Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1990, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. MARS 1990. Utlönd Bretar mótmæla nefskatti Lögregla í Bretlandi handtekur einn þeirra sem tóku þátt i mótmaelunum gegn nefskattinu í gær. Slmamynd Reuter Reíöum og óánægðum Bretum lenti saman viö lögreglu í borgum og bæjum á Bretlandi i gær. Hundruö Breta tóku þátt í mótmælum víöa um land í gær, þriðja daginn í röð, til að láta í ljósi óánægju sína með nýjan skatt sem stjórnvöld hafa samþykkt. Skatturinn, sem er ákveðin upphæð á hvert mannsbam eldra en átján ára, svokallaður nefskattur, tekur gildi í Bretlandi og Wales um næstu mánaöamót. Hann hefur þegar verið inn- leiddur í Skotlandi. Tugir manna víös vegar um Bretland hafa veriöhand- teknir síöustu daga í mótmælum. Hundruð tekin í gíslingu í Kólumbíu Nærri þrjú hundruð manns hafa verið tekin i gislingu í Kólumbíu það sem af er þessu ári. Meðal þeirra sem teknir haía veriö eru Fimm borgar- stjórar og tveir dóraarar. Helsta ástæöa ránanna nú er aö truíla komandi kosningar á sunnudag. íbúar Kólumbíu munu kjósa í bæjar- og sveitar- stjómir auk héraðsþinga. Þá verður einnig ákveðið hver veröí forseta- frambjóðandi stjómarflokksins, Frjálslynda flokksins, í forsetakosning- unum þann 27. maí næstkomandi. Alls hefur 279 manns veriö rænt þar þessa tvo fyrstu mánuöi ársíns, að því er skýrslur lögreglu sýna. Tyrkneskur blaðamaður myrtur Einn þekktasti blaðamaöur Tyrk- lands, Cetin Emec, var myrtur i gær. Hann var skotinn til bana fyr- ir framan hús sitt í Istanbul. Morö- ingjarnir, sem vom að minnsta kosti tveir, hafa ekki fundist og hefur lögreglan fáar vísbendingar um hverjir þeir em. Turgut Özal, forseti 'Tyrklands, hét því í gær að leit yrði hafm að moröingjum Emeric og að þeir yröu dregnirfyrir dóm. Ökumaöur Emerics var einnig myrtur í árás- inni á heimili blaðamannsins í gær. Emeric var þekktur fyrir gagn- rýni sína á múhameðska öfgatrú- armenn og _ öfgahyggju á sviöi stjórnmála. í sinni síðustu blaöa- grein, sem birt var í gær, segist hann óttast að til ofbeldis komi í þjóðfélaginu vegna núverandi Eiginkona tyrkneska blaóamanns- kringumstæðna. ins sem var myrtur i gær. Simamynd Routcr Jöfn barátta í Austur-Þýskalandi Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar um fylgi flokkanna í Aust- ur-Þýskalandi, sem birtar voru í gær, hafa flokkur jafhaðarmanna og kosningabandálag þriggja hægri flokka nærri jafhmikið fylgi. Flokkur jafnaðarmanna fékk 34 prósent sem er mun minrta en hann hlaut í síð- asta mánuði.en þá fékk hann alls 54 prósent atkvæða. Kosningabandalag hægri flokka fékk í könnuninni alls 30 prósent en þaö er næstum helm- ingi meira fylgi en það fékk í síðasta mánuði. Könnunin var gerð á vegum Leipzig-stofnunarinnar. Kommúnistaflokkur Austur-Þýskalands, sem missti valdaeinræöi sitt á síðasta ári, jók aðeins fylgi sitt, úr þrettán prósentum í sautján. Hjariagangrádur í kengúru Læknar hafa sett þjartagangráð í miðaldra kengúru, Skippy, sem dvalist hefur í dýragaröinum í San Francisco. Taliö er aö Skippy sé þar meö fyrsta dýragarðsdýrið í heimi sem í er settur hjartagangráöur. . Gangráðurinn var settur i hina sjö ára gömlu Skippy á mánudag og voru þar þrír sérfræöingar þar að verki. Talsmaður dýragarðsins sagði í gær aö hðan kengurunnar væri ágæt miðað við aðstæður. Mannræningjar úti- loka lausn gísla Samtök múhameöstrúarmanna, Byltingarsamtök réttlætis, tilkynntu í gær að ekki mætti búast við frelsi tveggja bandarískra gísla í Líbanon ef ekki yröi komið til móts við kröfur þeirra. Samtökin segjast vera meö í haldi Bandaríkjamennina Joseph James Cicippio og Edward Austin Tracy. Þau hafa farið fram á lausn íjögur hundruð arabískra fanga og klerks- ins Abdel-Karim Obeid sem gripinn var af ísraelskum hermönnum í júlí í fyrra. í ágúst í fyrra hótuðu samtök- in að myrða Cicippio ef Obeid og arabísku fangamir í