Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990. 15 Skrattanum skemmt Ólafur Grímsson fjármálaráö- herra kynnti fyrir nokkru niöur- skurð á útgjöldum ríkisins. Þessi skurður felst aðallega í því að fram- kvæmdum er frestað og þær dregn- ar og slitnar í sundur, fram- kvæmdatíminn lengdur og endan- legur kostnaður þar með aukinn. Nú er það reyndar svo að niöur- skurður á útgjöldum ríkisins og Ólafur Grímsson eru álíka tengd fyrirbæri og dagur og nótt. Hvernig getur það farið saman að auka skatttekjur ríkissjóðs á einu ári um sem nemur tekjum borgarsjóðs Reykjavíkur og segjast um leið vera að skera niður ríkisútgjöld? Er Ólafur að greiða niður fjár- lagahalla og erlend lán? Nei, alls ekki. Hallinn á síðasta ári var um 6 milljarðar en Ólafur spáði 600 milljóna hagnaði. Erlend lán hafa aldrei verið hærri. Hvaö er þá? Hverfa peningar úr ríkissjóði? Er einhverju stungið undan? Hveijir stinga þá undan og til hverra? Ég er viss um að nútíma (NT) fólk vill fá upplýsingar um þetta „Svart á hvítu“ í Þjóðviljan- um, Alþýðublaðinu og Tímanum eins og Grímssyni er einum lagið. Fleiri flær á kroppnum? Nú hugsa sjálfsagt margir sem svo að ofangreint hail nú aldeilis komið vel á vonda karlinn sem fleygir aurum þeirra í pólitíska vandamenn. - En eru ekki fleiri aurar sem gera menn að öpum? Hið opinbera er ekki bara ríkið. Hið opinbera er úti um borg og bý. Þar á meðal í Reykjavík. Við skul- um nú líta á nokkur dæmi um fall- ega meðferð á aurum borgarbúa. KjaUarinn Glúmur Jón Björnsson, efnafræðinemi í HÍ Perlan fagra Hitaveita Reykjavíkur er stórt og merkilegt fyrirtæki fyrir margra hluta sakir. Helsta orsökin er þó staðsetning hennar í landi Ingólfs þar er upp stigu reykir. Þannig hefur fyrirtækið dafnað í frjósöm- um jarðvegi. Allt er þetta gott og blessað og þökk þeim framsýnu mönnum sem ýttu virkjun jarð- varmans úr vör til hagsbóta fyrir Reykvíkinga um langa framtíð. Ekki fæ ég nú séð rökrétt sam- hengi á milli þeirra varanlegu sam- gæða sem Hitaveitan hefur séð borgarbúum fyrir hingað til og byggingar útsýnis- og veitingahúss á hringbraut í Öskjuhlíð. Ég er al- veg bhndur fyrir því, og leiðbeini mér einhver ef hann getur, að það sé í verkahring borgarfyrirtækis að snúa mönnum í hringi á meðan þeir snæða. Hringferðir á matmálstímum hafa hingað til ekki verið taldar til þeirra samgæða sem menn hafa komið sér saman um að ríki og sveitarfélög ættu að veita þjóðfé- lagsþegnum. Segjum nú að það sé orðið mikið kappsmál hverjum þegn að snúa sér í matartímanum. Væri það þá ekki í anda sjálfstæðisstefnunnar að eftirláta einhveijum framtaks- sömum einstaklingi það að full- nægja þessum undarlegu þörfum? Og ágætu borgarfulltrúar, ekki láta mig heyra það einu sinni enn að Perlan sé falleg og ef hún heföi ekki verið byggð hefði ríkið kannski lagt á jöfnunargjald. Það fyrra er algjört smekksatriði og hið síðara lýsir fádæma þjónslund við félagshyggjustjórn sem flestir landsmenn fyrirlíta. Skemmtilegt starf Flestum borgarfulltrúum finnst starf sitt hjá borginni mjög skemmtilegt. Það kemur í sjálfu sér ekki svo mjög á óvart þar sem flest- ir hafa lagt á sig töluvert erfiði til að ná sæti á framboðslista. Það sló því sem oftar saman í höfðinu á mér þegar ég frétti að borgin hefði keypt einn stærsta skemmtistað landsins. Var ef til vill orðið leiöin- legt í borgarstjórn? Nei, auðvitað ekki. Þetta var að sjálfsögöu gert af tómri góömennsku. Allir skemmtistaðaeigendur vita