þorgils Óttar Jón Kristján Sigurðsson, DV, Bratislava: „Uppgjöf er nokkuð sem ekki er til innan íslenska landsliðsins. i leikn- um í dag gegn Austur-Þjóöverjum verður allt lagt undir og barist til síðasta blóðdropa," sagði Þorgils Ótt- ar Mathiesen, fyrirliði íslenska Markahæstir Jón Kristján Sigurösson, DV, Bratislava: Kúbumaðurinn Julian Doran- ona er langmarkahæsti leikmaður heimsmeistarakeppninnar í Tékkóslóvakíu en listinn yfir markahæstu leikmenn lítur þann- ig út. Julian Duranona, Kúbu ....45 A. Tuchkin, Sovétr ....34 Kim Jaehwan, S-Kóreu ....33 Martir Dunitru, Rúmeníu ....30 Vadislav Atavin, Sovétr ....29 Irvan Smailagic, Júgó ....26 Mile Isakovic, Júgó ....26 Frank Wahl, A-Þýskal ....26 Bogdan Wenta, Póllandi ....25 Dimitri Durean, Frakkl ....25 Bjöm Jilsen, Svíþjóð ....25 landsliðsins, í samtali við DV í gær- kvöldi. Leikurinn er, eins og allir vita, mjög mikilvægur. Með sigri getur íslenska liöið bjargað andlitinu, ef svo má að orði komast. Spurningin er aðeins hvort liðinu tekst að rífa sig áfram eftir ófarirnar í síðustu leikjum. Austur-Þjóðverjar eru með mjög sterkt lið í þessari keppni og urðu fyrstir liða til að stöðva sigur- göngu Spánverja. Frank Wahl er burðarás liðsins þrátt fyrir að hann sé orðinn 35 ára. Peter Hoffmann verður í marki Austur-Þjóðverja en hann hefur varið mjög vel í keppn- inni hér. Leikur þjóðanna hefst klukkan 19 að íslenskum tíma og er síðasti leikurinn í milliriðlakeppn- inni. í dag leika Sovétmenn gegn Spánverjum og Pólverjar mæta heimsmeisturum Júgóslava. „Uppálíf eða dauða“ „Leikurinn gegn Austur-Þjóðverjum í kvöld er upp á líf eða dauða fyrir okkur. Strákarnir gera sér fulla grein fyrir mikilvægi leiksins og eru ákveðnir í að leika til sigurs,“ sagði Guðjón Guðmundsson, liösstjóri ís- lenska liðsins, í gærkvöldi. Jón Kristján Sigurðsson, íþróttafréttamaður DV, skrifar frá Tékkóslóvakíu „Óska íslendingum góðs gengis í dag“ - segir Anders Dahl Nielsen, þjálfari Dana í handbolta Jón Kiistján Sigurösson, DV, Bratislava: „Vonbrigði íslendinga með landsliðið á heimsmeistarakeppninni í Tékkóslóvak- íu hljóta að vera mikil en ég veit að ís- lenska þjóðin fylgist af áhuga með sínum mönnum,“ sagði danski landsliðsþjálf- arinn Anders Dahl Nielsen í samtali við DV. Anders Dahl er íslenskum handknatt- leiksáhugamönnum að góðu kunnur en hann dvaldi um tveggja ára skeið við þjálfun á íslandi. Hann var burðarás danska landsliðsins um árabil og lék hátt í 200 landsleiki fyrir Dani. Anders Dahl starfar fyrir danska sjónvarpið hér í Tékkóslóvakíu og hefur lýst leikjum beint héðan, þar á meðal síðari hálfleik í leik íslendinga og Sovétmanna á mánu- dagskvöldið í Bratislava. „Ég er vel kunnugur íslenskum hand- knattleik og fyrir keppnina var ég viss um að íslendingar myndu blanda sér í keppnina um efstu sætin. íslenska liðið er byggt upp á reyndum og sterkum ein- staklingum sem leikið hafa saman í landsliðinu frá því á HM í Sviss 1986. Það kann að vera að upp sé komin þreyta í liöinu en það er þó ekki aðalskýringin á óförum liðsins hér en þreytan vegur samt þungt í þessum efnum. Það hlýtur óhjákvæmilega að koma niður á undir- búningi liðsins að margir leikmenn leika með liðum í Evrópu. Mikið álag er á þessum leikmönnum og virðist sem þreyta hái þeim mjög í þessari keppni. Islenska liðið hefur í tvígang verið með unninn leik í höndunum en síðan er eins og liðið hætti skyndilega. Á þessum augnablikum er eins og þreytan taki völdin," sagði Anders Dahl Nielsen. Og hann bætti við: „Kristján Arason hefur alls ekki náð aö sýna sitt rétta andlit í sóknarleiknum en í vörninni er hann alltaf traustur. Það er ekki öll nótt úti enn hjá íslenska liðinu en með sigri gegn Austur-Þjóðverjum í dag gæti liðið spil- að um 9. sætið sem gæfi þátttökurétt á næstu ólympíuleikum. Það er mikill kostur fyrir íslenska liðið að eiga síðasta leikinn í dag en þá liggja fyrir úrslit úr öðrum leikjum. Ég óska íslenska liðinu alls hins besta í leiknum gegn Austur- Þjóðverjum í dag og