Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Side 13
PrMMf UDÁ(§tfffi &< MÁKS 'tö'90.
Sí13
Lesendur
Þátturinn um
Aðalstein
Aðalsteinn Jónsson (eldri og yngri) á eftirlitsgöngu um athafnasvæöiö.
Áhorfandi skrifar:
Ég og fleiri á mínu heimili horfð-
um á þátt í Sjónvarpinu fyrir
nokkru um Aðalstein Jónsson, sem
kallaður hefur verið Alli ríki. Þátt-
urinn var einkar skemmtilegur og
fróðlegur og það var einstaklega
gaman að kynnast svona sterkum
karakter sem þessi athafnamaður
virðist hafa að geyma. - Það er
nefnilega oft þannig - eða það hefur
mér fundist - að þegar minnst er á
útgerðarmann sem orðið hefur rík-
ur, þá dettur manni í hug svola-
menni sem hefur helst haft það sér
til afþreyingar á milli þess sem
hann vinnur myrkranna á milli -
að drekka brennivín og spila f]ár-
hættuspil eða gera eitthvað þaðan
af verra.
Svona hefur nú athafnamönnum
á íslandi verið lýst í bókmenntun-
um, ekki síst af nóbelsskáldinu
okkar og enn fleirum sem hafa
notfært sér íslenskan efnivið beint
úr athafnalífinu. Með þessum
mönnum átti lesandinn ekki að
hafa samúð, heldur hinum - sögu-
hetjunum - sem gjarnan voru fá-
tækar ungar stúlkur eða mis-
heppnaðir menntamenn með
„gæfuleysið sem féll að síðum“. Ég
held að þetta hafi setið í mér þegar
þátturinn var kynntur. Þeir sem
ekki þekktu til þessa heiðurs-
manns áttu kannski ekki von á
miklu.
í þessum sjónvarpsþætti dró Árni
Johnsen fram afar raunsæja mynd
af þessum austfirska athafna-
manni. Mynd sem sýndi mann sem
svo margar þjóðir eiga í kippum
og hafa brotist áfram af eigin
rammleik. Slíkir menn skilja alltaf
eftir sig ummerki sem eru vel sýni-
leg og veita öðrum afkomu og ör-
yggi. Það er ekki hægt að segja um
marga þá aðra sem samt hefur ver-
ið haldið á lofti fyrir það eitt að
gera garðinn frægan með nafninu
einu eins og oft er títt um skáld og
aðra andans menn. - Það lifa nefni-
lega fáir af bóklestrinum einum
saman. Það eru menn eins og þessi
Austfjaröajarl sem við þurfum á
að halda í dag. En þeir veljast ekki
í stjórnmálin, svo mikið er víst.
Þakkir til BSR bílstjóra
Gréta hringdi:
Fyrir nokkrum dögum tapaði ég
verðmætu gullarmbandi í leigubíl frá
BSR. Ég hafði talsverðar áhyggjur
út af því að þetta myndi nú ekki
fmnast meir og kannski enn síður
að því yrði skilað aftur.
En sú varð ekki raunin. Bílstjórinn
sem leigubílnum ók hafði fundið
armbandið og skilað því inn á stöð-
ina. Þar náði ég svo í það. - Ég vil
koma á framfæri innilegu þakklæti
til þessa skilvísa bílstjóra hjá BSR
fyrir hans þátt í málinu.
Það er allt of sjaldan sem heyrist
af heiðarlegu og skilvísu fólki sem
lætur ekki sitt eftir liggja til að svona
farsællega leysist úr málunum. Ég
tel mér skylt að greina frá því sem á
betri veginn fer og er það mun
ánægjulegra.
Fermingargjafahandbók 1990
Miðvikudaginn 21. mars nk. mun hin árlega
fermingargjafahandbók DV koma út.
Fermingargjafahandbók DV er hugsuð sem handbók fyrir
lesendur þar sem í henni gefúr að líta ýmislegt af því sem
er á boðstólum til fermingargjafa og hvað hlutirnir kosta.
Þetta finnst mörgum afar þægilegt nú á dögum tímaleysis
og af reynslunni þekkjum við að handbækur okkar hafa
verið vinsælar og auðveldað mörgum valið.
Skilafrestur auglýsinga er til 15. mars og er auglýsendum
bent á að hafa samband við auglýsingadeild DV hið fýrsta
í síma 27022 svo unnt reynist að veita öllum
sem besta þjónustu.
Auglýsingadeild
Þverholti 11, sími 27022
(@> r rw b Gabrie m HÖGGDEYFAR 1
— % j STERKIR, ÖRUGGIRj^ J ÓDÝRIR! ÆÆ
» 1ÁBER IL u
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91- 8 47 88
Tilkynning
frá Tölvunefnd
Hér með vill Tölvunefnd vekja athygli á ákvæðum
21. og 22. gr. laga um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga nr. 121 /1989 varðandi áritan-
ir nafna og heimilisfanga á útsent efni. Samkvæmt
þessum ákvæðum mega aðeins þeir sem hafa
fengið starfsleyfi frá Tölvunefnd afhenda nöfn og
heimilisföng úr skrám til að nota til áritunar á efni
sem dreifa á. Sömuleiðis skulu þeir sem annast
fyrir aðra áritun nafna og heimilisfanga (svo sem
með límmiðaáritun) hafa starfsleyfi frá nefndinni.
Þá skal það efni sem sent er út samkvæmt skrám
yfir tiltekna hópa einstaklinga, stofnana, fyrirtækja
eða félaga bera með sé á áberandi stað nafn þess
aðila sem hefur skrá þá sem áritað er eftir. Enn-
fremur skal koma fram í útsendu efni að þeir sem
óska eftir því að losna undan slíkum sendingum
framvegis geti skrifað eða hringt til þessa aðila
og fengið nöfn sín afmáð af útsendingarskránni.
Er þá skylt að verða þegar við þeirri beiðni.
Reykjavík, 7. mars 1990
Tölvunefnd
Verið með
Kántrí-söngvakeppnin
heldur áfram í Bjórhöllinni
fimmtudags- og sunnudags-
kvöld. Keppendur skrái sig í
síma 75800 og 74420
---- .
I BJOR ^ HÖLLIN l
Gerðubergil Sími 74420