hvað það getur verið vanþakklátt starf að reka skemmtistað. Fólkið sem sækir þessa staði æhr og hehir niður og er uppfuht af skemmdar- fýsn. Það var því kærkomin lausn að borgin tæki að sér að veita þjón- ustu við fólk sem stendur í svo nárium tengslum við siðareglur Eglu. Að sjálfsögðu býður borgin verð sem er miklu lægra en áður þekktist. - Það eru sjálfsögð félags- leg réttindi og hluti samgæða að fá að æla með afslætti. Dýra dagvistun Nú fer að koma sá tími þegar hðs- menn Loforðalistans og hinna vinstri flokkanna gjamma og hrína yfir ástandi í dagvistunarmálum höfuðborgarinnar. Þessi gól munu án efa heyrast fyrir hverjar kosn- ingar um langa framtíð. Mun þar gjlda einu hversu mikil uppbygg- ing mun eiga sér stað í þessum málaflokki. 011 börn skulu á opin- berar stofnanir og hljóta þar til gert opinbert uppeldi og ekkert röfl og enga foreldraábyrgð. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins hefur staðið fyrir gríðarlegri upp- byggingu í dagvistunarmálum á þessu kjörtímabih og svo var jafn- vel um tíma að ekki tókst að fá fólk til starfa á öllum heimilunum. Húsdýragarður er að rísa í Laug- ardal og ekkert nema gott um það að segja að því, sem menn hafa komið sér saman um að greiða til áðumefndra samgæða, verði kom- ið fyrir kattarnef, í hundskjaft, kastað fyrir svínin og til belju á svehi á sem ærlegastan hátt. Það verður þó að segjast eins og er að hér tekst félagshyggjunni betur upp en endranær. I stað þess að flytja fólkið niður th svínanna eru svínin flutt upp. Huggunharmi gegn Það er mér því mikh huggun harmi gegn að borgarstjórn skuh ætla að eftirláta „stöndugum" bæj- arsjóði Kópavogs byggingu þjóðar- hahar fyrir einn mhljarð og einn leik. Ég veit það líka að ef sundur- lyndisfjandi vinstri flokkanna hefði farið með stjóm Reykjavíkur síðustu fjögur árin stæði ekki steinn yfir steini í fjármálum borg- arinnar. Það sýndu þeir rækhega á árunum 1978-’82. En það er ekki nóg að stjórnir Sjálfstæðiflokksins hafi það fram yfir óstjórnir vinstri manna að reka ekki aht með tapi og safna ekki skuldum. Það þarf að skera niður og selja. Þar var salan á Granda mikið fyrirtak og vonandi fylgja Malbikunarstöðin, Pípugerðin, Grjótnámið, Vélamið- stöðin og fleiri borgarfyrirtæki í kjölfarið. Glúmur Jón Björnsson .. það er ekki nóg að stjórnir Sjálf- stæðisflokksins hafi það fram yfir óstjórnir vinstri manna að reka ekki allt með tapi og safna ekki skuldum. Það þarf að skera niður og selja.“ Af handboltaþjálfurum og þjóðarbókhlöðum Nýlega var þjálfari háskólaliðs- ins í (amerískum) fótbolta hér í Madison rekinn fyrir lélega frammistöðu hðsins og voru greiddar 315 þúsundir dala í skaða- bætur (næstum því 20 mhljónir ís- lenskra króna!). Enda varð heh- mikhl tekjuafgangur hjá Wiscons- infylki og hálfgerð vandræði hvað á að gera við peningana, skilst mér. Þjálfaramáliði hélt kanslara há- skólans uppteknum um margra vikna skeið á meðan þýðingarmikil mál eins og hvemig á aö bæta sam- skipti kynþátta bíða. Búið er að básúna það út um allt að það eigi að ráða fjölda prófessora sem ekki eru hvítir til að bæta ástandið og laða að stúdenta af minnihlutahóp- um. Þetta gengur rólega enda mis- skiptirig í bandarísku þjóðfélagi svo rótgróin að áætlanir, yfirlýs- ingar og plön breyta litlu. Bókakaup bókasafna háskólans eru að dragast saman og það hefði mátt kaupa þónokkur bindi fyrir upphæðina sem þjálfaranum var greidd. Kjarasamningar við þá 2400 stúdenta í