síðasta leik keppn- innar,“ sagði Anders Dahl í samtalinu við DV. • Þorgils Óttar segir að allt verði lagt undir gegn Austur-Þjóðverjum í dag. „Það er alls ekki hægt að segja að heilladísimar hafi verið með ís- lenska liðinu og ég tel að við höfum stundum verið afar óheppnir. En ég hef enga raunverulega skýringu á því hvað úrskeiðis hefur farið hjá lið- inu í keppninni. Sumir vilja meina að þreyta sé í liðinu en það er ekki rétt að mínum dómi. Það kom vel undirbúið til leiks og það er því ekki að undirbúningnum að finna. Mér er það enn óskiljanlegt hvernig við fórum að að tapa fyrir Pólverjum. Menn átta sig kannski betur á þessu bakslagi eftir keppnina. Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa um að þetta er allra sterkasta handknatt- leiksmót sem ég hef orðið vitni að,“ sagði Guðjón Guðmundsson. Þorvaldur var slakur Arsenal vann Nottingham Forest, 3-0, í ensku knattspyrnunni í gær- kvöldi. Þorvaldur lék allan leikinn með Forest en lék undir meðaliagi. Groves, Adams og Campbell skoruðu mörkin. Luton vann Coventry 3-2, einnig í 1. deild. • Oldham tapaði gegn West Ham í deildarbikarnum, 0-3, en leikur gegn Forest á Wembley til úrslita 29. apríl eftir 6-0 sigur í fyrri leiknum. • í 2. deild vann Brighton Plymouth 2-1, Leeds Port Vale 0-0, Middles- boro-Watford 1-2, og Newcastle-Hull 2-0. • í 4. deild vann Exeter Halifax 2-0, Hereford-Grimsby 0-1, og Lincoln- Southend 2-0. GSv./-SK Evrópumótin í knattspyrnu: Ifaumur sigur Bayern gegn PSV Fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum Evrópumótanna í knattspyrnu fóru fram í gær- kvöldi. í Evrópukeppni meistaraliða sigraði Bayern Munchen lið PSV Eindhoven í Munchen, 2-1. Wohlfarth (75) og Grahammer (80) skoruðu fyrir Bayern en Daninn Poulsen (77) skoraði fyrir gestina. í hinum leikjunum í meistarakeppninni vann Benfica nauman heimasigur gegn Dnepr, 1-0, og Svíinn Mats Magnusson skoraði sigurmarkið úr viti á 8. núnútu. Þá gerðu Mechelen og AC Milan markalaust jafnteflí í Belgíu og CFKA Sofia tapaði heima gegn Marseille, 0-1. • í UEFA-koppninm sigi-aði Fiorentina lið Auxerre, 1-0, Hamburger SV tapaði heima gegn Juventus, 0-2, og Werder Bremen vann stóran útisigur á Liege í Belg- • I Evrópukeppni bikarhafa vann Sampdoria lið Grasshopper, 2-0, Real Valla- dolid og Monako gerðu markaiaust jafntefli á Spáni og Dynamo Búkarest vann Partizan Belgrad, 2-1. • Uppáhaldsmatur margra setti strik í reikninginn í leik Real Valldolid og Monako í Evrópukeppni bikarhafa á Spáni í gærkvöldi er kjúklingur einn gerði leikmönnum lif- ið leitt með óvæntri uppákomu inni á vellinum. Markvörður Valladolid reynir hér að stugga við hinum óboðna gesti. Símamynd/Reuter HAUKAR-UFMN Bikarleikur kl. 20.30 í íþróttahúsinu, Strandgötu, Hafnarfírði sæti á ólympíuleikunum en ekki á ander Tuchkin er til að mynda efötur heimsmeistarakejipnina í Svíjijóö 1993. á óskalista hjá forráðamönnutn Barc- í; • Forráöamenn sterkustu félagsliða elona. -------------------------------- til baka að ferðin heíði verið góð til- heims í handknattleik fylgjast með • Kúbumaðurinn Julian Duranona, Jón Krisflán Sigorðsson, DV, Bratislava: breyting frá „hótellífinu“ sem væri keppninni hér. Sérstaklega hefur lið markahæsti leikmaður heimsmeist- — 7 ' orðiö ansi þreytandi. Sovétmanna verið undir smásjánni og arakeppninnar í dag hefur átt í óform- • íslenska landsliöið notaði frídag- • Fyrstu 9 sætin í keppninni hér skyldi engan undra. Heyrst hefur að legum viðræðum við forráöamenn fé- inn í gær til skoðunarferðar til Vínar gefa þátttökurétt á ólympiuleikunum nokkrir leikmanna sovéska liðsins laga í Evrópu. Sá galli er þó á gjöf í Austurríki en aðeins er um hálfrar í Barcelona 1992. Ef hins vegar Suður- hafi mikinn áhuga á að reyna fyrir sér Njarðar að kúbverskir íþróttamenn fá klukkustundar akstur frá Bratislava Kóreumenn vinna Frakka i dag þá með liðum í Evrópu og þá sérstaklega ekki að stunda íþrótt sína utan heima- tilVínar.Strákarnirsögðuviðkomuna munu 10 efstu þjóöirnar