ísrael yrðu ekki látnir lausir. Þau drógu hótun sína til baka fyrir tilstilli „vinveittra" þjóða. Ljóst þótti í gær að samtökin væru að svara Rafsanjani, forseta írans, sem hafði sagt að lausn á gísladeil- unni væri í sjónmáli. Talsverð spenna hefur ríkt vegna gíslamálsins undanfarinn mánuð eftir að blaðið Teheran Times í íran, sem er hliö- hollt írönskum stjórnvöldum, hvatti til skilyrðislausrar lausnar gíslanna. Byltingarsamtök réttlætis létu í gær mynd fylgja af Cicippio meö yfir- lýsingu sinni sem afhent var dag- blaöi í Beirút. Cicippio, sem var kennari við bandaríska háskólann í Beirút, var gripinn 12. september 1986. Hann er 59 ára gamall. Talið er að vestrænu gíslarnir séu í haldi í úthverfum í suðurhluta Beirút. Reuter Þessi mynd af bandariska gíslinum Joseph Cicippio var afhent dagblaði í Beirút í gær ásamt yfiriýsingu mannræningja hans um að lausn tveggja gisla þeirra væri ekki í sjónmáli nema gengið yrði að kröfum þeirra. Simamynd Reuter Sovéskir hermenn í Ungverjalandi: Samkomulag í sjónmáli Vamarmálaráðherra Ungverja- lands, Ferenc Karpati, sagöi í gær aö samningar Ungverja og Sovét- manna um brottflutning sovéskra hermanna yrðu undirritaðir á laug- ardag. Snurða hljóp á þráðinn í við- ræöum fulltrúa Ungverjalands og Sovétríkjanna um sovésku her- mennina í Ungverjalandi í síðustu viku þar sem ekki náöist samkomu- lag um tímasetningu brottflutnings- ins. Sovétríkin kröfðust þess að síð- asti maður færi eigi fyrr en í ágúst 1991. í gær sagði Karpati aftur á móti að fyrir lægi samkomulag í öllum grundvallaratriðum. Hann kvaðst bjartsýnn á samninga og sagði engin ljón á veginu. Brottflutningur her- mannanna hæfist innan örfárra daga frá undirritun samnings, sagði ung- verski vamarmálaráðherrann einn- ig í gær. Fyrr um daginn sagðist Ferenc Somogyi, varautanríkisráðherra Ungverjalands, vonast til að allir sovéskir hermenn yrðu farnir frá Ungverjalandi fyrir mitt ár 1991. Hann virtist ekki eins bjartsýnn á samkomulag um næstu helgi eins og varnarmálaráðherrann. Somogyi sagði að Ungverjar myndu undirrita sáttamála um brottflutninginn á laugardag ef Sovétmenn féllust á að honum lyki eigi siðar en 30. júní 1991. Reuter Stefnuyfirlýsing Carlssons: Fátt nýtt um efnahagsaðgerðir forsjá. í fyrsta skipti eftir upplestur stefnuyfirlýsingar forsætisráðherra fóru fram umræður flokksleiðtoga. í þeim var fyrst fjallað um efnahags- vandann en ekki fór að hitna í kolun- um fyrr en farið var að ræða inn- byrðistengsl flokkanna og viðbrögð þeirra við stjórnarkreppunni. Ingvar Carlsson kynti undir með því að nefna klofninginn meðal borgara- legu flokkanna sem komið hefði í veg fyrir stjórnarmyndun þeirra. Niður- staða hans var að bæði skattamál og orkumál heföu staðið í veginum. Kenndi forsætisráðherrann Carl Bildt, leiötoga Hægri flokksins, um hvernig fór þar sem hann hefði haft mestan áhuga á að efla sinn flokk. Hann vilji gleypa bæði Miðflokkinn og Þjóðarflokkinn. Þrátt fyrir allar umræður um efna- hagskreppu hefur hinn nýi fjármála- ráðherra Svíþjóðar, Allan Larsson, vahð þann kostinn að fara ekki harkalega af stað. Hann lætur sér nægja til að byrja með að hækka skatt á áfengi og tóbaki og setja bann við hækkun húsaleigu. Þetta kom fram í stefnuyfirlýsingu stjómar Ing- vars Carlsson í gær. Það verður ekki fyrr en í apríllok sem viðbótartillaga stjómarinnar um úrbætur í efna- hagsmálum verður kynnt. Það sem vakti mesta athygli í stefnuyfirlýsingu nýju sænsku stjómarinnar var utan við svið efna- hagsvandans:. væntanleg tillaga sem vinna á gegn forsjárdeilum foreldra. Ætlunin er að reyna að komast hjá því að aðeins annað foreldranna fái forsjá yfir bami eftir skilnað. Reyna á að aðstoða foreldrana til aö komast að samkomulagi um sameiginlega Ingvar Carlsson, forsætisráöherra Svíþjóðar, las upp stefnuyfirlýsingu nýrrar stjórnar sinnar í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.