framhaldsnámi, sem sinna helmingi allrar kennslu fyrsta og annars árs nema, hafa verið lausir siðan í sumar. Við það mál ætti kanslarinn kannski að ráða þótt hann fái litlu breytt í sam- bandi við kynþáttamál. Öfugur Hrói höttur Hvað á svo að gera við tekjuaf- gang Wisconsinfylkis? Greiöa hann th nauðstaddra, t.d. að byggja yfir heimhislausa í stórborginni Mil- waukee? Bæta laun aðstoðarkenn- ara, sem einungis hefur verið boðin KjaUaiinn Ingólfur A. Jóhannesson sagnfræðingur, leiðbeinandi kennaranema við Wisconsin- háskóla í Bandaríkjunum inn íhaldsmaður, heitir Tommy. Mér finnst þetta allt saman út í Hróa hött. En hvað kemur þetta nú Þjóðar- bókhlöðu við? Gildismat og stjórn- mál af þessu tæi eru ekkert eins- dæmi hér í Wisconsinfylki. Þjóðarbókhlaða eða hand- boltahöll? Dráttur við byggingu og frágang Þjóðarbókhlöðu í Reykjavík hefur verið ótrúlegur. Átti hún ekki að vera gjöf th íslensku þjóðarinnar frá íslensku þjóðinni á ellefu alda afmæli byggðar í landinu? Síðan eru 16 ár. Núna berast af því fréttir hingað út th Ameríku að breyta eigi Þjóðarbókhlöðunni í hand- boltahöll fyrir heimsmeistaramót sem halda eigi á íslandi eftir fimm ár. Snjöll hugmynd. Hverjum skyldi hafa dottið þetta í hug? „Ef engir peningar eru til þess að eyða 1 lúxus þá eru að sjálfsögðu engir pen- ingar til reiðu til þess að byggja hand- boltahöll. Svo einfalt er það mál.“ 1,5% launahækkun, og annars rík- isstarfsfólks með lausa kjarasamn- inga? Hvorugt. Bróðurparturinn á að fara í skattaafslátt! Hluti af tekjuafganginum var fenginn með sölu lotterímiða. Lotterímiða kaupir fátækt fólk ekki síður en ríkt og nú á að endur- greiða tekjuafganginn í stað þess að nota hann. Enda er fylkisstjór- Það versta við þetta er að ég gæti svo sem alveg trúað því að pening- ar yrðu teknir frá Þjóðarbókhlöðu í handboltahöll. Ef ekki beint, þá óbeint. Hvers konar verðmætamat er hér á ferðinni? Eru ekki stjórnmálamenn í vand- ræðum með að láta Lánasjóð ís- lenskra námsmanna standa við lög og skuldbindingar, er ekki starfs- ,,.. .ég gæti svo sem alveg trúað því að peningar yrðu teknir frá Þjóðar- bókhlöðu í handboltahöll," segir greinarhöf. m.a. fólk ríkisins undirborgað, er ekki flöldi fólks í verstu vandræöum með að standa undir okurlánum af heimhum sínum, hefur ekki tek- ist að koma í veg fyrir að félaga- samtökin Búseti fái að byggja fé- lagslegt húsnæði til að anna eftir- spurn? Listinn er langur. Handboltahöll er lúxus Ef það á að byggja handboltahöll, en ekki eitthvað annað, verður að huga að því hvað þetta annað er. Heíöi mátt ráðstafa einhverju af ríkidæmi Reykjavíkurborgar th þess arna? Er t.d. nauðsynlegt að byggja ráðhús í miðri Reykjavík- urtjöm? Lágmarkið er að ef eyða á Té í lúxus á borð við nýja hand- boltahöll verður að taka það fé frá öðrum lúxus. Ef engir peningar eru th þess að eyða í lúxus eru að sjálf- sögðu engir peningar til reiðu til þess að byggja handboitahöll. Svo einfalt er það mál. Aht bendir hins vegar til þess að haldið verði áfram að eyða pening- um í lúxus á meðan húsnæðismál landsfólks eru í klessu og einstakl- ingar og húsnæðissamvinnufélög bíða á biðlistum. Því ekki setja handboltahöllina aftast á slíkan lista? Ef ekki er til fiskur í sjónum til að lána námsfólki eða Búseta þá er ekki heldur fiskur til aö byggja handboltahöh. Eða vhl fisk- urinn heldur að byggð sé hand- boltahöll? Ingólfur Á. Jóhannesson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.