tryggja sér á Spáni en þar eru launin best. Alex- landsins. Duranona er 25 ára gamall. Stúfar frá HM í Tékkó Iþróttir • Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, segir það timabært að fá nýtt blóð í íslenska landsliðið og skipta um landsliðsþjálfara. Hann segir einnig í viðtalinu hér að neðan að öllum sé Ijóst að Bogdan Kowalczyk hafi náð frábærum árangri með landsliðið á síðustu sjö árum en það eigi ekki að þýða æviráðningu hans sem landsliðsþjálfara. Orðið timabært að skipta um landsliðsþjálfara - segir Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta „Eg hef aö sjálfsögðu orðið fyrir vonbrigðum með gengi íslenska landsliðsins á HM í Tékkóslóvakíu. Ég hef ekki séð leiki íslenska liðsins en þær lýsingar sem ég hef heyrt af leikjunum eru ekki fagrar. Það er eitthvað sem segir mér að það vanti allan léttleika í íslenska hðið og alla ánægju hjá leikmönn- um liðsins. Þá held ég að undirbúningur liðsins hafi verið of stífur, oft tvær æfingar á dag í nokkrar vikur og slíkt gengur alls ekki hjá íslenska liðinu. Leikmenn liðsins hafa gengið í gegnum slíkan undirbúning alltof oft. Menn eru orðnir örþreyttir. Það vantar líka sterka „karaktera" til að rífa hðið upp þegar iha gengur.‘ Þetta sagði Þorbergur Aðalsteins- son, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, í samtali viö DV í gærkvöldi er hann var inntur álits á slöku gengi íslenska hðsins í Tékkóslóvakíu. Þorbergur hefur leikið fiölda landsleikja og var lengi undir stjórn Bogdans, bæði hjá Víkingi og landsliðinu. Hann þekk- ir því vel til innan landsliðsins. „Orðið tímabært að skipta um þjálfara“ Þorbergur sagði einnig í gær- kvöldi: Það er auðvitaö aldrei hægt að skella allri skuldinni á þjálfar- ann. Og það veit hver maður að Bogdan hefur gert ótrúlega hluti fyrir íslenskan handknattleik. En hann hefur verið með landshðið í sjö ár og hefur að mínu mati gefið allt sem hann á í þetta. Eg tel að nú sé tími til kominn að fá nýtt blóð í þetta og skipta um landsliðs- þjálfara. Það að Bogdan hafi náð frábærum árangri með landshðið á ekki að þýða æviráðningu hans sem landsliðsþjálfara. Það verður að fá nýtt blóð í landshðið, hvort sem við verðum a- eða b-þjóð á morgun. Og umfram allt meiri létt- leika og að menn hafi gaman af því sem þeir eru að gera hverju sinni.“ „Svíarnir eru ótrúlegir“ - Nú leikur þú í Svíþjóð. Það er væntanlega kátt á hjalla hjá Svíum þessa dagana? „Já, þeir eru ótrúlegir, Svíarnir, og maður hefur orðið að læðast með veggjum undanfarna daga. Það er svohtið erfitt að vera íslend- ingur í Svíþjóð um þessar mundir. Frammistaða sænska hðsins hefur verið frábær. Liðið hefur hreinlega kaffært andstæðinga sína og leik- menn hðsins hafa ótrúlega gaman af því sem þeir eru að fást viö. Það er mikill léttleiki sem einkennir sænska höið og varnarleikur liðs- ins og markvarsla hefur verið með ólíkindum í Tékkóslóvakíu.“ „Það verður að skoða málin í ró og næði“ - Hvern sérð þú fyrir þér sem eftir- mann Bogdans í landshðsþjálfara- starfinu? „Það er alltof snemmt að ræða það mál. Ég er þess þó fullviss að það eru til margir íslenskir þjálfar- ar sem geta þjálfað íslenska lands- hðið. Framhaldið byggist á því hvað stjórn Handknattleikssam- bandsins vill gera. Hvernig sem leikurinn gegn Austur-Þjóðverjum fer þá verða menn að setjast niður eftir keppnina og skoða málin í ró og næði og marka ákveðna stefnu fyrir framtíðina." - Hefur þú áhuga á að verða landsliðsþjálfari? „Ég hef ekkert hugleitt það mál en ef til mín yrði leitað myndi ég hugsa það mál mjög gaumgæfi- lega.“ HSI hefur þegar samið við Bogdan Eins og fram hefur komið í DV hefur HSÍ þegar gert samkomulag við Bogdan þess efnis að hann þjálfi íslenska landshðið fram th 1993. Sá samningur er þó uppsegj- anlegur af beggja hálfu. Þegar DV tilkynnti Þorbergi um umræddan samning í gærkvöldi kom það hon- um mjög á óvart og var greinilegt aö landsliðsmaðurinn fyrrverandi var ekki ánægður með þær fréttir. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.